Morgunblaðið - 26.05.1996, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 26.05.1996, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 E 9 Brúdurin neitaði að fara í kirkjuna V AÐ skipti engum togum að W Bbrúðurin harðneitaði að ^láta aka sér að kirkjunni og engu tauti varð við hana komið. Sem betur fer varð fljótt ljóst að hún var ekki með bakþanka, henni fannst ekkert að brúðgumanum en þurfti eitthvað hjartastyrkjandi. „Ég fór því á bar og fékk fyrir hana einn tvöfaldan sem hún hvolfdi í sig og hélt svo af stað upp kirkjutröppurnar,“ segir Hjalti Garðarsson sem undanfarin tvö ár hefur verið með fyrirtækið Eðalvagnar og ekið með hundruð brúðhjóna um bæinn. „Bílstjó.ramir þurfa að vera við ýmsu búnir í þessum akstri, brúðkaupsdagurinn er ein stærsta stundin í lífi þessa fólks og okkar bílstjórar eru þjálfaðir í að taka á þeim málum sem upp koma. Það væri ekki verra ef þeir væru sálfræðingar líka því oft er þörf á slíkri þekkingu. Bflstjórarnir þurfa auk þess að aðstoða brúðina út úr bílnum, lagfæra kjólinn, og vera henni stoð og stytta." Brúðhjónin eyddu ekki saman nóttinni Hjalti segist ekki muna eftir þvi að brúðhjónin hafi byijað að skammast í bíl hjá sér fyrr en eftir veisluhöldin. „Ég man sérstaklega eftir einni veislunni þar sem drukkið hafði verið ótæpi- lega og þegar hjónin komu í bílinn endaði ferðin með hörkurifrildi og þau sváfu hvort á sínum staðnum." Hann tekur þó fram að þetta séu algjörar undantekningar og í lang- flestum tilfellum séu þetta virkilega hátíðlegar og eftirminnilegar stund- ir. „Yfirleitt er alveg frábært að fá að taka þátt í þessum degi með fólki.“ Neyðarpakki fyrir brúðina Bílstjórarnir eru við öllu búnir eins og áður sagði og þeir eru með sérstaka neyðarpakka í bílunum hjá sér fyrir brúðina. „í neyðarpakkanum eru til að mynda nælonsokkar ef það kemur lykkjufall. Það getur hver og einn ímyndað sér líðan brúðar ef slíkt kemur fyrir. Það er líka í honum varalitur, naglalakk og við erum með dömubindi, innlegg í buxur, verkjatöflur og töflur við bijóst- sviða. Fyrir herrana erum við t.d. með bindi.“ Þegar Hjalti er spurður hvernig honum hafi dottið í hug að fara út í þennan rekstur segir hann það draum allra bíladellukarla að fá að keyra alvöru bíla. „Ég gekk skref- inu lengra og menntaði mig í aksti á þessum bílum,“ segir hann. Þegar hann er spurður hver sé munurinn á því að aka venjulegum bíl og þessum glæsikerrum sem hann ekur um á, segir hann: „Næstum allir kunna að elda en maður myndi ekki treysta hveijum sem er í eld- húsið ef gestirnir væru mikilvægir." Hann segir til dæmis alls ekki sama hvernig hurð sé opnuð fyrir farþega eða henni lokað. „Ég dreif mig á námskeið í New York þegar ég fór þangað til að kaupa fyrsta bílinn sem er Cadillac Brougham. Námskeiðið skiptist í tvo hluta, annarsvegar einkabílstjóranám og hins vegar akstur með þjóðhöfð- ingja Þá var farið í hvaða hættur ber að varast í umferðinni, læra að skipuleggja leiðir sem fara á með þá og vera tilbúnir með varaleiðir. Okkur voru kennd ýmis -brögð s.s. að aka ekki fyrir aftan bíl sem byrgir útsýni, læra hvaða bil á að vera milli bíla, skipuleggja bílalestir og svo framvegis." Reksturinn hefur undið upp á sig síðan og nú er Hjalti kom- inn með 36 bíla á skrá allt í allt. Bílstjórarnir sem starfa hjá honum eru einkennisklæddir og búnir að fá tilsögn í einka- akstri. Það eru ýmsir sem not- færa sér þjónustu sem þessa, þjóðhöfðingjar, útlendir gestir, brúðhjón og jafnvel fólk sem er að halda á eftirminnilegan hátt upp á afmæli eða annað. Klukkustundin frá þijú þúsund krónum - Hvað kostar að fá bíl með einkabílstjóra? „Það fer eftir bílaflokkum en við erum með þijá slíka. Efstur er Rolls Royce þar sem klukku- stundin kostar 10.000 krónur og lágmarksleiga er þijár klukkustundir. Svokallaður li- mosínu-flokkur er númer tvö og klukkustundin er seld á 6.000 krónur og lágmarksleiga er klukku- stund. Að síðustu erum við með bíla í sedan-flokki en það eru venju- legir fólksbílar með opnu farþega- rými og klukkustundin kostar 3.000 krónur. Hjalti segir að á sumrin komi það stundum fyrir að færri komist að en vilja. „Brúðhjón eru til dæmis farin að líta á aksturinn sem nauð- synlegan hluta af brúðkaupsdegin- um og þeim er ekki sama hvernig hann er framkvæmdur frekar en hver sér um matseldina í veislunni." grg AMERÍSK BÓMULLARTEPPI (Throws) 120 x 170 cm frá Rug Barn Skemmtileg hönnun. Vandaður vefhaður Margir litir og þekkt munstur. Værðarvoðir sem hægt er að nota á 101 máta. Marco HÚSGAGNAVERSLUN LANGHOLTSVEGI 111 SÍMl 533 3500. Verð á hringum á mynd kr. 30.900. 3,5 mm, 14 k gull, dömuhringur m/demanti. Eitt landsins mesta úrval affallegnm giftingarhringum Fráhart verð frá kr. 17.900. Visa- og Euro- raðgreiðslur í allt að 24 mán. cuin Laugavegi 49, sími 561 7740. MEÚRVALÚTSÝN liegar ástin er með í för Lágmúla 4: stmi 569 9300, Hafnarfirði: simi 565 2366, Keflavik: sími 421 1353, Selfossi: sími 482 1666, Akureyri: sími 462 5000 • og bjá uHiboðsmönnum um land allt. BRUÐKAUPSFERÐ MEÐ URVALI-UTSYN þegar flugfreyjan býður brúðhjónunum næstu dagar líða eins og í ástarsögu - og þau lifa hamingjusöm til æviloka. ROMANTIK A „ROYALNOTUM" í þessari sæluferð til Mallorca er dvalið á Royal Cristina sem er eitt besta íbúðar- hótel eyjunnar. Þetta er rómantísk ferð fyrir brúðhjón sem vilja aðeins það besta. 2ja vikna brúðkaupssæla verð frá: 82.400 kr. Verð á mann m.v. hjón í stúdíó á Royal Cristina. FERÐA-GJAFABREF Brúðkaupsgestir. Óskiðtil hamingju á brúð- kaupsdaginn með Ferða-gjafabréfi. Hjá Urvali- Útsýn fást upplýsingar um hvert brúðhjónin ætla að fara. Þið leggið saman í ógleymanlega hveitibrauðsdaga fyrir hann og hana. ARUBA - DRAUMAEYJA ELSKENDA Sólríkir dagar og heitar nætur á þessari perlu Karíbahafsins. 8 ástríkir dagar verðfrá: 99.780 kr. Verð á mann m.v. hjón í stúdíó á La Cabana. Gisting í eina nótt í New York er innifalin. WINDJAMMER - SKÚTUSIGLING Stórkostleg ævintýrasigling um Karíbahaf á vel búnum farþegaskútum sem taka 65-128 farþega. Full þjónusta og áhöfn um borð. Ferð fyrir ævintýraþyrst brúðhjón. Vikusigling verð frá: 136.360 kr. Verð á mann m.v. hjón í tveggja manna klefa. Gisting í eina nótt í New York er innifalin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.