Morgunblaðið - 26.05.1996, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 E 7
HJÓNIN Sigurður
Ragnarsson og
Inga Stefánsdóttir
sálfræðingar, sem
reka saman sál-
fræðiþjónustuna
Blæ, hitta í hverri viku hjón sem eiga
í vandræðum í sínu hjónabandi. Þegar
þau voru beðin að segja verðandi brúð-
hjónum hver leyndardómurinn að góðu
hjónabandi er komu þau upp með sjö
lykla sem skipta miklu máli.
Sjö lyklar að góðu hjónabandi
Hún er einn af hornsteinum hjónabands-
ins. Sú ást er síbreytileg og hafín yfir
rökræna hugsun. Sú ást ber með sér að
við viljum vera saman en samt gefa frelsi.
Ást er ekki bara tilfinning, ást er líka
ákvörðun. Löngun til að vera saman og
leysa ágreining, löngun til að vera saman
þrátt fyrir að hversdagsleikinn falli yfír
og litirnir missi ljómann. Ástin getur ekki
gefið bara gleði og frið. Henni fylgir líka
sorg og hræðsla. Til að skilja ástina þarf
að muna að hún tekur sífelldum breyting-
um og að hún er í hárfínu samhengi við
innri mann. Hún breytist með þroska þín-
um og vexti. Tilfínningahiti tilhugalífsins
getur aldrei varað lengi, en ást byggð á
ákvörðun, virðingu og skilningi á lengri
lífaldur.
2. Nánd
Tilfinngaleg jafnt sem líkamleg nánd eru
mikilvægir þættir góðs hjónabands. Að
þora að nálgast í einlægni, með sjálfan
sig eins og maður er, með alla kosti sína
og galla, krefst hugrekkis. Heiðarleiki og
löngun til að gefa hlutdeild í innstu hugs-
unum og hugrenningum eru næring
hjónabandsins. Eins er það með snerting-
una; hlýtt faðmlag, blíðleg stroka og að
elskast, allt merki um nánd og þar af
leiðandi næring fyrir ástina. Taktu sjálfa
þig alvarlega og mættu heil/heill til leiks.
3. Hlustun
Að geta hlustað, tekið á móti án þess að
dæma eða gagnrýna er góður eiginleiki og
lyftir hjónabandinu yfir marga hindrunina
til að byija með. Við erum ólík og komum
frá ólíkum stöðum og til að geta búið sam-
an í sátt verðum við að læra inn á hvort
annað. Við verðum að geta hlustað og
meðtekið mismuninn. Það er ekkert hættu-
legt að vera frábrugðin. Það er heldur ekk-
ert hættulegt að hafa mismunandi skoðan-
ir. En það er hættulegt ef ég get ekki hlust-
að og leyft þér að vera þú. Það er allt í
lagi að rekast á og rífast, ef við pössum
upp á að leysa ágreininginn í einlægni og
heiðarleika. Ágreiningur og rifrildi eru
partur af sérhverju hjónabandi og getur
oft verið vaxtarbroddur. Saman getum við
vaxið og þroskast ef við skuldbindum okk-'
ur til að vinna saman úr því sem kemur
upp. Við ættum ekki að vera í keppni um
að hafa sem oftast rétt fyrir okkur, eða
vera oftast með síðasta orðið. Keppni í
hjónabandi er oftast til trafala, en skilning-
ur og hlustun byggir upp.
4. Fyrirgefning
Að geta fyrirgefíð er mikilvægur hlekkur
i öllum samskiptum, eigi þau að leiða af
sér ást og vöxt. Við gerum öll mistök. í
nánu sambandi tveggja einstaklinga erum
við eins herskjölduð og hægt er - varnar-
laus gagnvart vonbrigðum og sársauka.
Þess vegna er svo mikilvægt að við lærum
að umgangast hvort annað af nærgætni
og virðingu. Og þegar við misstígum okk-
ur, verðum til þess að særa, þá skiptir-
máli að geta beðið fyrirgefn-
ingar, alveg eins og það krefst
þess að sá særði geti fyrir-
gefið. Það er oft flókið
ferli að fyrirgefa. Leið
hefndar og haturs er
ekki vænleg til
árangurs. Stolt og
reiði fjarlægja ekki
sársauka, en fyrirgefn-
ingin getur gert það. Og
þú þarft einnig að læra að
fyrirgefa sjálfri þér. Ákveða
að breyta því í nútíð sem þú
getur breytt. Að ala á gremju og
hatri er ekki vænleg leið til hamingju
í hjónabandi. Að þora að stíga fyrsta
skrefið til sátta er merki um þroska. Ekki
ríghalda í það sem aðskilur þig frá ástinni
og voninni. Láttu hluttekningu og sam-
kennd leiða þig til sátta. Fyrirgefning gef-
ur frelsi.
5. Tími
Ást er ekki hvað minnst það að gefa tíma.
Að rækta ástina. Ef hjónabandið á að lifa
af þá storma sem það mætir, og ekki
gleyma því að ekkert hjónaband er án erfið-
leika, þá verðum við að gefa okkur tíma
til að vera saman. Tíma til að elskast, tíma
til að leika, tíma til að hlusta, tíma til að
fyrirgefa, tíma til að vera partur af hvors
annars tilveru.
6. Virðing
Virðing fyrir hvort öðru er einn af horn-
steinum hamingjuríks hjónabands. Við
þráum að vera elskuð - elskuð eins og við
erum. Þráum að fá að finna takmarkaleysi
ástarinnar, að vera umvafin ást og um-
hyggju. Að vera fyrirgefið þegar við gerum
mistök, að litið sé
á verk okkar með
umburðarlyndi og
skilningi. Við ósk-
um þess að sá sem
elskar okkur virði
okkur og dái. En oft fer bróður-
partur tímans í að reyna að
breyta hinum aðilanum. Við
væntum svo mikils og verðum
bara fyrir vonbrigðum. Boð-
skapur eins og ÞÚ ÆTTIR
að gera þetta eða hitt hljóm-
ar allt of oft í sambandi milli
fólks. Að sætta sig við hinn
aðilann eins og hann er reynist
mörgum erfitt verkefni. Ég get
breytt sjálfri mér, og þú einn
getur breytt þér. Það er ekki mitt
hlutverk að breyta þér, því það er
þitt þroskaverkefni, ef þú þá vilt það.
Ekki byija samband með þá hugsun
að þetta og hitt viljirðu losna við hjá
hinum. Ef svo er skaltu forða þér
strax, því samband byggt á þessari hugs-
un er oftast dæmt til að mistakast. Ást
er að sjá ljósið í hvort öðru og leyfa því
að skína. Lykillinn er virðing fyrir þér
eins og þú ert.
7. Vinátta
Að geta leikið sér, hlegið og fíflast er
mikilvæg næring fyrir ástina. Sameig-
inleg áhugamál gefa sambandinu aukið
gildi. Verið félagar, trúið hvort öðru fyr-
ir draumum ykkar og þrám. Skipuleggið
og framkvæmið hluti saman, og takið
ekki hlutina of alvarlega. Leo Buscaglia
hefur mikið fjallað um ástina og hann
segir á einum stað... „Lifið lífinu með
snert af taumleysi... trúðar snerta djúp-
stæða þrá í okkur; þrá til að kasta af
okkur fjötrum og komast í snertingu við
það sem kemur beint frá hjartanu; okkar
náttúrulegu „bijálsemi“. Við erum öll
trúðar, þó sum séu heftari og hræddari
en önnur“... Svo verið vinir, fíflist og leik-
ið ykkur! Það nærir sálina.
Konan þráir að giftast þeim
maimi, sem hefur dregið
hana á tálar. Það er svo sem
ekkl lélegri hefnd en hvað
annað.
BeaumanoLx
Þegar karlmaður ákveður
að gifta sig er það oftsinnis
síðasta ákvörðunin, sem
honum gefst færi á að taka.
Kenneth L. Krichbaum
Stúlka verður kona á því
augnabliki sem hún hættir
að leita að hinum fullkomna
manni og fer að líta í kring-
um sig eftir eiginmanni.
ókunnur höfundur
Þessar konur! Áður en þær
giftast kvarta þær yfir þvi
að enginn maður sé í lífi
þeirra. Þegar þær hafa svo
loksins gengið f það heilaga
kvarta þær yfír þvi að ekk-
ert líf sé i manninum þeirra.
Cello
Efastu aldrei um dómgreind
konunnar þinnar. Minnstu
þess hverjum hún giftist.
Denver Post
„I»ú ert ólík öllum öðrum
konum hvíslar hann þegar
hann er ástfanginn. „Þú ert
eins og allar hinar," and-
varpar hann svo þegar hann
er kvæntur.
Mae West
Hann tók ósigrinum eins og
sannur karlmaður - kenndi
konunni sinni um hann.
ókunnur höfundur
Við leggjum minna á okkur
til að verða hamingjusöm
en að iáta aðra halda að við
séum það.
La Rochefocauld
151 i yi(j7/if\c/(ai//rs
MATSTOFA - VEISLUÞJÓNUSTA -‘mATARBAKKA’fT’
Watur við öll
tækifæri
Hringið og fáið
upplýsingar.
Sími 555 4570
Fax 555 4571
PÉTUR PÉTURSSON
LJÓSMYNDASTÚDÍÓ
LAUGAVEGI 24 • SÍMI 552 0624
Sjábn
hlutina
í víhara
xamhenjji!
- kjarni málsins!
PHIUPS
hjLæáiiegar
gjqfir
bragd
&em
er að!
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
Ef þú vilt gefa brúðhjónum
fallega og nytsamlega gjöf
þá eigum við PHILIPS
heimilistæki í miklu úrvali.
PHILIPS framleiðir
glæsileg heimilistæki, sem
prýða hvert heimili.
Umboðsmenn um land allt.