Morgunblaðið - 05.05.1996, Page 27
26 SUNNUDAGUR 5. MAÍ1996
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. MAÍ1996 27
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
MINNKANDI
ATVINNULEYSIEN...
TÖLUR um fjölda atvinnulausra
sýna, að atvinnuleysi fer
minnkandi. í febrúar á þessu ári
voru 7.032 einstaklingar atvinnu-
lausir ejj í febrúar á árinu 1995
voru þeir 8.349. Þetta þýðir, að
atvinnulausum hefur fækkað um
rúmlega 1.300 manns á einu ári,
sem er verulegur árangur. Jafn-
framt kemur fram í frétt í Morgun-
blaðinu í gær, að atvinnuleysi hefur
stórminnkað á landsbyggðinni, sem
endurspeglar auðvitað þá miklu
uppsveiflu, sem nú er í sjávarút-
veginum.
Þótt þróunin sé í rétta átt veldur
það hins vegar áhyggjum, að lang-
tímaatvinnuleysi er að aukast.
Þannig voru 916 einstaklingar á
skrá í febrúar í ár, sem höfðu ver-
ið atvinnuiausir í meira en eitt ár
og er það meiri fjöldi en nokkru
sinni fyrr á þessum áratug.
Reynsla okkar íslendinga hefur
verið sú á undanförnum áratugum,
að atvinnuleysi hefur gert vart við
sig, þegar að hefur kreppt í sjávar-
útvegi. Um leið og birt hefur til á
þeim vettvangi, hefur það nánast
horfið. Það er ekki víst, að svo
verði nú. Atvinnufyrirtæki hér hafa
endurskipulagt rekstur sinn frá
grunni á undanförnum árum og
fara nú mun varlegar í mannaráðn-
ingar en áður tíðkaðist. Þess vegna
má ætla, að þau fari sér hægt í
að fjölga starfsmönnum, þótt efna-
hagsbatinn sé augljós.
Á undanförnum mánuðum hafa
farið fram lífleg skoðanaskipti á
milli Bandaríkjamanna og Evr-
ópubúa um ástæður þess, að störf-
um hefur fjölgað gífurlega í Banda-
ríkjunum en nánast ekki neitt í
Evrópu. Bandaríkjamenn halda því
fram, að Evrópuríkin geti mikið
af 'þeim lært og að það þjóðfélag-
skerfi, sem byggt hefur verið upp
í kringum vinnumarkaðinn í Evr-
ópu, eigi mestan þátt í atvínnuleys-
inu þar. Talsmenn Evrópuríkjanna
hafa svarað því til, að fjölgun
starfa ( Bandaríkjunum væri fyrst
og fremst vegna þess, að laun
væru þar skammarlega lág og það
væri fyrst og fremst í þeim geira,
sem störfum hefði fjölgað.
Róbert Reich, vinnumálaráð-
herra Bandaríkjanna og einn helzti
ráðgjafi Clintons Bandaríkjafor-
seta, hefur mótmælt þessu harð-
lega og segir, að skýrslur sýni og
sanni, að fjölgun starfa í Banda-
ríkjunum sé ekki sízt á því sviði,
þar sem laun eru há svo sem í
hátækniiðnaði.
Þetta eru athyglisverðar umræð-
ur og í þeim hefur t.d. komið fram,
að ráði fyrirtæki í Þýzkalandi
starfsmann er það í raun og veru
að ráða tæplega tvo starfsmenn
vegna þess, að launatengd gjöld
néma hvorki meira né minna en
allt að 80%! Þá hefur það einnig
komið fram í þessum umræðum,
að þýzk fyrirtæki eru treg til að
fjölga starfsmönnum vegna þess,
að það er mjög erfitt að segja þeim
upp, harðni á dalnum.
Þegar við nú stöndum enn
frammi fyrir umtalsverðu atvinnu-
leysi þrátt fyrir batnandi ástand í
efnahagsmálum þjóðarinnar og
uppgang við sjávarsíðuna er
kannski tímabært að umræður
hefjist um það , hvort áþekkar
ástæður valdi því að atvinnuleysi
er enn svo mikið hér eins og aug-
ljóslega valda stöðugu atvinnuleysi
í Evrópu. Skortir sveigjanleika í
atvinnulífinu hér? Er búið að hlaða
alls kyns gjöldum ofan á launa-
kostnað fyrirtækja, sefn valda því,
að þau fara sér hægar í að fjölga
starfsfólki en ella?
Það þýðir ekkert að tala um
þessi vandamál með upphrópunum
eins og einstaka verkalýðsleiðtogar
hafa enn tilhneigingu til. Það er
þvert á móti ástæða til að brjóta
til mergjar þá spurningu, hvort
vinnumarkaðskerfið eigi við breytt-
ar aðstæður í atvinnulífinu þátt í
töluverðu viðvarandi atvinnuleysi,
og hvort breytingar á því séu for-
senda fyrir þvi að störfum fjölgi
enn meir en orðið er.
-I OQ ÉG HEF
JL •verið að
fjalia um umhverfi
æsku minnar. Það var
hlýtt og gott. Ég hafði
gaman af að tala við
þetta dómgreindar-
fulla og ræktaða alþýðufólk sem
setti mark á samfélagið og þá ekki-
sízt sjómenn sem höfðu márga fjör-
una sopið. Sum þessara samtala
hafa komizt alla leið á bók, önnur
ekki; t.a.m. þau sem ég hef verið
að vitna til undanfarna sunnudaga
í þessum pistlum.
Á þessum árum fannst mér þjóð-
félagið einkennast af heilsteyptu
fólki sem stóð undir væntingum og
manni leið vel í návist þess. Þeir
sem mest bar á höfðu yfirleitt taum-
hald á framhleypni sinni og næga
dómgreind til að átta sig á því að
Palli er ekki einn í heiminum. Hæ-
verska var eitt helzta einkenni sam-
félagsins. Fjölmiðlahasarinn var
ekki hafínn. Framtóningarnir voru
á sínum stað.
En nú er öldin önnur. Freistingar
miklar og eina leiðin til að losna
við þær að fullnægja þeim eins og
Oscar Wilde sagði.
Menn kvörtuðu lítið í gamla daga
og sjaldnast vegna sjálfs sín. Nú
kvarta margir sáran. Og ótrúlega
margir virðast haldnir miklu of-
næmi fyrir samfélaginu. Ég hef
spurt sjálfan mig hver ástæðan sé.
Þetta er yfirleitt dómgreindargott
fólk með sterka ábyrgðartilfinningu
og aðhaldssamt sjálfsálit. Já, hvers
vegna, hef ég spurt sjálfan mig,
þolir þessi íslenzki kjami umhverfí
sitt jafn illa og raun ber vitni? Það
skyldi þó ekki vera að ástæðuna
sé að fínna í geðlæknisfræðinni,
þeim þáttum hennar sem fjalla um
siðblindu eða geðvillu, eða það sem
við getum kallað persónuleikabrest
framtóninga sem eru hér allsráð-
andi orðið og hafa ekkisízt komið
ár sinni vel fyrir borð í fjölmiðlum
og opinberu lífi. Ég er að tala um
fólk sem útlendir fræðimenn kalla
sýkópata en við gætum nefnt sið-
blindingja. Margir þeirra sækjast
eftir háum embættum og ná oft
takmarki sínu í óþökk hæverskra
áhorfenda sem hafa aðhald af dóm-
greind sinni og sjálfsvirðingu. Þessi
geðvilla eða persönuleikabrenglun
er ýmist meðfædd eða tilkomin í
HELGI
spjall
bernsku. Eitt helzta
einkenni hennar er
ófullkominn hæfileiki
til að lifa sig inní til-
finningar annarra. Til
að skilja þetta betur
hef ég að gamni mínu
skoðað rit norska geðlæknisins Ein-
ars Kringlen um þetta fyrirbrigði
og af umfjöllun hans í ritinu Psyki-
atri má ráða að helztu einkenni
þessa kvilla sem hefur orðið svo
mörgum til framdráttar í framapot-
inu eru þessi (og getur þá hver og
einn dregið sínar ályktanir):
Sýkópatar eru heldur félagslynd-
ir og þurfa samfélag til að spóka
sig í. Þeir eru algjör andstæða fólks
sem á við taugaveiklun að stríða.
Það er oft heft, þjáist af sektar-
kennd og ótta. Sá sem þjáist af
geðvillu er gjörsamlega laus við
sektartilfinningu og ótta. En Kring-
len segir að sýkópatinn þurfi ekki
að þjást af neinni raunveruleika-
brenglun. Hann er fljótráður og
getur verið árásargjarn, en þó eink-
um yfirborðslegur í tilfínningasam-
böndum. Hann getur verið erfiður
í umgengni og öðrum vandamál;
en þó stundum verið hlýr og sjár-
merandi án þess að ná sterku til-
fmningasambandi við neinn. Hann
skammast sín ekki og er sérfræð-
ingur í að afla sér yfirborðslegra
vinsælda hjá öðru fólki. Hann helzt
sjaldnast lengi í sama starfí. Hann
getur heillað aðra uppúr skónum
einsog sagt er og notað þá, stundum
einnig kynferðislega. Hann er fyrst
og síðast drottnunargjarn og sækist
eftir völdum yfir öðrum. Hann leit-
ar gjarnan að veikum blettum á
öðru fólki og ræðst á andstæðinginn
þarsem hann er veikastur fyrir.
Þannig getur hann oft drottnað
yfir umhverfi sínu þvíað enginn
hefur sérstakan áhuga á því að
veiku blettirnir séu afhjúpaðir.
Sjálfsálit sýkópatans getur verið
allt að því takmarkalaust og í vald-
astreði sínu notar hann annað fólk
einsog hann getur og lætur sér fátt
um finnast þótt tilgangurinn helgi
meðalið ef það yrði til þess að tak-
markinu væri náð. Hann þarf helzt
alltaf að vera í sviðsljósinu. Hann
þarf því á öðru fólki, en þó einkum
samfélagi, að halda, en er fremur
þiggjandi en veitandi. Hann getur
þjáðst af tilfinningakulda og er sér-
fræðingur í hagsmunavináttu.
Djúp, ræktuð og fórnfús vinátta er
honum framandi. Hann er öðrum
fremur sjálfhverfur og hömlulaus í
sjálfsdýrkun sinni þótt hann geti
haft sérstakt lag á því að breiða
yfir þetta dekur. Hann getur því
náð vinsældum og komizt langt,
einsog sagt er. Samfélagið kallar
oft, þótt ótrúlegt sé, á þetta and-
samfélagslega fyrirbrigði. Enginn
veit skýringuna á þessari þjóðfé-
lagslegu klikkun. Stundum má
rekja hana til þess að hún sér ekki
við sýkópatanum þvíað hann er
bæði gáfaður og útsmoginn og get-
ur kjaftað sig inná hvernsem er,
svo notað sé hversdagslegt tungu-
tak.
En stundum á skýringin rætur í
sjúklegum þáttum samfélagsins.
Höfundar Oxford Textbook of Psyc-
hiatry tala um “anti-social persona-
lity“ þegar þeir fjalla um siðblindu
eða geðvillu. Samfélag sem ber slík
fyrirbrigði á gullstól hlýtur sjálft
að þjást af einhvers konar veru-
leikafirringu; blekkingu. Það virðist
ekki hafa neinn áhuga á þeim fjölda
fólks sem sinnir störfum sínum af
dómgreindarfullri alúð og reynir að
þola sitt ofnæmi möglunarlaust.
Það undrast, það hneykslast en það
skortir það sjálfstraust, það
samvizkuleysi, sem gæti stöðvað
sigurgöngu sýkópatanna. Það hefur
sterkt aðhald af sjálfu sér, dóm-
greind sinni og sjálfsgagnrýni, eigin
ótta og öryggisleysi. En það er
geðugur ótti og manneskjulegt ör-
yggisleysi.
„Venjulegt" fólk stendur svo á
milli þessara hópa og heldur að það
ráði ferðinni; myndi svonefnt al-
menningsálit. En það er rangt.
Framtóningarnir ráða ferðinni í
þessu oddaflugi.
En spyija má að lokum hvort
ofnæmi þessa ágæta íslenzka sam-
félagskjarna megi ekki rekja til
fyrmefnds áreitis sem er auðvitað
magnaðra í fámennu þjóðfélagi en
fjölmennu, þótt sömu persónugerðir
séu þar á ferð ekkisíður en í okkar
litla samfélagi. Sívaxandi óþol
þessa fólks er aðminnstakosti eitt
helzta einkenni þess skrípaleiks sem
alltaf er verið að setja upp öðru
hveiju á íslenzka litlasviðinu(l)
M.
|VÖ LANDSSVÆÐI I
Bandaríkjunum hafa,
eins og kunnugt er, ver-
ið eins konar uppvaxtar-^,
svæði fyrir hátækniþró-
m
un og hugbúnaðargerð
heimsbyggðarinnar síð-
asta einn og hálfan ára-
tug eða svo. Þau er að finna í Kaliforníu
og Boston. Þar hafa ævintýrin gerzt í
bandarískum tölvu- og hátækniiðnaði. Þar
varð Apple-fyrirtækið til í bílskúr eins og
frægt er orðið og fjölmörg önnur heims-
kunn tölvu- og hátæknifyrirtæki. Þar hafa
safnast saman færustu vísindamenn • og
sérfræðingar og notið þess að starfa í
hvetjandi og skapandi andrúmslofti. Þessi
hópur manna ásamt djörfum og stórhuga
fjárfestum hafa ráðið úrslitum um, að
Bandaríkjamenn eru ráðandi í hátækni-
ogtölvuiðnaði.
í brezka dagblaðinu Financial Times var
frá því skýrt í gær, föstudag, að nú hefðu
þessir hátæknikjarnar í Bandaríkjunum
eignast nýjan keppinaut. Það þarf kannski
engum að koma á óvart - og þó - að
þessi nýi keppinautur er ísrael. A nokkrum
árum hefur risið þar upp hátækniiðnaður,
sem sækir óðum á hina bandarísku keppi-
nauta. Hvað veldur því, að ísraelsmönnum
tekst að ná slíkum árangri?
Ein ástæðan er sú, að mikill fjöldi há-
menntaðra Gyðinga hefur flutt til ísraels
á undanförnum árum m.a. frá Rússlandi.
Stjórnvöldum í ísrael tókst að skapa þess-
um sérmenntuðu mönnum umhverfi, þar
sem þeir fengu tækifæri til að nýta þekk-
, ingu sína til nýsköpunarverkefna, með því
annars vegar að leggja fram fjármuni úr
almannasjóðum til að koma þeim af stað
og hins vegar með því að laða erlent
áhættufjármagn að þessari nýju auðlind -
hinum aðfluttu hámenntuðu Gyðingum -
með þeim árangri, að hátækniiðnaður
blómstrar nú í ísrael. Jafnframt hafa ísra-
elsk stjórnvöld lagt mikla áherzlu á að
leggja fram umtalsvert fjármagn til rann-
sókna- og vísindastarfa, sem smátt og
smátt hafa skilað sér í raunverulegri ný-
sköpun í ísraelsku atvinnulífi.
Þessi litla saga er umhugsunarefni fyrir
okkur íslendinga. Við höfum áratugum
saman leitað að nýjum atvinnugreinum til
þess að auka fjölbreytni í atvinnulífi okk-
ar. Við höfum lagt fram mikla fjármuni
til þess að laða erlend stóriðjufyrirtæki að
landinu með því að bjóða raforku á hag-
stæðu verði en með litlum árangri. Segja
má, að fyrst nú á síðustu árum hafí það
gerzt, að ferðaþjónustan hefur allt í einu
komið fram á sjónarsviðið, sem umfangs-
mikil atvinnugrein og höfðu þó fæstir trú
á því framan af, að það gæti nokkru sinni
orðið.
Á hátíðisdögum tala forsvarsmenn þjóð-
arinnar um það, að mesta auðlind okkar
sé fólgin í velmenntuðu fólki. Hins vegar
höfum við lítið gert til að virkja þá auð-
lind. Landsmenn hafa sýnt rannsókna- og
vísindastarfi lítinn áhuga. Fjárframlög til
þeirra hafa verið takmörkuð. Ein versta
afleiðing þess er sú, að ungir, hámenntað-
ir íslendingar, sem koma heim að námi
loknu, fá ekki vinnu og verkefni við sitt
hæfi. En um leið og þeir gera þau mistök
að flytja heim í nokkur ár missa þeir af
lestinni í öðrum löndum, þar sem sam-
keppnin er gífurlega hörð.
Þjóðin hefur ekki haft raunverulega trú
á því, að fjárfesting í rannsókna- og vís-
indastarfsemi skili sér í framtíðinni. Þess
vegna hefur þetta verið gert með hang-
andi hendi. Og það hefur ekki verið jarð-
vegur til þess að auka skilning á þeim
möguleikum, sem hér eru fyrir hendi. Til-
tölulega fámennur hópur manna, fyrst og
fremst í Háskóla íslands, hefur haldið
uppi þrotlausri baráttu við að opna augu
fólks fyrir þessum tækifærum, en þeir
hafa yfirleitt talað fyrir daufum eyrum.
Hugsanlegt er, að á síðustu árum og
jafnvel síðustu misserum hafi andrúmið
verið að breytast og skilningur að vaxa á
því að virkjun þeirrar auðlindar, sem býr
REYKJAVIKURBREF
Laugardagur 4. maí
í þekkingu og menntun ungu kynslóðarinn-
ar, geti skilað mikilli ávöxtun. Það eru
ekki sízt ævintýri í tölvuheiminum, sem
hafa skapað hér nýjan jarðveg. Ævintýrið
í Oz, tölvufyrirtæki, sem erlendir aðilar
meta á milljarð króna, umsvif Friðriks
Skúlasonar, sem vill lítið tjá sig um þau
á opinberum vettvangi, hvoru tveggja hef-
ur opnað mönnum sýn inn í nýjan heim
og þau tækifæri, sem við kunnum að eiga
þar. Hér má líka nefna vel heppnaða starf-
semi Marels, hátæknifyrirtækis, sem starf-
ar á afmörkuðu sviði, en hefur náð miklum
árangri.
Frásagnir af þeim árangri, sem ísraels-
menn hafa náð, vekja upp áleitnar spurn-
ingar um það, hvort við Islendingar höfum
ekki í raun og veru allar aðstæður til að
skapa hér lítinn ævintýraheim hátækni-
og hugbúnaðarfyrirtækja. Við eigum nýja,
dugmikla kynslóð fólks, sem hefur sótt sér
menntun í beztu háskóla hins vestræna
heims. Við eigum unga athafnamenn, sem
hafa sýnt í verki, að þeir geta ekki síður
en aðrir hazlað sér völl í heimi hugbúnað-
ar og hátækni. Þetta unga fólk starfar í
umhverfi, sem einkennist af góðri menntun
og blómlegri menningu. Hvað vantar?
Hvetjandi
umhverfi
ÞEIM, SEM HAFA
numið og starfað
við fremstu háskóla
á Vesturlöndum ber
saman um, að það,
sem fyrst og fremst skorti á sé uppörv-
andi og hvetjandi umhverfi og kannski að
einhveiju leyti nálægð við uppsprettur
nýrra hugmynda.
Háskóli Islands á að geta verið slík
hugmyndauppspretta, þar sem saman
koma og starfa lifandi og fijóir vísinda-
menn og hugsuðir, sem tengjast íslenzkum
hátækni-_ og hugbúnaðarfyrirtækjum. En
Háskóli íslands verður ekki miðpunktur
slíkrar byltingar á meðan skólinn greiðir
prófessorum laun, sem eru til skammar
og fær ekki lengur kennara til að starfa
við slík kjör.
Hér skortir fjármuni eða öllu heldur
vilja og skilning á því, að það skili sér
síðar meir að setja verulega fjármuni í að
efla rannsókna- og vísindastarf í tengslum
við Háskóla íslands og skapa hátækni- og
hugbúnaðarfyrirtækjum það umhverfi,
sem er nauðsynlegt til þess að slík starf-
semi geti þrifizt og náð flugi.
Grundvallaratriði er stefnumörkun af
hálfu Alþingis. Hún þarf ekki einungis að
ná til vísinda- og rannsóknastarfsemi við
háskólann. Hún þarf einnig að beinast að
því að tryggja starfsgrundvöll fyrir há-
tækni- og hugbúnaðarfyrirtæki. Og þá
má spyija: Hafa þau ekki slíkan starfs-
grundvöll? Hvað stendur í vegi fyrir því,
að þau geti blómstrað? Svarið er, að ís-
lenzka ríkið stendur ekki sízt í vegi fyrir
því. íslenzka ríkið hefur stóraukið umsvif
sín í þessari grein atvinnulífsins. Eins og
Morgunblaðið hefur áður sagt: Á sama
tíma og ríkið hefur dregið úr umsvifum
sínum á flestum sviðum atvinnulífsins hef-
ur það aukið þátttöku sína í atvinnustarf-
semi á nýjum sviðum, sérstaklega í fjar-
skiptum og hugbúnaðargerð án þess, að
nokkur hafi tekið eftir því eða tekið
ákvörðun um það og áreiðanlega án þess,
að Alþingi og ríkisstjórn hafi veitt því eftir-
tekt eða vilji hafa það svo.
Eitt af því, sem kemur í veg fyrir að
íslenzk hugbúnaðarfyrirtæki nái fótfestu
er sú staðreynd, að svo mikil hugbúnaðar-
gerð fer fram í opinberum fyrirtækjum,
stofnunum og hálfopinberum fyrirtækjum
að litlu einkafyrirtækin, sem eru að reyna
fyrir sér, komast hvergi að. Samkeppnis-
staðan er vonlaus frá upphafi. Þessum
aðstæðum þarf að breyta. Burt með ríkið
úr fjarskiptastarfsemi og hugbúnaðargerð!
Þegar ungir athafnamenn á þessu sviði
koma alls staðar að lokuðum dyrum eða
standa frammi fyrirtröllauknum ríkisfyrir-
tækjum eða opinberum og hálfopinberum
stofnunum eiga þeir enga möguleika nema
þeir geti annars vegar fundið svið, sem
hinir opinberu aðilar hafa ekki komið auga
á eða starfi fyrst og fremst á erlendum
vettvangi, þangað sem íslenzka ríkið hefur
ekki teygt anga sína. Þetta er ekki hvetj-
andi starfsumhverfi heldur letjandi.
Þótt flest sé ólíkt með Ísraelsríki og
íslandi höfum við þó átt vissa hluti sameig-
inlega á undanförnum áratugum. Bæði
ríkin áttu t.d. í harðvítugri viðureign við
SÓLSETUR VIÐ KÓPAVOG
óðaverðbólgu á nánast sama tímabili í tvo
áratugi. Bæði ríkin eiga dugmikið og vel-
menntað fólk. Hins vegar er auðvitað ljóst,
að sú mikla hernaðarstarfsemi, sem Isra-
elsmenn hafa haldið uppi, hefur átt mikinn
þátt í uppbyggingu á hátækniiðnaði í land-
inu. Það er alkunna, að ný tækni á sviði
hernaðar og geimrannsókna hefur hvað
eftir annað leitt til annarrar atvinnustarf-
semi, sem á ekkert skylt við hernað eða
geimferðir. Þetta er áreiðanlegur þáttur í
því hve langt Bandaríkjamenn hafa náð á
þessu sviði.
Morgunblaðið hefur yfírleitt ekki hvatt
til afskipta stjórnvalda af atvinnulífi og
gerir ekki. Það eru hins vegar augljós rök
fyrir því, að íslenzka ríkið auki með sama
hætti og ísraelsmenn hafa gert, fjárfram-
lög til rannsókna- og vísindastarfa og jafn-
framt að Alþingi og ríkisstjórn geri þær
ráðstafanir, sem þarf til þess að auka svig-
rúm þeirra litlu einkafyrirtækja, sem eru
að reyna að skapa sér rekstrargrundvöll,
ekki sízt á sviði hátækni, hugbúnaðargerð-
ar og fjarskipta. Ef þetta yrði gert með
afdráttarlausum hætti mundi það skapa
alveg nýja stöðu á þessum markaði hér.
Toppfundur
um hátækni
FYRSTA SKREF
ið í átt til nýrrar
stefnumörkunar á
þessu sviði ætti að
vera það, að stjórn-
málamenn og embættismenn setjist niður
og hlusti á skoðanir og sjónarmið vísinda-
manna og athafnamanna. Það er fullt til-
efni til, að efnt verði til eins konar topp-
fundar um íslenzka hátækni, þar sem sam-
an komi annars vegar stjórnmálamenn,
ráðherrar og alþingismenn, svo og emb-
ættismenn, og hins vegar vísindamenn,
kennarar við háskólann og forystumenn
fyrirtækja, ríkisfyrirtækja og einkafyrir-
tækja, stórra og smárra, til þess að ræða
viðhorfin og hvaða aðstæður þarf að skapa
til að háskólamennirnir og athafnamenn-
irnir fái að njóta sín.
í kjölfarið á slíkum toppfundi um há-
tækni þarf Álþingi að komast að niður-
stöðu um almenna stefnumörkun og taka
ákvarðanir um aukin fjárframlög til vís-
inda- og rannsókna og hugsanlega að
beina einhveiju af því fjármagni, sem nú
er til í atvinnuvegasjóðum, sem ríkið á
hlut að, í nýjan farveg, sem gæti orðið
bakhjarl nýrra fyrirtækja á þessu sviði.
Það er ljóst, að reynsla ísraelsmanna er
sú, að leggi þeir fram fé af sinni hálfu
eru möguleikar á erlendu áhættufjármagni
þeim mun meiri. Þetta er kannski að ein-
hveiju leyti eins og í kvikmyndagerðinni,
þar sem innlent íjárframlag er forsenda
fyrir því, að erlendir aðilar leggi fjármagn
í íslenzkar kvikmyndir.
Loks er nauðsynlegt að kynna erlendum
fjárfestingarsjóðum, sem sérhæfa sig í að
leggja fram áhættufjármagn í ný fyrir-
tæki, þá almennu möguleika, sem hér eru
fyrir hendi.
Að öðru leyti á að láta vísindamennina
og athafnamennina um uppbyggingu á
þessari nýju atvinnugrein.
Það þykir gott í öðrum löndum, ef eitt
til tvö fyrirtæki rísa og eiga sér framtíð
af tíu, sem stofnuð eru. Þeir, sem fara af
stað með fyrirtæki, sem misheppnast,
safna oft mikilli reynslu, sem nýtist þeim
vel í næstu tilraun. Stundum njóta aðrir
ávaxtanna eins og Stöð 2 er glöggt dæmi
um hér á landi. Við erlenda viðskiptahá-
skóla er nemendum kennt að líta á at-
hafnamenn, sem taka mikla áhættu, sem
brautryðjendur í atvinnulífi en ekki sem
misheppnaða viðskiptajöfra. Taki enginn
áhættu, jafnvel þótt hún leiði til gjald-
þrots, verður ekkert nýtt til. Með þessu
hugarfari eigum við að skoða tilraunir
nýrra manna til að ryðja nýjar brautir,
þótt þeim mistakist á stundum.
Á undanförnum árum og áratugum hef-
ur öll starfsorka stjórnvalda farið í að leysa
aðkallandi vandamál verðbólgu og at-
vinnulífs. Nú er staðan gjörbreytt. Við
búum við litla verðbólgu og stöðugleika í
efnahagsmálum. Nú hafa Alþingi og ríkis-
stjórn og raunar stjórnmálaflokkar einnig
alla möguleika á að beina athygli sinni
að nýjum þáttum þjóðlífsins og framtíð-
inni. Það skortir mjög á, að þau málefni,
sem hér hefur verið drepið á, hafi verið
tekin til umræðu á vettvangi stjórnmál-
anna. Það er hins vegar tímabært að
stjórnmálamennirnir horfí til nýrra átta.
Morgunblaðið/Róbert Fragapane
„Frásagnir af
þeim árangri, sem
Israelsmenn hafa
náð, vekja upp
áleitnar spurning-
ar um það, hvort
við Islendingar
höfum ekki í raun
og veru allar að-
stæður til að
skapa hér lítinn
ævintýraheim há-
tækni- og
hugbúnaðar-
fyrirtækja.“
■j'
i-