Morgunblaðið - 21.05.1996, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996 39
Flestir stigahæstu með á
Skákþingi Islands
Jóhann Helgi Áss
Hjartarson Grétarsson.
SKAK
Fjölbrautaskólanum
í tiaróabæ
SKÁKÞING ÍSLANDS
- landsliðsflokkur:
Frá 22. maí til 3. júlí. 1. umferð hefst
á miðvikudaginn. Jafnan er teflt frá
kl. 17, nema frídagana sem eru 26.
maíogl.júní.
ÞAÐ gekk óvenju vel að manna
mótið að þessu sinni og í endan-
legum tólf manna þátttakenda-
lista má finna fimm stórmeistara,
sem er met á íslandsmóti. Tveir
alþjóðlegir meistarar eru einnig
með, auk þess sem nokkrir ungir
og efnilegir skákmenn fá einnig
tækifæri. Það má búast við spenn-
andi og skemmtilegri keppni í
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
næstu tvær vikurnar.
Núverandi íslandsmeistari er
Jóhann Hjartarson, sem hefur
sigrað tvö ár í röð. Þar áður vann
Helgi Ólafsson titilinn þrisvar í
röð. Meðalstig keppenda á mótinu
eru 2.395 stig, en þau hafa aðeins
einu sinni áður verið hærri. Það
var áfið 1991, en þá fór mótið
einnig fram í Garðabæ. Þátttak-
endurnir tólf eru þessir:
Benedikt Jónasson 2.280
Hannes H. Stefánsson 2.540
Helgi Áss Grétarsson 2.450
Helgi Ólafsson 2.485
Jóhann Hjartarson 2.570
Jón Viktor Gunnarsson 2.180
Jón Garðar Viðarsson 2.340
Magnús Órn Úlfarsson 2.290
Margeir Pétursson 2.585
Sævar Bjarnason 2.305
TorfiLeósson 2.160
Þröstur Þórhallsson 2.445
Sigurvegarinn á mótinu tryggir
sér sæti í Ólympíusveit íslands í
Armeníu í haust.
Ólympíuliðið í meðferð
hjá Gunnari
Skáksamband íslands hefur
fengið Gunnar Eyjólfsson, einn
kunnasta leikara íslands, til að
þjálfa Ólympíuliðið fyrir Ólymp-
íuskákmótið í haust. Gunnar kenn-
ir liðinu þó engin ný byijanaaf-
brigði, heldur mun hann sjá um
að byggja upp þrek og einbeitingu
liðsins. Aðferðir hans gáfust mjög
á Ólympíumótunum 1990 og 1992
og einnig í landskeppninni við ísra-
el um daginn, þegar ísland sigraði
óvænt. Gunnar verður einnig með
í för til Armeníu.
Opna mótið í Lichtenstein
Sterkasti skákmaður Litháa,
Eduard Rosentalis, sigraði á ár-
lega opna mótinu í furstadæminu
Lichtenstein, sem
lauk á laugardaginn.
Hann hlaut 8 vinn-
inga af 9 möguleg-
um. Helgi Áss Grét-
arsson var jafn Ros-
entalis í efsta sæti
eftir sjö umferðir, en
varð að lúta í lægra
haldi í innbyrðis við-
ureign þeirra.
í öðru til þriðja
sæti á mótinu urðu
Rússinn Baburin og
enski stórmeistarinn
Gallagher með sjö
vinninga. Þeir Helgi
Áss Grétarsson og
Helgi Ólafsson
tefldu saman í síðustu umferð og
gerðu jafntefli. Þeir lentu í 4—10.
sæti með sex og hálfan vinning.
Þröstur Þórhallsson hlaut sex
vinninga. 132 skákmenn tóku þátt
á mótinu.
Atkvöld Hellis
Hellir hélt atkvöld sl. mánudag
og voru að venju tefldar þijár
hraðskákir og þijár atskákir.
Andri Áss Grétarsson vann allar
sex skákir sínar, en röð efstu
manna varð þessi:
1. Andri Áss Grétarsson 6 v.
2. Hrannar Baldursson 5 v.
3—5. Sigurður Áss Grétarsson, Stefán
Baldursson og Gunnar Nikulásson 4 v.
6. Þorsteinn Davíðsson 3 ‘A v. o.s.frv.
Mögnuð skák frá Madrid
Spánveijar eru himinlifandi
yfir frammistöðu síns besta skák-
manns, Miguels Illescas, á stór-
mótinu í Madrid. Undanfarin ár
hafa verið haldin mörg stórmót á
Spáni sem hafa aflað Illescas
dýrmætrar reynslu sem virðist nú
að skila sér að fullu. Hann sigr-
aði á mótinu ásamt Búlgaranum
Topalov. Illescas notaði aðeins 47
mínútur á vinningsskák gegn
Boris Gelfand, einum stigahæsta
skákmanni heims. Hann tefldi
grimmt upp á kóngssókn og það
bar glæsilegan árangur:
Hvítt: Boris Gelfand
Svart: Miguel Hlescas
Bogo-indversk vörn
l.d4 - Rf6 2. Rf3 - e6 3. c4 -
Bb4+ 4. Rbd2 - b6 5. a3 -
Bxd2+ 6. Dxd2 - Bb7 7. e3 -
0-0 8. Be2 - d6 9. 0-0 - Rbd7
10. b4 - Re4 11. Dd3 - f5 12.
Bb2 - Hf6 13. d5 - Hg6 14.
dxe6 - Rf8 15. c5?! - Rxe6 16.
cxd6 - cxd6 17. Hadl - Kh8
18. Rel? - R6g5!
Þótt ótrúlegt megi virðast er
hvítur nú vamarlaus.
19. Khl
19. — Rh3! og Gelfand gafst upp.
Ef hann léki 20. gxh3 kæmi 20.
20. — Rxf2++ sem er tvískák, fjöl-
skylduskák og mát!
Þar með tók Illescas forystuna,
en Gelfand var svo brugðið að
hann tapaði næstu skák líka.
Margeir Pétursson
Kmmn
Ókeypis félags- og lögfræöileg ráðgjöf
fyrir konur. Opiö þriðjudagskvöld
kl. 20-22 og fimmtudaga kl. 14-16.
Sími 552-1500.
.. s...................IMY .» ...................,v:.
íM S i '1 ' ■ s
I íáSSÉÉ!SÉi, i'ámi. .... .
Mwm.
Sumarskólinn sf.
Skólinn hefst 31. maí og lýkur 3. jólí. Kennt veröur á kvöldin
í Háskóla íslands.
Skólagjald er kr. 12.900 fyrir einn áfanga, en kr. 18.900 fyrir
tvo áfanga. Nemendur mega mest taka tvo áfánga.
Innritun verður virka daga fró 20.-29. maí kl. 16:30-19:00
í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi.
Nánari upplýsingar fást í símum 565-6484 og 564-2100.
Eins og undanfarin sumur veröur Sumarskólinn sf. meö
kennslu í fjölmörgum framhaldsskólaáföngum. Yfir 40
áfangar veröa í boði. Kennt veröur samkvæmt námskrá
Menntamálaráöuneytisins. Allir áfangar eru matshæfir.
í Nova Scotia
íslendingum opnast nú nýr heimur með
spennandi og hagstæðum ferða-
möguleikum í Nova Scotia á austur-
strönd Kanada. Flugleiðir hófu flug
þangað 14. maí, tvisvar í viku. Nova Scotia
er stórfagurt landsvæði og stendur
menningin þar með miklum blóma:
götulíf, leikhús. veitingastaðir og hátíðir
afýmsu tagi.
Síðast en ekki síst er verðlagið
sérlega hagstætt:
- Bensínlítrinn 30 kr.
Frekari upplýsingar:
Aðalræðisskrifstofa Kanada,
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík.
- Máltíð fyrir tvo á fínum veitingastað;
fordiykkur, aðalréttur, kaffi/te
og eftirréttur 2.450 kr.
- Skyndibiti:
Hamborgari, franskar og gos 172 kr.
- Gosdós 49 kr.
MH^SCÖHIA
Láttu sjá þig á Nova Scotia dögunum
sem haldnir verða dagana 22. - 24.
maí nk. Hingað f|ölmenna fulltrúar
ferða-, atvinnu- og menntamála með
ítarlegar upplýslngar um land og þ|óð
í máli og myndum.
Merkt: Nova Scotia Tourism.
Sími: 568 0820. Fax: 568 0899.
- Öl. 6 dósir 392 kr.
HVlTA HÖSIÐ / SÍA