Morgunblaðið - 21.05.1996, Side 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Nýbýlavegi 12, sími 554-4433.
Sumarveisla í Ceres
Fínir sumarkjólar frá kr. 3.000-4.800
Stendur aðeins í nokkra daga.
Tónleikar
í H áskólabíói fimmtudaginn
23. maí kl. 20.00
Grzegorz Nowak, Friedrich Lips, Harri Ruijsenaars,
hljómsveitarstjóri harmóníka celló
Sinfóníuhljómsveit íslands
Karneval, forleikur
Sjö síðustu orð Krists
Sinfónía nr. 9
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Háskólabíói vib Hagatorg, sími 562 2255
MIÐASALA Á SKRIFSTOFU HLJÓMSVEITARINNAR OG VIÐ INNGANGINN
(m.
Antonin Dvorak:
Sofia Gubaidulina:
Dmitri Shostakovich:
Gul áskriftarkort gilda
SUMARTÍMI
Afgreiðslutími í sumar
er frá 8:00 - 16:00
(20. maí-20. sept.)
SP-FJÁRMÖGNUN HF
Vegmúli 3 • 108 Reykjavik • Sími 588-7200 • Fax 588-7201
_______AÐSEMPAR GREINAR__
Samræmd grunnskóla-
próf vorið 1996
SENNILEGA eru
engin próf sem börn í
grunhskóla þreyta eins
mikilvæg og samræmd
próf í lok 10. bekkjar.
Prófin er að nokkru
leyti arftaki lands-
prófsins, en þó skilur
á milli að einu leyti:
Samræmd próf eru
tekin við lok skyldu-
náms og því er öllum
grunnskólanemum
gert að þreyta þau
nema í undantekning-
artilvikum. Landspróf
var hins vegar lagt
fyrir þá nemendur sem
ákveðið höfðu að fara tiltekna leið
í skólakerfi.
Til samræmdra prófa má ekki
kasta höndum. Nemendur hafa
búið sig vel undir þau, kennarar
hafa miðað kennsluna við prófin,
foreldrar vita að einkunnir á sam-
ræmdum prófum geta skipt sköp-
um fyrir framtíð barna og þau
kosta mikið fé. Fjögur próf voru
lögð fyrir nemendur að þessu
sinni: í íslensku, ensku, dönsku og
stærðfræði.
Deilt á prófin
í vor hefur umræða um prófin
verið fremur neikvæð. Virðist sem
nokkur óhöpp í framkvæmd skipti
hér mestu. Talað hefur verið um
að ekki hafi verið gætt samræmis
þegar sum prófanna voru lögð
fyrir nemendur. Brögð voru að því
að hlustunarverkefni í dönsku var
leikið tvisvar af bandi þótt svo
hafi verið fyrir um mælt að það
skyldi aðeins gert einu sinni. Hlið-
stætt atvik átti sér stað í stafsetn-
ingarprófi í íslensku. Reynt var
að leiðrétta mistök í dönskuprófi
á meðan á því stóð, en óvíst er
að það hafí tekist svo vel að allir
nemendur geti við unað. Lands-
samtökin Heimili og skóli hafa séð
ástæðu til að gera athugasemd við
margt í framkvæmd prófanna að
þessu sinni.
Nú getur verið að einhver telji
að moldin sé farin að ijúka í logn-
inu. Sennilega skipta framan-
greind atriði fremur litlu máli fyr-
ir niðurstöðuna. Meðaltalið verður
vafalítið hvorki miklu hærra né
lægra en ella. En fyrir nemendur,
foreldra og kennara - einstaklinga
- skíptir þetta miklu máli. Prófin
eru samræmd og til þess að þáu
rísi undir nafni verður að hafa þá
staðreynd í huga. Að þessu sinni
hefur of margt farið úrskeiðis og
verður að kalla þá sem sáu um
prófið til ábyrgðar. Þetta er ekki
síst mikilvægt nú um stundir þeg-
ar boðað er að sömu aðilar munu
sjá um könnunarpróf í íslensku og
stærðfræði í 4. og 7. bekk strax
næsta skólaár.
Frá ári til árs
í umræðum síðustu vikna hefur
fremur lítið borið á athugasemdum
um gerð prófanna sjálfra. Um
hvað er spurt? Slíkra spurninga
má vænta þegar einkunnir hafa
verið birtar, einkum ef í ljós kem-
ur að landsmeðaltal er lægra en í
meðalári, að einhver landshluti
sker sig úr eða að stúlkur fara enn
lengra fram úr
drengjum en áður.
Vorið 1995 varð uppi
fótur og fit vegna
þess að meðaleinkunn
í íslensku hafði lækk-
að frá fyrra ári úr 6,4
í 5,3 og svo virtist
jafnvel sem töpuð stig
í íslensku færðu sig
yfir í ensku því meðal-
einkunn hækkaði í því
prófi úr 6,5 í 7,4.
En hér er ekki allt
sem sýnist. Próf geta
auðvitað verið mis-
jafnlega þung frá ári
til árs og sú er senni-
legasta skýringin á sveiflum í
ensku og íslensku á síðustu árum.
Vitanlega eru til fleiri tilgátur,
m.a. breytingar á fjölda kennslu-
stunda í tilteknum námsgreinum.
Einnig er hugsanlegt að miklar
breytingar á prófí frá einu ári til
annars geti skipt máli. Nemendum
hafa verið sýnd próf frá fyrri árum
og því má búast við að einhveijum
þeirra bregði ónotanlega í brún sé
prófið með allt öðru sniði en áður.
Því miður hafa aðstandendur prófs-
ins ekki talið ástæðu til að birta
skýrslur um prófin sem m.a. gætu
svarað spurningum af þessu tagi.
Fylgjast þarf grannt
með framkvæmd sam-
ræmdra prófa, segir
Sigurður Konráðsson,
til að tryggja rétt allra
sem hlut eiga að máli.
Um hvað skal spyrja?
Öll kennsla og mat á námsár-
angri skal miðuð við Aðalnámskrá
grunnskóla frá 1989. Mennta-
málaráðuneytið gefur hana út, og
með sanni má segja að hún sé
nokkurs konar reglugerð um nám
í grunnskóla. Svo virðist sem
-ábyrgðarmönnum prófsins sé
þetta ljóst. Má ráða það af eftirfar-
andi orðum í bréfi sem sent er í
grunnskóla árlega: „Prófið verður
byggt á Aðalnámskrá grunnskóla
frá 1989.“ Þessi fyrirmæli eru
vægast sagt fijálslega túlkuð þeg-
ar rýnt er í samræmt próf í ís-
lensku og verður nú vikið að því.
Um önnur próf verður ekki fjallað
að svo stöddu.
Efni íslenskuprófs: Um hvað
er spurt?
í íslenskuprófinu eru fjórir
þættir: stafsetning, málfræði, rit-
un og bókmenntir. Hér er þó langt
í frá nóg að gert. Áherslur eru
að mörgu leyti rangar. Enginn
hlustunarþáttur er í prófinu (ef frá
er talin stafsetningaræfing eftir
upplestri af snældu), þótt hlustun
sé einn meginþátta í íslensku í
Aðalnámskrá. Engin spurning í
prófinu reynir á almennan les-
skilning. Ritunarverkefni er gagn-
rýnisvert, en í því er nemendum
ekki gert að vinna úr upplýsingum
(dagur-í-sveit-stefnan er í háveg-
um höfð), spurt er enn og aftur
um smáatriði í Gísla sögu Súrsson-
ar (hver mælti þessi orð?) og spurt
er hvaða persóna í Brekkukots-
annál sagði: Hann lenti í ferðalög-
um. Spurningar í málfræði eru
sumar hveijar ærið vafasamar
(beygðu brostin rödd saman í öll-
um föllum eintölu; sýndu sögnina
að hlaupa í l.p. et. fh. nt.). Mál-
fræðihlutinn er þó betri nú en
undanfarin ár. Horfið er af þeirri
óheillabraut að spyija flókinna
fjölvalsspurninga (krossaspurn-
inga) og er óskandi að þetta sé
merki um framfarir í öðrum þátt-
um prófsins. Því verður þó ekki á
móti mælt að lítið er reynt að
nálgast þau fyrirmæli Aðalnám-
skrár að nemendur þurfi „að
kunna að nota helstu hugtök sem
aukið geta skilning þeirra á mál-
kerfinu og auðveldað þeim að lýsa
málinu og ræða um málnotkun".
Afar lítill hluti prófsins fullnægir
þessu skilyrði. Verður ekki annað
séð en hér sé nokkuð gengið gegn
fyrirmælum sem menntamála-
ráðuneytið hefur sett. Þetta er
alvarlegt vegna þess að í raun og
veru eru prófsemjendur að semja
kafla í kennslubók þegar þeir láta
frá sér próf. Kunnugir vita að
gömul próf verða strax hluti af
námsefni næstu ára og hafa veru-
leg áhrif á skólastarfið.
Ábyrgð
Ekkert áhlaupaverk er að semja
samræmt próf, hlutskipti próf-
dómara er ekki öfundsvert og
framkvæmd þeirra hefur senni-
lega aldrei gengið áfallalaust.
Menntamálaráðuneytið hafði próf-
in með höndum og bar á þeim
ábyrgð til ársins 1992 þegar Rann-
sóknastofnun uppeldis- og
menntamála var falið að sjá um
framkvæmd þeirra. Ráðuneytið sá
til þess að árlega voru gefnar út
skýrslur um helstu niðurstöður
eftir prófþáttum og prófdómarar
stóðu skil á þeim reglum sem þeir
fóru eftir við mat. Kennurum var
ómetanlegur styrkur að slíkum
skýrslum og gátu þeir lagað
kennslu að þeim kröfum sem gerð-
ar voru til nemenda. Nú hefur
Rannsóknastofnun uppeldis- og
menntamála borið ábyrgð á próf-
unum í fjögur ár. Á þeim tíma
hefur engin skýrsla litið dagsins
ljós. Þrátt fyrir yfirlýsingar um
að nú skyldi semja marktæk próf
og fræðigreinin próffræði í háveg-
um höfð er erfitt að koma auga á
framfarir. Mál er að linni. Rann-
sóknastofnun uppeldis- og
menntamála verður að taka tillit
til gagnrýni sem fram hefur kom-
ið á prófin. Virðing fyrir þeim fer
þverrandi og við svo búið má ekki
standa.
Lokaorð
Við samningu og framkvæmd
samræmdra prófa er nauðsynlegt
að gera kröfu um ákveðin vinnu-
brögð. Rannsóknastofnun uppeld-
is- og menntamála þarf að átta sig
á því að: - fyrirmæli menntamála-
ráðuneytis séu virt, - prófin séu
vel samin og rétt, - skýrslur um
prófín skipta verulegu máli, - efla
þarf virðingu kennara fyrir prófinu,
- framkvæmd prófsins verði stofn-
uninni til sóma. Full ástæða er til
að hvetja menntamálaráðuneyti,
samtök kennara, skólastjórnenda
og foreldra til þess að fylgjast
grannt með efni prófanna og fram-
kvæmd þeirra í því skyni að tryggja
rétt allra sem hlut eiga að máli,
ekki síst nemenda.
%yi^>V(\\v\V Brúðhjón
Allm boróbiinaöur Glæsileg gjafavara Brúðarhjóna lislar
VEltSLUNlN
Lnugavegi 52, s. 562 4244.
Sigurður
Konráðsson
Höfundur cr prófcssor við
Kennaraháskóla íslands.