Morgunblaðið - 21.05.1996, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristján
Glæsileg
Gífurleg þátttaka 1
Landsbankahlaupinu
GIFURLEG þátttaka var í hinu ár-
lega Landsbankahlaupi sem fram fór
á Akureyri sl. laugardag og fór þátt-
takan fram úr björtustu vonum að-
standenda. Alls mættu 490 börn til
leiks en í hlaupinu í fyrra tóku rétt
um 360 börn þátt. Keppt var í tveim-
ur flokkum stúlkna og tveimur
drengja, annars vegar börn fædd ’83
og ’84 og hins vegar böm fædd ’85
og ’86. Yngri krakkamir hlupu 1,1
km og þau eldri 1,5 km. Allir þátttak-
endur fengu húfu og þátttökupening
að hlaupinu loknu og þrír fyrstu í
hveiju hlaupi fengu verðlaunapen-
inga. Þá voru dregin út númer fjög-
urra þátttakenda og fengu þeir pen-
ingainnlögn á reikning í Leifsklúbbi
bankans og íþróttatösku. Fram-
kvæmd hlaupsins var i höndum
starfsmanna bankans og í samvinnu
við FRÍ og áður en hlaupið hófst
hitaði allur hópurinn vel upp á Ráð-
hústorginu.
Morgunblaðið/Kristján
veiðisýning
Skotféíagsins
VEL Á fimmta hundrað manns sáu
glæsilega veiðisýningu Skotfélags
Akureyrar í íþróttahöllinni um helg-
ina. Fjölmörg fyrirtæki sem sérhæfa
sig í sölu á hinum ýmsu vörum fyrir
skot- og stangveiðimenn sýndu vörur
sínar, svo og aðilar sem safna byss-
um, bæði skammbyssum, haglabyss-
um og rifflum. Þá sýndu menn sem
hafa sérhæft sig í uppstoppun á dýr-
um margt áhugavert á sýningunni.
Haraldur Ólafsson uppstoppari var
með steinagetraun við sýningarbás
sinn. Hann var með 9 steina til sýnis
í glerbúri og var aðeins einn þeirra
ekta en hinir gervi. Steinarnir voru
númeraðir og áttu sýningargestir að
reyna sjá út hver þeirra var ekta,
skrifa númer steinsins á blað og
skilja eftir í básnum. Að sýningu
lokinni var svo einn heppinn sýning-
argestur, sem hafði rétta númerið,
dreginn út og fékk hann uppstoppaða
ijúpu í verðlaun.
Nánast allir sýningargestimir
reyndu fyrir sér en það var Bergur
Már Flosason, 6 ára snáði frá Akur-
eyri, sem hreppti hnossið, en hinn
rétti steinn var einmitt númer 6. A
myndinni er hann að taka við verð-
launum sínum úr hendi Haraldar
Ólafssonar. Á hinni myndinni eru
áhugasamir gestir að skoða skamm-
byssur af ýmsum gerðum.
Maríuerla gerði sér hreiður í hjólaskóflu
Fuglinn sífellt á sveimi
kringum skófluna
„ÉG KVÍÐI því þegar hún fer
að unga út,“ sagði Árni Máson
starfsmaður Akureyrarbæjar,
en hann stjórnar hjólaskóflu
sem maríuerla hefur gert sér
hreiður í.
Hann varð fyrst var við fugl-
inn á sveimi kringum skófluna
síðastliðinn föstudag en áttaði
sig ekki á áhuga hans á tækinu.
Árni var þá að vinna í bæjar-
námu í Glerárdal, skammt neð-
an sorphauga bæjarins.
Vel falið
Á laugardag var vélin upp
við hauga og þegar Árni fór
að vinna á henni tók hann eftir
því að maríuerlan settist ævin-
lega á hana þegar hún var
stöðvuð og þegar betur var að
gáð sá hann fuglinn skríða inn
um gat framan og ofan við
skófluna.
„Þegar ég fór að skoða betur
sá ég að hún hafði gert sér
hreiður inni í tækinu, en það
er alls ekki gott að sjá það, það
er vel falið hjá henni,“ sagði
Árni.
Maríuerlan hefur flogið á
eftir tækinu þegar Árni þarf
að færa sig til. Eftir hádegið í
gær flutti hann sig í bæjar-
námu norðan Glerár og hafði
ekki séð fuglinn í röskan hálf-
tíma. „Hún er yfirleitt fljót að
finna okkur,“ sagði hann.
Árni hélt í fyrstu að maríu-
erlan myndi hætta við hreiður-
stæðið þegar hún áttaði sig á
hversu mikið tækið var á ferð-
inni, en greinilegt væri að
henni líkaði það ágætlega.
„Það verður sennilega verra
þegar ungarnir koma, en það
verður bara að hafa sinn
gang,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Kristján
ARNI Másson gætir að hreiðri maríuerlunnar í hjólaskóflunni.
írsk söngkona sigraði í evrópusöngvakeppninni Eurosong ’96 með laginu The Voice
Anna Mjöll glöð
og sátt við 13. sæti
EVRÓPUSÖNGVAKEPPNIH í Ósló, Noregi, 18. maí 1996 Land Heiti lage e 'á *Á ’yÚf/éiA í % 4y % Éá i 1 É i % Wé/M/L
1. Tyrkland Besinci mevsim e 8 10 1 - 6 - - - 4 - 7 5 - 5 - - 5 - - 571 12.
2. Bretland Just a little bit 3 - - 12 1 6 7 3 4 - 2 - 8 - - 12 3 - 4 - - 6 6 77 8.
3. Spánn Ay que deseo 2 5 4 - 6 - - - - - - - - - . - 171 20.
4. Portúgal 0 meo coracao tem cor 5 2 - - 12 - 10 1 10 5 - 12 5 - 6 6 - 3 10 - 1 - 4 92 6.
5. Kýpur Monio gia mas - 12 7 3 ■ 2 8 2 5 12 - 2 - - - 1 6 - - - 10 2 721 9.
6. Malta In a womans heart 10 - 10 12 - - 8 - 1 - 4 6 - 12 5 68 10/11.
7. Króab'a Sveta ijubav 8 4 5 10 8 7 ■ ■ 1 1 6 7 - 3 5 4 6 - 5 2 10 5 1 98| 4.
8. Austurríki Weil’s da guat got 4 - - 5 - 12 - 2 7 - 12 1 - - 8 - - 8 6 3 - 68 10/11.
9. Sviss Mon Coeur L’aime - 3 - - - - - - | - - - 2 4 2 4 4 3 - - - - 22|16/1T.
10. Grikkland We turn our winters into spr. - 7 - - 10 1 1 - 8 3 36 14.
11. Eístiand Kaelakee Háál - 10 4 - 7 T - 5 - ■ 8 1 8 3 - 2 12 12 10 - 12 94| 5.
12. Noregur 1 evighet 2 8 - 2 3 - 5 8 7 - 5 7 ■ 10 10 8 7 7 8 4 3 - 10 114 2.
13. Frakkland Diwanit Bugale - 1 1 - - . - - 3 4 - 7 2 ■ - . - ia| 19.
14. Slóvenía Dan Najlepsih sanj 16 21.
15. Holland De erate keer 1 SJ 6 7 5 - - 12 3 - 4 - 10 5 1 5 - 2 7 2 - 8 78] 7.
16. Belgía Liefde is een Kaarsspel - 5 12 22 16/17.
17. irland The voice 12 8 6 4 - 7 12 10 12 10 6 12 12 3 ■ 10 - 12 12 7 7 162| 1.
18. Finnland Niin kaunis on taivas 9 23.
19. ÍSLAND Sjúbidú - JJI 3 6 1- - - 6 - 3 8 5 - 6 - - 10 - 1 - 511 13.
20. Pólland 1 want to know my sind 7 7 2 - 31 15.
21. Bosnía-Herz. Za nasu Ijubav 6 - - - Á: 3 3 - - - * - - - - - 1 '•* - H - - 13| 22.
22. Slóvakía Kym nas mas 19 18.
23. Svfþjóð Don vitda - - - 4 - - - 10 8 - 10 6 3 7 8 10 12 6 6 - 4 4 ■lOOÍ 3.
FRAMLAG íslendinga til evrópu-
söngvakeppninnar, Eurosong ’96,
lagið Sjúbídú eftir Önnu Mjöll og
Ólaf Gauk, hafnaði í 13. sæti. Það
jafnar fjórða besta árangur sem
keppendur hafa náð fyrir íslands
hönd, í þau ellefu skipti sem ísland
hefur tekið þátt. „Eg er sátt og
glöð. Þetta var rosalega gaman og
ég væri alveg til í að keppa aftur
einhvern tímann seinna," sagði
Anna Mjöll Ólafsdóttir í gær.
íslenska lagið fékk hæst 10 stig
frá sigurþjóðínni írum, 8 stig frá
Eistlandi, 6 stig frá Portúgal, Aust-
urríki og Slóveníu, 5 stig frá Nor-
egi, 3 stig frá Spáni, Grikklandi og
Póllandi og 1 stig frá Slóvakíu.
Samtals 51 stig og_13. sætið. Áður
var besti árangur íslands 4. sætið
árið 1990, 7. sæti árið 1992, 12.
sæti árið 1994 og árið 1993 13.
sætið, eða sama sæti og nú.
Sjöundi sigur íra
írar unnu í fyrsta skipti árið
1970 með laginu All kinds of every-
thing í flutningi söngkonunnar
Dönu, næst 1980 með What’s
another year sem Johnny Logan
söng, hann sigraði svo aftur sjö
árum síðar er hann söng Hold me
now og Logan samdi sigurlagið
árið 1992, Why me. írar unnu
næstu tvö árin, 1993 og 1994 og
nú var sjöundi sigurinn í höfn. Irar
hafa tekið sér tveggja vikna um-
hugsunarfrest til að ákveða hvort
þeir ráðast í þann kostnað að halda
keppnina í fjórða skipti á fimm
árum, eða hvort þeir biðja aðra þjóð
að taka þann kaleik frá sér.
Anna Mjöll sagði að sjálf hefði
hún ekki veðjað á írska lagið. „Mér
leist best á hollenska lagið, gospel-
lagið frá Austurríki og breska lag-
ið. Ég er samt mjög sátt við að írska
stelpan hafi unnið, hún er mjög
almennileg og indæl. Reyndar voru
allir mjög jákvæðir og yndislegir."
Hrifnir af Sjúbídú
Anna Mjöll var einnig mjög
ánægð með hljómsveitina, sem Ólaf-
ur Gaukur stjórnaði. „Hljómsveitin
var mjög ánægð með lagið okkar
og við fengum þau skilaboð að
skemmtilegast væri að spila það.
Skýringin er ef til vill sú, að í hljóm-
sveitinni voru margir jass-leikarar
og lagið var útsett í jass-stíl. Þegar
ég steig á sviðið fékk ég fingur-
kossa frá hljóðfæraleikurunum. Það
var frábært fyrir litlu Önnu Mjöll
frá íslandi að standa á þessu stóra
sviði. Þetta var stórkostleg reynsla.“