Morgunblaðið - 16.06.1996, Síða 24
24 B SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
f
ATVINNUAÍJGl YSINGAR
Ritari
Öflugt fjármálafyrirtæki í borginni óskar að
ráða ritara til starfa strax fyrir nokkra af yfir-
mönnum fyrirtækisins.
Nauðsynlegt að viðkomandi hafi reynslu af
almennum skrifstofustörfum, góða fs-
lensku- og tölvukunnáttu og geti unnið
sjálfstætt.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar til 20. júní.
frUÐNT TÓNSSON
RÁDGIÖF & RÁDNINGARhlÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI 5-62 13 22
Villingaholtsskóli
Árnessýslu
Kennara vantar næsta skólaár til almennrar
kennslu.
Villingaholtsskóli erfámennur, vel búinn skóli
með 1 .-7. bekk. Hann er í aðeins 17 km fjar-
lægð frá Selfossi.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí.
Upplýsingar um starfið gefur Hafsteinn
Karlsson, skólastjóri, í síma 486 3325.
Hafrannsókna-
stofnun
auglýsir lausa til umsóknar stöðu sérfræð-
ings á sviði stofnerfðafræði sjávarlífvera.
Krafist er menntunar og/eða starfsreynslu á
sviði sameindaerfðafræði. Æskilegt er að
starfsmaður sýni frumkvæði og geti unnið
sjálfstætt. Staðan er styrkt að hluta til af
Evrópusambandinu og er ætluð til fjögurra
ára.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið starf
sem fyrst og eigi síðar en 1. september nk.
Hugsanlegt er að unnt verði að tengja starf-
ið rannsóknarverkefni til doktorsprófs.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og starfsferil þurfa að berast stofn-
uninni fyrir 28. júní nk. Nánari upplýsingar
veitir Anna K. Daníelsdóttir í síma 587 7000.
Hafrannsóknastofnunin,
Skúlagötu 4,
121 Reykjavík.
Skólaþjónusta Eyþings auglýsir lausar stöð-
ur til umsóknar. Hin nýja stofnun mun þjón-
usta grunnskóla, og frá næstu áramótum
einnig leikskóla, í Eyjafjarðar- og Þingeyjar-
sýslum. Höfuðstöðvar verða á Akureyri en
útibú á Húsavík.
Til að sinna þeim verkefnum sem þjónustu-
deild er ætlað er auglýst eftir fólki sem hef-
ur menntun í:
sálfræði - sér-
kennslu og kennslu-
og uppeldisfræði
Einnig er auglýst starf skrifstofumanns og
rekstrarfulltrúa. Rekstrarfulltrúi hefur um-
sjón með skjalavörslu og yfirumsjón með
skýrslugerð og upplýsingagjöf til skóla, sveit-
arstjórna og annarra opinberra aðila. Hann
sinnir ennfremur ráðgjöf við úrvinnslu á
vinnuskýrslum, áætlanagerð og kerfisbundn-
ar athuganir.
Umsóknarfrestur er til 28. júní nk. Umsóknir
sendist til framkvæmdastjóra Eyþings,
Strandgötu 29, 600 Akureyri.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður
Skólaþjónustu Eyþings, Jón Baldvin Hannes-
son, vs. 462 2588, 462 4655 og
hs. 461 1699.
„Au pair“ í Noregi
Lækni og sjúkraþjálfara í doktorsnámi vantar
„au-pair“ til eins árs frá 1. ágúst. Tvær dæt-
ur, 4ra og 7 ára. Búsett á stór-Óslóarsvæðinu.
Uppl. gefa Benjamín og Ólöf í s. +47 669 91769
og Hrefna G. Thorsteinson í s. 434 1377.
Skotveiðifélag
íslands
Óskar eftir starfsmanni í hlutastarf. Um er
að ræða 40 stundir á mánuði.
Umsóknir sendist til Mbl. merktar:
„Skotvís - 98“ fyrir 30. júní.
Sérkennsla
Kennsla yngri barna
Leikskólakennari
Athugaðu hvað í boði er!
Grunnskólinn á Hofsósi er að leita að áhuga-
sömum sérkennara og/eða kennara sem
getur m.a. tekið að sér kennslu yngri barna.
Við leikskólann Barnaborg á Hofsósi er einn-
ig laus staða leikskólakennara til að taka að
sér leikskólastjórnun.
Umsóknarfrestur er til 5. júlí.
Upplýsingar veitir Snæbjörn Reynisson,
skólastjóri, í síma 453 7344 og 453 7309 og
sveitarstjóri, Árni Egilsson, í síma 453 7320
og 453 7395.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
óska að ráða eftirtalið starfsfólk á neðan-
greinda leikskóla:
Múlaborg v/Ármúla
Leikskólakennara með deildarstjórn.
Þroskaþjálfa (frá 1. september nk.).
Matráð (frá 1. september nk.).
Upplýsingar gefur Ragnheiður Gróa Haf-
steinsdóttir leikskólastjóri í síma 568 5154.
Nóaborg v/Stangarholt
Leikskólakennara.
Upplýsingar gefur Ásta Þóra Ólafsdóttir,
aðstoðarleikskólastjóri í síma 562 9595.
Sólborg v/Vesturhlíð
Leikskólakennara með deildarstjórn.
Upplýsingar gefur Jónína Konráðsdóttir leik-
skólastjóri í síma 551 5380.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552 7277.
Lausar
kennarastöður
við Reykholtsskóla
Biskupstungnahreppur auglýsir lausar
kennarastöður við Reykholtsskóla í Biskups-
tungum.
Meðal kennslugreina eru:
Almenn kennsla (yngri börn), danska, raun-
greinar og handmennt (smíðar).
Umsóknarfrestur framlengist til 24. júní nk.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri, Kristinn
M. Bárðarson, í símum 486 8708 hs.,
486 8830 vs.
Reykholtsskóli er einsetinn grunnskóli með um 90 nemendur í 1.-10.
bekk, góða vinnuaðstöðu og gott bókasafn. Kennaraíbúðir eru í boöi.
í Biskupstungum eru tveir þéttbýliskjarnar, Laugarás og Reykholt (fjar-
lægð u.þ.b. 100 km frá Reykjavík).
í Reykholti er sundlaug, félagsheimili, leikskóli og banki.
í Laugarási er heilsugæslustöð.
Skólanefnd Biskupstungnahrepps.
Heimili
Gott heimili óskast fyrir dreng utan af landi,
fæddur 1984. Hann er að fara í Öskjuhlíðar-
skóla nk. haust.
Um er að ræða vistun 5 daga vikunnar og
fer hann heim um helgar og í önnur skólafrí.
Skólatími er frá kl. 8.00-16.00.
Allar nánari upplýsingar í síma 482 1839 eða
482 1922 frá kl. 8.30-16.00 (Nína Edda).
Viðhaldsstjóri
Fiskiðjan Skagfirðingur hf. á Sauðárkróki vill
ráða viðhaldsstjóra, sem hefur umsjón með
viðhaldi og þjónustu við skip fyrirtækisins.
Viðkomandi verður að vera vélfræðingur og
tæknifræðingur.
Upplýsingar gefur útgerðarstjóri í símum
455 4409 og 455 4400, fax 453 5839.
Umsóknir sendist fyrir 22. júní til:
Fiskiðjan Skagfirðingurhf.,
Gísli Svan Einarsson,
Eyrarvegi 18,
550 Sauðárkróki.
HJÚKRUNARHEIMILI
Hjúkrunarfræðingar
takið eftir!
Eir er nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili í
Grafarvogi, sem veitir víðtæka hjúkrunar
þjónustu.
Nú og með haustinu vantar okkur hjúkrunar-
fræðinga á kvöld-/nætur- og helgarvaktir.
Hafið samband og fáið nánari upplýsingar
hjá hjúkrunarforstjóra, Birnu Kr. Svavarsdótt-
ur, í síma 587 3200 virka daga.
SJÚKRAHÚS
REYKJAVÍ K U R
Hjúkrunarfræðingar
Geðsvið
Laus er staða hjúkrunarfræðings á móttöku-
deild geðdeildar A-2 í Fossvogi.
Lysthafendur hafi samband við Guðbjörgu
Gunnarsdóttur, deildarstjóra, í síma 525 1436
eða Guðnýju Onnu Arnþórsdóttur, hjúkrunar-
framkvæmdastjóra, í síma 525 1405.
Læknaritari
Laus er staða læknaritara á barnadeild í
Fossvogi.
Nánari upplýsingar gefur María Henley, deild-
arstjóri, í síma 525 1551 milli kl. 13 og 15.
Húsvörður
Félag eldri borgara í Bústaðahverfi
Réttarholt, Hæðargarði 33-35,
óskar að ráða húsvörð til starfa frá og með
1. sept. nk. Starfið felst m.a. í umsjón lóðar
og húseignar, minniháttar viðhaldi og
ræstingu.
Leitað er að reglusömum starfsmanni
(helst hjónum) á aldrinum 50 til 60 ára.
Starfinu fylgir 2ja herb. íbúð ca 60 fm.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Guðna
Jónssonar, Háteigsvegi 7, og skal skila
umsóknum á sama stað fyrir 22. júní nk.
rTTJÐNlTÓNSSON
RÁPGIÖF & RÁDNINGARIMÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI 5-62 13 22