Morgunblaðið - 05.05.1996, Side 20
20 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
HUGMYNDIN með stofnun Nor-
ræna fjátfestingabankans,
NIB, á sínum tíma var að
auðvelda norrænum lántökum
hagstæða lánsöflun á alþjóða-
mörkuðum. Þetta hefur gengið eftir
þar sem bankinn hefur hæsta láns-
mat hjá alþjóðlegum matsfyrirtækj-
um eins og Moody’s og Standard &
Poor. Hvað íslendingum viðvíkur þá
hafa þeir tekið níu prósent af heild-
arútlánum bankans og bankinn _er
stærsti erlendi lánveitandinn á ís-
landi, þannig að 11-12 prósent af
erlendum skuldum íslendinga eru
við bankann. Jón Sigurðsson, aðal-
bankastjóri Norræna fjárfestinga-
bankans, sat á sínum tíma í undir-
búningsnefnd að stofnun hans fyrir
meira en tuttugu árum, sat í stjórn-
arnefnd hans fram til 1987, en tók
við stjórn hans í ársbytjun 1994.
Höfuðstöðvar Norræna fjárfestinga-
bankans eru í Helsinki í Finnlandi.
Sylla í fuglabjargi
heimsviðskiptanna
Að sögn Jóns Sigurðssonar er
verkefni bankans að veita fjárfest-
ingarlán til að efla hagvöxt á Norð-
urlöndum og þá um ieið atvinnulífíð
með samþættingu þess. Verkefnin,
sem fjármögnuð eru, má flokka í sex
flokka: Samstarf eða samruna fyrir-
tækja yfir landamæri, innviðafram-
kvæmdir, einkum á sviði samgöngu-
og orkuframkvæmda, umhverfís-
bætandi framkvæmdir, rannsóknar-
eða þróunarstarf norrænna fyrir-
tækja, verkefni er tengjast nýjum
framleiðsiugreinum, tækni eða sókn
á nýja markaði og að lokum nor-
rænn verkefnaútflutningur. Á árinu
1995 jukust útlán bankans um 60
prósent, bæði vegna aukinna fjár-
festinga atvinnuveganna á Norður-
löndum og nýrra verkefna, sem
bankinn sinnir.
Um 83 prósent útistandandi lána
eru til verkefna innan Norðurlanda,
en 17 prósent til landa utan þeirra,
þar af helmingur til Asíulanda og
enn helmingur af því til Kína. Það
er ekki síst í lánveitingum utan
Norðurlanda, sem bankinn hefur
fært út kvíarnar að sögn Jóns.
„Bankinn er ekki þróunaraðstoðar-
stofnun. Við veljum verkefnin vand-
lega eftir arðsemi og lánstrausti. I
fyrra bættust nokkur ný lönd í hóp
landa, sem fá verkefnalán frá NIB,
svo sem Slóvakía, Slóvenía, Eistland,
Marokkó og Filipseyjar og við gerð-
um fyrstu samningana við Pólland,
Suður-Afríku og Mexíkó.
Áður lánaði bankinn aðeins með
ríkisábyrgð utan Norðurlanda, en
vorið 1994 var ákveðið að bankinn
gæti einnig lánað til einkafram-
kvæmda á sviði innviðafram-
kvæmda, þar sem um er að ræða
samstarf einkafyrirtækja og opin-
berra aðila. NIB lánar oftast til slíkra
verkefna í samstarfi við banka eins
og Evrópska endurreisnar- og þró-
unarbankann, EBRD, Alþjóðabank-
ann, IBRD og Þróunarbanka Asíu,
ADB. Auðvitað eru slík lán áhættu-
samari en lán gegn ríkisábyrgð, en
á öllum vaxandi mörkuðum er
greinileg breyting í þá átt að verk-
efni, sem áður voru eingöngu unnin
á vegum hins opinbera eru nú af
hendi leyst með þátttöku einkaaðila.
NIB taldi því nauðsynlegt að taka
mið af þessu til að geta veitt norræn-
um fyrirtækjum liðsinni í harðri al-
þjóðlegri samkeppni um slík verk-
efni. Alþjóðavæðing atvinnulífsins
felst einmitt í því að norræn fyrir-
tæki sækja verkefni út fyrir Norður-
löndin og þessi þróun mun án alls
efa halda áfram.
Þá getur verið mikið gagn af
starfsemi eins og okkar, því sérstaða
bankans og þjónusta felst í fjárfest-
ingarlánum til langs tíma til nor-
rænna verkefna. Lánin eru þó alls
ekki bundin við norræna þætti verk-
efnanna, heldur eru þau veitt til
fyrirtækjanna í markaðslöndunum,
sem að þeim standa. Okkar forsend-
ur éru fyrst og fremst að norrænir
hagsmunir séu fólgnir í verkefninu
og að lántakinn 'rísi undir láninu.
Þetta alþjóðasvið í starfsemi
bankans hefur vaxið hratt á síðustu
árum og í fyrra var lánarammi þess-
ara lána aukinn úr 1200 í 2000
milljón ecu. Að baki honum er 90
prósent ábyrgð eigenda bankans,
það er Norðurlandanna, en á hana
hefur aldrei reynt, þó þessi lán hafi
verið veitt í rúm tíu ár. Eg var reynd-
Á SINHISYLLII
IFUGLABJARGI
HEIMS VIÐSKIPT A
Norræni fjárfest-
ingabankinn heldur
upp á tvítugsafmæli
sitt í vor. Bankinn
birti nýlega ársreikn-
mga sma, sem sýna
mjög góða afkomu
1995, ogaf þessu
tilefni ræddi Sigrún
Davíðsdóttir við
Jón Sigurðsson, aðal-
bankastjóra hans,
um bankann, al-
þjóðavæðingu og
íslensk málefni. A
Með veruleikann
sem viðmiðun
ar formaður stjórnar NIB þegar
þessar lánveitingar hófust fyrir al-
vöru og tel að það hafi verið vel
ráðið. Verkefnalánin eru kannski
það, sem norræn fyrirtæki meta
mest í starfsemi bankans, þó lán
innan Norðurlandanna séu að sjálf-
sögðu áfram aðalverkefni hans. Lá-
nageta bankans er um tíu milljarðar
ecu, það er sjö milljarðar ecu innan
Norðurlanda, en það við bætist svo
áðumefndur lánarammi utan Norð-
urlanda 2 milljarðar ecu, lánarammi
upp á sextíu milljónir ecu til Eystra-
saltslandanna og loks uppsafnaður
hagnaður, sem er verulegur, því af-
koman hefur verið góð. Utistandandi
lán nema 5 milljörðum ecu, þar af
er um einn milljarður lán til landa
utan Norðurlandanna."
Eru aðrar norrænar lánastofnan-
ir, sem geta veitt lán sambærileg
NIB-lánunum?
„Fáar eða engar aðrar norrænar
stofnanir geta veitt lán á markaðs-
kjörum til jafn langs tíma og NIB,
því lánshæfi bankans er betra en
nokkurrrar þeirra. Norrænu útflutn-
ingslánastofnanirnar veita sín lán
samkvæmt alþjóðareglum eingöngu
til norrænna útflutningsþátta, en
okkar ián eru veitt til móttökulands-
ins, auk þess sem að réttarstaða
okkar nýtur viðurkenningar líkt og
Alþjóðabankans og þetta hefur sitt
að segja. Þó svo okkar hlutur sé ef
til vill ekki stór er þátttaka NIB eins
konar trygging fyrir að verkefnið
njóti forgangs. NIB hefur því fundið
sína syllu í fuglabjargi heimsvið-
skiptanna og þar gerum við gagn.“
inn fyrir markaðsviðskipti og NIB
hefur til dæmis aðstoðað löndin þijú
við að koma á fót sínum eigin fjár-
festingabönkum. Lán NIB til Eystra-
saltslandanna eru enn sem komið
er ekki þung á metunum í efnahag
bankans, en þau eiga eftir að gagn-
ast bæði viðtakendum og Norður-
löndunum, sem eiga mikið undir því
að hagur Eystrasaltslandanna dafni.
Járntjaldið milli þeirra og Norður-
landanna í fimmtíu ár var óeðlilegt
rof á aldargömlum tengslum, sem
nú er verið að tengja og treysta á
ný. Fyrir lán innan Eystrasaltsáætl-
unarinnar nægir að eitt Norðurland-
anna eigi aðild að verkefninu, en
regla NIB er annars sú að tvö land-
anna eigi aðild að hveiju láni.
Af Eystrasaltslöndunum þremur
er Eistland best á vegi statt og hef-
ur náð góðum efnahagsárangri.
Skýringin er án
efa fjölbrejdt
tengsl við ná-
grannalöndin,
einkum _Svía og
Finna. Árangur-
inn í Eistlandi er
gott dæmi um
hvernig almenn,
fijáls samskipti
þjóða greiða fyrir
framförum. Þetta
er í raun það sem
bæði norræn og
skipti milii manna, sem tekur mið
af veruleikanum, en ekki bara
ímynduðum þjóðlegum hagsmunum.
I þessu ljósi ber að líta stuðning
Norðurlandanna við Eystrasalts-
löndin á leið þeirra til markaðshag-
kerfis og í þessu sambandi eru um-
hverfismálin áhugaverð. Vegna
samdráttar í þessum löndum fyrst
eftir að sovétokinu var hrundið dró
þar úr iðnaði, en mengun mun vaxa
aftur um leið og þeim vex fiskur um
hrygg, ef ekkert verður að gert, því
tæki og tækni þar á þessu sviði eru
úrelt. Hér er mikilvægt að öll löndin
við Eystrasaltið, þar með talið
Þýskaland, taki höndum saman, ekki
eingöngu vegna Eystrasaltsland-
anna, heldur ekki síður í eiginhags-
munaskyni. Mengunin virðir engin
Iandamæri og verkefnin kreijast nýs
hugsunarháttar og þess að horft sé
fram í tímann og
AÐRAR ÞJOÐIR
GETA LÆRT AF
ÍSLENDINGUM í
BARÁTTU VIÐ
ATVINNULEYSIÐ
Aðstoð við Eystrasaltslöndin þijú
og norrænu grannsvæðin er for-
gangsverkefni í Norðurlandasam-
starfmu. Hvernig kemur bankinn að
því starfi?
„Norræna Eystrasaltsáætlunin er
hugsuð til þess að undirbúa jarðveg-
evrópsk samvinna snýst um: Að
finna svörun í stjórnarfarinu við
þeim hversdagslega veruleika nú-
tímans að fólk, þjónusta, vörur og
fjármagn fer frjálslega milli landa.
Þegar að er gáð má kannski líta á
viðamikla og flókna alþjóðasamn-
inga um frjálsar fjármagnshreyfing-
ar sem viðbrögð eftir á við breyting-
um í fjarskiptum og viðskiptum. En
hlutverk stjórnvalda í hveiju landi
ætti fyrst og fremst að vera að
gæta hagsmuna þegna sinna við
þessar síbreytilegu aðstæður og
móta traustan grundvöll fyrir sam-
vænlegur vettvangur fyrir norræn
fyrirtæki."
Afstaða NIB til
samstarfs við Kína
Bankinn hefur lánað til Kína, en
það er umdeilt á Norðurlöndum
hvort og hvernig eigi að haga sam-
starfinu við Kína vegna mannrétt-
indabrota þar. Hvaða afstöðu tekur
NIB til þessa?
„Varðandi Kína er mikilvægt að
undirstrika að það er ekki okkar að
meta stöðu mannréttindamála í við-
skiptalöndunum. Við erum stuðn-
ingsaðili, fylgjum norrænu atvinnu-
lífi eftir, en förum ekki fyrir. Sam-
starfsaðilar okkar í Kína eru alltaf
opinberir norrænir aðilar og fyrir-
tæki. Mín skoðun er sú að viðskipti
ábyrgra fyrirtækja geti rutt mann-
réttindum braut. Nærvera vest-
rænna fyrirtækja á að vera jákvætta
afl til betri stjórnarhátta. Fulltrúar
Norðurlandanna í stjórn NIB geta
stöðvað lán ef það er álitið ganga
gegn hagsmunum landa þeirra.
Nærtækt dæmi er að NIB hefði
aldrei gert samninga við Suður-Afr-
íku nema af því að Norðurlöndin
hafa tekið landið í sátt. NIB hefur
nýlega tekið þar upp samstarf og
mörg norræn fyrirtæki leita verkefna
þar. Víða í þróunarlöndunum eru
ýmis umdeild verkefni frá sjónarmiði
umhverfisverndar, en í bankanum er
deild, sem gaumgæfir umhverfisáhrif
verkefna okkar og við tökum ekki
þátt í umhverfísspillandi verkefnum.
Á hinn bóginn ber að varast að verk-
efni í þriðja heiminum séu metin af
vestrænum stórborgarbúum gegn
hagsmunum heimamanna. Þess má
geta að þriðjungur lána NIB fer til
umhverfísbætandi verkefna eins og
nýrra og hreinni framleiðsluferla í
iðnaði og til skolp- og vatnsveitna.
Sjálfbær þróun og umhverfisvernd
annars vegar og efling hagvaxtar
hins vegar stangast að mínu áliti
ekki á. A Norðurlöndum er vakandi
áhugi á umhverfísvernd og viðskipta-
lífið tekur mið af því. Umhverfísvæn
tækni er styrkur í alþjóðlegri sam-
keppni. Hvér hefur áhuga á að lána
fyrirtæki, sem er slíkur mengunar-
valdur að því verður að öllum líkind-
um Iokað innan nokkurra ára?“
lagt fram „þol-
inmótt" fjár-
magn. Hér er
mikið í húfi fyrir
Norðurlöndin og
NIB hefur meðal
annars gert til-
lögu um um-
hverfislánaá-
ætlun upp á 100
milljónir ecu, sem
næði til norð-
vesturhluta Rúss-
„Það þarf að borga
sig að vinna“
lands og Kólaskaga, auk Eystra-
saltsins.
Við höfum ekki lánað tii Rúss-
lands undanfarin ár, vegna ótryggs
ástands, en nú eigum við í samninga-
viðræðum við rússnesk stjórnvöld
um réttarstöðu NIB í Rússlandi, svo
við verðum tilbúnir ef umhverfis-
lánaáætlunin verður að veruleika.
Við gerðum slíkan rammasamning
við pólsku stjórnina nýlega og höfum
lánað 40 milljónir bandaríkjadala til
að endurnýja pólsk kolaorkuver með
norrænni tækni til að draga úr
mengun. Pólland er stórt land og
í
í
>
|
í
I
Fjnnar búa við 19 prósenta at-
vinnuleysi, Svíar hafa nýlega kynnst
atvinnuleysi og það hefur verið við-
varandi vandamál í Danmörku und-
anfarinn áratug. Hvað geta Islend-
ingar lært af baráttu þessara þjóða
við atvinnuleysi?
„Ég hélt reyndar að þú ætlaðir að
spyija hvað þessar þjóðir gætu lært
af íslendingum... því að Noregi und-
anskildum þá er atvinnuástand á ís-
landi miklu betra en á hinum Norður-
löndunum. Það skiptir miklu máli að
skattkerfið, tryggingar- og laga-
ákvæði er lúta að vinnumarkaðnum
séu nægilega rúm, svo að fólk lokist
ekki úti frá honum. Á hinum löndun-
um er oft rætt um „gildrur", sem
felast í því að atvinnuleysisbætur og
önnur félagsleg aðstoð við atvinnu-
lausa sé svo mikil að fólk bæti hag
sinn sáralítið og stundum ekkert með
því að taka þá vinnu sem býðst, bæði
vegna skattlagningar, en einnig
vegna ívilnana eins og lægri bama-
heimilisgjalda og annarrra bóta, sem
menn missa þegar þeir fara að vinna.
Þetta er ein hlið málsins.
Hvað fyrirtækin varðar skiptir
máli hvort skattlagning launa-
greiðslna sé há, hvort skattbyrðin
og tryggingargjöldin aukist verulega
með því að fjölga fólki á launaskrá •-
og hvort mikill kostnaður fylgi ráðn-
ingum og uppsögnum. Á Norðurlönd-
um hefur verið byggt upp mikið kerfi
skattgreiðslna og iðgjalda, tengt
bæði vinnuveitendum og launþegum.
Oll eru þessi ákvæði sett af góðum
hug, en samanlagt getur útkoman
orðið öfugmæli. Við þurfum að va-
rast að loka fólk ekki úti með þessum
ákvæðum. Það þarf að borga sig að
vinna.
Skattar, skyldur og réttindi launa-
fólks er ein hliðin. Hin hliðin er svo
fjármögnun almannatrygginga og
opinberrar þjónustu. Það er án alls
efa afrek þessarar aldar að á Norð-
uríöndum hafa verið byggð upp öflug
velferðarríki, byggð á hugsjónum
mannúðar og réttlætis, en ekki ein-
göngu á hagkvæmni. En milli þess-
ara þátta þarf líka að vera jafn-
Í
Í
i
t
»
I
t
i
I
I
t
t
t