Morgunblaðið - 21.05.1996, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ1996 47
FRÉTTIR
Á MYNDINNI eru f.v.: Ragnheiður Elíasdóttir læknir, Arthur
Morthens, fráfarandi formaður Barnaheilla, Maja Sigurðardótt-
ir og Ágústa Gunnarsdóttir sálfræðingar, Matthias Halldórsson
aðstoðarlandlæknir og Aðalsteinn Gíslason sem tók við styrknum
fyrir hönd Kristínar Aðalsteinsdóttur lektors.
*
Uthlutun úr Rannsóknar-
sjóði Barnaheilla
j Endurkjör-
inn formað-
ur ABR
GESTUR Ásólfsson var endurkjör-
inn formaður Alþýðubandalagsins í
Reykjavík á aðalfundi félagsins 18.
þessa mánaðar. Alþýðubandalagið í
Reykjavík er langfjölmennasta félag
Alþýðubandalagsmanná á landinu.
Eftirtaldir voru kosnir í stjórn
Alþýðubandalagsins í Reykjavík:
Gestur Ásólfsson, rafvirki, formaður
og aðrir í stjórn eru: Margrét Guð-
munsdóttir, Nanna Rögnvaldsdóttir
ritstjóri, Sigþrúður Gunnarsdóttir
nemi, Guðný Magnúsdóttir háskóla-
nemi, Herbert Hjelm verkamaður og
Kolbeinn Óttarsson Proppé stúdent.
Varamenn: Anna Jensdóttir nemi,
Sjöfn Kristjánsdóttir bókasafns-
. fræðingur og Árni Þór Sigurðsson
I borgarfulltrúi.
Tvær áiyktanir voru samþykktar
á fundinum. Lýst er fullum stuðn-
ingi við baráttu verkalýðssamtak-
anna gegn hafta- og skerðingar-
frumvörpum ríkisstjórnarinnar, eins
og segir í ályktuninni. Fundurinn
fagnar jafnframt samstöðu stjórnar-
andstöðuflokkanna í baráttunni
| gegn þessum frumvörpum um stétt-
i arfélög og vinnudeilur og um rétt-
indi og skyldur opinberra starfs-
' manna.
Þá telur fundurinn að viðskipta-
bann SÞ á írak gangi gegn mark-
miðum þeirra í mannréttindamálum.
Skorar fundurinn á Alþingi og ríkis-
stjórn að beita sér fyrir afnámi við-
skiptabannsins.
Á LANDSÞINGI Barnaheilla, sem
haldið var nýlega, var úthlutað
fjórum styrkjum úr Rannsóknar-
sjóði Barnaheilla. Hæsta styrkinn,
200 þúsund krónur, hlaut verkefn-
ið: Heilbrigði og líðan barna og
unglinga sem Matthías Halldórs-
son aðstoðarlandlæknir og pró-
fessorarnir Ásgeir Halldórsson og
Jóhann Ágúst Sigurðsson stjórna.
100 þ. kr. styrk hlutu verkefnin:
Orsakir og kringumstæður bruna-
slysa íslenskra barna sem Ragn-
heiður Elíasdóttir læknir, Ásgeir
Haraldsson prófessor og Pétur
Lúðvíksson barnalæknir sljórna;
Upplýsingaöflun um.einkenni og
stöðu fámennra skóla með sér-
stakri áherslu á samskipti kenn-
ara og nemenda sem Kristín Aðal-
steinsdóttir lektor stjórnar og Al-
þjóðleg könnun á réttindum barna
á heimili og skóla sem Ágústa
Gunnarsdóttir og Maja Sigurðar-
dóttir sálfræðingar stjórna.
Tilgangur Rannsóknarsjóðs
Barnaheilla er að efla rannsóknir
á högum barna hér á landi. Stjórn
sjóðsins er skipuð fulltrúum frá
Félagsvísindadeild Háskóla ís-
lands, Kennaraháskóla Islands og
stjórn og fulltrúaráði Barnaheilla.
Formaður Barnaheilla er jafn-
framt formaður sjóðsljórnar.
Bréf Bolla Gústavsonar
HER fara á eftir bréf Bolla
Gústavsssonar, víglubiskups, sem
hann hefur skrifað dóms- og kirkju-
málaráðherra, Þorsteini Pálssyni og
stjórn Prestafélags íslands:
Til ráðherra
Með vísan til bréfs yðar, hæst-
| virti ráðherra, sem dagsett er 28.
( apríl 1996, tilkynni ég yður hér
með að ég hefi afgreitt mál það,
sem þér settuð mig_ til þess að fara
með í stað biskups íslands. Var það
gjört með því að rita rheðfylgjandi
bréf til stjórnar P.Í., dagsett 15.
maí 1996. Það fylgir hér með í ljós-
riti, en verði óskað frekari gagna
varðandi mál þetta skulu þau fús-
lega af hendi látin.
Tel ég eðlilegt að kynna yður,
i virðulegi ráðherra, framgang máls-
ins sem æðsta yfirmanni þjóðkirkj-
unnar á hinu veraldlega stjórnsýslu-
sviði, svo að þér getið gripið til við-
eigandi ráðstafana í tilefni af mála-
vöxtum, ef þér sjáið ástæðu til.
Með virðingu,
Til stjórnar P.í.
Þann 29. apríl sl. barst mér bréf,
( dags, 24. apríl 1996, frá dóms- og
kirkjumálaráðherra, Þorsteini Páls-
syni. Þar segir: „Biskup íslands,
herra Ólafur Skúlason, hefur með
bréfi, dags. 24. apríl 1996, ákveðið
að víkja sæti við úrlausn máls sem
stjórn Prestafélags íslands óskaði
eftir að embætti biskups íslands
komi að, fjalli um og eigi þátt í
lúkningu þess varðandi nánar til-
tekna embættisfærslu hans...“ Er
þá vísað til meðfylgjandi ljósrits af
bréfi Prestafélags Islands til bisk-
ups Islands, dags. 3. apríl sl., og
jafnframt til ljósrits af ájitsgerð
siðanefndar Prestafélags íslands,
dags. 27. mars 1996, sem er svar
við erindi Sigrúnar Pálínu Ingvars-
dóttur frá 12. mars 1996. Til frek-
ari glöggvunar skal tekið fram, að
samrit af þeirri álitsgerð var sent
biskupi íslands, stjórn P.í. og
starfsfólki í Langholtskirkju í
Reykjavík. Bréfi dóms- og kirkju-
málaráðherra til vígslubiskups
Hólastiftis Týkur á þessa leið:
„Hér með eruð þér, herra vígslu-
biskup, í samræmi vjð 6. gr. stjórn-
sýslulaga nr. 37/1993 og með hlið-
sjón af 41. gr. laga um skipan
prestakalla og prófastsdæma og um
starfsmenn þjóðkirkjunnar nr.
62/1992, settur til að fara með
biskupsvald í framangreindu máli
varðandi embættisfærslu biskups.
Er yður falið að taka erindi Presta-
félags íslands til sjálfstæðrar með-
ferðar og taka síðan ákvörðun um
úrlausn þess.
Þorsteinn Pálsson (sign)/ Þorsteinn
Geirsson (sign)“
Vegna þeirrar ákvörðunar dóms-
og kirkjumálaráðherra, að skipa
mig til þess að fara með .biskups-
vald í framangreindu máli, vil ég í
fyrstu taka eftirfarandi fram: í bréfi
stjórnar P.í. til biskups íslands,
dags. 3. apríl 1996, er óskað eftir
þvi, að embætti biskups íslands
komi að umfjöllun þessa máls, er
siðanefnd presta telur biskup ís-
lands hafa brotið alvarlega af sér
gagnvart hinu kirkjulega embætti
með því - að bera út opinberlega
upplýsingar um fund sóknarprests
í Langholtskirkju og skjólstæðings
vegna persónulegra hagsmuna
sinna; sbr. álitsgerð siðanefndar
P.í. frá 27. mars 1996, sem vitnað
er til fyrr í þessu bréfi.
Mér dylst ekki, að biskupi íslands
var ekki fært að koma að þessu
máli sem úrskurðaraðili, en jafn-
framt er ljóst, að ekki verður á
nokkurs færi að taka á því á annan
hátt en þann, sem þegar hefur ver-
ið gjört með þeirri yfirlýsingu siða-
nefndar P.í. og stjórnar P.í. að bisk-
up íslands hafi brotið alvarlega af
sér gagnvart hinu kirkjulega emb-
ætti með því að bera út opinberlega
upplýsingar um fund sóknarprests
og skjólstæðings vegna persónu-
legra hagsmuna sinna. - Fram hjá
þessu verður ekki litið og jafnframt
ber að hafa í huga, að biskup ís-
lands hefur viðurkennt mistök sín
og sent prestum landsins bréf þar
sem hann harmar þau (Til presta
um „biskupsmálið." Reykjavík, 11.
mars 1996). Orðalag siðanefndar á
áliti hennar leiðir hinsvegar í ljós,
að ekki verður lengra gengið, en
þegar hefur verið gjört og beitt
þyngri viðurlögum. Skýrist það,
þegar lesin er 6. greinin í kaflanum
um siðanefnd P.I. í Codex ethicus
(Siðareglur presta, útg. P.í. 1994),
sem er á þessa leið:
6. Ef kæra reynist á rökum reist
skal siðanefnd kveða skýrt á um
hvort brotið var ámælisvert, al-
varlegt eða mjög alvarlegt. Ef
brot er ámælisvert skal siðanefnd
veita viðkomandi presti áminn-
ingu. Ef brotið er alvarlegt vísar
siðanefnd málinu til stjórnar P.í.
ásamt áliti sínu. Ef brotið er mjög
alvarlegt eða síendurtekið skal
siðanefnd vísa málinu til stjórnar
P.í og biskups íslands ásamt áliti
sínu. Stjórn félagsins tekur
ákvörðun um hvort vísa skuli við-
komandi úr félaginu. í öllum til-
vikum skulu málsaðilum kynntar
niðurstöður siðanefndar (C.E. bls.
30-31).
Það er ljóst af orðalagi þessarar
greinar, að um þrjú stig er að ræða,
þegar meta skal brot, sem kært er
til siðanefndar: a) ámælisvert, b)
alvarlegt, c) mjög alvarlegt. Sam-
kvæmt því vísar siðanefnd málinu
einvörðungu til stjórnar P.í. og er
ekki kveðið á um frekari aðgerðir
en áminningu.
Nú sá stjórn P.í. eigi að síður
ástæðu til þess að senda biskupi
íslands ósk um það, að embætti
hans kæmi að umfjöllun þessa máls
og ætti hlut að lúkningu þess.
Vegna vanhæfi biskups íslands til
þess að taka hlutlæga afstöðu til
eigin mistaka í framangreindu máli,
sá hann þá leið eina færa að óska
eftir því við kirkjumálaráðherra að
vera leystur undan þeirri kvöð. Því
hefur ráðherra falið öðrum vígslu-
biskupi þjóðkirkjunnar að taka af-
stöðu þess fyrir hönd biskupsemb-
ættisins og þá samkvæmt hefð,
þeim, sem eldri er.
Að lokinni ítarlegri könnun á
málavöxtum og eftir viðræður við
stjórn P.í. get ég fallist á niður-
stöðu siðanefndar P.í. í málinu.
Vegna þess að í fyrrnefndri 6. grein
í kaflanum um siðanefnd P.í í
Codex ethicus er ekki ætlast til að
broti, sem telst alvarlegt, verði skot-
ið til embættis biskups íslands, sé
ég ekki ástæðu til að hafa frekari
afskipti af máli þessu.
Með virðingu,
Margrét Sig-
urðar á Sólon
Islandus
MARGRÉT Sigurðardóttir söng-
kona og Kjartan Valdimarsson
píanóleikari
verða með tón-
leika á Sólon ís-
landus í kvöld,
þriðjudaginn 21.
maí og þriðju-
daginn 28. maí
og hefjast þeir
um_kl. 22.
Á tónleikunum
verður fluttur
djass, blús, lög úr söngleikum og
fleira.
Kirkja og börn
í borg
í SUMAR verða, fjórða sumarið í
röð, haldin námskeið fyrir börn á
aldrinum 6-10 ára á vegum Dóm-
kirkjusafnaðarins í Reykjavík.
Námskeiðin, sem bera yfirskriftina:
Kirkja og börn í borg, verða dagana
10-14. júní og 19.-23. ágúst kl.
13-17 hvern dag í Safnaðarheimili
Dómkirkjunnar að Lækjargötu 14a.
Áhersla er lögð á kristna fræðslu
og föndur, leiki, útiveru og skoðun-
arferðir undir leiðsögn sr. Maríu
Ágústsdóttur og sr. Jakobs Ágústs
Hjálmarssonar. í þátttökugjaldi,
sem er stillt í hóf, er innifalið síð-
degishressing, ferðir og grillveisla
á föstudeginum. Innritun á bæði
námskeiðin fer fram í Safnaðar-
heimilinu dagana 20.-21. maí og
29.-30. mai ki. 10-12.
■ FULLORÐINSFRÆÐSLA
fatlaðra heldur vorhátíð fimmtu-
daginn 23. maí kl. 19-22. Hátíðin
verður haldin í Valsheimilinu við
Hlíðarenda. Fjölmargt verður til
skemmtunar, hljómsveitin Plútó,
leikhópurinn Perlan og óvæntar
uppákomur. Einnig verður sýning
á handverki nemenda. Hljómsveitin
Stælar leikur fyrir dansi.
Margrét
Morgunblaðið/Sverrir
Verðmætur pappírskurð-
hnífur afhentur
Á AÐALFUNDI Vinafélags
Blindrabókasafn íslands á Hótel
Sögu nýlega var safninu afhent-
ur pappírskurðhnífur að verð-
mæti hálf milljón króna að gjöf.
I Blindrabókasafninu er deild
sem framleiður bækur á
blindraletri, m.a. námsbækur
fyrir blinda háskólanema. Hníf-
urinn er tengdur tölvubúnaði
deildarinnar og bætir verulega
framleiðslugetuna á sviði
blindraleturs.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við andlát og
útför
ÞÓRHILDAR KRISTBJARGAR JAKOBSDÓTTUR,
Austurvegi 17b,
Seyðisfirði.
Hugrún Ólafsdóttir,
systkinin, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Á myndinni má sjá Helgu
Ólafsdóttur, forstöðumann
Blindrabókasafnsins, veita við-
töku gjafabréfi úr hendi
Bryndísar Þórðardóttur, félags-
ráðgjafa, sem hefur verið for-
maður vinafélags frá stofnun
þess 1993. Á aðalfundinum gaf
Bryndís ekki kost á sér til
áframhaldandi formennsku og
var Margrét Hallgrímsdóttir,
íþróttakennari, kosin formaður.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför
ELÍNAR JAKOBSDÓTTUR.
Oddur Brynjólfsson,
Svanfrtður Jónasdóttir, Jóhann Antonsson,
Margrét Jónasdóttir, Brynjar Kristmundsson,
Brynjólfur Oddsson, Sandra Barbosa,
Vilborg Kr. Oddsdóttir, Alan James,
Jakob Oddsson, Ragnheiður R. Ólafsdóttir
og barnabörn.