Morgunblaðið - 26.05.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.05.1996, Blaðsíða 12
12 E SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ eru að verða persónulegri Spakmœli Hamingja er að vera gift besta vini sínum. Barbara Weeks Hjónaband er svo sem ágætt - það má bara ekki verða að vana. Somerset Maugham Ástin er eins og kvikasilfur sem iiggur kyrrt i lófanum, nema maður reyni að gripa fast um það - þá smýgur það út á miíli fingranna. Dorothy Parker Ástin er það eina sem stækk- ar deili maður þvi með Bðr- um. Ókunnur höfundur Sami vindblær og slekkur ljósið getur giætt eldinn. Comte de Bussy-Rabutin Að eiska er að hætta að gera samanburð. Ókunnur höfundur Konan ein getur eiskað og gagnrýnt i sömu andrá. Ókunnur hðfundur Deilur elskenda eru endur- fæðing ástarinnar. Terents Að elska er að gera sáttmála við sársaukann. Ókunnur höfundur Ellin ver mann ekki gegn ástinni en að vissu leytí er ástin vörn gegn ellinni. Jeanne Moreau Ég er ekki giftur en get vel hlýtt skipunum ef þvi er að sldpta. ókunnur höfundur í talnafræði ástarinnar er einn plús einn sama sem ailt Tveir minus einn sama sem ekkert Ninon de l’Enclos Án þín væri enginn til að bjóða ekki góða nótt með kossi eftír að við höfuni rif- ist. Adrian Henri Konan min hefur engan áhuga á því sero ég segi, nema ég segi það við aðrar konur. ókunnur höfundur VQjir þú að konan þin hlustí á það sem þú segir, skaitu segja það upp úr svefni. Ókunnur höfundur Ameríkanar staðhæfa að þeir hafi fundið upp véi sem getur séð hvort maður lýgur. Eg er giftur einni slíkri. London Opinion Hjónabandið er eina lífstíð- arrefsingin sem ekki fæst stytt, þrátt fyrir góða hegð- un. ókunnur höfundur Að baki sérhvers manns, sem átt hefur gengi að fagna i lífinu, stendur kona, sem ekki hefur átt minkapeis. Leonard Lyons Hamingja í hjónabandi er ekki undir þvi komin að fínna hinn/hina eina/einu rétta/réttu. Hún felst í að vera sá/sú eini/eina réttí/rétta. Ókunnur höfundur Hamingjusamt hjónaband felst í því að maður verði ástfanginn hvað eftir annað - og alltaf af þeim sama. Mignon McLaughlin Hamingjusamt þjónaband er samband tveggja, sem kunna að fyrirgefa. Robert Quillen OLL höfum við heyrt menn hallmæla henni; furða sig á vinsældum hennar og valdi. Við höf- um flest gert óspart grín að henni og fylgjendum hennar; afneitað henni - um leið og við höldum í humátt á eftir henni. Hún er með öllu óútreiknanleg þótt sum- ir segi reyndar að hún gangi í hringi. Hún er tískan, sem togar okkur ýmist til hægri eða vinstri, hækkar og lækkar pilsfalda og hæla, allt eftir því hvernig á henni liggur hveiju sinni. Hún lætur til sín taka á flestum sviðum mannlífs- ins; treður sér inn í fataskápa, matseldina, húsgögnin og jafnvel heilagt hjónabandið. Amma giftist í síðum, beinum, látlausum kjól - mamma í stuttum kjól með stórt og mikið slör. Örfáum árum síðar kom kynslóðin sem kærði sig kollótta um hvað öllum öðrum fannst; kynslóðin sem rak tunguna framan í tískuna og gifti sig í lopapeysum - eins og hún lagði sig. Þannig hefndi tískan sín; hún hafði betur, eins og svo oft áður; áherslurnar höfðu bara breyst - lopapeysan var skyndilega „topp- tíska“. Það er alltaf gaman að fylgjast með hvað er 'að gerast í heimi tísk- unnar - og hápunktur flestra tísku- sýninga er brúðarkjóllinn. En hvað er í tísku frammi fyrir altarinu í ár? Við leituðum upplýsinga hjá nokkrum sem á hveijum degi að- stoða brúðir við að velja sér kjól, slör, skó og nærföt; svo fátt eitt sé nefnt. Niðurstaðan kann að koma á óvart; því flestir voru þeirrar skoð- unar að tískan væri að missa völd- in; brúðkaupin væru að verða per- sónulegri. ENGAR ALMENNILEGAR HEFÐIR HÉRLENDIS „Ég á föt á brúðina, brúðgum- ann, mömmumar, ömmumar, böm- in - og jafnvel gestina, ef út í það er farið,“ sagði Dóra í Brúðarkjóla- leigu Dóru, þegar við spurðum hana hvað hún hefði á boðstólum fýrir brúðkaupið. „Gestina?" hváðum við, „leigja gestimir sér kjóla og föt fyrir veislumar?" Dóra brosti út í annað. „Nei, það er nú ekki mikið um það hérlendis... enn sem kom- ið er,“ svaraði hún. „Þetta er aftur á móti mjög algengt víða erlendis. Þegar haldnar eru veglegar veislur leigja konur sér „gala-kjóla“ og jafnvel skó og skart,“ fullyrti hún. Bleikt og blátt fyrir mömmurnar „í Bretlandi er það líka siður að mamma brúðarinnar klæðist bleiku en mamma brúðgumans bláu. Hér kaupa mæðumar sér hinsvegar eitt- hvað hagnýtt; kjól eða dragt sem þær „geta notað“, eins og sagt er. Samt er ég ekki frá því að þetta sé aðeins að breytast," sagði hún. „Einhverra hluta vegna eru engar almennilegar hefðir hér í kringum hjónavígslumar. Við tökum eitt héðan - annað þaðan - og úr þessu öllu saman verður til svolítið sér- kennileg blanda. Sem dæmi má nefna að víðast er það talinn arg- asti dónaskapur að mæta í svörtu eða hvítu í brúðkaup. Hér hikar fólk hinsvegar ekkert við það.“ Hvað klæðir hverja og eina En ef ég ætlaði nú að gifta mig í sumar og væri annt um að tolla í tískunni; hvaða lit ætti ég þá að vetja; snjóhvítan, drapplitan eða beinhvítan? „Beinhvítt hefur verið mjög vinsælt að undanfömu en nú virðist hvíti liturinn vera að sækja á,“ upplýsti Dóra. „Annars er þetta bara smekksatriði," bætti hún við. Aðspurð kvað Dóra barneignir breyta litlu í litavali brúðanna; „Ef brúðimar eru ungar og bamlausar vilja mömmumar og ömmumar reyndar helst að þær gifti sig í hvítu," sagði hún, „en eldri brúðir velja ýmist hvítt eða beinhvítt. Þær kjósa þó venjulega einfaldari kjóla en hinar yngri,“ bætti hún við eftir andartaks umhugsun. „Enn er mesta eftirspumin eftir þessum stóm, amerísku kjólum - en nú em konur samt meira famar að taka tillit til þess hvað klæðir hveija og eina.“ Smóking, kjólföt og „sjacket“ Það eru ekki síður tímamót í lífi karla en kvenna að ganga í hjóna- band; segja skilið við hið margróm- aða piparsveinalíf sem svo mjög hefur verið lofsungið í gegnum tíð- ina. En hvernig klæðast þeir á þess- um merkisdegi? „Það er eiginlega þrennt sem kemur til greina," sagði Dóra. „Bandarískir brúðgumar klæðast nær undantekningarlaust kjólfötum og þau em að verða nokk- uð vinsæl hér. Smóking vilja marg- ir umfram kjólfötin og nú er kom- inn hingað til lands búningur sem kallast „sjacket". Þetta er algengur hátíðaklæðnaður karla í Bretlandi og þá nota menn gráan jakka að degi til en svartan að kvöldi. Þessi fatnaður virðist ætla að slá í gegn hérlendis líka,“ sagði Dóra að lokum. Einfaldir kremaðir kjólar Þeir sem rölt hafa eftir Skóla- vörðustígnum hafa vafalítið rekið augun í búðina „Djásn og grænir skógar". í glugganum getur að líta brúðarkjóla, silkiskó, slör og skart auk þess sem þar er að fínna alls konar gjafir sem tengjast ástinni á einn eða annan hátt. „Uti í heimi virðast einföldu kjólarnir vera að komast í tísku,“ fullyrti hún „en þess í stað em fylgihlutirnir að verða íburðarmeiri; einfaldur kjóll en skrautlegt skart - það er tískan í dag, sýnist mér,“ sagði Svala Ól- afsdóttir. „Hér sem og annars staðar hefur átt sér stað alger bylting í litavali brúðanna að undanförnu. Það er tiltölulega stutt síðan hvíti kjóllinn var allsráðandi en nú hefur hlutfali- ið snúist alveg við; 70% brúða vilja „kremaða" kjóla, 20% hvíta og 10% einhveija aðra liti; bleika, bláa, gyllta eða bronslita," upplýsti hún. Allt í stö; vöndur, varalitur.. . Kjóllinn er kremaður en ekki hvítur; einfaldur en ekki íburðar- mikill segir Svala - en hefur eitt- hvað fleira breyst í brúðkaupsmál- um landans? „Ég hef náttúrlega engar niðurstöður rannsókna að styðjast við,“ svaraði Svala, „en mér finnst brúðkaupin vera að verða einfaldari í sniðum; rétt eins og kjólarnir. í fyrra fannst mér meira um íburðarmikil og fjölmenn brúðkaup; þau virðast hinsvegar minni að umfangi þetta árið,“ bætti hún við. „Aftur á móti hefur það færst mjög í vöxt að fólk velti litasamsetningum fyrir sér og það er dálítið gaman að því. Vöndur- inn, varaliturinn, servíetturnar og kertin; þetta er helst allt í sama lit.“ Bónorð fyrir utan búðargluggann Einhver sagði okkur að fyrir- hyggja væri fmmskilyrði þegar brúðkaup væm annars vegar. Það þyrfti að panta kjólinn með margra mánaða fyrirvara, salinn árinu áður og það sama gilti um prestinn, kór-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.