Morgunblaðið - 21.05.1996, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996 19
ERLENT
Reuter
Rafgirt ólympíuþorp
GÍFURLEGA öflug öryggisgæsla setur rafvirki upp rúmlega
verður viðhöfð í Atlanta í Banda- mannhæðarháa rafmagnsgirð-
ríkjunum í lok júlí og byrjun ingu umhverfis ólympíuþorpið
ágúst í sumar þegar ólympíuleik- þar sem keppendur dveljast með-
arnir fara þar fram. A myndinni an á leikunum stendur.
Jeltsín íhugar upp-
stokkun á stjórninni
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
sagði á sunnudag að hann kynni
að stokka upp í ríkisstjórninni til
að auka sigurlíkur sínar í forseta-
kosningunum 16. júní.
„Við gætum ef til vill breytt
stærstum hluta stjórnarliðsins,"
höfðu rússneskar fréttastofur eftir
Jeltsín, sem var á kosningaferðalagi
í Síberíu, þar sem kommúnistar
hafa verið öflugir vegna óánægju
almennings með markaðsumbætur
stjórnarinnar. Jeltsín kvaðst vera
eini frambjóðandinn sem gæti af-
stýrt sigri frambjóðanda kommún-
ista, Gennadís Zjúganovs, og komið
þannig í veg fyrir stjórnleysi í land-
inu.
Jeltsín í sókn
Ný skoðanakönnun, sem birt var
á sunnudag, bendir til þess að Jelts-
ín sé að sækja í sig veðrið. Forset-
inn fékk þar 32% fylgi, þremur pró-
sentustigum meira en viku áður og
sjö stigum meira en Zjúganov.
Umbótasinninn Grígorí Javlínskí
var í þriðja sæti með 9% fylgi. Rom-
ir-stofnunin, sem tengist Gallup,
framkvæmdi könnunina fyrir NTV-
sjónvarpið og skekkjumörkin eru
4%.
Rússneskar skoðanakannanir
hafa þó reynst mjög óáreiðanlegar
og Jeltsín virtist ekki ánægður með
stöðu sína. Forsetinn leggur nú
áherslu á að semja við Javlínskí og
fleiri frambjóðendur, sem hafa verið
með 10-15% fylgi í skoðanakönnun-
um, um að þeir dragi sig í hlé og
lýsi yfir stuðningi við hann til að
afstýra sigri Zjúganovs.
„Eg er reiðubúinn að sameinast
þeim öllum,“ sagði Jeltsín á laugar-
dag. „Verkefni okkar er að koma
í veg fyrir að þeir, sem vilja ekki
umbætur, komist til valda.“
Segir þörf á nýjum mönnum
Jeltsín sagði að rússneskir kjós-
endur hefðu fengið sig fullsadda á
skrifræði og kerfiskörlum og því
kæmi til greina að skipa nýja menn
með nýjar hugmyndir í stjórnina.
Hann virtist vilja koma til móts við
kröfur Javlínskís, sem hefur krafíst
breytinga á stefnu stjórnarinnar,
viðræðna um frið í Tsjetsjníju og
afsagnar Viktors Tsjemomyrdíns
forsætisráðherra og Pavels
Gratsjovs varnarmálaráðherra.
Zjúganov kvaðst efins um að
Jeltsín gæti myndað bandalag með
öðrum frambjóðendum. Míkhaíl
Gorbatsjov, síðasti forseti Sovét-
rikjanna, lítur á viðræðurnar sem
kosningabrellu af hálfu Jeltsíns,
sem vilji tryggja sér atkvæði ann-
arra frambjóðenda án þess að
bjóða nokkuð áþreifanlegt í stað-
inn.
„Þetta er gildra,“ sagði Gorb-
atsjov, sem nýtur lítils stuðnings
ef marka má kannanir. Hann
kvaðst vilja að Javlínskí og aðrir
umbótasinnaðir frambjóðendur
sameinuðust og mynduðu „þriðja
aflið“ til mótvægis við Jeltsin og
Zjúganov.
Jeltsín sagði á sunnudag að að-
skilnaðarsinnar hygðust reyna að
ráða hann af dögum ef hann færi
til Tsjetsjníju en hann lofaði þó að
standa við loforð sin um að fara til
héraðsins og reyna að ná samkomu-
lagi við aðskilnaðarsinna til að
koma á friði.
Romano Prodi tekur við stjórnartaumunum á Italíu
Glímt við efnahagsástand
mafíu o g atvinnuleysi
Róm. Reuter.
Egyptar ævareiðir
Bandaríkjamönnum
Kairó. Morgunblaðið.
ROMANO Prodi, hinn nýi for-
sætisráðherra Ítalíu, mun kynna
stjórnarsáttmála sinn í efri deild
ítalska þingsins á miðvikudag. Þá
verður einnig gengið til atkvæða
í þinginu um traustsyfirlýsingu við
stjórnina, sem talin er formsatriði
fyrir stjórnina. Búist er við að
fyrsta verk hans verði að kynna
ijárlög sem hljóða upp á 15 billjón-
ir líra, 640 milljarða ísl. kr.
Prodi tók við embætti á laugar-
dag. Sagðist hann leggja mesta
áherslu á að koma lírunni að nýju
inn í Gengissamstarf Evrópu
(ERM) til að undirbúa þátttöku
Itala í sameiginlegum gjaldmiðli
Evrópu. Þá myndi stjórn hans
auka baráttuna við atvinnuleysi
og skipulagða glæpastarfsemi. Til
að undirstrika það sendi hann tvo
ráðherra til Sikileyjar nokkrum
klukkustundum eftir að stjórnin
ók við.
Lífdagar nýju ríkisstjórnarinnar
eru fyrst og fremst háðir því
hvernig henni tekst glíman við
efnahagsástandið. Erlendar skuld-
ir landsins eru gífurlegar, kröfur
um aðhald í ríkisrekstri æ hávær-
ari og atvinnuleysi í suðurhlutan-
um er nú yfir 20%. Það hefur skap-
að félagsleg vandamál sem stjórn-
málamenn hafa reynt að leysa með
kostnaðarsömum aðgerðum.
Takist stjórninni að ná tökum
á útgjöldum ríkisins, tekst henni
væntanlega að lækka vexti og
standast þær kröfur sem aðildar-
ríki Myntbandalags Evrópu
(EMU) þurfa að uppfylla. Lam-
berto Dini, hinni nýi utanríkisráð-
herra landsins sagði hins vegar
um helgina að ef til vill væri ekki
allt á sig leggjandi til að standast
EMU kröfurnar fyrir árið 1997.
Susanna Agnelli, fráfarandi ut-
anríkisráðherra í ítölsku stjórninni
og einn óvenjulegasti stjórnmála-
maður, sem verið hefur í forsæti
Evrópusambandsins, hyggst
skrifa bók, þar sem hún segir
umheiminum hvernig henni finnst
honum vera stjórnað. Óstaðfestar
heimildir um efni bókarinnar gefa
til kynna að Agnelli sé ekki jafn
hrifin af öllu því sem hún hefur
komist í kynni við.
Um Frakka segi hún til dæmis
að þeir „hafi alltaf viljað vera
yfir aðra hafnir". Alþjóðaráð-
stefnur séu tímaeyðsla, þess í stað
eigi menn að leggja áherslu á
tvíhliða viðræður, „vinalega
fundi, sem eru mun mikilvægari
en þessir stóru fundir þar sem
allir lesa upp ræður og, við verð-
um að horfast í augu við það, að
enginn hlustar.“
UNDANFARNA daga hefur ekki
linnt hörðum gagnrýnisgreinum í
egypskum blöðum á Bandaríkja-
menn og ekki síst Bill Clinton for-
seta þar sem mönnum þykir einsýnt
að Bandaríkjamenn dragi taum ísra:
ela sem fyrr og á kostnað Araba. í
egypska dagblaðinu A1 Ahram var
árás ísraela á Qana í Líbanon, þar
sem flóttamenn höfðu leitað skjóls
hjá friðargæslusveitum SÞ til dæmis
kölluð „útreiknað morð“.
A1 Akhbar sagði að bandaríska
stjórnin hefði látið öll gildi og siða-
lögmál lönd og leið og þættist svo
vera þróað lýðræðisríki. Þessi af-
staða Clintons stjórnarinnar hlyti að
leiða til að Arabaríkin hefðu efa-
semdir um hvort Clinton væri í raun
og veru í mun að bæta og efla sam-
skipti við Arabaríki fyrst hann tæki
afstöðu með ísraelum þegar á reyndi
og hvað svo sem þeir gerðu.
A1 Dustan birti stóra mynd af
Clinton þar sem hann veifar ísra-
elska fánanum og undir var letrað
á ensku: Clinton, farðu til fjandans.
Síðan sagði: „Þú virðist telja það
einu leiðina til að halda völdum að
afhenda ísraelum sjálfdæmi hvað
varðar samskipti við Araba þó svo
það kosti mannslíf og hörmungar,
og ekki ertu sínkur á fjárútlátin til
gyðingaríkisins."
Albright reitir tU reiði
„Vissulega höfðu fjöldamorðin í
Qana vakið bræði og sársauka hér.
En það var þó sér í lagi eftir að
Madeleine Albright, aðalfulltrúi
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóð-
unum tjáði sig um skýrslu sem
[framkvæmdastjóri SÞ] Boutros
Ghali lét taka saman og komist var
að þeirri niðurstöðu að ætlunin hefði
verið að ráðast nákvæmlega á þann
stað þar sem flóttamenn voru, að
allt fór hér í bál og brand.“
Orð Albright voru á þá leið að
skýrsluhöfundar kæmust að ósann-
gjarnri og órökstuddri niðurstöðu og
vísaði innihaldi hennar á bug.
Nú hefur Clinton sagt að hann
haldi ekki með ísrael á kostnað
Araba en óhætt er að segja að
menn hér í Kairó taka orð hans nú
og sennilega lengi enn með fyrir-
vara.
SKYIMDIBREF
5 K A M D I A
ENGINN KOSTNAÐUR
Skyndibréf Skandia eru alltaf innleysanleg og gefa í flestum tilvikum hœrri ávöxtun en bankabœkur og bankareikningar.
Skyndibréf Skandia má innleysa hvenær
sem er án nokkurs aukakostnaðar og því
einfalt að kaupa þau og selja. Nafnávöxtun
Skyndibréfa síðustu 6 mánuði var 8,5%.
Lokaðu bókinni og
skoðaðu Skyndibréf.
Ráðgjafar Skandia veita
allar frekari upplýsingar.
nýtt simanúmer
540 50 60
, fáið nánaii upplýsingar
Skandia
FJAHFESTINBARFÉLAGIB SKANOIA HF • LAUGAVEGI 1VO • SlMI 540 50 SO • FAX 540 50 B1