Morgunblaðið - 26.05.1996, Síða 8
8 E SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ir kjólinn í stað hefðbundinna
brúðarmeyja og -sveina.
Og þá var kátt í Höllinni
Æskuvinkona brúðarinnar, séra
Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, sókn-
arprestur í Grindavík, flaug austur
ásamt meðhjálpara og pússaði
hjónin saman við lítið altari sem
komið hafði verið upp í skóginum.
Séra Vigfús Ingvar Ingvarsson,
sóknarprestur á Egilsstöðum og
bróðir brúðgumans, flutti bæn.
Eftir athöfnina var farið í Hús-
stjórnarskólann og haldin veisla í
Höllinni. Nemendur skólans undir
stjórn Sigríðar Sigmundsdóttur
hússtjórnarkennara og Margrétar
Sigbjörnsdóttur skólastjóra sáu
um veisluna. Á matseðli voru síld-
arréttir og hreindýrapaté í forrétt,
hreindýrasteik með tilheyrandi og
steiktur lundi í aðalrétt, diykkjar-
föng voru rauðvín og bjór. Sér-
stakur matseðill var fyrir börnin
þar sem var boðið upp á kjúkling.
I eftirrétt var kransakaka og
súkkulaðiskálar með bláberjaróma
pg hrútaberjarjóma og konfekt.
Öll borð voru skreytt með afurðum
úr skóginum. Gjafaborðið var
ryðgað baðker sem komið var fyr-
ir í Höllinni. Vinir og ættingjar
hylltu brúðhjónin með líflegum
atriðum í veislunni. Eftir brúð-
kaupið fóru brúðhjónin í stutta
brúðkaupsferð í ijúpnaveiði og
héldu til í fjölskyldubústað
brúðgumans sem staðsettur er
milli Loðmundarfjarðar og Borg-
arfjarðar eystri. Hin eiginlega
brúðkaupsferð verður farin í sum-
ar en Karen og Björn ætla þá í
vikuferð til Ammassalik á Græn-
landi og taka með sér tjald og
svefnpoka.
Anna Ingólfsdóttir
Giftu sig
I skjóli trjónna
t^ANN 14. október 1995 var
M Jefnt til brúðkaups í Tijá-
Mm^ safninu í Hallormsstaða-
skógi. Brúðurin var Kar-
en Erla Erlingsdóttir og brúð-
guminn Björn Ingvarsson. Brúð-
kaupsgestir mættu í hlýjum útiföt-
um og með regnhlífar. Þrátt fyrir
votviðri og haust í lofti báru brúð-
hjónin sig vel án hlífðarfata, enda
náttúrubörn í eðli sínu og hafa
kynnst blæbrigðum íslenskrar
veðráttu við margs konar aðstæð-
ur. Athöfnin fór fram í skjóli
tijánna og gestir biðu spenntir
þegar brúðhjónin gengu inn í Tijá-
safnið, hún í kremlituðum róman-
tískum kjól úr silki og „orgensa“,
hann í íslenskum þjóðbúningi og
fjórtán litiir skógarpúkar á eftir
þeim héldu undir kjól brúðarinnar.
Hún undirbjó brúðkaupið,
hann veiddi villibráð
á veisluborðið
Brúðkaupsdagurinn 14. október
var valinn af tveimur ástæðum.
Annars vegar fyrir það að Karen
átti fertugsafmæli í október og
hins vegar var stund milli stríða
í veiðimannabransanum. Hrein-
dýra- og gæsavertíð var nýlokið
og ijúpnaveiði að hefjast eftir tvo
daga. 14. október var þvi hinn
ákjósanlegasti. Það varð sam-
komuiag þeirra í milli að hann
myndi sjá um að veiða veisluföng-
in en hún myndi annast undirbún-
ing brúðkaupsins. Bæði voru þau
sammála um að gifta sig undir
berum himni og völdu Hallorms-
stað en þangað fara þau mikið
bæði á sumrin og veturna. Þema
brúðkaupsins var því skógur og
náttúra.
Nornavöndur og
ryðgaður gaddavír
Karen hafði í mörgu að snúast
fyrir brúðkaupið. Efni í kjólinn var
keypt í Seymu í Hafnarstræti og
það var „orgensa" og frönsk
„darquer“ silkiblúnda. Kjóllinn var
saumaður eins og lífstykki og
reimaður að framan. Mikið af
blúndum enda reynt að draga fram
rómantík. Kjóllinn sem er módel-
flík var hannaður og saumaður
af Signýju Ormarsdóttur fata-
hönnuði. Um hárgreiðsluna sá
Heba hjá Monroe en hún kom
austur í tilefni dagsins. Brúðar-
vöndur og hárskraut var hannað
af Guðrúnu Sigurðardóttur hjá
Tómstundaiðjunni en þar voru
jurtir úr náttúrunni, m.a. norna-
vöndur sem Karen var ákveðin í
að yrði að vera í vendinum, ásamt
blúndum og skreytt með ryðguð-
um gaddavír sem skapaði mótvægi
við fínlegt yfirbragð. Fyrir þá sem
ekki vita er nornavöndur brúskur
Morgunblaðið/Magnús Reynir
BRÚÐHJÓNIN Karen Erla Erlingsdóttir og Björn Ingvarsson
ásamt syninum Úlfi.
Fyrir þó sem ekki vita
er nornovöndur brúsk-
ur í birkitrjám sem
sveppur hefur komist
í og f er þá að vaxa
óeólilega og
í allar áttir
í birkitijám sem sveppur hefur
komist í og fer þá að vaxa óeðli-
lega og í allar áttir. Sést víða í
birkitijám, á íslandi. Boðskortið
var hannað af Árna Margeirssyni,
það var fellt saman og lokað með
tijágrein. Sonurinn Úlfur, þá eins
og hálfs árs, bauð gestum til veisl-
unnar og var hann í sérsaumuðum
fötum í stíl við athöfn og um-
hverfi. Skyrtan var úr silki, hann
var í hreindýraieðurvesti og flau-
elsbuxum sem brúðurin saumaði
sjálf með aðstoð Signýjar. Karen
fékk systkinabörn og vini til þess
að vera skógarpúka og halda und-
Baó tengdaforeldrana
skrif lega um hönd unnustans
Jt G LAS í blaði um mann
MmJ sem hafði beðið um hönd
M konunnar sinnar á þennan
M hátt, fannst það sniðugt
og tilvalið að ég gerði hið sama“,
segir Halldóra Olafsdóttir sem
skrifaði verðandi tengdaforeldrum
sínum bréf og bað hátíðlega um
hönd síns heittelskaða.
Tilvonandi eiginmaður, Sveinn
Bergmann Rúnarsson, flaug síðan
með foreldra Halldóru til Vest-
mannaeyja, bauð þeim þar á veit-
ingahús og bað um hönd hennar.
Hann var búinn að ákveða að senda
þau með Heijólfi til baka gæfu þau
honum ekki jákvætt svar.
Foreldrar Sveins hafa þegar
skrifað Halldóru til baka og veitt
þeim blessun sína.
„Það var kominn tími á brúð-
kaup“, segja þau. „Við erum ást-
fangin, okkur líður vel saman, búin
að búa í nokkur ár og eignast dótt-
urina Berthu Þyri. Þetta er staðfest-
ing á því að við ætlum að vera sam-
an og axla þá ábyrgð sem hjóna-
bandinu fylgir", segja þau.
„Auk þess er það visst öryggi
að vera í hjónabandi og ákvörðunin
um giftingu hefur fært okkur nær
hvort öðru ef eitthvað er.“
Halldóra og Sveinn Bergmann eru
rétt að byija undirbúninginn enda
Morgunblaðið/Einar Falur
HALLDÓRA og Sveinn Berg-
mann ásamt dótturinni Berthu
Þyrí en þau ætla að ganga í
hjónaband í febrúar á næsta ári.
nægur tími til stefnu, brúðkaupið á
að vera í febrúar á næsta ári. Þau
renna hýru auga til Dómkirkjunnar
og eru að ræða um prest og veislu
þessa dagana.
Svarbréfin frá tengdaforeldrun-
um verðandi ætlar Halldóra að
geyma vel. „Þau verða römmuð inn
og geymd þannig."
grg
/4Omt- ttevttdmí
™!i * """ j IrfJcwiJ
Vieri avj .**cJ
f) fue ,Um &LW ~ui
a-í JcytVIo.
i) .jui Aj/L < m'J
a£J Aj juJ cfoun.Ur, ty
<") vi) /iéfrm di rwUi iLuáUuCCl
i) í/J aJ U-f Jui uUmM*
.jy-J 'uuif uCw
e) uJ Ajjim Píi oi
osyf't J V*. h-doorS! /AaI rxAíí^éU
vt bi»*voncí'
*>«& UVr wci aVuvjjCn oik
‘<k ^cuvyJcoauÍí
yjÓCtvf- i- QctjCf. *
- cwvA*. cwvv a.
M:
\
X
X
\
i
[
1
I
I
I
i
fe
»
\