Morgunblaðið - 16.06.1996, Page 26
26 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Háskólabíó sýnir spennumyndina Primal Fear með Richard Gere í aðal-
*
hlutverki. I myndinni leikur hann metnaðarfullan lögmann sem tekur að sér að verja
ungan mann, sem ákærður er fyrir að myrða erkibiskupinn í Chicago.
hún mun heita A Reign in Hell.
Leikstjóri myndarinnar er
Gregory Hoblit, sem var einn af
þeim sem stóðu að sjónvarpsþátt-
unum Hill Street Blues, L.A. Law
og NYPD Blue. Hann segist alla
tíð hafa verið gagntekinn af lög-
fræðilegum málum, og sértak-
lega hafi höfðað til hans að kanna
og fjalla um þá gerð bandarískra
lögmanna sem hafa að minnsta
kosti jafnmikinn áhuga á því að
koma fram í kvöldfréttum sjón-
varpsstöðvanna og málinu sjálfu
sem þeir vinna að hveiju sinni.
Við undirbúning myndarinnar
unnu aðstandendur hennar tals-
vert með raunverulegum lög-
mönnum og hjálpaði það Richard
Gere að skapa persónuna Martin
Vail. „Þeir vilja vinna baráttuna
og þeim stendur nokkurn veginn
á sama um hver það er sem situr
við hliðina á þeim við borðið í
dómsalnum. Þetta er orrahríð og
þar sem þeir þekkjst allir inn-
byrðis þá er þetta orrusta milli
vina.“
Laura Linney sem leikur Janet
Venable saksóknara fór með sitt
fyrsta aðalhlutverk í myndinni
Congo sem náði nokkrum vin-
Svikavefur
MARTIN Vail (Richard Gere)
er hrokafullur og snjall
veijandi sakamanna og nýtur
hann mikillar velgengni. Hans
helsta yndi er að heyja harðvítuga
baráttu í réttarsalnum og baða
sig i ljósi fjölmiðlanna, og það er
einmitt það sem hann ætlar sér
að gera þegar hann af eigin hvöt-
um tekur að sér að vetja fátækan
og ráðvilltan ungan mann, Aaron
Stampler (Edward Norton), sem
ákærður er fyrir morð. Fórnar-
lambið er einn af þekktustu og
virtustu íbúum Chicago, sjálfur
erkibiskupinn, og sekt hins
ákærða virðist blasa við þar sem
blóð úr hinum myrta fannst í rík-
um mæli á fötum hans. En Vail
er ekkert að velta fyrir sér spurn-
ingum um sekt eða sakleysi, því
það eina sem hann hugsar um
er að skapa sína eigin útgáfu af
sannleikanum með blekkingum
sem eru sérgrein hans, keyra
hana siðan í gegn og fara með
sigur af hólmi. En eftir því sem
samskipti hans við skjólstæðing-
inn verða nánari verður hin tak-
markalausa þörf Vails til að sigra,
fjandskapur hans í garð fyrrum
yfirmanns síns hjá saksóknara-
embættinu, flókið samband hans
við fyrrum ástkonu sína, Janet
Venable (Laura Linney), sem er
saksóknarinn í málinu, og óvænt-
ar tilfinningar hans í garð skjól-
stæðingsins til þess að hann verð-
ur sleginn blindu og gengur í
gildruna sem bíður hans. Og með
öllu fylgjast fjölmiðlarnir og ráða-
menn í æðstu stöðum af mikilli
athygii, en þeir eiga mikilla hags-
muna að gæta í málinu.
Farið í smiðju til lögmanna
Primal Fear er sambland af
réttardrama, spennutrylli og sál-
fræðikönnun. Myndin er gerð eft-
ir metsölubók Williams Diehl og
er bókin sú fyrsta af þrem um
persónuna Martin Vail. Önnur
hókin, Show of Evil, hefur verið
á metsölulistum upp á síðkastið,
og um þessar mundir er Diehl
að leggja lokahönd á þriðju og
síðustu bókina í þríleiknum, en
MARTIN tekur að sér að verja Aaron Stampler (Edward
Norton) sem er ákærður fyrir morð.
DÓMARINN (Alfre Woodard), saksóknarinn (Laura Linney) og
veijandinn (Richard Gere) bera saman bækur sínar.
sældum á síðasta ári, en áður
hafði hún farið með aukahlutverk
í myndunum A Simple Twist of
Fate, Dave, Searching for Bobby
Fischer og Lorenzo’s Oii. Þegar
hún var að undirbúa sig fyrir hlut-
verkið í Primal Fear fylgdist hún
með réttarhöldum í morðmálum
og segir hún það hafa komið sér
á óvart hve leikræn mörg réttar-
haldanna hafi verið. Samband
Janet Venable og Martins Vails
er þungamiðjan í Piimal Fear, en
Vail hafði verið lærifaðir Venable
þegar hann var saksóknari og hún
var að hefja feril sinn. Þá áttu
þau í ástarsambandi, en í mynd-
inni eru þau andstæðingar í
magnþrunginni baráttu í réttar-
salnum.
Með hlutverk hins
ákærða fer Edward Nor-
ton og er þetta fyrsta
hlutverk hans í kvik-
mynd. Hann var valinn í
hlutverkið eftir ákafa leit
bæði í Bandaríkjunum,
Kanada og Bretlandi.
Norton er með próf í sögu
frá Yale-háskóla og um
þessar mundir er hann
að leika í næstu mynd
Woody Allen, en næsta
verkefni hans verður í
myndinni Larry Flint sem
Milos Forman mun leik-
stýra og leikur hann á
móti Woody Harrelson í
henni.
HELSTA yndi lögmannsins Martins Vails (Richard Gere) er að baða sig í Ijósi fjölmiðlanna.
Þekkt andlit úr sjónvarpi
og kvikmyndum
Með önnur hlutverk í Primal
Fear fara ýmsir þekktir leikarar
úr kvikmyndum og sjónvarpi.
Meðal þeirra eru John Mahoney
sem fer með hlutverk ríkissak-
sóknarans, en hann er þekktur
fyrir hiutverk sitt í sjónvarps-
þáttunum Frasier. Hann hefur
leikið í fjölda kvikmynda og með-
al þeirra eru Ameri-scan presid-
ent, In the Line of Fire, Reality
Bites, The Hudsucker Proxy,
Barton Fink og Moonstruck. Með
hlutverk dómarans fer Alfre
Woodard, en hún var á sínum
tíma tilnefnd til Óskarverðlauna
fyrir hlutverk sitt í myndinni
Cross Creek, en meðal annarra
mynda sem hún hefur leikið í eru
Crooklyn, Passion Fish og How
to Make an American Quilt.
Sækir á toppinn á ný
PRIMAL Fear er enn ein tilraunin hjá
Richard Gere til að ná á ný þeim vin-
sældum sem hann átti að fagna fyrir
nokkrum árum og rétta við á nýjan
leik feril sinn sem heldur hefur legið
niður á við síðan hann lék á móti Juliu
Roberts í smellinum Pretty Woman
árið 1990. Gere hefur reyndar haft
heldur hægt um sig undanfarið og
aðeins leikið í einni mynd á ári síðastl-
iðin tvö ár. I fyrra lék hann á móti
Sean Connery í First Knight sem átti
að endurreisa hann sem kvikmynda-
sljörnu en það mistókst og nú er bara
að sjá hvort, betur tekst til með með
Primal Fear.
Richard Gere fæddist 31. ágúst 1949
í borginni Syracuse í New York-fylki,
en þar starfaði faðir hans sem trygg-
ingasali. Hann byrjaði feril sinn í
skemmtanabransanum saem hljóð-
færaleikari og í menntaskóla spilaði
hann á fjölmörg hljóðfæri og samdi
tónlist fyrir skólasýningar. Hann hóf
afskipti af leiklist í háskólanum í
Massachussetts þar sem hann lagði
stund á nám í heimspeki. Eftir að
hafa leikið með ýmsum smærri leikfé-
Iögum komst Gere á svið í New York,
og var ferill hans tryggður með
frammistöðu hans í rokkóperunni
Soon á Broadway. Þá gat hann sér
einnig gott orð fyrir hlutverk sitt í
Grease bæði á Broadway og í upp-
færslu söngleiksins í London. Fyrsta
kvikmyndahlutverkið fékk Gere svo
árið 1978, en það var í myndinni Days
of Heaven, og í kjölfarið fylgdu svo
myndirnar Looking for Mr. Goodbar,
Bloodbrothers, Yanks og American
Gigolo. Hann sneri síðan aftur til þess
að leika á Broadway í Bent, en fyrir
túlkun sína í því leikriti á samkyn-
hneigðum fanga í Dachau-fangabúð-
unum hlaut hann bæði verðlaun og
geysigóða gagnrýni. Árið 1982 lék
Gere svo í kvikmyndunum An Officer
and a Gentleman og Breathless, og
þar með hafði hann tryggt sér stöðu
sem einn af vinsælustu leikurum sam-
tímans.
En þá fór að síga á ógæfuhliðina og
léleg kvikmyndahandrit ásamt röngum
ákvörðunum ieikarans varðandi val á
kvikmyndum urðu til þess að frægðar-
sól hans hneig og úr þeim sfjörnuljóma
sem farinn var að umlykja hann dró
verulega. Það var svo sterkur Ieikur
hans í spennumyndinni Internal Affa-
irs sem skaut nafni hans á ný upp á
stjörnuhimininn og hann virtist svo
hafa tryggt sér endurkomu í úrvals-
deildina í Hollywood þegar hann lék í
hinni geysivinsælu mynd Pretty Wo-
man, sem skilað hefur um 455 milljón-
um dala í tekjur. það reyndist hins
vegar ekki allskostar rétt því síðan
hefur heldur hallað undan fæti hjá leik-
aranum og myndirnar sem hann hefur
leikið í hafa hlotið misjafna dóma og
heldur dræma aðsókn. Það eru mynd-
irnar Rhapsody In August (1991), Final
Analysis (1992), And the Band Played
On (1993), Mr. Jones (1993), Som-
mersby (1993), Intersection (1994) og
First Knight (1995).
Richard Gere er Búddatrúar og mik-
ið á ferðinni um fjarlægar slóðir vegna
trúariðkunar sinnar, og hefur umboðs-
maður hans kvartað yfir þvi að vont
sé að ná til leikarans til að koma til
hans skilaboðum um hlutverk sem hon-
um standi til boða. Hann sé sífellt á
ferðalögum, og þannig hafi umboðs-
maðurinn t.d. eftir margvíslegum
krókaleiðum getað haft upp á Gere í
Nýju-Delí og fátækrahverfum Kalk-
útta. Eitt sinn hafi hann óttast veru-
lega um leikarann, en það var þegar
hann var á ferðalagi í Nýju-Gíneu fyr-
ir nokkrum árum og týndist þar langt
inni í frumskógi, en það var vegna
þess að lítil flugvél sem hann var á
varð bensínlaus og þurfti hann að
hreiðra um sig undir flugvélarvæng í
tvo sólarhringa þar til aðstoð barst.