Morgunblaðið - 05.05.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996 13
Karl Gústaf Svíakonungur fimmtugur
Konungurinn sem
vildi helst verða bóndi
Karl Gústaf Svíakóngur hélt í nýliðinni viku
upp á fimmtugs afmæli sitt. Konungur átti
í upphafi erfitt með konungshlutverkið, en
hefur síðan unnið hug og hjarta landa sinna.
Afmælið gefur einnig tilefni til að huga að eðli
konungdæmis á okkar dögum, eins og Sigrún
Davíðsdóttir rekur hér á eftir.
Reuter
KARL Gústaf blæs á kertin á afmælistertunni. Á meðan konungs-
fjölskyldur víða í Evrópu eiga undir högg að sækja nýtur sú
sænska mikilla vinsælda meðal almennings, sem fagnaði ákaft
50 ára afmæli konungs.
ÞESSUM síðustu tímum
hefur enn ekki frést um
konung, sem í raun langaði
að verða konungur. Þetta er
hremming, sem menn fæðast til og
þeir konungbornu eru sammála um
að það séu ekki eftirsóknarverð
örlög. Karl Gústaf Svíakonungur
missti föður sinn þegar hann var á
fyrsta ári, varð konungur 26 ára
gamall og átti í mesta basli með
sjálfan sig og hlutverk sitt. Hann
var lesblindur þegar lesblinda var
óþekkt hugtak og lestrarörðugleik-
ar hans voru álitnir stafa af greind-
arskorti. Svo lítið álit hafði hann á
sér að rætt var um að leggja emb-
ættið niður og koma á lýðveldi. Það
varð þó ekki úr, en með stjórnar-
skrárbreytingum eftir að hann
komst til valda er hann valda-
minnsti konungur Evrópu. Eftir
stirðlega byijun á konungsstóli er
hann nú vinsælasti Svíinn sam-
kvæmt skoðanakönnunum.
Litli prinsinn í hópi
fjögurra prinsessa
Carl XVI. Gustav Folke Hubertus
var fimmta og yngsta bam þýsku
prinsessunnar Sybillu og Gústavs
Adolfs prins. Fyrst fæddust þeim
hjónum fjórar dætur, svo þegar
fimmta barnið var á leiðinni var
spenningurinn mikill hvort tækist
að tryggja ríkiserfðirnar. En gleði
fjölskyldunnar entist ekki lengi, því
níu mánuðum eftir fæðingu prinsins
lést faðir hans í flugslysi á Kastrup-
flugvelli við Kaupmannahöfn, þar
sem hann millilenti á leið heim eft-
ir veiðiferð í Hollandi. Þar með varð
prinsinn annar í ríkiserfðaröðinni.
Prinsinn var kátur og glaður
strákur, en átti erfitt uppdráttar í
skólanum þó ekki uppgötvaðist fyrr
en löngu síðar að hann var lesblind-
ur. Heima fyrir bjó hann við
kvennafans móður og fjögurra
systra, en Gústaf Adolf sinnti hon-
um eftir mætti. Þegar prinsinn varð
13 ára tók hann þá ákvörðun að
fara í heimavistarskóla og hefur
síðar sagt að það hafi verið gott
að sleppa heiman frá, þó það hafi
þótt djörf ákvörðun að hverfa að
heiman svo ungur.
Með árunum fékk hann á sig
þunglyndislegt yfirbragð og virtist
eiga erfitt með að blanda geði við
fólk eins og ætlast er til af þjóðhöfð-
ingja. Christina systir hans þótti
hins vegar bæði vel gefin og kom
vel fyrir, svo því var iðulega hvíslað
að betur hefði farið á að hún yrði
þjóðhöfðinginn og ekki bróðirinn.
Einhleypur konungur með
áhuga á stelpum og sportbílum
Gústaf Adolf lést 1973 og þá
blasti konungdómurinn við hinum
27 ára gamla prins. í áratugi höfðu
aldraðir menn setið á konungstóli
í Svíþjóð, svo margir voru tor-
tryggnir á unga prinsinn. Ekki
bætti úr að hann var einhleypur,
hafði orð á sér fyrir að hafa áhuga
á steipum og hraðskreiðum bflum
en síður á alvarlegri hlutum. Orð-
blinda hans var feimnismál. Fyrsta
árið í konungsstól var prinsinum
fjarska erfítt. Hann þótti áhugalít-
ill um embættið, fjarrænn og inni-
lokaður og sökum orðblindu átti
hann jafnvel til að skrifa nafnið
sitt vitlaust. Um hann og axarsköft
hans gengu heilu sagnabálkarnir.
Blöðin vöktuðu kvennamál hans
og ýmsar stúlkur voru tilnefndar. Á
Ólympíuleikunum 1972 kynntist
hann Silviu Renötu Sommerlath,
sem átti þýskan föður en brasilíska
móður og var af viðskiptamönnum
komin. Hún var falleg, vel gefin,
kunni mörg tungumál og hafði fág-
aða framkomu. Þau gengu í hjóna-
band 1976 eftir 4 ára tilhugalíf og
það er enginn í vafa um að það er
ekki síst Silvíu drottningu að þakka
að vinsældir og virðing konungsfjöl-
skyldunnar hafa aukist. Hún hefur
alla þá hæfileika á mannamótum,
sem eiginmanninn skortir og af því
nýtur hann góðs.
Konungur á tímum
alþjóðavæðingar
En nú þegar kóngafólk í Evrópu
er uppáhalds viðfangsefni sorpblaða
vaknar auðvitað spurningin hvert
sé hlutverk þess í samtímaþjóðfé-
lagi. Sjálfur segir Svíakonungur að
hann álíti hlutverk konungs fremur
hafa vaxið en hitt á tímum alþjóða-
væðingar. Með samruna og sam-
göngum hafi þörf þjóða á eigin
viðmiðun vaxið og þar geti konung-
ur gegnt mikilvægu hlutverki sem
ópólitískt sameiningartákn. Hann
bendir á að Sviþjóð sé orðið marg-
menningarsamfélag og því þörf á
viðmiðunum, sem allir geti samein-
ast um og konungdæmið sé slík
viðmiðun.
Þó Svíakonungur sé valdaminnsti
konungur Evrópu er hann ekki
skoðanalaus. Hann hefur vakið at-
hygli fyrir að tala skorinort um
gagnsemi og gildi Evrópusam-
bandsins og samruna Evrópu, þó
það geti engan veginn talist ópóli-
tískt umræðuefni. Enginn efast um
að hann er einlægur Evrópusinni.
Hann hefur fundið sér sína syllu
til að taka þátt í dægurumræðum.
Hann er náttúruunnandi og lætur
til sín taka á sviði náttúruvemdar
og umhverfismála. Einnig hefur
hann tekið til máls um málefni
barna og vaxandi ofbeldi meðal
ungs fólks.
Að því leyti er Karl Gústaf í
nánd við almenning og sænska
umræðu og virðist í mun betri og
meiri tengslum við Svía heldur en
til dæmis Margrét Danadrottning,
sem talar helst aðeins um menning-
armál. Karl Gústaf hefur hins vegar
lítinn áhuga á menningarmálum,
en er því áhugasamari um útivist.
Ef hann hefði getað valið hefði
hann vísast orðið bóndi, hefur hann
sagt.
Með árunum hefur stirðbusasvip-
urinn horfið af honum fyrir góð
áhrif drottningar hans. í hópi vina
er hann þekktur æringi, stríðinn
og gantast gjarnan. Sagt er að
Bernadottarnir þroskist seint og um
það gæti Svíakonungur verið gott
dæmi. Ef svo fer fram sem horfir
og hann fær við hlið sér glaðlega
og greinda krónprinsessu verður
seint hreyfing meðal Svía í þá átt
að leggja konungdæmið niður.
TIL HAMINGJU ALLIR STOLTIR
NÝIR BALENO EIGENDUR!
ÍBALENO
AUKNINGINISÖWHEIÐIJR
ÁFRAM:ÍDAG ERU125 SELDIR!
SUZUKI
Afl og öryggi •
115
%
VR/
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.
Vandaður 5-dyra BALENO fyrir aðeins 1.140.000,-kr.
4-dyra BALENO fólksbíll fyrir aðeins 1.265.000,- kr.
MEÐ: 86 hestafla 16 ventla vél • vökvastýri • veltistýri •
samlæsingum • rafdrifnum rúðuvindum • rafstýrðum
útispeglum • útvarpi/segulbandi með 4 hátölurum • upp-
hituðum framsætum • öryggisloftpúðum fyrir ökumann
og farþega í framsæti • styrktarbitum í hurðum • sam-
litum stuðurum. Komdu við í dag og við skulum sýna
þér af hverju nýir eigendur
eru svo ánœgðir með Suzuki
Baleno sem hefur slegið svo
rcekilega í gegn 1996 1