Morgunblaðið - 16.06.1996, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. JUNI 1996
B 23
ATVIN N U A UGL YSINGA R
GARÐYRKJUSKÓLI RÍKISINS
REYKJUM — ÖI.FUSI
Laus staða við
Garðyrkjuskóla
ríkisins
Staða fagdeildarstjóra á skrúðgarðyrkjubraut
er laus til umsóknar.
Staðan er veitt frá 1. september 1996.
Starfssvið er kennsla, ráðgjöf og rannsóknir.
Umsækjendur þurfa að hafa háskólapróf í
landslagsarkitektúr eða aðra fullnægjandi
menntun.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí 1996.
Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist til Garðyrkju-
skóla ríkisins, Reykjum í Ölfusi,
810 Hveragerði.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá skóla-
meistara og á skrifstofu Garðyrkjuskólans,
sími 483 4340, bréfsími 483 4362.
Skólameistari.
Eyrarbakki
Skólastjóri
Staða skólastjóra við Barnaskólann á Eyrar-
bakka er laus til umsóknar. Staðan veitist frá
og með 1. ágúst 1996.
Á Eyrarbakka búa um 540 manns og eru nemendur við Barnaskól-
ann á Eyrarbakka rúmlega 80 í 1. til 10. bekk. Barnaskólinn er elsti
starfandi barnaskóli á landinu. Hann var stofnaður árið 1852 og
hefur starfað óslitið síöan. Á næstu árum þarf að vinna að uppbygg-
ingu skólamála á Eyrarbakka, bæði húsnæðislega og faglega. Einn-
ig er framundan athugun á framtíðarskipulagi skólamála á Eyrar-
bakka og Stokkseyri.
Starfið er því áhugavert fyrir áhugasaman og metnaðarfullan mann,
karl eða konu.
Nánari upplýsingar gefa formaður skóla-
nefndar, Þórarinn Th. Ólafsson, í síma 483
1391 eftir kl. 17, og oddviti Eyrarbakka-
hrepps, Magnús Karel Hannesson, í síma
483 1165 og 483 1443.
Umsóknum skal skila til oddvita Eyrarbakka-
hrepps, Túngötu 40, 820 - Eyrarbakka, í síð-
asta lagi 5. júlí 1996 á eyðublöðum, sem
fást á skrifstofu Eyrarbakkahrepps, hjá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga, Reykjavík eða
á Fræðsluskrifstofu Suðurlandsumdæmis,
Selfossi.
Eyrarbakka, 14.júní 1996,
Oddviti Eyrarbakkahrepps.
object box
Forritari/-
kerfisfræðingur
Box ehf. NeXT umboðið óskar eftir að ráða
forritara/kerfisfræðing til framtíðarstarfa.
Starfið felst í:
• Þróun viðskiptahugbúnaðar.
• Uppsetningu hugbúnaðar fyrir netkerfi og
gagnagrunna.
• Þjónustu og aðstoð við viðskiptavini Box
ehf.
• Uppsetningu á miðlurum og nýjum hug-
búnaði fyrir internetið.
Við leitum að einstaklingum með þekkingu
eða reynslu á UNIX, C, C++, ObjectiveC og
öðrum forritunarmálum.
Box ehf. NeXT umboðið var stofnað 1991. Helstu verkefni og áherslur
Box ehf. eru sérlausnir í miðlar/biðlara umhverfi og internet lausnir. Við
þróun hugbúnaðar er notaður hlutbundinn búnaður NEXTSTEP/OPEN-
STEP sem byggður er á hlutbundinni tækni frá NeXT software Inc. Þró-
unarumhverfið keyrir á UNIX vólum og Windows línunni.
Umsögn um menntun og fyrri störf sendist
afgreiðslu Mbl. merkt: „Object" fyrir 2. júlí.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Kennarar ath.
Við Laugaskóla í Dalasýslu, sem er heima-
vistarskóli 20 km. vestan Búðardals, eru
lausar til umsóknar tvær heilar kennarastöð-
ur næsta skólaár. Önnur staðan er við
kennslu yngri nemenda og sérkennslu en
hin er aðallega í 8.-10. bekk og eru helstu
kennslugreinar stærðfræði, danska og sam-
félagsgreinar. Ódýrt húsnæði er á staðnum
og einnig er góður möguleiki á aukavinnu
við heimavistargæslu og félagsstörf. Því er
nú auglýst eftir áhugasömum kennurum til
þessara starfa.
Allar upplýsingar um þessar stöður gefur
skólastjóri, Kristján Gíslason, í s. 434 1262
eða 434 1269.
Umsóknarfrestur er til 27. júní.
Skólanefnd.
Laust starf
sparisjóðsstjóra
Sparisjóður Suður-Þingeyinga óskar að ráða
sparisjóðsstjóra. Þekking á bankastörfum
og/eða reynsla í rekstri æskileg.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf á kom-
andi hausti.
Nánari upplýsingar veita Dagur Tryggvason,
sparisjóðsstjóri, í síma 464 3110, Ari Teits-
son, Hrísum, Reykjadal, hs. 464 3159, vs.
563 0366 og Sigtryggur Vagnsson, Hriflu,
Ljósavatnshreppi í síma 464 3259.
Umsóknir sendist til stjórnar Sparisjóðs
Suður-Þingeyinga, Kjarna, Laugum fyrir
15. júlí nk.
Stjórn Sparisjóðs Suður-Þingeyinga.
SÖLURAÐGJÖF
HEILBRIGÐISSVIÐ
VIÐ LEITUM AÐ duglegum, framtaks-
sömum og sjálfstæðum söluráðgjafa fyrir
eitt af leiðandi framleiðslu- og
innflutningsfyrirtækjum landsins.
STÁRFIÐ felst í móttöku viðskiptavina,
ráðgjöf við val á fjárfestingavöru til
fyrirtækja og stofnana ásamt söluvitjunum
til viðskiptavina. Um er að ræða afar
vandaða vöru.
HÆFNISKRÖFUR eru að umsækjendur
hafi menntun og reynslu af störfum innan
heilbrigðisþjónustu, en iðjuþjálfar sem
og hjúkrunarfræðingar eru sérlega
áhugaverðir. Söluhæfileikar, þjónustu-
lipurð og létt lund eru ótvíræðir kostir.
Áhersla er lögð á snyrtimennsku og
þægilega framkomu.
UMSÓKNARFRESTUR er til og með
21. júní n.k. Ráðning verður sem fyrst.
Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á
skrifstofunni sem opin er frá kl.10-16, en
viðtalstímar eru frá kl.10-13.
Starfsráðningar ehf
Mörkinni 3 ■ 108 Reykjavik
Sími: 588 3031 ■ Fax: 588 3044
Gu6ný Hariardóttir
ST
RA
Frá Grunnskólum
Reykjavíkur
Fræðsluskrifstofa Reykjavíkurumdæmis og
Skólaskrifstofa Reykjavíkur auglýsa eftirtald-
ar stöður lausar til umsóknar við grunnskóla
Reykjavíkur skólaárið 1996-1997.
Árbæjarskóli: Staða tónmenntakennara (1/1
staða). Sérkennsla (1/1 staða). Danska og
íslenska á unglingastigi (1/1 staða vegna
forfalla).
Breiðagerðisskóli: Myndmennt (1/2 staða).
Hólabrekkuskóli: Handmennt stúlkna
(vegna forfalla frá 1. október-1. apríl).
Kennsla 6 ára barna (vegna forfalla frá
25. nóvember-25. maO-
Umsóknarfrestur er til 28. júní nk.
Upplýsingar eru veittar hjá skólastjórum eða
aðstoðarskólastjórum viðkomandi skóla og
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkurumdæmis,
Túngötu 14.
Fræðslustjóri Reykjavíkurumdæmis.
Upplýsingatækni
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið óskar að
ráða starfsmann til að hafa umsjón með
þróun upplýsingakerfa fyrir ráðuneytið og
stofnanir á vegum þess.
Meginverkefni starfsmannsins verður að
hafa umsjón með þróun, gerð og uppsetn-
ingu upplýsingakerfis vegna væntanlegrar
þátttöku Islands í Schengen-samstarfinu.
Auk þess á starfsmaðurinn að hafa umsjón
með rekstri og frekari þróun annarra upplýs-
ingakerfa ráðuneytisins.
Til starfsmannsins eru gerðar kröfur um
menntun á sviði upplýsingatækni og reynslu
af verkefnastjórnun. Einnig þarf hann að
hafa góða kunnáttu í ensku og a.m.k. einu
Norðurlandamáli.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Högni
S. Kristjánsson, í síma 560 9010.
Umsóknir sendist til dómsmálaráðuneytisins,
Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 26. júní nk.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
14.júní 1996.
IVIVERKTAKAR
VERKSTÆDISMENN
JVJ verktakar hf. óska að ráða starfsmenn á
verkstæði.
Starfssvið
Almennar viðgerðir á véla- og tækjakosti
fýrirtækisins.
Hæfniskröfur
Leitað er að einstaklingum með reynslu af
vélaviðgerðum.
Einungis traustir og duglegir menn koma til
greina.
Með umsóknir og fyrirspurnir verður farið sem
trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Jón Birgir Guðmundsson
hjá Ráðgarði frá kl. 9-12.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs á
eyðublöðum er þar liggja frammi merktar: „JVJ-
verkstæði” fyrir 24. júní nk.
RÁÐGARÐUR hf
SI}ÚRNO^(XREKSTRARRÁÐG)Cff
FURUQERBI 8 108 REYKJAVlK SlMI 533-1800
n«tt«ng; r*do»rdur©itn.i*