Morgunblaðið - 26.05.1996, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 E 5
því að þau áttu að kyssast frusu
þau bæði og störðu á mig. Þá var
ekki til siðs að segja fólki að kyss-
ast svo ég greip til þess ráðs
setja stút á varirnar og kyssa
í loftið; senda þeim merki um
nú væri komið að kossinum.
Þau urðu hins vegar furðu
lostin og héldu að ég væri
að senda brúðinni koss.
Þá reyndi ég að blikka
þau en við það óx undrun
þeirra til muna,“ sagði Vig-
fús Þór og hló dátt að endur-
minningunni. „Það þarf ekki að
taka það fram að ég átti mjög
bágt með að skella ekki upp úr
því þetta var ofboðslega fyndið.
Brúðhjónin kysstust hinsvegar
ekki neitt. Þá ákvað ég að trúlega
væri einfaldara að segja þetta
bara hreint út í stað þess að reyna
að senda einhver merki sem aug-
ljóslega er hægt að misskilja,“
sagði séra Vigfús Þór og brosti.
Marga af þessum nýju
sidum þekkjum við úr
erlendum kvikmyndum
og það er í
rauninni hjúkútlegt
að sjá þetta f ram-
kvæmt í íslenskri
kirkju
Fólk kemur bara með gamlar
segulbandsupptökur
er það búið að ákveða vissan
ramma sem er í kirkjuathöfnum.
Ef það vill ekki þann ramma þá
á það ekki að gifta sig í kirkju,“
sagði hann og það leyndi sér ekki
að fyrir honum lá þetta nokkuð
ljóst fyrir. „Hér á landi virðist fólk
ekki líta á borgaralega giftingu
sem möguleika. Það vilja allir gifta
sig í kirkju en ástæðan er stundum
einfaldlega sú að kirkjan er fal-
legra hús,“ bætti hann við.
„Við höfum jafnvel lent í því
að fólk hefur komið til prestsins
og beðið hann að tala nú sem
minnst um Guð - og þá er náttúru-
lega eitthvað bogið við tilganginn,
finnst manni. Annars er þetta
frekar að lagast,“ fullyrti hann.
„Mér fínnst fólk vera að hverfa
aftur til hins hefðbundna. Herra
Sigurbjörn Einarsson, biskup,
samdi til að mynda afskaplega
fallegan brúðkaupssálm, „Faðir
vor, þín eilíf elska vakir“ - og sá
sálmur er að verða mjög vinsæll
enda er þetta fallega ort hjá Sigur-
birni; textinn myndrænn og nær
til allra. Enn er töluvert um að
fólk vilji fá einhver ástarlög flutt
í kirkjunni. Við höfum heldur ekk-
ert við það að athuga; svo framar-
lega sem það er að hjónavígslu
lokinni," sagði Marteinn. En verð-
ur organistinn aldrei undrandi á
lagavalinu? Marteinn hikaði stutta
stund en sagði síðan brosandi:
„Ja, lagið „0, þú“ er vinsælt í
brúðkaupum - en mér fínnst text-
inn svolítið sérkennilegur. „Ó, þú
- það eina sem ég elska
nú“ . . . Mér finnst þetta vafa-
samt veganesti inn í hjónabandið
en þetta er smekksatriði eins og
flest annað,“ sagði hann og hló.
Inger Anna Aikman
Það kemur venjulega í hlut org-
anista að leika þá tónlist sem beð-
ið er um í brúðkaupum. En eru
þetta yfirleitt sömu lögin sem fólk
er að biðja um? „Já, það eru nokk-
ur lög sem eru áberandi vinsæl-
ust, ef svo má að orði komast,“
upplýsti Guðni Guðmundsson, org-
anisti íBústaðakirkju, „en það er
beðið um allt milli himins og jarð-
ar.“ bætti hann við. „Fólk kemur
með geisladiska og kassettur og
biður okkur um að leika lög af
þeim. Stundum er þetta einfald-
lega ekki hægt - eða alls ekki við-
eigandi og þá verða menn að setj-
ast við samningaborðið og komast
að einhvers konar samkomulagi,“
sagði hann, „og yfírleitt tekst það
nú.“
Fyrst sálmur -
svo dægurlög
Guðni sagði að þrátt fyrir að
séra Pálmi Matthíasson og hann
væru tiltölulega frjálslegir og lif-
andi þá héldu þeir sig við hið há-
kirkjulega allt þar til búið væri
að gifta, fara með „faðir-vor“ og
blessun. „Ég hef aldrei látið sann-
ast á mig einhver dægurlög fyrir
sjálfa athöfnina,“ sagði hann.
„Það er alltaf í það minnsta einn
sálmur fluttur. Síðan geta verið
einhver dægurlög eftir sjálfa
hjónavígsluna. Hins vegar hefur
séra Sigurður H. Guðmundsson
prestur í Hafnarfirði samið alveg
gullfallega brúðartexta við venju-
leg dægurlög eins og „Amazing
Grace“ og gamla Elvis Presley
lagið „Love me tender“. Þetta eru
mjög vinsæl brúðkaupslög,“ sagði
hann.
Sumir segja bara nei
En er þetta ekki meira álag á
organistann að verða að kunna
skil á hundruðum dægurlaga til
viðbótar við sálmana. „Jú, það er
ekkert launungarmál," viður-
kenndi Guðni, „það væri mun auð-
veldara að hafa þetta allt saman
hákirkjulegt. Það er nefnilega
rosaleg vinna sem felst í því að
skrifa upp lög eftir segulbands-
upptökum og ekkert allir tilbúnir
til þess. Sumir segja bara þvert
nei og þeir sleppa ótrúlega vel.
En einhvern veginn virðist ég vera
búinn að koma fólki upp á þetta
og því finnst þetta sjálfsagt. En
þetta er voðalega tímafrekt þó
maður reyni að sjálfsögðu að gera
allt sem maður getur til að gera
fólki til hæfis á brúkaupsdegi
þess,“ sagði hann og við vorum
ekki í nokkrum vafa um það.
Sumir biðja prestinn að
tala sem minnst um Guð
Marteinn Hunger er organisti í
Dómkirkjunni í Reykjavík. Við
bárum það undir hann hvort hann
yrði kátur ef við bæðum hann um
leika lagið sem væri á toppi vin-
sældalistans í brúðkaupi um næstu
helgi. „Nei,“ andvarpaði hann, „ég
yrði ekki sérlega kátur.“ Síðan
hélt hann áfram útskýringar: „Ef
fólk sækir í kirkju til að gifta sig
Brúðkaupsveislan
í góðum höndum
á Hótel Sögu
-þín saga!
Hótel Saga er rétti staðurinn fyrir
brúðkaupsveisluna. Falleg og hlýleg
salarkynni henta vel fyrir stærri og
smærri veislur og fagfólk með ára-
langa reynslu í veislustjórn og skipu-
lagningu aðstoðar væntanleg brúð-
hjón við allan undirbúning.
Glæsilegar veitingar eru í umsjón mat-
reiðslumeistara hótelsins sem útbúa
til dæmis kaffihlaðborð, snittur, smá-
réttahlaðborð eða kvöldverð. Eftir
veisluna geta brúðhjónin snætt kvöld-
verð í Grillinu með sínum nánustu
að fullkomna daginn eyða þau
nóttinni í brúðarsvítunni á Sögu. í
brúðarsvítunni fá þau nýgiftu blóm
og freyðivín og girnilegan morgun-
verð daginn eftir. Svítan fæst á vildar-
kjörum ef veislan er haldin á hótel-
inu.
A Hótel Sögu er metnaður og reynsla
í að útbúa veglegar brúðkaupsveislur
á sanngjörnu verði.
Allar nánari upplýsingar veitir starfs-
í síma 552 9900.
Q&jtil