Morgunblaðið - 26.05.1996, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 26.05.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 E 21 og pinnamatur og út að borða á eftir W AÐ eru rúmlega tuttugu m Jár síðan Þorvarður Ósk- m -^arsson matreiðslumeistari kvongaðist Hildi Marís- dóttur leikskólakennara og þá eld- aði hann sjálfur fyrir gestina. „Það var með naumindum að ég næði í kirkjuna. Þegar ég var búinn að elda var konan farin að klæða sig annars staðar og hafði tekið allt með sér úr baðherberginu sem ég þurfti á að halda, tannkremið, greiðuna og svo framvegis. Ég var því í hinu mesta basli að gera mig kláran fyrir kirkjuathöfnina, en marði það.“ „Við giftum okkur í Dómkirkjunni og vorum heppin með veður. I minn- ingunni stendur það uppúr þegar við stóðum úti á veröndinni í góða veðrinu skáluðum í kampavíni og horfðum yfir Elliðaárdalinn, en veisl- an var haldin í Rafveitusalnum." Þorvarður segir að þau hjónin hafi verið ung þegar þau giftu sig. „Við bjuggum eiginlega hjá ömmu og það má segja að hún hafi eytt hálfri brúðkaupsnóttinni með okkur að taka upp pakkana,“ segir hann og skellir uppúr við tilhugsunina. Þorvarður bauð gestum sínum upp á kalt borð. „Eg myndi ekki hafa veisluna mikið öðruvísi, en aðeins rólegri undirbúning. Til dæmis myndi ég ekki elda sjálfur og mæta útsofinn beint í kirkjuna.“ - Hvað ráðleggur hann verðandi hjónum að bjóða gestum sínum upp á í veislunni? „Möguleikamir em margir. Ákjósanlegast fínnst mér að mæla með pinnamat fyrir gesti og kampa- víni, en fara síðar um daginn með sínum nánustu út að borða í góðum sal.“ Þorvarður gefur hér uppskrift að matseðli ef hjón og fjölskyldur þeirra ætla að útbúa mat í brúð- kaupsveislu. Kjúklingalifrarmús ó léttu salati _______300 g lifur_____ _______250 g smjör_____ _________1 egg_________ _________10 g salt_____ _______10 q koníok_____ 10 g madeira _______10 g púrtvín____ timian, maiorna og pipar „Ef ég fengi að ráða veitingunum í brúökaup- sveislu myndi ég mæla með pinnamat og kampa- víni. Þá væri til dæmis hægt að bjóða brauð- snittur með rækjumús, litlar pizzur, djúpsteiktar júmbórækjur, villibráðarpaté, brauöskálar með mismunandi fyllingum, djúpsteiktan kinnfisk og brauö með parmaskinku. Með þessu væri hægt að hafa kransakökutoppa eða konfekt. Um kvöldið færi síðan nánasta f jölskyldan með brúðhjónunum út að borða. Morgunblaðið/Þorkell LAMBAFILLE með kryddjurtasósu og ristuðu grænmeti. ►ÞORVARÐUR Óskarsson útskrifaðist árið 1976 frá Hótel og veitingaskóla fs- lands. Hann iærði á Hótel Sögu en vann síðan í mötu- neytinu á Rockville á Kefla- víkurflugvelli. Hann starfaði í Osló um tíma og einnig í Sarpsborg í Noregi. Þor- varður var matreiðslumaður í nokkur ár á Naustinu, á Gauki á Stöng til ársins 1988 en þá fór hann til starfa á Hótel Sögu. Þá var Þorvarð- ur um tíma á sjó en hefur verið á Hótel Loftleiðum frá því Guðvarður Gíslason tók við veitingarekstri þar. Þor- varður er í landsliði ís- lenskra matreiðslumeistara. PMvivr * Ó.Í4r*Mn Lifrin er hökkuð og marin í gegnum sigti. Smjörið er brætt og því bland- að varlega saman við lifrina ásamt salti og víni. Eggið er slegið út og bætt út í maukið. Kryddið eftir smekk. Þessi blanda er látin standa í 4-12 klukkustundir í kæli. Þá er þetta sett í smurt form og bakað í 110°C heitum ofni í vatnsbaði í um það bil 20-30 mínútur. Kælt. Borið fram með salati og rifsberjaediki. Rifsberjaedik ___________2 dl ólífuolía _______'Adl edik (kompavíns) _______‘Aloukur, smátt saxaður ___________1 -2 tsk. sinnep ___________30 fersk rifsber Blandið öllu saman. Kampavínssorbet _____2QO g sykur ______2 dl vatn___ 3 dl kampavín safi úr einni sítrónu Vatn og sykur er soðið og kælt. Þá er kampavíni og sítrónusafa bætt út í. Fryst. Kampavíni hellt yfir þegar þetta er framreitt. Lambafille meö krydd- jurtasósu og ristuóu grænmeti ________800 g lambafille_____ _________salt og pipar_______ 4 stórar kartöflur Lambafille eru brúnuð, krydduð með salti og pipar og bökuð við 180°C í 8-12 mínútur. Kartöflurnar eru skomar til, brúnaðar á pönnu, kryddaðar með salti og pipar og bakaðar í ofni við 180°C í 20-30 mínútur. Grænmeti: 'Árófa _____________2 gulrætur____________ __________2 sellerístönglar________ '/tkórbítur ____________1 rauðlaukur__________ ____________2 hvítlauksrif________ 25-50 g sólþurrkaðir tómatgr __________100 g furuhnetur________ ____________steinselja____________ ferskt basil salt og pipgr Grænmetið er skorið í litla ten- inga, ristað á pönnu og kryddað. _______________Sósa:______________ V2I lambasoð V2I hvítvín ____________1 -2 laukqr___________ ______________timiqn______________ _____________rósmarín_____________ ____________salt og pipar_________ maísenamjöl Laukurinn er svitaður í potti, livítvíninu og kryddinu bætt út í og soðið niður um tvo þriðju. Þá er soði bætt út í og það soðið aftur niður um tvo þriðju. Sigtið soðið og þykkið með maísenamjöli og kryddið ef með þarf. ■ veisluþjónusta • Ráðgjöf fyrir allar almennar veislur - stærri sem smærri • Umsjón með veislum fyrir heimili og fyrirtæki • Borðskreytingar og námskeið Marentza Poulsen * Sími 55 f 7305 Sérstök Qjafcivara, gluggQtjQldaefni og áklæði og nú gjafakort fyrir óskolisto •Toft-húsinu, Skólavörðustíg 25« • Sími 552-2980. Fax 552-2981 sl raunholt erfyrirtœki sem fiest við veitinga- rekstur og var stofiiað í október 1992. K?*að býður upp á stórgkesilegan veislusal í Dalsbrauni 15 í Hafnarfiirði. Salurinn hentar fyrir minni sem stœrri bófi(2 - 200 manna). fi/iyrir minni hófer salurinn minnkaður á mjög smekklegan hátt. Salurinn er mjög vel hannaður, dökkur viður á gólju?n og auðvelt er að stœkka eða minnka dansgólf eftirþöifum. Salurinn hejur einnig að geyma fidlkomið hljóð- og myndbands- kerfi meðfimm sjónvarpsskjám ogfidlkomnu karaoke sónvkerfi. Hmunhott tyrS-i /fsjó/f'/v ff-á /ff Dalshrauni 15* 220 f

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.