Morgunblaðið - 26.05.1996, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 26.05.1996, Blaðsíða 34
34 E SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Hveitibraudsdagar sem ferðaskrif stofurnar keppast um að gera eftirmínnilega FÍÐ eyddum hveitibrauðs- dögunum í yndislegu veðri uppi í óbyggðum," sögðu hjónin, útitekin og alsæl með brúðkaupsferðina úti í íslenskri náttúru. Þau tjölduðu í Skaftafelli, fóru á jökulinn og snæddu þar málverð, fóru á hest- bak, í langa göngutúra og veiddu nokkra fiska. Þetta var þeirra draumaferð. Njóta íslenskrar náttúru Margir staðir hér á landi eru til- valdir til að eyða þessum fyrstu dögum í hjónabandinu. Að sögn starfsfólks á ferðaskrifstofum kem- ur fyrir að hjón komi og leiti ráða með staði innaniands, en oft eiga brúðhjónin líka sína uppáhalds- staði, sumarbústað eða sinn sælureit. „Við bendum á ýmsa möguleika ef til okkar er leitað," segir Unnur Helgadóttir hjá Samvinnuferðum Landsýn. „Mörgum hefur þótt ógleymanlegt að fara til Hafnar í Hornafirði og fara á jökulinn í kalt hlað- borð. Hótel Búðir á Snæfellsnesi og Hótel Örk er þónokkuð spurt um af brúðhjónum, þau fara oft í Þórsmörk og jafnvel upp í óbyggðir. Brasilía og Marbell Það skiptir líklega ekki öllu máli hvert haldið er svo fremi sem ástin blómstri og dafni. En ef gera á hveitibrauðsdag- ana ógleymanlega og buddan leyfir finnst mörgum gaman að halda á vit rómantískra og oft fjar- lægra staða. Þá eru möguleikamir líka margir. „Við verðum vör við að brúðhjón kjósi að fara á heillandi og fram- andi staði og á okkar vegum hafa hjón farið til Brasilíu og þá aðallega til Salvatore og Ríó de Janeró," segir Andri Már Ingólfsson hjá Heimsferðum. „Einn áfangastaður á Spáni er öðram fremur hentugri til brúð- kaupsferða og það er Marbella. Hann er öðravísi en aðrir áfanga- staðir á Spáni, þetta er tískustaður núna, þar er ein frægasta snekkju- bátahöfn í Evrópu og í kringum hana hefur byggst upp skemmtilegt mannlíf. Veitingastaðirnir era mjög skemmtilegir og hótelin í háum gæðaflokki. Marbella er mjög róm- antískur staður," segir Andri. Hann segir að það sé nokkuð algengt að fólk vilji láta skipu- leggja fyrir sig brúðkaupsferðina. „Stundum kýs fólk að fara í hefð- bundnar borgarferðir eða sólar- landaferðir og þá leyfir það sér kannski að vera á góðum gististað. Við höfum hinsvegar orðið vör við að fólk er tilbúið í ævintýraferðir." Hann segir að ættingjar komi síðan gjarnan og biðjium einhverja þjón- Við verðum vör við að brúðhjón kjósi oð fara ó heillandi og framandi staði ustu sem eigi að koma brúðhjónun- um á óvart. Þá láta hótelin oft í té kampavín og ávexti og stundum er hægt að fá svítu fyrir hjónin. Margarita í Karíbahafinu „Við höfum bent verðandi brúð- hjónum á Parísarferðirnar en síðan er eyjan Margarita í Karíbahafi afar vinsæl svo og Barcelona," seg- ir Jón Kári Hilmarsson starfsmaður hjá markaðsdeild Flugleiða. „Margarita er ódýr staður til að vera á og verðið hagstætt þangað. Eyjan sjálf er hluti af Suður-Amer- íku og andrúmsloftið alveg sér- stakt. I boði era síðan ferðir inn á meginlandið og þar gefst ferða- mönnum kostur á að skoða marga mjög fallega og einstaka staði.“ Hann bendir ennfremur á að Barcelona sé skemmtileg borg til að heimsækja fyrir ungt og ástfang- ið fólk. „Borgin er ekki ósvipuð París en á sumrin er stutt á strönd- ina og jafnvel ódýrara að dvelja þar en í París.“ Jón Kári segir að starfsfólk setji gjaman saman ferðir fyrir brúðhjón og ráðleggi með staði. „Við reynum síðan að gera okkar ítrasta til að ferðin verði sem eftirminnilegust." Með seglskútum um Karíbahafið „Við eram með dálítið skemmti- lega nýjung sem við höldum að hljóti m.a. að höfða til brúðhjóna,“ segir Goði Sveinsson hjá Urvali- Útsýn. „Um er að ræða siglingu á stóram farþegaseglskútum um Karíbahaf. „Allt er fijálslegra um borð í skútunum en á skemmti- ferðaskipum og þær taka 65-128 farþega og sigla mismunandi leiðir. Skipin era með 30-35 manna áhafn- ir. Yfirleitt er um viku siglingu að ræða og við eram yfirleitt að bjóða brottfarir frá eyjunum Antigua og St. Martin. Þetta ætti að geta verið ógleymanleg ferð fyrir hjón. Komið er að nýrri eyju að morgni og þá er fjallað um eyjuna hveiju sinni. Yfírleitt eru það litlar frumstæðar eyjur sem verið er að skoða hveiju sinni. Farið er í land og skoðað, grillað á ströndinni, spiluð tónlist og dansað," segir Goði. Mikið er lagt upp úr matseld og á kvöldin sækir áhöfnin svokallaðar „olíut- unnuhljómsveitir" til að spila. Þá segir Goði Aruba vinsælan stað fyrir brúðhjón og ýmist er þá um að ræða venjulega pakka eða sér- staka brúðhjónapakka. Þá era inni- faldar skoðunarferðir, kampavín og blóm á svítunni, kvöld í spilavíti og svo framvegis. Þá segir hann skemmtisiglingar alltaf vinsælar og eftirsótt þykir að fara með Austurlandahraðlestin, London-Feneyjar Goði segir að öll brúðhjón sem bóki pakkaferðir hjá þeim fái kampavínsflösku eftir flug- tak í Keflavík og þeim er boðið í eina rómantíska skoðunarferð þeg- ar komið er á áfangastað. Sigling og sólarströnd Unnur Helgadóttir hjá Sam- vinnuferðum-Landsýn segir að vin- sælasta ferðin sé skemmtisigling. „Brúðhjónum stendur til dæmis til boða vikusigling þar sem endað er á sólarströnd í Dóminíska lýðveld- inu. Þá eru borgarferðir líka vinsæl- ar og við eram með sérstakar ferð- ir fram í júní, þar sem við pöntum brúðarsvítur, kampavín, kavíar og blóm fyrir brúðhjónin," segir hún. Svo virðist á starfsfólki ferða- skrifstofa að Karíbahafíð og sólar- strendur séu vinsælasti áfangastað- ur brúðhjóna, en það er þó allur gangur á. Auðvitað fer ferðalagið líka eftir þyngd pyngjunnar og mörg pör eiga sér þegar uppáhaldsstað sem þau vilja heimsækja þegar þessi stund rennur upp, það gæti allt eins verið Öskjuhlíðin eða Hafravatn. STg A SÍÐASTA ári sendi Morg- unblaðið nýbökuð hjón út í heim til að njóta hveitibrauðsdaganna. Brúðhjón ársins 1995 fóra til Barc- elona á Spáni. „Það kom nú til af því að við giftum okkur ekki fyrr en undir haust; nánar tiltekið þann 26. ágúst og þá var ekki lengur flogið til Parísar," sagði brúð- guminn Örn Guðmundsson, er við slógum á þráðinn til hans og konu hans, Bjargar Hilmarsdóttur til að forvitnast um ferðalagið. „Við vor- um þama í viku og höfðum sko meira en nóg að gera,“ upplýsti hann. „Barcelona er falleg og hrein- leg borg; stútfull af menningu og glæsilegum byggingum; svo glæsi- legum að maður kemst eiginlega ekki hjá því að verða alveg sérstak- ur áhugamaður um byggingalist þegar maður skoðar þessi meistara- verk,“ sagði hann og hló. „Þama er til að mynda gullfalleg kirkja sem verið hefur í byggingu í ein hund- rað ár ... og það sem meira er; hún á eftir að vera í byggingu næstu hundrað ár líka,“ bætti hann við. „Svo þú sérð að Hallgrímskirkja var bara á fínu róli.“ Engin mynd til af brúðhjónunum í Barcelona En varla hefur brúðkaupsferðin bara farið í að skoða byggingar í Barcelona? „Nei, nei,“ svaraði Örn, „við borðuðum einhver býsn af salt- físki sem var algert hnossgæti, Örn Guðmundsson Björg Hilmarsdóttir Skoöuðum byggingar og borðuðum saltfisk skoðuðum Miro-safnið og lítið Pic- asso-safn þarna, kíktum í búðir og svo framvegis. Þetta er mjög róm- antísk borg,“ sagði hann. En hvað með ströndina - fer nokkur maður til Spánar án þess að flatmaga svo- lítið í sólinni og flagna á nefínu? „Við eyddum nákvæmlega hálfum degi á ströndinni," sagði Öm, „það var bara svo margt annað sem heill- aði. Við komum heim aðeins ijóðari í framan en það var ekki mikið meira en það,“ viðurkenndi hann. Þegar við báðum um mynd af þeim því til staðfestingar komu vöflur á Órn. „Ég er að uppgötva það núna þegar þú nefnir það að það er ekki til nein mynd af okkur Björgu sam- an í Barcelona," sagði hann og hló. „Ég tók myndir af henni og hún tók myndir af mér - en það var enginn til að taka myndir af okkur saman. Og einhvem veginn veigrar maður sér við að rétta einhveijum bláókunnugum manni myndavélina og biðja hann um að smella af ... maður veit ekki nema maður sjái þá hvorki manninn né myndavélina meir,“ útskýrði hann. Brúðkaupsafmælið í kóngsins Köbenhavn Björg Hilmarsdóttir og Örn Guð- mundsson voru bæði í námi þegar þau gengu í hjónaband og því var vikudvölin kærkomin tilbreyting; „maður gat safnað kröftum fyrir lokasprettinn", sagði Örn en hann er nú að útskrifast úr viðskipta- fræðinni og Björg að útskrifast úr kennslufræðinni við Háskóla ís- lands; en hún tók það nám til viðbót- ar B.A. prófí í dönsku. En hvernig ætla ungu hjónin svo að halda upp á eins árs brúðkaupsafmæli sitt í sumar? „Ætli við höldum ekki upp á það í Kaupmannahöfn," svaraði Öm. „Þangað liggur leiðin í haust; við stefnum bæði á framhaldsnám þar ... svo það verður trúlega borðað eitthvað af „smörrebröd“ og haldið upp á daginn að hætti danskra, ég á ekki von á öðru.“ ian ! 4 i 4 í 4 < < ( ( ( j I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.