Morgunblaðið - 05.05.1996, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
„Do it“
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir/
I) a g s I j 6 s /
Morgunblaöið
BLÖNDUÐ TÆKNI
Samsýning. Opið kl. 10-18 alla
daga til 12. maí. Aðgangur 300 kr.
(gildir á allar sýningar).
Sýningarskrá 200 kr.
MARGAR nýjungar í nútímalist
síðustu áratuga hafa átt erfitt með
að ná til almennings, og má þar
einkum kenna um lélegri list-
fræðslu til að byggja á. Hugmynd-
alist hefur t.d. oftar en ekki fengið
á sig neikvæðan blæ, þar sem for-
sendurnar hafa verið framandi og
listafólk jafnvel lagt lítið upp úr
því að hjálpa almenningi að nálg-
ast hið nýja í listinni.
Þetta hefur verið að breytast um
nokkurt skeið hér á landi jafnt sem
erlendis. Bæði fer listfræðsla batn-
andi, fjölmiðlar eru að verða örlítið
virkari þátttakendur í henni, og
listasöfn hafa lagt vaxandi áherslu
á að þau séu þjónustustofnanir fyr-
ir allan almenning, ekki aðeins fyr-
ir hina innvígðu.
Það er úr þessum jarðvegi sem
hugmyndin að „Do it“ er sprottin.
Fyrirmælaverkin eru hluti af hug-
myndalist samtímans og hafa lengi
verið til, en fyrst og fremst í stöku
formi einstakra verka þekktra lista-
manna. Hans Ulrich Obrist, ungur
safnstjóri í Austurríki og Frakk-
landi, er maðurinn að baki þeirri
skipulegu framsetningu fyrirmæla-
verka, sem hér eru unnin í sam-
vinnu við rúmlega fimmtíu lista-
NÚ STENDUR yfir kynning á
listmunum Guðbjargar Kára-
dóttur í galleríi Smíðar & skart
á Skólavörðustíg 16A.
Guðbjörg leggur áherslu á
nytjalistmuni og hefur meðal
annars sérhæft sig í vinnslu
matar- og kaffistella. Hún lauk
menn frá öllum heimshornum. Tólf
verk eru sett upp í vestursal Kjar-
valsstaða eftir fyrirmælum þeirra,
á annan tug verða sýnd í sjónvarpi
og tæplega þrjátíu birtast á síðum
þessa blaðs yfir sýningartímann.
Hér má finna ýmis þekkt nöfn
í hópi þátttakenda, og nægir að
nefna Ilya Kabakov, Alison Know-
les, Bertrand Lavier, Allan Kaprow,
John Baldessari, Nam June Paik,
Yoko Ono, Damien Hirst og Gilbert
& George til sögunnar. Slíkir aðilar
leggja þessu framtaki tæpast lið
nema vegna þess að þeim þyki það
verðugt, en alls munu nú um eitt
hundrað og þijátíu listamenn vera
orðnir þátttakendur í „Do it“ sýn-
ingum sem Obrist hefur haft for-
göngu um.
Framkvæmd sem þessi vekur
upp ýmsar spurningar um eðli list-
ar og hlutverk þeirra sem að henni
koma. Hefðbundin myndlist gerir
ráð fyrir því að sá sem á frumkvæð-
ið að listsköpuninnni, á hugmynd-
ina að listaverkinu og skapar það
sé einn og sami aðilinn, þ.e. mynd-
listarmaðurinn. Hér eru þessi hlut-
verk brotin upp í þátt þess sem á
frumkvæðið (sýningarstjórans),
hugmyndina (listamannsins), þess
sem framkvæmir (sem stundum er
tilgreint af hugmyndasmiðnum, en
gæti í öðrum tilvikum verið hver
sem er) - og sá sem á að njóta
þessa alls, gesturinn, getur greini-
lega komið inn í þetta síðasta hlut-
námi frá Myndlista- og handíða-
skóla íslands árið 1994, hún
hefur einnig farið í námsdvöl
erlendis. Kynningin á verkum
Guðbjargar stendur til 21. maí
og er opin á verslunartíma frá
kl. 11-18 virka dagaog 11-14
laugardaga.
verk. Og næsta spurning er aug-
ljós: Getur þá „hver senr er“ verið
listamaður?
Mikil þátttaka í sköpun lista-
verks hefur ekki verið hefðbundin
í myndlist, en er talin sjálfsögð í
öðrum greinum. Tónlist er afrakst-
ur hugmyndar (tónsmíðar) og
framkvæmdar (flutnings); bæði
tónskáld og tónlistarfólk er skil-
greint sem listamenn. Leiklist er
samsvarandi afrakstur hugmyndar
(leikritunar) og framkvæmdar
(flutnings); leikskáld, leikarar, og
leikstjórar eru viðurkenndir sem
listamenn. Annars staðar er vafinn
meiri; rithöfundar (hugmyndasmið-
irnir) eru taldir listamenn, en bóka-
gerðarmenn (þeir sem þó færa
hugmyndina í form) síður; arkitekt-
ar eru taldir listamenn, en bygging-
ariðnaðarmenn ekki.
Skilningur okkar á tengslum
hugmynda og framkvæmdar list-
sköpunar reynast þannig nokkuð á
reiki, og „Do it“ vekur athygli á
þessari tvíræðni með því að nýta
hana við framkvæmdina. í dæmun-
um um tónlist, leiklist og bygging-
arlist er hins vegar oftast gert ráð
fyrir að njótandinn, gesturinn, sé
aðgerðarlaus - listin kemur til hans.
Hér er hins vegar, verið að færa
listina til fólksins í þeim skilningi
að “hver sem er“ getur orðið þátt-
takandi með því að fylgja fyrirmæl-
um einstakra verka sér og öðrum
til skemmtunar.
KVIKMYNPIR
Iláskólabíó
VAMPÍRA í BROOKLYN
„Vampire In Brooklyn" ★
Leikstjóri: Wes Craven. Handrit:
Charles Murphy, Michael Lucker og
Chris Parker. Aðalhlutverk: Eddie
Murphy, Angela Bassett, Allen Pa-
yne, Kadeem Hardison, Zakes
Mokae. Paramount. 1995.
GAMANHROLLVEKJUR eru
viðsjárverð kvikindi og hafa ekki
heppnast sérlega vel í seinni tíð.
Annars vegar er búin til hrolivekj-
andi spenna og hins vegar hryll-
ingsblandað gaman en þetta tvennt
nær yfirleitt ekki að vinna saman.
Útkoman er hvorki hrollvekja né
gamanmynd heldur einhver
óspennandi og ómerkileg blanda
af hvoru tveggja. Þannig bastarður
er nýjasta mynd Eddies Murphys,
Vampíra í Brooklyn, sem meistari
unglingahrollvekjunnar, Wes Cra-
ven, leikstýrir.
Ekki bætir úr skák að sagan er
að nokkru leyti fengin úr annarri
og betri Murphymynd, nefnilega
„Coming to America“. Þar lék
hann afrískan prins sem fann sér
konu í Bandaríkjunum. I vampíru-
myndinni leikur hann prins
myrkraaflanna sem kemur til
• LEIÐBEININGAR um alhliða
kynfræðslu ískólum er komin
út. Bókin er þýðing úr ensku á
Guidelines for Comprehensive
Sexuality Education og er þýð-
andinn Jóna Ingibjörg Jónsdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur og
fræðslustjóri Kynfræðslumiðstöðv-
ar Heilsuverndarstöðvar Reykja-
víkur.
Bókin samanstendur af leiðbein-
ingum sem settar voru saman af
bandarískum vinnuhópi sem skip-
aður var fremstu sérfræðingum í
kynferðis-, heilsufars- og uppeldis-
í sýningarskrá er að finna heild-
aryfirlit yfir öll svið þessarar fram-
kvæmdar, þ.e. þau fyrirmæli sem
fylgt er á sýningunni á Kjarvalsstöð-
um, í Morgunblaðinu og tilvísanir í
sjónvarpsfyrirmælin. I raun er skrá-
in ekki aðeins heimild um sýningar-
haldið, heldur gestum einnig nauð-
synlegur þáttur þess; með hana í
hendi er auðvelt að meta á hvern
hátt fyrirmælunum hefur verið
framfylgt, og jafnvel hægt að sinna
þeim á eigin forsendum.
Það er helsti veikleiki þessa
framtaks, að fyrirmælin eru ekki
öll jafn áhugaverð, og á stundum
óþarflega flókin. Hin bestu eru
stutt og hnitmiðuð; á Kjarvalsstöð-
um má nefna fyrirmæli Mariu
Eichhorn, Ilya Kabakov og
Bertrand Lavier (sem er um leið
ágætt skot á listgagnrýnendur); í
dagblaðsformi má benda á fyrir-
mæli Hugo Suder, Allan Kaprow
og Ugo Rondinone, og í sjónvarpi
hafa fyrirmæli Gilbert & George
og Michelangelo Pistoletto borið
af (hingað til).
Það er ágæt rúsína í enda þessar-
ar margþættu pylsu að vísa til
raunveruleika, setn þó er einnig á
jaðri hins fáránlega. íþróttafólk
kannast við vörumerki sem á sér
svipað slagorð og heiti sýningarinn-
ar, og við útganginn á Kjarvals-
stöðum hefur verið komið fyrir ein-
taki af þeim flottasta (og dýrasta)
fótabúnaði sem framleiddur er und-
ir þessu heiti. Þyki mönnum fyrir-
mælaverkin skorta jarðsamband,
þá ætti þessi viðbót að sannfæra
hvern sem er um að það er aðeins
spurning um viðhorf - annað ekki.
Eiríkur Þorláksson
Bandaríkjanna að leita sér að
kvonfangi. í fyrrnefndu myndinni
tók Murphy á sig ýmis skemmtileg
gerfi með hjálp förðunarmeistara
og það sama gerir hann hér. Kon-
an sem hann girnist sem vampíra
er leikin af Angelu Bassett. Hún
hefur þó einhveija leikhæfileika
sem gleðja augað og það ætti eng-
um að koma sérstaklega á óvart
að hún gerir meira fyrir þessa
mynd en myndin gerir fyrir hana.
Handritið er skrifað meira af vilja
en mætti og efnistökin eru lítt frum-
leg. Murphy er pinnstífur sem
svartur Drakúla og berar tennurnar
sannfærandi; líklega er Ieitun að
svalari Drakúla. Eins og klisjan
kennir okkur þolir hann ekki dags-
ljósið, býr í kistu, er ekki kirkjusæk-
inn og hræðist tréfleyga. Murphy
lætur aðstoðarmann Drakúla um
gamanið sem snýst að mestu leyti
um hvernig andlitið dettur smátt
og smátt af honum. Ekkert er
spennandi í myndinni þrátt fyrir
nokkra tilburði Cravens í þá veru
að skapa ódýran hroll. Ekki er hún
heldur fyndin svo neinu nemur.
Ferill Eddie Murphy hefur nú
um langt skeið verið mjög á niður-
leið og með sama áframhaldi verð-
ur hann gleymdur og grafinn um
ókomna tíð.
Nýjar bækur
málum. í þýðingu leiðbeininganna
var leitast við að laga þær að ís-
lenskum aðstæðum og í því skyni
var leitað til ýmissa einstaklinga,
félagasamtaka, opinberra stofnana
og embætta.
Bókin er 74 blaðsíður í A-4
stærð og skiptist í kaflana: Mark-
mið og lífsgildi, Uppbygging leið-
beininganna og nýting þeirra,
Þroskaferli mannsins, Sambönd,
Persónuleg .færni, Kynhegðun,
Kristján
Jóhannsson
með Sin-
fóníuhljóm-
sveitinni
SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ís-
lands flytur í næstu viku óper-
una Otello eftir Giuseppe Verdi
í konsertuppfærslu í Háskóla-
bíói. Verður það gert í tvígang:
Fimmtudaginn 9. maí kl. 20.
oglaugardaginn ll. maíkl. 17.
í titilhlut-
verki verðut'
Kristján Jó-
hannsson
tenór og
verður þetta í
fyrsta sinn
sem hann
syhgur hlut-
verk Otellos.
Önnur hlut-
verk verða í
höndum Luciu Mazzaria, An-
tonio Marceno og Alan Titus
sem koma frá Ítalíu og íslensku
söngvaranna Alinu Dubik,
Lofts Erlingssonar, Jóns Rún-
ars Arasonar og Sigurðar
Skagfjörð Steingrímssonar. Þá
hefur Kór íslensku óperunnar
stóru hlutverki að gegna.
Hljómsveitarstjóri verður Rico
Saccani.
Tónlistarvor í
Fríkirkjunni
TÓNLEIKAR helgaðir hljóð-
færaleik, þeir fyrstu af þremur
tónleikum í tónleikaröð sem
nefnd er Tónlistarvor Fríkirkj-
unnar, verða haldnir í Fríkirkj-
unni þriðjudaginn 7. maí næst-
komandi kl. 20.30.
Flytjendur eru Auður Haf-
steinsdóttir fiðla, Ilka Petrova
þverflauta, Violeta Smid orgel
og Pavel Smid orgel.
Burtfarar-
próf í Lista-
safni Islands
TÓNLEIKAR verða haldnir á
vegum Tónlistarskólans í
Reykjavík í Listasafni íslands,
þriðjudaginn 7. maí kl. 20.30.
Tónleikarnir eru burtfararpróf
Hrafnkels
Orra Egils-
sonar selló-
leikara frá
skólanum.
Kristinn Örn
Kristinsson
leikur með á
píanó.
Á efnis-
Hrafnkell skrá eru
Orri Egilsson Svíta nr. 2 í
d-moll BWV 1008 fyrir ein-
leiksselló eftir J.S. Bach, Són-
ata fyrir selló og píanó nr. 3
í A-dúr op. 69 eftir Beethoven,
Tilbrigði um slóvakískt þjóðlag
eftir Martinu og Sónata fyrir
selló og píanó í g-moll op. 65
eftir Chopin.
Aðgangseyrir er 300 kr.
Kynlífsheilbrigði, Menning og
samfélag. í viðauka er heimilda-
skrá yfir íslenskt efni í kynfræðslu.
Leiðbeiningarnar eru fyrstu til-
lögur sem lagðar eru fram hérlend-
is að ramma, eða grunni, fyrir al-
hliða kynfræðslu í skólum. Kennar-
ar geta notað leiðbeiningarnar sem
fræðilegan grundvöll kennslu.
Einnig geta þær komið að gagni
í námi kennara eða starfsþjálfun.
Bókin kostar 1.000 kr. og ertil
sölu á Heilsuverndarstöð Reykja-
víkur, Barnónsstíg 47,101 Reykja-
vík. Þar máeinnig panta hana.
%
%
TÓNLISTARNÁMS
Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á
þessu ári veita tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms
erlendis á næsta skólaári, 1996-1997.
Mittur verður einn styrkur að upphæð 500.000 kr.
Verður þetta fimmta úthlutun sjóðsins.
U msóknir með upplýsingum um námsferil og fram-
tíðaráform sendist fyrir 15. maí nk. til formanns
sjóðsins:
Erlendar Einarssonar
Selvogsgrunni 27
104 Reykjavík
Umsóknum fylgi híjóðritanir.; raddskrár frumsaminna
verka og/eða önnur gögn sem sýna hœfni umscekjanda.
LISTMUNIR eftir Guðbjörgu.
Guðbjörg sýnir í Smíðar & skart
Blóðsuga
í Brooklyn
Arnaldur Indriðason