Morgunblaðið - 05.05.1996, Side 30
30 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGl'N
lAUKI
BLAÐSINS
rúbkaup
í blíðu og stríðu
■ '
■
I
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins 26. maí nk. fylgir blaðauki, sem
heitir Brúbkaup - í blibu og stríbu. í blaðaukanum verður fjallað
um undirbúninginn fyrir brúðkaupið, veisluna, birtar uppskriftir og
rætt um veisluþjónustur. Einnig verður umfjöllun um fötin og tískuna,
brúðarkjólaleigur, brúðkaupsferðina, brúðkaupsgjafir og þróun þeirra,
fjallað verður um kostnaðarliði o.m.fl.
Þeim, sem áhuga hafa á ab auglýsa í þessum blabauka,
er bent á ab tekib er vib auglýsingapöntunum til
kl. 12.00 mánudaginn 20. maí.
Dóra Gubný Sigurbardóttir og Anna Elínborg
Gunnarsdóttir, sölufulltrúar í auglýsingadeild,
veita allar nánari uppiýsingar í síma 569 1171 eba
meb símbréfi 569 1110.
/ - kjarni málsins!
Tóbakið deyðir
drykkjumenn
Chicago. Reuter.
DRYKKJUMÖNNUM, sem
reykja, er hættara við heilsutjóni
af völdum tóbaksins en áfengis-
ins. Kemur það fram í nýjum
rannsóknum.
Frá þessu er greint í tímariti
bandarísku læknasamtakanna og
þar segir, að það sé augljóslega
ekki nóg að hjálpa drykkjumönn-
um að sigrast á áfenginu, heldur
verði líka að hjálpa þeim að
hætta að reykja.
„Reykingar meðal þeirra, sem
misnota einhver efni, eru allt að
þrisvar sinnum meiri en hjá fólki
almennt og hugsanlegt er, að
drykkjumenn séu fjórðungur
allra reykingamanna," segir Ric-
hard Hunt, sem starfar við Mayo-
stofnunina í Rochester í Minne-
sota. „Þess vegna þarf að hjálpa
þeim, sem eru til meðferðar
vegna áfengisneyslu eða annarr-
ar misnotkunar, að segja líka
skilið við tóbakið."
Þegar skoðaðar voru skýrslur
um banamein 214 manns i
Olmstead-sýslu í Minnesota, sem
allir höfðu verið í áfengismeð-
ferð á árunum 1972 til 1983, kom
í Ijós, að 51% þeirra hafði látist
úr sjúkdómum, sem rekja mátti
til reykinga, hjarta- og æðasjúk-
dómum og krabbameini. Aðeins
34% létust af sjúkdómum, sem
stöfuðu af áfengisdrykkjunni, til
dæmis skorpulifur.
Bill Clinton
biðst afsökunar
Moskvu. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti hef-
ur sent írskum kaupsýslumanni af-
sökunarbeiðni sökum þess að
starfsmenn forsetaembættisins
tóku töskur hans í misgripum.
Sumarfotin komin
UNO
D A N M A R K
1.-18. maí fær heppinn
viðskiptavinur
DANMERKURFERÐ
í sumargjöf.
Vertu með og líttu inn.
UNO DANMARK Borgarkringlunni
Póstsendingaþjónusta í síma 568 3340.
Dagar þrungnir
gróðurilmi og
ljúfu lífi
VORÍ
kr.
á mann í tvíbýli í 3 daga.
10.000 kr. afsláttur
af verði pakkaferða.
Flug, gistingí 3,4 eða 7 nætur
og íslensk fararstjórn.
Lágmarksdvöl er 3 dagar og hámarksdvöl er 7 dagar. Síðasti heiinkomudagur er 2. júní.
Hafðu samband við sölufólk okkar, ferðaskrifstofumar eða í síma 50 50 100
(svarað mámid. - föstud. frá kl. 8 -19 og á laugard. frá kl. 8 -16.)
Vorferðir
á sérstöku
tilboðsverði
til 2. júiií
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi
írski kaupsýslumaðurinn lagði
ferðatöskur sínar frá sér í anddyri
hótelsins þar sem Clinton og menn
hans héldu til í Sankti Pétursborg
er Bandaríkjaforseti var í Rússlandi
á dögunum. Töskurnar voru teknar
í misgripum og sendar ásamt öðrum
farangri bandarísku sendinefndar-
innar til Moskvu.
„Mér þykir leitt að hafa valdið
þér óþægindum," sagði forsetinn í
orðsendingu til mannsins sem ein-
ungis var nefndur „Kevin frá
Donegal." „En töskurnar þínar
fengu frábæra ferð um Moskvu-
borg,“ bætti forsetinn við.
Kaupsýslumaðurinn hefur nú
fengið farangur sinn aftur.
Eldsnöggur
fjárhirðir
Jóhannesarborg. Reuter.
ENGINN telur sauðfé hraðar í
heimi hér en suður-afríski fjár-
hirðirinn Fanie Fourie.
Heimsmeistarakeppni í þess-
ari iðju fór fram í Suður-Afríku
á dögunum og taldi Fanie Fo-
urie 7,26 kindur á sekúndu að
meðaltali. Þar með tókst honum
að vinna næsta auðveldan sigur
á Astralanum Malcolm Davies,
sem tapaði heimsmeistaratitlin-
um.
Fjárhirðirinn Fourie setti
einnig suður-afrískt met enda
er hann atvinnumaður í faginu.
Keppnin fór að þessu sinni fram
í námabænum Kimberley.
Suður-Afríkubúar hafa mjög
sótt í sig veðrið á sviði „sauðfj-
ár-íþrótta“ að undanförnu og
hefur það vakið verðskuldaða
athygli áhugamanna. Þannig
sigraði Suður-Afríkubúi í
heimsmeistarakeppninni í rún-
ingi á Nýja-Sjálandi í mars.
Fríkirkjusöfnuðurinn
í Reykjavík
Tónlisfarvor í Fríkirkjunni
Tónleikar þriðjudag,
7. maí, kl. 20.30.
Flytjendur Auður Hafsteinsdóttir, fiðlu.
Ilka Petrova Benkova, þverflauta.
Pavel Smid, orgel.
Violeta Smid, orgel.
□ff
m