Morgunblaðið - 05.05.1996, Qupperneq 12
12 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Hagiir F æreyinga
vænkast
if p i iMírtif j!
KREPPUNNI í Færeyjum
er lokið, að minnsta kosti
opinberlega. Þorskstofn-
inn hefur tekið óvæntan
kipp upp á við, hægt og hægt dreg-
ur úr atvinnuleysi, launagreiðslur
aukast stöðugt, fasteignaverð í
Þórshöfn fer hækkandi og ekki er
lengur fólksflótti úr landi.
Það hefur mikið breyst frá því
fyrir þremur árum, er kreppan stóð
sem hæst. Færeyjingar sáu enga
leið út úr kreppunni aðra en þá að
flýja land og jafnvel var rætt um
það í fullri alvöru að yfirlýsing um
þjóðargjaldþrot væri raunhæfur val-
kostur.
Nú er annað hljóð í strokknum.
Efnahagslífíð rétti úr kútnum á síð-
asta ári og á þessu ári standa vonir
til að uppsveiflan verði nokkur.
Launagreiðslur jukust um 7% á
fyrstu þremur mánuðum þessa árs.
Jafnt landsstjórnin sem æðstu menn
bankakerfisins hafa gefið út opin-
berar yfirlýsingar um að kreppunni
sé lokið.
Það má hins vegar spytja hversu
raunverulegur og ekki síst traustur
þessi efnahagsbati sé, þar sem hann
byggir nær einvörðungu á auknum
þorskveiðum. Sjávarútvegur er und-
irstaða alls í Færeyjum og nemur
útflutningur sjávarafurða 98% af
heildarvöruútflutningi eyjanna, þeg-
ar eldisfiskur er talinn með. 2% eru
vegna frímerkjasölu til útlendinga.
Veiði umfram ráðleggingar
Færeyingar hafa skuldbundið sig,
í samningaviðræðum við Dani, til
að fylgja eftir alþjóðlegum ráðlegg-
inum varðandi heildarveiði. Tvö síð-
ustu ár hafa þeir hins vegar veitt
umfram þær ráðleggingar. Fær-
eyskir sjómenn segja hins vegar að
þeirra stærsti vandi sé að allt sé
fullt af þorski á miðunum í kringum
Færeyjar. Þó að þeir hyggi á veiðar
á öðrum tegundum en þorski verða
þeir að ráða yfir lágmarkskvóta á
Mikil umskipti hafa átt sér stað í færeysku efna-
hagslífi á skömmum tíma. Þorskstofninn virðist
mun stærri en fiskifræðingar áætluðu en hrun
hans var helsta ástæða færeysku kreppunanr.
Steingrlmur Sigurgeirsson kynnti sér ástandið
í Færeyjum, stöðu fiskveiðimála og fyrirhugaðar
breytingar á fyrirkomulagi fiskveiðistjórnunar.
þorski vegna aukafla. Þar sem að
allt er fullt af þorski, eru flestir sjó-
menn löngu búinn með sína kvóta
og liggja fjölmargir bátar því við
landfestar. Annaðhvort verða menn
að hætta veiðum eða þá að bijóta
lögin og henda afla eða umskíra
fiskinn. Það er opinbert leyndarmál
í Færeyjum að töluvert magn af
þorski skiptir um nafn- í erlendum
höfnum. Er nú verið að rétta í þrem-
ur slíkum málum í Færeyjum.
Það er óumdeilanleg staðreynd
og viðurkennd af fiskifræðingum
að mun meira er af þorski á Fær-
eyjamiðum, en spáð hafði verið.
Spár einkennast af óvissu
Jákup Reinert, aðstoðarforstjóri
færeysku hafrannsóknarstofnunar-
innar, segir spár stofnunarinnar
varðandi þorskstofninn einkennast
af ákveðinni óvissu þessa stundina.
„Það hafa átt sér stað það miklar
breytingar í lífríkinu að líkön okkar
ná ekki nægilega vel yfir þær,“ seg-
ir hann.
Þorskstofninn minnkaði verulega
á níunda áratugnum vegna slæmrar
nýliðunar og var í sögulegri iægð í
byijun þessa áratugar. Voru allir
árgangar á árunum 1983-1993 lé-
legir ef árgangurinn 1987 er undan-
skilinn. Ástæðan var breytingar í
lífríkinu auk ofveiða. Upp úr 1990
hrundu hins vegar veiðarnar og
voru á tímabili sambærilegar við
fiskveiðar á meðan á síðari heims-
styijöldinni stóð.
Svo virðist sem lífríkið hafi byijað
að ná jafnvægi á ný 1991-1992 og
svifmagn í sjónum jókst.
„Við erum nú komin með einn
góðan árgang en það skýrir ekki
þá aukningu, sem greinilega hefur
orðið á stofninum. I fyrstu var talið
að fiskurinn væri einungis aðgengi-
legri en áður. Þar sem að þetta
hefur haldið áfram ailt fram á þetta
ár er þó ljóst að um raunverulega
aukningu er að ræða, um það eru
allir sammála. Ef fyrri spár hefðu
verið réttar og þorskurinn einungis
aðgengilegri nú væri búið að veiða
alian stofninn. Einfaldasta skýring-
in væri sú að um væri að ræða
þorsk er gengið hefði af íslandsmið-
um eða úr Barentshafi. Sú er hins
vegar ekki raunin og við sjáum vöxt
í öllum árgöngum. Við göngum nú
út frá þeirri kenningu að þorskurinn
hafí sjálfur gripið til friðunarað-
gerða og dreift sér um mun stærra
svæði en dæmi eru um áður vegna
minna ætis í sjónum. Þegar svif
eykst á ný þjappar hann sér aftur
saman.“
Reinert segir færeyska fiskifræð-
inga því vera í þeirri ánægjulegu
stöðu að hafa verið of varfærnir í
spám sínum. En hvað olli þessari
breytingu í lífríkinu? Það vita menn
ekki fyrir víst þó nokkuð öruggt sé
að hafstraumarnir skiptu mestu
máli. Sumir tengja þetta við að
Golfstraumurinn hafi verið veikari
á þessu tímabili og aðrir benda á
að kaldir straumar úr Barentshafi,
sem venjulega halda sig í nokkurri
fjarlægð frá Færeyjum fóru alveg
upp að ströndum þeirra. Einnig eru
uppi getgátur um að öflugir haf-
straumar og mikill vindur á árunum
1988-89 hafi svipt æti í kringum
Færeyjar í burtu. Undir eðlilegum
kringumstæðum tryggja haf-
straumar að æti í lífríkinu haldist á
ákveðnu svæði.
Hefur náð
ásættanlegri stærð
En hvað sem öllum vangaveltum
líður segja fiskifræðingar ijóst að
þorskstofninn sé nú búinn að ná
ásættanlegri stærð þó svo að þeit'
mæli með því að menn sýni aðgát
þar til hin raunverulega stofnstærð
liggur fyrir. Enn sem komið er þá
er 93-árgangurinn eini góði árgang-
urinn, sem vitað er um og ýmislegt
bendir til að árgangarnir 1994 og
1995 séu ekki jafnstórir.
Þrýstingurinn á auknar veiðar er
hins vegar gífurlegur og tilhneiging-
ar hefur gætt hjá stjórnmálamönn-
um að láta undan þeim þrýstingi.
Undanfarin tvö ár hafa veiðar verið
í algjöru hámarki miðað við ráðlegg-
ingar fiskifræðinga.
Fyrir rúmum tveimur árum var
tekið upp kvótakerfi á Færeyjum
en þegar frumvarp þess efnis var
samþykkt í Lögþinginu þá var
ákvæði um að kvótarnir yrðu fram-
seljanlegir fellt úr. Það hefur haml-
að nauðsynlegri hagræðingu í fær-
eyskum sjávarútvegi og er að auki
ekki nógu sveigjanlegt að mati
margra.
Á síðasta ári var skipuð nefnd til
að vinna tillögur að nýju skipulagi
fiskveiðistjórnunar og var það niður-
staða hennar, að taka bæri upp eins
konar sóknarstýringu. Frumvarpið
nýtur stuðnings jafnt flestra stjórn-
málamanna sem hagsmunaaðila og
er nú til meðferðar hjá Lögþinginu.
„Grundvöllur þessa kerfis, það er
hversu mikið má veiða, er sá sami
og í kvótakerfinu. Við förum eftir
alþjóðlegri ráðgjöf fiskifræðinga en
umreiknum tonnaflöldann yfir í
veiðidaga,“ segir Ivan Johanessen,
sjávarútvegsráðherra Færeyja.
Veiðidögunum verður síðan úthlutað
á grundvelli veiðreynslu síðustu tíu
ara.
Ókostir kvótakerfis
„Helsti ókostur kvótakerfisins var
að það kom ekki í veg fyrir að fiski
væri hent fyrir borð. Veiðidagakerf-
ið hefur enga slika ókosti. Það er
nauðsynlegt að fiskveiðistjórnunin
tryggi-að öllum fiski sé landað."
Næsta kvótaár átti að heijast
þann 1. september nk. en sam-
kvæmt þeirri tillögu sem nú er ver-
ið að ræða mun fyrsta veiðidaga-
tímabilið hefjast þann 1. júní og
vara í fimm ársfjórðunga eða til 31.
ágúst 1997.
„Við sjáum nú fram á að nær
allir bátar i Færeyjum munu liggja
við landsfestar innan skamms vegna
kvótaleysis. í litlu samfélagi sem
byggist 99% á fiskveiðum er ekki
hægt að láta flotann liggja aðgerða-
lausan mánuðum saman,“ segir
Johannessen.
Eiginkonur valdamanna
í Rússlandi hafa að öllu
jöfnu lítið verið í sviðs-
Ijósinu. Þessu hefur
Borís Jeltsín forseti nú
breytt og Naína kona
hans lýsir heimilislífinu
í viðtölum í von um það
gagnist bóndanum í
kosningabaráttunni.
ÞEGAR Borís Jeltsín Rúss-
landsforseti kemur heim eft-
ir erfiðan vinnudag í Kreml
er það eiginkonan, Naína, sem tekur
á móti honum og stjanar við hann.
Hún hugar að fötunum, ijarlægir
pennann og dagbókina, oft finnur
hún launin hans í einum vasanum.
„Þegar hann fær launin stingur
hann þeim í bijóstvasann, ég strauja
fötin hans og þá fjarlægi ég pening-
ana,“ segir hún. „Ef launin eru ekki
í vasanum hefur hann ef til vill eytt
þeim í gjafir. Ég spyr einskis".
Forsetaframbjóðendur í Rúss-
Iandi leita nú allra leiða til að treysta
stöðu sina. Kommúnistinn Gennadí
Zjúganov hefur mest fylgi í flestum
skoðanakönnunum fyrir kosning-
arnar sem verða í júni en baráttan
fer mjög harðnandi. í grein í Inter-
national Herald Tribune segir að
Jeltsín, sem hefur sótt sig mjög í
könnunum að undanförnu, reyni nú
að láta sem mest á fjölskyldu sinni
bera. Eiginkona hans er verkfræði-
menntuð eins og Jeltsín, þykir lítil-
lát og jafnvel auðmjúk gagnvart
Forsetaframbjóðendur í Rússlandi huga að ímyndinni
Eiginkona Jeltsíns
höfðar til íhaldssamra
kjósenda
NAINA Jeltsín (t.h.) sést hér smyija samlokur með Bar-
böru Bush, þáverandi forsetafrú í Bandaríkjunum, er rúss-
nesku forsetahjónin heimsóttu Bandaríkin. Stjórnmála-
skýrandi í Moskvu segir að Naína Jeltsín sé hin dæmi-
gerða, rússneska eiginkona í augum margra kjósenda.
Hún höfði til íhaldssemi þeirra og minni meira á Barböru
Bush en Hillary Clinton.
Fegruð mynd
bónda sínum, sýnir
honum algera holl-
ustu og aðdáun.
Margir Rússar
kenna Jeltsín um
versnandi lífskjör á
flestum sviðum síð-
ustu árin, glæpafárið
í borgunum og van-
mátt ríkisins á al-
þjóðavettvangi. Það
vakti á sínum tíma
mikla athygli er Na-
ína sagðist hafa verið
því andvíg að hann
byði sig fram á ný.
„Forsetinn hefur
þrælað sér út fyrir
Rússland,“ sagði
hún. „Hann tók við
ríki með tóma sjóði.
Mannréttindi voru
engin, löggjöf í mol-
um. Hann varð að
strita til að reisa
landið við“.
Ljóst var að hún óttaðist um
heilsu Jeltsíns sem hefur fengið
nokkur hjartaáföll. Er forsetinn
ákvað samt sem áður að bjóða sig
fram til endurkjörs var stuðningur
Naínu ótvíræður, þrátt fyrir fyrri
efasemdir.
Fjölskylduímyndin sem verið er
að búa til er sykursæt og dauð-
hreinsuð af allri gagnrýni sé miðað
við vestrænar hefðir. Ekkert er
minnst á hjartveiki Jeltsíns eða
drykkjuskap hans,
með öliu er óljóst hve
mikil áhrif eiginkon-
án hefur á forsetann.
Rússneskum almenn-
ingi finnst samt sem
áður allmikið til um
þessa umfjöllun
vegna þess að engin
hefð er fyrir því að
einkalíf valdahaf-
anna, hvort sem var
í tíð kommúnista eða
keisara, væri til sýnis
með þessum hætti.
Raisa Gorbatsjov,
eiginkona síðasta
sovétforsetans, var
raunar mjög í sviðs-
ijósinu um árabil en
mörgum Rússum
fannst hún of ágeng
og yfirlætisleg.
Naína Jeltsín er af
öðrum toga, forseta-
hjónin hafa miklu
fremur yfirbragð alþýðufólks.
Áðurnefndar athugasemdir Na-
ínu um fatnað eiginmannsins komu
fram í 12 mínútna löngu sjónvarps-
viðtali hjá sjálfstæðu stöðinni NTV
sem styður Jeitsín en hundsar að
mestu Zjúganov. Einlægni forseta-
frúarinnar og tilgerðarleysi þóttu
koma vel í ljós. Hún var hefðbundin
í klæðaburði, sat með tebolla og
rabbaði um eigimanninn og almenn-
ing í landinu, sagði frá sumarleyfum
fjölskyidunnar, útilegum og róðrar-
ferðum. Hún lýsti matargerðarlist
Jeltsíns, - honum finnst gaman að
elda fylltan fisk - og sagði með
hrifningu frá því hve áhugasamur
hann væri um að leggja á borð.
Venjulegl land
„Ef búinn er til mælikvarði með
Hillary Clinton á öðmm endanum
ög Barböru Bush á hinum held ég
að Naína Jeltsín sé miklu nær Bar-
böru Bush,“ sagðf Leoníd Gozman,
pólitískur ráðgjafi Jegors Gajdars,
fyrrverandi forsætisráðherra. „Ra-
ísa var ekki mjög vinsæl í Rúss-
landi á sama hátt og Hillary vekur
mjög blendnar tilfinningar í Banda-
ríkjunum. Ég hygg að Naína reyni
að hjálpa honum [Jeltsín] með því
að höfða sem mest til íhaldsamra
kjósenda. Hún er íhaldssöm í útliti.
Hún er hefðbundin rússnesk kona,
amma, ekki virk í stjómmálum. Hún
býr sjáif til matinn heima hjá sér.“
Gozman er ánægður með að fjöl-
skyldumál forsetans séu sett í önd-
vegi „ekki vegna þess að það tryggi
forsetanum sigur en Rússland virð-
ist nú vera að líkjast æ meir venju-
lega landi. Það er eðlilegt fyrir þjóð-
arleiðtoga að sýna að hann sé hluti
af fjölskyldu".
Yngsta dóttir þeirra hjóna, Tat-
iana Jeltsín, hefur nú tekið til starfa
á kosningaskrifstofu hans og gegnir
starfi ráðgjafa. Hafa stjórnmálaský-
rendur velt því fyrir sér að fjölskyld-
an hafi haft áhyggjur af því að for-
setinn fengi slæma ráðgjöf. „Ég
verð alls staðar - hvarvetna þar sem
veikur hlekkur finnst“, sagði Tat-
iana í viðtali við tímaritið Ogonjok.