Morgunblaðið - 26.05.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 E 11
hestbaki
í brúðkaupið
'V’ T"vanneyrarskál-
B B IN hefur löngum þótt
B B rómantískur staður og
eflaust eiga margir ljúf-
ar minningar þaðan, einkum frá
árum áður er skotist var þangað
til leynilegra ástarfunda milli síld-
arfarma. Nú þar sem skálin tengist
rómantík og ástarfundum, er þá til
betri staður til þess að kvænast en
einmitt þar? Þetta datt ráðamönn-
um síldarævintýrisins í hug og aug-
lýstu eftir brúðhjónum.
Helga Kristín Einarsdóttir og
Úlfur Guðmundsson sem verið
höfðu í sambúð í sex ár voru aldrei
búin að ræða brúðkaup af neinni
alvöru, nema það að Kristín sagði
oftar en einu sinni að ekki kæmi
til greina að hún giftist, nema að
fara á hestbaki til brúðkaups og
giftist í reiðbuxum, því fínir kjólar
og háhælaðir skór ættu ekki við
sig. Margir voru búnir að fussa og
sveia yfir þessum orðum og mamma
hennar sagði að þá giftist hún víst
aldrei.
Er móðursystir Kristínar heyrði
auglýsinguna frá stjórn Síldarævin-
týrisins þar sem auglýst var eftir
brúðhjónum, hafði hún samband við
Theodór Júlíusson, framkvæmda-
stjóra þess og spurði hann hvort
ekki kæmi til greina að brúðhjónin
kæmu ríðandi til athafnarinnar.
Hugmyndin féll í mjög góðan jarð-
veg hjá Theodóri. En þá var eftir
að sannfæra Úlf unnusta Kristínar.
Ólíkt henni hafði hann aldrei stund-
að hestamennsku og áhuginn á
þessum ferfættu skepnum tak-
markaður nema e.t.v. söltuðum í
tunnu. En að sögn Kristínar reynd-
ist það ekki erfitt. „Honum var eig-
inlega stillt upp við vegg og hann
látinn vita að ef þau giftust ekki
nú og á þennan hátt, þá giftust þau
bara alls ekki neitt.“ Og þar með
var hann sannfærður.
En þar sem tilvonandi brúðgumi
hafði svo lítið haft af hestamennsk-
unni að segja þurfti hann að fá til-
sögn og nokkrar æfingar á hest-
baki, svo hann kæmist klakklaust
í eigið brúðkaup. Og með góðra
vina hjálp tókst honum bara nokkuð
vel upp.
Brúðkaupsdagurinn 1. ágúst
1993 hófst kl. 7 með góðum morg-
unverði. Eftir það var haldið í hest-
húsin og hestarnir kemdir og snur-
fusaðir. Eftir það notuðu brúðhjónin
tilvonandi tímann til að snurfusa
sjálf sig og klæðast reiðfötum. Þau
voru mætt niður á torg í hjarta
bæjarins kl. 10 um morguninn, þar
sem hestarnir biðu þeirra ásamt
u.þ.b. 20 félögum úr hestmannafé-
HJÓNAEFNIN á leið til brúðkaupsins.
KRISTÍN og Úlfur
í brúðarvalsinum.
laginu Glæsi og prestinum sr. Braga
J. Ingibergssyni sem einnig var á
hestbaki.
Það var tignarleg sjón að sjá
þegar hersingin liðaðist upp hlykkj-
óttan veginn frá torginu, upp fjallið
í átt að Hvanneyrarskálinni. Fyrir
göngunni fóru tveir fánaberar, þá
presturinn, brúðhjónin og félagar
úr hestamannafélaginu og loks
mörg hundruð gestir síldarævintýr-
isins og íbúar Sigluíjarðar.
Við messuna söng kirkjukór
Siglufjarðar og trompetleikur þeirra
Sigurðar Hlöðverssonar og Daníels
P. Daníelssonar bergmálaði í fjöll-
unum er þeir léku brúðarmarsinn.
Er sjálf giftingarathöfnin hófst
braust sólin fram úr skýjunum og
baðaði fjörðinn geislum sínum.
Táknrænt að margra mati, almætt-
inu hlaut að falla þessi ráðahagur
vel í geð.
Allt í einu vék kirkjukórinn og
Kvennakór Siglufjarðar kom sér
fyrir fyrir framan hátalarana og
hóf upp raust sína, fáum til eins
mikillar undrunar og brúðinni, sem
var og er meðlimur í kórnum, en
brúðhjónunum til heiðurs og
ánægju höfðu þær æft þennan söng
„í leyni“ sérstaklega til að flytja
við þessa athöfn.
Að lokinni hjónavíglsu var snædd
brúðarterta og dans stiginn undir
harmonikkutónum, áður en haldið
var aftur niður til bæjarins.
Seinna um daginn tóku brúðhjón-
in á móti vinum og ættingjum og
buðu upp á veitingar og um kvöldið
voru tekin nokkur dansspor á Hótel
Læk. Þaðan héldu brúðhjónin í
íþróttamiðstöðina Hól, þar sem þau
áttu bókað herbergi fyrir brúð-
kaupsnóttina. Þar gæddu þau sér á
kampavíni og flatböku sem kunn-
ingi þeirra hafði sent og hvíldu lúin
bein, og ekki veitti af, þar sem
harðsperrurnar voru verulega farn-
ar að gera vart við sig hjá brúðgum-
anum.
Þau Kristín og Úlfur eru sam-
mála um að brúðkaupsdagurinn
hefði ekki getað verið betur heppn-
aður. „Hann var yndislegur í alla
staði,“ og Kristín bætir við að til-
finningin að standa í reiðstígvélum
og reiðbuxum fyrir framan prestinn
og játast sínum heittelskaða sé
hreint og beint ólýsanleg. Og um
þetta óvanalega brúðkaup segir
Úlfur: „Ég lét mig hafa það fyrst
annað kom ekki til greina og sé sko
ekki eftir því.“
Sigríður Ingvarsdóttir
Laugavegur 92 (Við hliðina á Stjörnuhíó) Stmí 562-5660
i j pw !
j ám 1
I i 1
MELISSA
BMH-550
er sjálfvirk
brauðbökunarvél.
Hún blandar, hnoðar, lyftir og
bakar, „alltaf nýbakað", brauð
að eigin vali og án
allra aukaefna.
Með einu brauði á dao
sparast ca. 30-35 búsund
krónur á ári ÞÉR I HAGHi
Verð kr. 21.042, eða
aðeins kr. 19.990 stgr.
Umboðsmenn um allt land
Heimilistækjadeild Fálkans • Heimilistækjadeild Fálkans
skóhöllinI
B/EJARHRAUN116 - 555 4420
. mm m m
v r.j
Brúðarskór
Brúðgumaskór
Brúðarmeyjaskór
■ - ‘ ■ ' ■
ítalskur kristall
Borðbúnaðartöskur ^Dafía^
Urval af gjafavörum bara bCómabúð >
Blómaskreytingar við öll tækifæri 7ífafeni 11, sími 56S 9120
Brúðargjafalistar og gjafabréf
Mikið úrval ferskra blóma
Á hverju þrífst fögur húð?
Dragðu djúpt andann
áður en þú svarar
SUREFNI
SKI N TH ERAPY
VITAL OXYGEN SUPPLY
Húð þtn lylBst orku og geislar af
heilbiigði. Súnefni gerir húðina
stinnari, gefur henni meiri mýkt og
sléttirfínarlínur.
Arangurinn er heilbrigð fegurð.
Skínandi, fersk og endumærð húð.
Ftnar linur og hrukkur hafa gneinilega
minnkað.
Enþarsemsjónersögu
rikari - skalttu uppfefa það sjálf.
Það er eins og húð þín hafi dregið
djúpt andann.
/ZANCASTER
SKIN THERAPY
ÍSFLEX hf, sími 588 4444