Morgunblaðið - 21.05.1996, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996 27
MENNTUN
Sænskir grunnskólanemendur báru sigur úr býtum í 4.000 bekkja útsláttarkeppni
SÆNSKU nemendurnir voru boðnir i sænska sendiráðið sl. föstudag. Á myndinni eru einnig tveir
foreldrar nemenda ásamt Kjell Olsson kennara (þriðji frá vinstri).
Islands-
för varð
fyrir
valinu
NÍU sænskir nemendur ásamt
kennara sínum, Kjell Olsson,
komu til íslands á uppstigning-
ardag og dveljast hér til sunnu-
dagsins 26. maí nk. Ótrúlega
fjölbreytt dagskrá bíður þeirra,
meðal annars heimsókn til for-
seta Islands næstkomandi föstu-
dag, sem þeim finnst vera topp-
urinn á heimsókninni, auk
þriggja daga dvalar hjá penna-
vinum í Vestmannaeyjum.
Ástæða ferðarinnar er sú að
nemendurnir báru í fyrra sigur
úr býtum í þekktri spurninga-
samkeppni sem nefnist „Vi i
Femman“ eða Við í fimmta
bekk.
„Um það bil 4.000 5. bekkir
eru í Svíþjóð, þannig að við vor-
um að vonum stolt með okkar
skóla, Lángeruds skola, sem er
mjög lítill, aðeins 53 nemendur
alls,“ sagði Kjell Olsson.
Undanúrslit keppninnar fara
fram í útvarpi en síðan flyst hún
yfir í sjónvarp. „Ástæða þess að
keppnin er svo vinsæl meðal al-
mennings er að gegnumsneitt
hafa mjög margir verið virkir
þátttakendur í henni, enda á hún
sér rúmlega 30 ára sögu,“ sagði
hann.
Hvað á að gera?
Verðlaunin eru ekki af verri
endanum, eða 22.500 sænskar
krónur (um 225.000 ísl.kr.) og
var því úr vöndu að ráða hvern-
ig ráðstafa ætti peningunum.
Fjöldi áfangastaða kom til
greina, en fljótlega urðu nem-
endur ásáttir um að Island væri
vænsti kosturinn. Skráðu þeir
niður hvað þeir vildu gera og
undirbúningsvinna hófst.
Ferðakostnaður er alls um
75.000 sænskar krónur á mann
og þurfti því að safna töluverðra
viðbótarfjármuna. Að sögn
Kjells Olssons hafa margir
styrkt nemendur, s.s. Flugleiðir,
ýmsir norrænir sjóðir, bankar
o.fl. „Brynhildur Ragnarsdóttir
kennsluráðgjafi í Norræna hús-
inu hefur lagt á sig gífurlega
vinnu við að útvega okkur allar
þær upplýsingar ogþau sam-
bönd sem við þurftum á að
halda, meðal annars við Ham-
arsskóla í Vestmannaeyjum,"
sagði Kjell Olsson og bætti við
að fjöldi annarra Islendinga
hefðu lagt hönd á plóginn og
ættu þeir þakkir skildar.
Pennavinir í Eyjum
Nemendur 6. bekkjar í Ham-
arsskóla hafa skrifast á við
sænsku nemendurna frá ára-
mótum. Dvöldust Svíarnir í Eyj-
um frá laugardegi til mánudags
og gistu meðal annars á heimil-
um pennavina sinna. „Nemend-
ur mínir hafa skrifað á dönsku
og þau hafa tekið alveg ótrúleg-
um framförum á þessum tíma.
Það er ekki spurning að sam-
starf eins og þetta hefur mikið
að segja varðandi tungumála-
nám. Við höfum jafnvel heyrt
minnst á að okkur verði boðið
til Svíþjóðar í staðinn og það
þykir ekki síður spennandi,"
sagði Valgerður Guðjónsdóttir
kennari, sem jafnframt hefur
skipulagt dagskrána í Eyjum.
Meðal þess sem börnin gerðu
var að fara í bátsferð og
spranga, en auk þess höfðu þau
beðið um að fá að fara í kirkju,
sem var einnig gert. Á laugar-
dagskvöldið fylgjast allir með
Eurovision-keppninni í sjón-
varpinu í iþróttaheimilinu auk
þess sem var jrrillað og farið í
íþróttaleiki. I gær, mánudag,
mættu nemendur i skólann og
fylgdust með kennslustund, þar
sem íslensku nemendurnir
kynna Evrópuverkefni, sem þeir
hafa verið að vinna að.
Hópurinn kom síðan aftur til
Reykjavíkur siðari hluta dagsins
í gær. Meðal þess sem er á dag-
skrá í þessari viku er að fara
daglangt á hestbak, því nokkrir
nemendanna eiga hesta, í heim-
sókn í Reykholt og jafnvel á
Alþingi. Tónleikar verða í Nor-
ræna húsinu næstkomandi
fimmtudag kl. 12, þar sem
sænsku nemendurnir munu
syngja norræna söngva. Tónlist-
arkennarinn Ulf Andersson
kemur til landsins 20. maí og
hefur hann áhuga á að hitta is-
lenska starfsfélaga sína, en þess
má geta að hópurinn gistir á
Farfuglaheimilinu við Sund-
laugaveg.
„Þegar við komum aftur til
Svíþjóðar bíður fjöldi dagblaða
eftir að heyra frá ferðinni, auk
þess sem við munum heimsækja
Lionsfélög og sýna myndir og
segja frá,“ sagði Kjell Olsson
að lokum.
Framhalds-
skólastigið
13 m.kr.
til náms-
efnis-
gerðar
SAMTALS þrettán milljónir
króna hafa verið veittar til
námsefnisgerðar á framhald-
skólastigi fyrir árið 1996, að
því er fram kemur í frétta-
bréfi menntamálráðuneytis.
Voru veittir styrkir til 51 verk-
efnis í 24 greinum. Alls bárust
76 umsóknir að upphæð 41
milljón króna.
Hæstu styrkveitingu hlaut
IÐNÚ, bókaútgáfa, að upphæð
700 þúsund, til grunnteikn-
inga, en næsthæsta styrkinn,
að upphæð 600 þúsund krón-
ur, fékk Örnólfur Thorlacius
vegna kennslubókar í líffræði.
Víða komið við
Styrkir voru veittir til náms-
efnisgerðar í ferðamála- og
félagsfræðigreinum, hand-
mennt, heilbrigðisgreinum,
iðnfræðslu af ýmsu tagi, s.s.
almennrar, byggingariðn-
greina, fataiðnar, framreiðslu,
grunndeildar, málm-, plast- og
rafiðna. Einnig til íslensku, þar
með talið til myndbandagerðar
til notkunar við kennslu í tján-
ingu og tölvuforrit til ritunar-
kennslu. Þá voru veittir styrk-
ir til námsefnisgerðar í íþrótt-
um, myndmennt, líffræði,
matvælagreinum, sögu, sál-
fræði, sjávarútvegsgreinum,
tungumálum og raungreinum,
s.s. eðlisfræði, efnafræði, jarð-
fræði og stærðfræði.
Blað allra landsmanna!
písur0!iml>laí>!Í5ii
-kjarni málsins!
Heilbrigðisþjónusta
Nám í stj órn-
un og rekstri
ÞRIGGJA missera nám í stjórnun
og rekstri heilbrigðisstofnana hefst
á vegum Endurmenntunarstofnun-
ar Háskóla íslands í haust. Að sögn
Margrétar Björnsdóttur endur-
menntunarstjóra hefur verið leitað
eftir samvinnu við Norræna heil-
brigðisháskólann í Gautaborg um
þróun námsins og mat á því.
‘ Námið er ætlað þeim sem vilja
öðlast þekkingu á þeim greinum
sem snerta rekstur, stjórnun og
stefnumótun í heilbrigðisþjónustu.
Inntökuskilyrði er háskólanám í
heilbrigðisgreinum. „Markmiðið er
að þátttakendur öðlist öryggi og
getu til þess að takast á við ýmis
svið rekstrar og stjórnunar. Leitast
verður við að gefa nemendum
fræðilega yfirsýn um leið og þeim
eru kynntar hagnýtar aðferðir sem
reynst hafa vel í rekstri og stjórn-
un,“ sagði Margrét.
Kennt verður seinni hluta dags
einu sinni í viku og um helgar,
þannig að nemendur geti stundað
vinnu með námi, sem samsvarar
16 eininga námi á háskólastigi.
Að sögn Margrétar verða gerðar
kröfur um heimavinnu, allt að
10-12 klst. á viku auk prófundir-
búnings.
Fjöldi leiðbeinenda
Leiðbeinendur verða innlendir og
erlendir sérfræðingar og koma þeir
erlendu frá Norræna heilbrigðis-
háskólanum. Helstu íslensku kenn-
ararnir verða þau Gísli S. Arason,
rekstrarhagfræðingur og lektor við
viðskipta- og hagfræðiskor HÍ,
Guðjón Magnússon, læknir og rekt-
or Norræna heilsuháskólans, Ingi-
björg Þórhallsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og forstöðumaður á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Guðrún
Högnadóttir MHA, forstöðumaður
gæða- og þróunarskorar Ríkisspít-
ala, Guðbjörg Sigurðardóttir, tölv-
unarfræðingur og deildarstjóri
tölvudeildar Ríkisspítala, auk fjölda
gestakennara úr íslensku heil-
brigðiskerfi og stjórnsýslu.
Kostnaður við námið er 190.000
krónur á verðlagi í janúar 1996 og
er skráningarfrestur til 20. júní.
ÍSLENSKI LIFEYRISSJOÐUKINN
FUNDARBOÐ
Fundur sjóðsfclaga íslenska lífeyrissjóðsins
verður haldinn fimmtudaginn 23. maí nk. kl. 17.15
að Suðurlandsbraut 24, 5. hæð.
DAGSKRA:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningur 1995.
3. Kjör stjórnar skv. 9. gr. samþykkta.
4. Kjör endurskoðenda skv. 11. gr. samþykkta.
5. Tillaga um breytingu á samþykktum sjóðsins.
6. Erindi: „Þróun og uppbygging íslenska lífeyrissjóðsins",
Sigurður Atli Jónsson, hagfræðingur.
Sjóðsfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Stjórn íslenska lífeyrissjóðsins.
0
&
LANDSBRÉF HF.
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 588 9200, bréfasími 588 8598.
LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI, AÐILl AÐ VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS.