Morgunblaðið - 16.06.1996, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.06.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 B 35 og henni er ekki sóað í spillta emb- ættismenn eða hún notuð til kaupa á morðvopnum. Namib eyðimörkin Namibía dregur nafn af Namib eyðimörkinni, sem er talin elsta eyðimörk í heimi, um 70 milljón ára gömul. Eyðimörkin liggur með- fram endilangri strönd Namibíu og nær frá ströndu 50 til 150 km inn í landið. Hún teygir sig inn í Suður- Afríku í suðri og Angóla í norðri. Fjórir bæir eru í eyðimörkinni á strönd Namibíu. Syðst við ósa ár- innar Oranje, sem liggur á landa- mærum Namibíu og Suður-Afríku, er bærinn Oranjemund, sem er miðstöð demantavinnslunnar. Bær- inn er í eigu CDM (Consolidated Diamond Mines) námufyrirtækisins og þarf sérstaka heimild til þess að fara til bæjarins. Eyðimörkin milli Oranjemund og Lúderitz, um 250 þúsund ferkílómetrar, er lokað landsvæði öllum óviðkomandi vegna demantavinnslunnar (Sperrgebiet - Diamond Area No. 1). Um 250 km norðar á ströndinni er bærinn Lúderitz. Það er aðallega fiskveiði- og ferðamannabær. Um 40-50 íslendingar munu vera bú- settir í Lúderitz og starfa þeir við útgerð og fiskvinnslu. Íbúar bæj- arins eru um 8 þúsund og er bær- inn kenndur við fyrsta landnemann þýska, Franz Adolf Lúderitz, kaup- mann frá Bremen, sem keypti vík- ina þar sem nú er Lúderitz ásamt töluverðu landsvæði í nágrenninu af innfæddum árið 1883. Um 400 km norðan við Lúderitz er aðalhafnarbær Namibíu, Walvis Bay (Hvalfjörður). Þar búa um 40 þúsund manns. Walvis Bay var hluti af Suður-Afríku frá 1884 til 1994 og til- heyrði aldrei þýsku nýlendunni Deutsch- Súdwest-Afrika. Samningarnir við Suð- ur-Afríku um yfirtöku Namibíu á Walvis Bay, éru einstakir í Afríku og til fyrirmyndar fyrir alla heimsbyggðina um hvernig leysa má á friðsamlegan hátt ágreining um land- svæði milli landa. Um 30 km norð- an við Walvis Bay er bærinn Swa- kopmund sem Þjóðveijar reistu og hugðust gera að hafnarbæ, þar sem Walvis Bay tilheyrði Suður-Afríku. Swakopmund er nú aðallega ferða- mannabær með um 25 þúsund íbúa. í Walvis Bay og Swakopmund búa um 50 íslendingar og starfa þeir við útgerð, rannsóknir á sjávarlífi og fiskveiðum, kennslu, ráðgjöf og þróunaraðstoð ýmiss konar. Flestir eru á vegum Þróunarsamvinnu- stofnunar (ICEIDA) og vinna mikið og gott starf við að aðstoða Namib- íumenn á hinn margvíslegasta hátt er varðar vísindalega nýtingu sjáv- ar, fiskveiðar, útgerð og siglingar. Náttúra landsins Náttúra Namibíu er alveg ein- stök. Landið er þurrt og renna engar ár í Namibíu sjálfri nema í stuttan tíma (stundum bara nokkra daga) um háregntímann og kemur það íslendingum ókunnuglega fyrir sjónir að aka á brúm yfir árfarvegi þótt engar séu árnar. Á landamær- um Namibíu og nágrannalandanna eru hins vegar ár sem renna árið um kring. Oranjeáin er á landa- mærum Suður-Afríku, Kunene- og Okavangoárnar á landamærum Angóla, Zambesifljótið á landa- mærum Zambíu og Linyanti/Chobe árnar á landamærum Botswana. Eins og áður sagði liggur Nami- beyðimörkin eftir endilangri strönd landsins, en inn til landsins rís háslétta upp frá eyðimörkinni, um 1.200 til 1.700 metra há að jafn- aði. Upp úr hásléttunni gnæfa nokkur fjöll og er Brandberg hæst 2.580 m. Kalaharieyðimörkin þek- ur svo austurhluta Namibíu og mestan hluta Botswana. I suður- hluta Namibíu gefur meðal annars að líta Fishriver Canyon, sem eru næstmestu gljúfur í heimi eftir Grand Canyon í Bandaríkjunum. í norðurhluta Namibíu er hinn heimsfrægi Etoshaþjóðgarður, sem er um 23 þúsund ferkílómetrar að stærð, þar sem ganga villt flest þekktustu dýr Afríku, svo sem ljón, sebradýr, gíraffar, fílar, vísundar, hlébarðar, strútar, nashyrningar o.fl. o.fl. sem of langt yrði að telja upp. Þjóðgarðurinn er kenndur við Etosha Pan sem er saltbotn upp- þornaðs víðáttumikils en grunns stöðuvatns. Á rigningartímanum safnast vatn saman í Etosha Pan og myndar salt stöðuvatn í nokk- urn tíma. Þá koma hundruð þús- unda fugla, sem annars halda sig við strönd Suður-Atlantshafsins, svo sem flamingóar og pelikanar, til Etosha að verpa. Mun óvíða í heiminum vera fjölskrúðugra dýra- líf en í Etosha þjóðgarðinum. Samgöngur Mjög gott vegakerfi er í Namib- íu og mestur hluti aðal þjóðveganna malbikaður og í góðu standi. Þar að auki er þéttriðið net malarvega sem gerðir eru úr fíngerðri möl eða eyðimerkursandi. Þessir malarvegir eru mjög góðir og færir öllum bíl- um. Landleiðina er því greiðfært um alla Namibíu og til nágranna- landanna, einkum til Suður-Afríku, en einnig til Botswana og Angóla. Skipaferðir eru milli Evrópu og Walvis Bay, og stefnir Walvis Bay í að verða aðalhöfn fyrir hin landluktu nágrannalönd Namibíu, svo sem Botswana og Zambíu. Flugsamgöngur við Namibíu eru góðar. Aðalflugfélag landsins, Air Namibia, flýgur þrisvar í viku með Boeing 747 breiðþotu frá Evrópu (London og Frankfurt) til Windho- ek, og flýgur auk þess daglega til Jóhann- esarborgar og Höfða- borgar (Cape Town) í Suður-Afríku. Áir Namibia heldur einnig uppi áætlunarferðum innanlands og til An- góla, Zambíu, Botsw- ana og Zimbabwe. Tvö þýsk flugfélög fljúga til Windhoek, Luft- hansa og LTU. Flugfé- lög nágrannalanda Namibíu, South Afric- an Airways, Angola Airlines og Air Botswana halda einnig uppi áætlunarferðum til Windhoek. Namibía sótt heim Meira en 100 íslendingar eru búsettir í Namibíu og hefur það orðið til þess að allmikill fjöldi ís- lenskra ferðamanna kemur til Namibíu árlega, til þess að heim- sækja vini og kunningja, og til þess að skoða undurfagurt og heill- andi land. Mér er tjáð af ferðaskrif- stofum heima á íslandi, að fargjald- ið frá Reykjavík um London til Windhoek, fram og til baka, með Flugleiðum og Air Namibia kosti um 95.000 krónur, sem ekki er há upphæð með áætlunarflugi. íslendingar eru vel kynntir í Namibíu og vel er tekið á móti ferðamönnum frá íslandi. Ekki þarf vegabréfsáritun til Namibíu og né heldur sérstakar bólusetning- ar. Ef fyrirhugaðar eru ferðir til norður- og austurhluta Namibíu að sumarlagi (frá október til apríl) er rétt að kaupa í næsta apóteki í Windhoek malaríutöflur og taka í öryggisskyni, en annars er ekki hættara við sjúkdómum í Namibíu en í löndum Suður-Evrópu. Lítið er til um Namibíu á prenti á íslensku. Vilji menn kynna sér landið betur og/eða hafa hug á að heimsækja það, þá er sennilega bestu upplýsingarnar að fá í ferða- mannabæklingum sem fást í mörg- um bókaverslunum í Reykjavík, einkum enskum, dönskum (Politi- ken) og þýskum. Einnig eru grein- argóðar upplýsingar um Namibíu að finna í Encyclopedia Britannica, og sjálfsagt öðrum uppsláttarritum líka. Ekki má heldur gleyma verald- arvefnum en þar er ýmsan fróðleik að finna um Namibíu. Höfundur er flugmálasijóri Namibíu Grétar H. Óskarsson flugwélaverkfræðingur Þjóðleg ferm- ing í Einars- staðakirkju Morgunblaðið. Laxamýri. MARGT var um manninn í Ein- arsstaðarkirkju í Reykjadal fyrir nokkru en þá voru fermd sjö börn. Messan var sérstök að því leyti að öll fermingarbörnin klæddust þjóðlegum búningum auk þess sem margar konur voru í íslenskum búningum í kirkj- unni. Kór Einarsstaðakirkju söng en sr. Sigurður Ægisson flutti ræðu og varaði unga fólkið við ýmsu sem gæti orðið á vegi þess á lífs- leiðinni. Þá var altarisganga og að athöfn lokinni var farið út i garð þar sem börnin tóku við heillaóskum ættingja og vina. Morgunblaðið/Atli Vigfússon SERA Sigurður Ægisson ásamt fermingarbörnum sínum. . í j -» MC uj A DQNALDS < ^ x Hjörtur Nielsen fhtur i Bláu Húsin vio Faxafen (Suðurlandsbraut 52) Við opnum nýja búð 18. júní með glæsilegri tilboðsviku Mokkabollar 12 litir nú Kr. 1.000 Hvíta stellið skál m/loki nú Kr. 995 -35% N Súpubolli nú Kr. 1.225 -35% Menuett súkkulaðibolli nú Kr. 995 -35% Laukmunstur sósukanna nú Kr. 2.920 -35% Mattarósin diskur á fæti nú Kr. 3.420 -50% Skál nú Kr. 4.380 -50% Tíglavasi nú Kr. 3.360 -50% Oll koníaksglös -20% járn/Messing kertastjakar nú Kr. 1.000 -65% Litríkar skálar stórar .K*-fc4ó0“ nú Kr. 1.840 -25% Litríkar skálar litlar xmœr- nú Kr. 690 -25% Litríkir kertastjakar stórir nú Kr. 990 -25% Litríkir kertastjakar litlir JKrrW50* nú Kr. 750 -25% WMF hnífaparakassar 68 stk nú Kr. 20.880 -30% WMF hnífaparakassar 24 stk. XrrfcWr nú Kr. 5.895 -30% Wedgwood matar- og kaffistell -10% til -20% Villeroy og Boch matar- og kaffistell -10% til -20% v WEÐGWOOD V G ALLO DESIGN Villeroy & Bocli Group Wt 10\ iei Við Faxafen — Suðurlandsbraut 52 Sími 553 6622

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.