Morgunblaðið - 21.05.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Reynt að bjarga Alitalia
Róm. Reuter.
STJORN Italska flugfélagsins
Alitalia vill skipta því í tvö félög,
fækka starfsmönnum og draga úr
fastakostnaði samkvæmt björgun-
aráætlun sem á að halda því á floti.
Móðurfyrirtækið IRI, sem er í
ríkiseign, hefur fagnað áætlun-
inni, hinni þriðju um endurskipu-
lagningu Alitalia á tveimur árum,
en verkalýðsfélög taka henni fá-
lega.
„Við gerum okkur grein fyrir
að við erum að biðja alla starfs-
menn fyrirtækisins um að færa
fórnir,“ sagði nýskipaður fram-
kvæmdastjóri, Domenieo Cemp-
ella, í yfírlýsingu. „Við höfum
hafízt handa um áætlun, sem er
eina leiðin til að komast hjá gjald-
þroti og hruni.“
Mikill
launakostnaður
Áætlunin er til fímm ára og
gerir ráð fyrir fjármagnasaukn-
ingu upp á 3.0 billjónir líra eða
1.9 milljarða dollara. Áætluninni
verður framfylgt í tveimur áföng-
um og verður félaginu skipt í
tvennt: annað félagið á að sjá um
flug á löngum leiðum, en hitt um
flug á meðallöngum og stuttum
leiðum.
Kveðið er á um að fækkað verði
um 2.833 störf úr 18.000 á fímm
árum. Nýir starfsmenn fá lægri
laun.
Mikill launakostnaður hefur
verið einn mesti vandi Alitalia og
segja sérfræðingar að hann sé 30%
meiri en hjá helztu keppinautunum
í Evrópu, þar á meðal British
Airways og Lufthansa.
Alitalia segir að því sé stefnt
að fyrirtækið komi slétt út 1997.
Tap varð á rekstrinum í fyrra,
áttunda árið í röð. Skuldir félags-
ins námu 4.43 billjónum líra eða
2.85 milljörðum dollara, en
greiðslufjármunir 442 billjónum
líra (284.4 milljónum dollara).
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996 17
imm
Umhverfisvæn
Ijósritun
i gæðaflokki
aco
SKIPHOLTI 17 -105 REYKJAVÍK
SÍMI: 562 7333 • FAX: 562 8622
Packer enn
auðugastur
íAstralíu
Sydney. Reuter.
AUÐUGASTI maður Ástralíu er
fjölmiðlajöfurinn Kerry Packer og
eru eignir hans metnar á 3,3 millj-
arða Ástralíudala eða 2.6 milljarða
Bandaríkjadala samkvæmt skrá
tímaritsins Business Review We-
ekly um ríkustu menn landsins.
Packer hefur auðgazt vel á hluta-
bréfamarkaði á árinu að sögn blaðs-
ins. Auður hans jókst um 300 millj-
ónir ástralska dollara vegna mikill-
ar hækkunar á verði hlutabréfa í
fyrirtæki hans, Publishing & Bro-
adcasting Ltd.
Annar auðugasti maður Ástralíu
er pappakóngurinn Richard Pratt
og er pökkunarfyrirtæki hans metið
á 1.5 milljarða ástralskra dollara.
Framkvæmdamaðurinn Frank
Lowy lenti í þriðja sæti og er bygg-
ingarfyrirtæki hans Westfield Hold-
ings metið á 1.2 milljarða ástral-
skra dollara. Verð hlutabréfa í fyrir-
tækinu hækkaði um 86% og verð-
mæti þess jókst um 340 milljónir
ástralskra dollara á árinu.
Rupert Murdoch hvarf af listan-
um vegna þess að hann er orðinn
bandarískur þegn og íbúi og hefur
keypt hlut móður sinnar og systra
í News Corp að sögn blaðsins. Hlut-
ur Murdochs í News Corp er metinn
á 5 milljarða ástralskra dollara.
Móðir Murdochs, Dame Elisa-
beth, og systur hans komust hins
vegar í fyrsta sinn á blað og er
auður þeirra metinn á 600 milljónir
ástralskra dollara.
Solomon Lew, varastjómarform-
aður stærstu verzlanakeðju Ástral-
íu, Coles Myer, varð fyrir mesta
áfallinu á árinu. Auður hans minnk-
aði um 150 milljónir ástralskra doll-
ara, aðallega vegna þess að hluta-
bréf í Coles hafa lækkað í verði.
Til að komast á skrá tímaritsins
um 200 ríkustu menn Ástralíu
þurftu menn að eiga 50 milljónir
ástralska dollara samanborið við
42 milljónir í fyrra og 30 fyrir þrem-
ur árum.
Auður 200 ríkusta manna Ástral-
íu jókst í 32.5 milljarða ástralskra
dollara alls úr 28.5 milljörðum að
sögn tímaritsins.
------»-♦-♦—■....
7,8% Breta
án atvinnu
London. Reuter.
BRETUM án atvinnu fækkaði um
3.200 í apríl og hlutfall atvinnu-
- lausra er óbreytt eða 7,8% sam-
kvæmt opinberum tölum.
Kaupmáttur Breta jókst á fyrsta
ársfjórðungi og hafði ekki verið
meiri í 10 mánuði.
Sérfræðingar segja tölurnar
staðfesta að efnahagsbati Breta sé
að aukast og að verðbólguþrýsting-
ur muni að engu gera vonir um
aðra vaxtalækkun að sinni.
Ráðstefna um
samskiptamarkaðssetningu
(Aftermarketing)
með Terry G. Vavra
ÍMARK heldur ráðstefnu um samskiptamarkaðssetningu á Grand Hótel Reykjavík,
föstudaginn 31. maí kl. 09 -17. Gestur ráðstefnunnar verður Terry G. Vavra, höfundur bókarinnar
AFTERMARKETING. HOW TO KEEP CUSTOMERS FOR LIFE THROUGH RELATIONSHIP
MARKETING.
Mikilvægi þess að líta á sölu sem upphafspunkt en ekki endapunkt er það sem samskiptamarkaðssetning
fjallar um. íslensk fyrirtæki leggja nú meiri áherslu á þennan þátt markaðsstarfsins og mikilvægi þess
að rækta tengslin við núverandi viðskiptavini. Það er jú sá hópur sem hefur þegar tekið ákvörðun
um að reyna viðskiptin og sá hópur sem er líklegri en aðrir til að gera það aftur.
Terry G. Vavra er einn þekktasti fræðimaður á sviði samskiptamarkaðssetningar. Hann er með
doktorsgráðu í markaðsmálum frá háskólanum í lllinois og meistaragráðu frá U.C.L.A. Auk þess
hefur hann kennt markaðsmál við Pace University. Vavra rekur ráðgjafafyrirtækið Marketing í New
Jersey, sem sérhæfir sig í samskiptamarkaðssetningu og hefur hann starfað fyrir fyrirtæki eins og
Rolls Royce, Ferrari, Seiko Instruments, Sharp Electronics og Shiseido Cosmetics.
Þátttökugjald á ráðstefnuna fyrir ÍMARK-félaga er 14.900 kr. en 19.900 kr. fyrir aðra. Innifalið í verði
er hádegisverður, kaffiveitingar, ráðstefnugögn og bókin eftir Vavra.
Skráning fer fram í síma 561 0140 dagana 24., 28., 29. og 30. maí kl. 09-12, alla dagana. Einnig
er hægt að tilkynna þátttöku á almennum skrifstofutíma ÍMARK, sem er mánudaga kl. 13 - 15 og
miðvikudaga kl. 10 -12 og í faxi 561 0140. Póstfang ÍMARK er pósthólf 7162,127 Reykjavík.
Misstu ekki af einstæðum viðburði.
Skráðu þig sem fyrst þar sem sætafjöldi er takmarkaður.
Styrktaraðilar
ÍMARK:
ISLANDSBANKI
Margt smdtt
Isiiliililiirpri'iilsniiDlíi lil
OPIN KERFIHF
PÓSTUR OG SÍMI
Gisli B.