Morgunblaðið - 16.06.1996, Page 30
30 B SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Á MYNDINNI eru f.v.: Kristín Einarsdóttir forseti Soroptimista-
sambands íslands, Ingunn Eydal listakona, Guðrún Agnarsdótt-
ir læknir og Anna Dýrfjörð verkefnastjóri.
Styrkja Neyðarmóttöku
vegna nauðgunar
Stjórn Framleiðendafélagsins fagn
ar skýrslu menntamálaráðherra
StíÐASTLIÐINN vetur voru afhentar
Neyðarmóttöku vegna nauðgunar,
Slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur,
tvær grafíkmyndir að gjöf frá
Soroptimistasambandi Islands.
Myndimar eru eftir Ingunni Eydal
listakonu sem gaf höfundarrétt á
myndunum til framleiðslu á tækifær-
iskortum til fjáröflunar fyrir Neyð-
armóttökuna. Forstjóri Prentsmiðj-
unnar Odda, Þorgeir Baldursson, gaf
fyrstu prentun kortanna og sér
Soroptimistaklúbbur Grafarvogs um
dreifingu þeirra.
Kortin eru seld á eftirtöldum stöð-
um: Verslun Rauða krossins á Land-
spítalanum, Bókabúðinni Vedu,
Kópavogi, Heimsljósi í Kringlunni,
Gallerí Fold, Gallerí List, Gallerí
Úmbru, Hafnarblómi, Blómahafinu,
Stefánsblómum, Stúdíóblómum,
Breiðholtsblómum, Irpu, Kópavogi,
Blómavali, Iðnu Lísu, Blómabúðinni
íris og Hlín, Mosfellsbæ.
FRAMLEIÐENDAFÉLAGIÐ, sam-
tök félaga og fyrirtækja sem fram-
leiða kvikmyndir, hefur sent frá sér
ályktun vegna skýrslu starfshóps
um endurskoðun á útvarpslögum
sem menntamálaráðherra lét gera.
Stjórn Framleiðendafélagsins fagn-
ar skýrslu starfshópsins og telur
hana að ýmsu leyti rökrétt fram-
hald af kæru félagsins á hendur
Ríkisútvarpinu til Samkeppnisstofn-
unar á sínum tíma.
_ í samantekt skýrslunnar segir:
„í upphafí starfs mótaði starfshóp-
urinn því það viðmið að meginvið-
gangsefnið væri að hyggja sérstak-
lega að hlut innlendrar dagskrár-
gerðar á ljósvakanum og leita leiða
til að efla hlut þess þáttar í starf-
semi ljósvakamiðla, bæði einkarek-
inna og Ríkisútvarpsins." í álykt-
unni segir að starfshópnum hafí í
grundvallaratriðum tekist þetta
meginviðfangsefni sitt og sérstak-
lega beri að lofa þá áherslu sem
hópurinn leggur á mikilvægi inn-
lendrar dagskrárgerðar fyrir menn-
ingu og tungu þjóðarinnar.
í ályktuninni koma fram nokkrir
áherslupunktar sem kvikmynda-
framleiðendur telja rétt að taka til
sérstakrar umræðu. Þar kemur fram
að helstu vankantar skýrslunnar séu
að ekki skuli vera lagðar til þær
kvaðir á inniendar einkareknar sjón-
varpstöðvar að þær auki framleiðslu
á innlendu dagskrárefni samhliða
því að samkeppnisstaða þeirra sé
jöfnuð.
Ennfremur er bent á að afnám
auglýsinga í Ríkisútvarpi-Sjónvarpi
komi ekki til álita fyrr en einka-
reknu sjónvarpstöðvarnar verði
orðnar fleiri, fjölbreyttari og fastari
í sessi, þar sem hætta er á fákeppni
á auglýsingamarkaði og hugsanlega
stórfelldum samdrætti í framleiðslu
sjónvarpsauglýsinga. Tekið er fram
að sjónvarpstöð sem selur áskrift
geti ekki gegnt sama upplýsinga-
hlutverki og stöð sem er öllum opin.
Framleiðendafélagið leggur til að
tekjur af sölu auglýsinga í Ríkissjón-
varpinu renni til innlendrar dag-
skrárgerðar hjá sjáifstæðum fram-
leiðendum dagskrárefnis og á einka-
reknum sjónvarpsstöðvum. Félagið
tekur undir hugmyndir skýrslunnar
um sérstakan dagskrárgerðarsjóð
og telur það betri leið til að tryggja
grósku í innlendri dagskrárgerð, en
þá að einkastöðvar geti farið með
auglýsingatekjur sínar að vild.
I skýrslunni er lagt til að sá þátt-
ur auglýsingasölu sem nefndur er
kostun verði lagður niður hjá Rikis-
sjónvarpinu, því kostun dagskrár-
efnis sé ein af mikilvægustu leiðum
einkarekinna stöðva til að fjár-
magna dagskrárefni. Framleiðenda-
félagið tekur fram að kostun á er-
lendu efni skerði verulega mögu-
leika sjálfstæðra framleiðenda til
að fá kostunaraðila í samstarf við
gerð á innlendu vönduðu dagskrár-
efni. Því sé mikilvægt að kostun á
öllu innlendu efni verði leyfð, en
kostun á erlendu sjónvarpsefni
bönnuð. Á einkareknum sjónvarps-
stöðvum hefur áskrifandinn greitt
fyrir hina erlendu dagskrá og því
ekki þörf á að kosta hana sérstak-
lega.
auglýsingor
t Hörgshlíð12
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
oa77», Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
I kvöld kl. 20.00: Hjálpræðissam-
koma í umsjá Erlings Níelssonar.
17. júní verður kaffisala kl. 14-
19. Hugvekjustund kl. 17.00.
Flóamarkaðsbúðin, Garðastræti
6, verður með útsölu 18., 20. og
21. júní. Síðan veröur lokað til
30. júlí.
Ekki tekið á móti fatnaöi fyrr en
í ágúst.
Ungt tólk
með htutverk
W\rA YWAM - lceland-------
Lofgjörðar- og fyrir-
bænasamkoma
fyrir fólk á öllum aldri verður í
Breiðholtskirkju í kvöld kl. 20.
Friðrik Schram prédikar og segir
m.a. frá nýframkomnum spá-
dómum um væntanlega úthell-
ingu Heilags anda. Þorvaldur
Halldórsson leiðir lofgjörð og
syngur einsöng. Verið öll inni-
1 ’ lega velkomin!
Grensásvegi 8
Samkoma í dag kl. 11.
Ásmundur Magnússon prédikar.
Allir hjartanlega velkomnir!
Sjónvarpsútsending á Omega
kl. 16.30.
Pýramídinn -
andleg
miðstöð
I nærveru
sálar
Björg Einarsdótt-
ir, sjúkranuddari
og Reikimeistari,
býður upp á
einkatíma í djúpheilun
margvíddarheilun. Fariö er inná
hin ýmsu svið sálarinnar, and-
legar tengingar, fyrri líf, innra
barn, tilfinningar, viðhorf, sál-
arlexíurog hreinsun orkustöðva.
Námskeiðið: „Taktu sólina inn í
sálina". Andlegar tengíngar,
aukin næmni, innri sýn, sjálfs-
heilun, hugleiðslur inn á hin
ýmsu svið; huga, tilfinninga og
sálar, hefst fimmtudaginn 27.
júni kl. 20.00.
Námskeiö í Reiki I verður haldið
29. og 30. júní.
Námskeið í ilmjurtaheilun verður
auglýst síðar.
Allar nánari upplýsingar í Pýra-
mídanum, Dugguvogi 2, í síma
588 1415 og 565 8567.
Hverfisgötu 105,1. hæð
Samkoma kl. 20.00 í kvöld.
Mike Bradley frá Keflavík
predikar.
Frelsishetjurnar, krakkakirkja
kl. 11.00. Allir velkomnir.
Fimmtudagskvöld: Kennsla og
bænastund kl. 20.00.
Vertu frjáls, kiktu í Frelsið.
Rauðarárstíg 26, Reykjavík,
sími 561 6400
Guðsþjónusta sunnudag kl. 20
og fimmtudag kl. 20. Altaris-
ganga öll sunnudagskvöld.
Prestur: Sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
Pýramídinn -
andieg
miðstöð
Heilun, reiki, ilm-
jurtanudd,
svæðameðferð.
Arnhildur S.
Magnúsdóttir
býður einkatima í
heilun, sem er
hreinsun á orkustöðvum, Reiki,
ilmjurtanudd og svæðameðferð
sem er þrýstinudd og er notað
á ákveðna orkupunkta, aðallega
á fótum þar sem þeir eru næm-
astir.
Námskeið verður í ilmjurtaheilun
sem felur T sér slökunarnudd
með ilmkjarnaolíu og orkusvið
líkamans. Námskeiðið verður
auglýst síðar.
Allar nánari upplýsingar í Pýra-
mídanum, Dugguvogi 2, í síma
588 1415 og 565 8567.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Dagsferðir Ferðafélagsins
Sunnudag 16. júní:
1) Kl. 10.30 Reykjavegur 4. ferð:
Djúpavatn - Kaldársel. Mögu-
leiki að taka rútu á Krýsuvíkur-
leið eða halda áfram í Kaldár-
sel. Verð kr. 1.000.
2) Kl. 13.00 Þingveliir - Skógar-
kot (gömul þjóðleið). Gengiö að
eyðibýlinu Skógarkoti. Verð kr.
1.000.
Mánudagur 17. júní:
Kl. 10.30 Móskarðshnúkar -
Trana - Kjós. Gengið frá Svina-
skarði. Verð kr. 1.200.
Brottförfrá Umferöarmiðstöðinni,
austanmegin og Mörkinni 6.
Feröafélag íslands.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.00. Ræðumaður Mike Fitz-
gerald. Barnagæsla fyrir börn
undir grunnskólaaldri. Láttu sjá
þig, þú ert innilega velkominn.
Ath. breyttan samkomutíma.
Dagskrá vikunnar framundan:
Miðvikudagur: Lofgjörð, bæn
og biblíulestur kl. 20.00.
Föstudagur:
Ungiingasamkoma kl. 20.30.
K r i s t i ð s a m f é I a g
Samkoma í Góötemplarahúsinu,
Suðurgötu 7, Hafnarfirði, í dag
kl. 20.00.
ívar Sigurbergsson predikar.
Allir velkomnir.
VEGURINN
Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Kvöldsamkoma kl. 20.00.
Lofgjörðar- og tilbeiðslusam-
koma í kvöld kl. 20.00. Frjálsir
vitnisburðir.
„Dýrð Guðs í kirkjunni."
Hjartanlega velkomin!
FERÐAFÉLAG
^ ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Sumarleyfisferðir:
Sólstöðuferð á Strandir 19.-23.
júní. Gist í Norðurfjarðarhúsi F(.
Austast á Austfjörðum 25.-30.
júnf. Hellisfjörður, Viðfjörður,
Barðsnes.
Vestfirsku alparnir 28.6.-1.7.
Haukadalur - Lokinhamradalur
- Svalvogar.
Vestfjarðastiklur 29.6.-4.7.
Öku- og skoðunarferð. Farið á
Látrabjarg og í Gunnarsvík.
„Laugavegsferðir" hefjast
29.6. 5 og 6 dagar. Undirbún-
inysfundir alla mánudaga fyrir
brottför ferðanna.
Spennandi aukaferð um
„Laugaveginn" utan stikuðu
gönguleiðarinnar 26.-31. júlí.
Ný og glæsileg árbók 1996,
sem nefnist „Ofan Hreppa-
fjalla", er komin út og er hún
innifalin í árgjaldi kr. 3.300.
Sólstöðugöngur
21.-23. júní. Brottför föstudag
kl. 19.00:
a. Næturganga yfir Fimmvörðu-
háls. b. Næturganga með Eyja-
fjöllum. c. Þórsmörk. Gist í Skag-
fjörðsskála.
Fjölskylduhelgi i Þórsmörk
28.-30. júní. Ævintýraferö fyrir
alla aldurshópa.
Ferðafélag íslands.
I haust hefur starfsemi
Domata
Kennt verður fyrir hádegi alla
daga vikunnar og gert ráð fyrir
að nemendur séu kallaðir af
Guði og stundi námið af alvöru.
Boðið er upp á:
Kennslu erlendra kennara, sem
eru í tengslum við dr. Kenneth
Hagin og Rhema-biblíuskólann.
Kennslu, sem er full af trú og
grundvölluð á orði Guðs.
Lág skólagjöld.
Leyfðu því sem Guð hefur gefið
þér að vaxa.
Nánari upplýsingar:
Domata-biblíuskólinn á íslandi,
pósthólf 108, 200 Kópavogi.
Nám i cranio sacral-
jöfnun
1. hluti af þremur
22.-28. júní.
Kennari: Svarupo
H. Pfaff, lögg.
„heilpraktikerin"
frá Þýskalandi.
Uppl. og skrán. ísíma 564 1803.
Aðalstöðvar KFUM
og KFUK, Holtavegi 28
Samkoma í kvöld kl. 20.00.
Augliti til auglitis. Ræðumaður:
Sr. María Agústsdóttir. Tom
Harriger flytur hvatningarorð.
Einsöngur: Hörður Geirlaugs-
son. Allir velkomnir.
Ókeypis í Lakagíga
- næstum því
1.200 krónur fyrir þriggja daga
ferð með gistingu, fararstjórn
og rútuferðum. Útivist efnir til
ferðar í Lakagíga en þeir eru á
þemasvæði Útivistar, Skaftár-
hreppi. Ferðin er farin í sam-
vinnu Skaftárhrepps, Austurleið-
ar hf. og Útivistar en allir þessir
aðilar gefa vinnu sina. Hér er
um sérstakt kynningarverö að
ræða því það er hagur allra að
sem flestir sæki hreppinn heim.
I Skaftárhreppi eru margar feg-
urstu náttúruminjar landsins,
s.s. Eldgjá, Lakagígar, Núpstað-
arskógar, Dverghamrar, Kirkju-
gólf, Álftavatnskrókar og Fjaðar-
árgljúfur svo eitthvað sé nefnt.
Þetta er fyrsta stóra gönguferö
Útivstar um svæðið og því er
um kynningartilboð að ræða.
Útivist býður í framhaldi þessa
upp á fjölmargar göngu- og
skoðunarferöir um svæðið í
sumar.
Útivist.
Somhjólp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.
Mikill almennur söngur.
Samhjálparkórinn tekur lagið.
Vitnisburðir. Barnagæsla.
Ræðumaður Óli Ágústsson.
Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
Samtök heimsfriðar
og sameiningar,
Hverfisgötu 65A.
í dag kl. 11.00: Hugvekja.
Mánudagur 17. júní: Opið hús,
kaffi og veitingar frá kl. 15-19.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagsferð sun. 16. júní
Kl. 10.30 Reykjavegurinn, 4.
áfangi; Djúpavatn-Kaldársel.
Verð kr. 1.000,-
Kvöldferðir um Jóns-
messu 23. júní
1. Kl. 20.00 Jónsmessunætur-
gangan; Marardalur. Gengið úr
Sleggjubeinsdal, yfir Húsmúla í
Marardal.
2. Kl. 20.00 Fjallasyrpan, 4.
ferð; Hengill. Gengið úr Sleggju-
beinsdal upp í Innstadal og það-
an á Skeggja.
Helgarferð 22.-23. júní
1. Kl. 20.00 Sumarsólstöður á
Snæfellsjökli. Gist á Arnarstapa
í svefnpokaplássi. Jökulganga,
strandganga og hraunganga um
nokkra af fegurstu stöðum
landsins um einstaka helgi. Verð
8.600/9.400,-
2. Kl. 20.00 Sumarsólstöðuhá-
tið í Básum, ferð fyrir alla fjöl-
skylduna. Verð kr. 4.900/4.3000
og gist er í tjöldum.
Ath. Ferðir í Bása alla daga vik-
unnar, lækkað verð frá fyrri
árum.
Jeppaferð 28.-30. júní
Kl. 20.00 Hvítárnes-Kerlinga-
fjöll. Heillandi svæði á milli jökla
sem býður upp á frábærar
gönguleiðir. Gist í góðum fjalla-
skálum. Verð 4.500/5.000.
Netslóð:
http://www.centrum.is/utivist
Útivist.
KROSSINN
Sunnudagur: Almenn samkoma
kl. 16.30.
Barnagæsla er meðan á sam-
komunni stendur.
Þriðjudagur: Biblíulestur kl.
20.30.
Laugardagur: Unglingasam-
koma kl. 20.30.
Sumarleyfisferðir
22.-26. júní Ingjaldssand-
ur, sólstöðuferð
Ekið í Stykkishólm, með Baldri
yfir Breiðafjörð og að Ingjaldss-
andi á einum degi. Gengið um
sandinn í fylgd heimamanna.
Farið í Nesdal, Skáladal, á Barð-
ann, í Geldingarskál, Mosdal og
Valþjófsdal. Ógleymanleg ferð
um einstakt svæði.
26.-30. júní Emstrur Básar
Ekið að kvöldi inn Fljótshlíð og
í Emstrur. Gist í Botnsskála.
Gengið inn að Emstrujökli og
yfir hann upp Langháls, suður
Almenninga, nýja leiö austan
Rjúpnafells og á Stangarháls og
í Bása.
3.-7. júli Landmannalaugar
Básar
Komið um hádegi í Landmanna-
laugar, gengið samdægurs upp
i Hrafntinnusker, gist í skála.
Farð að íshellunum. Gengið að
Álftavatni næsta dag. Á þriðja
degi í Emstrur og þeim fjórða
um Almenninga og Þórsmörk i
Bása.
3.-7. júlí Núpsstaðaskógar
- Grænalón
Ekið að morgni austur í Núps-
staðarskóga og tjaldað. Gengið
upp í Grænaón með stoppi við
Tvílitahyl. Gist við Grænalón í
tvær nætur. Skoðunarferö um
nágrennið. Gengið suður í
Súludal og Súlutindi. Ekið til
Reykjavíkur snemma sunnu-
dags.
5.-13. júlí Á skíðum yfir
Vatnajökul
Flogiö til Mývatns og ekið þang-
að í Kverkfjöll og gist. Gengið á
næsta degi upp í skála Jökla-
rannsóknarfélags og gist þar
tvær nætur og farið i gönguferö-
ir um nágrennið. Gengið á tveim-
ur dögum í Grímsvötn og gist
þar i tvær nætur. Síðan gengið
að Þumli og í Þjóðgarðinn i
Skaftafelli. Útivist fór þessa ferð
fyrst 1991 og er hún einungis
ætluö vönu skíðafólki enda bera
þátttakendur allan farangur.
Ferðin hefur notið mikilla vin-
sælda og er engu lík.
Útivist.