Morgunblaðið - 26.05.1996, Qupperneq 30
hiAOpinbera!
30 E SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Rómantíska
línan nteira áberandi en slör
grg
Lifandi
blóm í háriö
„VIÐ byijuðum fyrir sex árum
að búa til lifandi blómaskraut í
hár og eftirspurnin hefur alltaf
verið að aukast,“ segir Ásta
Kristjánsdóttir hjá Blómaverk-
stæði Binna. „Brúðkaupin eru
mjög rómantísk núna og litirnir
eru ljósir og þá sérstaklega
kremað og mildir pastellitir",
segir hún. „Það er áberandi að
rautt hefur mikið horfið úr brúð-
kaupum á sumrin, en það er
töluvert um þanp lit með gren-
inu á veturna. íslensk náttúra
býður líka upp á að farið sé út
að tína í brúðarvönd eða skreyt-
ingar og það kemur fyrir að
slíkar óskir berist okkur.
- Er hárskrautið yfirleitt fín-
legt?
„Það er allur gangur á því
og það er nokkuð um að konur
komi með myndir úr blöðum og
vilji fá eins og er á þeim. Þetta
eru þá gjaman bresk eða banda-
rísk blöð og auðvitað reynum
við að verða við óskum þeirra.“
Fórðunin
eftir heildarsvip
FÖRÐUNIN fer eftir hár-
greiðslunni, manngerðinni og
kjólnum," segir Sigríður Garð-
arsdóttir sem farðaði bæði Önnu
og Thelmu. „Vill konan hafa
náttúrulega förðun, sterka
kvöldförðun eða ætlar hún að
vera með létta og líflega máln-
ingu?“ Eftir að hafa heyrt óskir
brúðarinnar og séð kjólinn og
heyrt í hárgreiðslu-, og blóma-
skreytingafólki er hægt að hefj-
ast handa. „Við forðumst rauða
varaliti því þeir verða svartir á
myndum sem eru í svarthvítu.
Sumarlitirnir hjá okkur, sem
vinnum með vörur frá John van
G, eru appelsínugulur, skær-
bleikur og brúnbleikur og þessir
litir verða töluvert notaðir í
snyrtingu fyrir brúðkaup. Það
þarf að hafa í huga andlitsmáln-
inguna fyrir ljósmyndatöku,
passa að konan sé með púður
svo hún glansi ekki á myndinni
og svo framvegis. „Það er síðan
grundvallaratriði að brúðir,
mæður og tengdamæður séu
með vatnshelda maskar!.“
Sigríður segir það algengt að
konur fari í handsnyrtingu fyrir
stóra daginn, fái sér vaxmeðferð
og láti steypa á sig gervineglur.
Þ
ÆR Herdís Þorsteinsdóttir
log Helga Harðardóttir,
hárgreiðslumeistarar á
hárgreiðslustofunni Val-
höll, eru á einu máli um að róman-
tískir kjólar séu vinsælir og því heild-
arútlit í samræmi við það, líka hár-
greiðslan. „Það eru alltaf konur sem
vilja bara gifta sig í iátlausum kjól
og sumar í dragt en óneitanlega er
íburður og glæsileiki meira einkenn-
andi,“ segja þær.
„Þegar við fáum til okkar brúði
þurfum við að bytja á því að finna
út í hveiju hún ætlar að vera og
hvernig persóna hún er. Vill hún
vera með látlausa greiðslu eða hafa
hárið uppsett? Greiðslan þarf síðan
að vera í samræmi við klæðnaðinn
og núorðið vinnur hárgreiðslufólk
náið með þeim sem farða og blóma-
skreytingafólki," segir Herdís
„Ókkur fínnst áberandi að alveg
sama hversu látlaus klæðnaðurinn
er þá vilja konumar alitaf vera fínar
uip hárið. Það á auðvitað líka við
þegar um mikla kjóla er að ræða.
Slör eru á undanhaldi, það er orðið
miklu algengara að konur séu með
lifandi blóm í hárinu", bætir Helga
við.
Yfirleitt koma konurnar með sínar
óskir sem Helga og Herdís síðan
útfæra þegar konurnar koma í
prufugreiðslu. „Það er mjög sérstakt
andrúmsloft hér á stofunni þegar
við erum að greiða fyrir brúðkaup.
Auðvitað er þetta einn stærsti dag-
urinn í lífi þeirra og stemmningin á
stofunni endurspeglar það.“
Morgunblaðið/Sverrir
Það er skynsamur maður sem
getur verið sammála konu sinni
á svo sannfærandi hátt, að hún
skipti strax um skoðun.
Ókunnur höfundur
Hve hamingjusöm sem kona er i
hjónabandinu kann hún því þó
vel, að öðru livoru komi maður,
sem óskar þess að hún væri það
ekki.
Ókunnur höfundur
Þau þjón eru hamingjusöm, sem
myndu ganga í hjónaband, væru
þaú ekki þegar gift.
Madame de Puisieux
Það er list að krækja í karlmann
- en það er hörkuvinna að halda
í hann.
Simone de Beauvoir
Hamingjusamt hjónaband er
langt samtal, sem alltaf virðist
of stutt.
André Maurois
Hvers vegna eyðir konan áratug
í að breyta manninum sfnum og
kvartar síðan yfir því, að hann
sé ekki sá maður sem hún giftist.
Barbra Streisand
Við konur reynum ekki að breyta
eiginmönnum okkar. Við viljum
bara að þeir séu eins og þeir lét-
ust vera I upphafi.
Hertha Egolf
Ef við vildum bara verða ham-
ingjusöm þá væri hamingjan auð-
fengin; en við viljum verða ham-
ingjusamari en aðrir og það er
næstum því ógjörningur því við
höldum alltaf að aðrir séu ham-
ingjusamari en þeir eru í raun
og veru.
Montesquieu
Maður sem er hamingjusamur í
hjónabandinu, þekkist á því, að
hann breytist ekkert þó konan
hans sé viðstödd.
Ókunnur höfundur
Spakmœli
Ég er ákveðin. Þú ert þrjóskur.
Hann er þverhaus.
Katherine Whitehom
Flestir eru um það bil eins ham-
ingjusamir og þeir ákveða að
vera.
Abraham Lincoin
Ég fell fyrir tvenns konar mönn-
um - vöðvastæltum mönnum og
mönnum sem eru það ekki.
Mae West
Karlmenn eru kúgaðir
Þegar við fæðumst fá mæður
okkar heillaóskirnar og blómin.
Þegar við kvænumst fá brúðir
okkar alla athyglina.
Þegar við deyjum fá ekkjur okk-
ar líftryggingaféð og vetrardvöl
á FJÓrída.
Svo voga þær sér að kvarta und-
an kúgun!
Ókunnur höfundur
Óþroskuð ást segir: „Ég elska
þig vegna þess að ég þarf á þér
að halda.“ Þroskuð ást segir: „Ég
þarf á þér að halda vegna þess
að ég elska þig.“
Erich Fromm
Ég hef aldrei hatað mann nógu
heitt til að skila honum demönt-
unum.
Zsa Zsa Gabor
Það eina sem er ergilegra en
kona sem kann að elda en vill
það ekki er kona sem kann ekki
að elda en gerir það.
Robert Frost
Ég er frábær húshaldarí. í hvert
sinn sem ég yfirgef mann, held
ég húsinu hans.
Zsa Zsa Gabor
HERDÍS Þorsteinsdóttir
greiddi Önnu Þorsteins-
dóttur. Yfirbragðið
átti að vera suðrænt
og glæsilegt og
greiðslan að undir-
strika blóma-
skrautið sem
prýddi hárið. Hún
fór í glansskol til
að skerpa háralitinn
aðeins. Greiðslan tók mió
af kjólnum sem var sígildur
prinsessukjóll. Blómin voru
i mildum pastellitum en Ásta
Kristjánsdóttir hjá Blóma-
verkstæði Binna sá um að
hnýta fallega lifandi
blómaskreytingu fyrir
hana.
!<íS;Sgí|sf'
HELGA Harðardóttir
sá um greiðsluna á
Thelmu Hillers
sem er að fara að
gifta sig í júni.
Henni fannst
henta Thelmu
vel að vera með
frjálsa greiðslu
og setti því sítt
hárið i nokkurs-
konar pulsu að aft-
an og blómaskrautið
kom þar. Thelma fór
í glansskol og djúp-
næringu til að fá
fram gljáa og fyll-
ingu í hárið. Kjóll-
inn sem greiðslan
er við er fleginn
og einfaldur.
i
«
:
«
i
€
0
i
I
«5
:
v
i
i
i
í
i
t
(
(
i
<
c
(
i
i