Morgunblaðið - 23.06.1996, Blaðsíða 17
Morgunblaðið/Sverrir
En hvað er það sem ger-
ir tónleikana svona
skemmtilega?
„Við sáum Pál Óskar!“
sagði Ilarpa og skcllti upp
úr. „Neeei,“ andmældi
Steinunn Maria, „það besta
er að sjá goðið, það að sjá
Björk á tónleikum.“ „Já,
hún er svo æðisleg," sam-
sinnti Dísa. Af hveiju?
„Vegna þess að hún þorir
að vera hún sjálf,“ svaraði
Dísa ákveðin. „Já, ein-
mitt,“ tók Marta Rós und-
ir, sú yngsta í hópnum,
„hún er svolítið skrýtin en
hún þorir samt að vera hún
sjálf, hún er ekki að reyna
að vera nein önnur en hún
er.“
Með barnabömum á
tónleikunum
Eftir að Björk var búin
að spila og áður en Goldie
byijaði virtist Gunnlaugur
Þórðarson
lögfræð-
ingur á
lejðinni út.
„Ég hef
alltaf dáðst
að Björk,“
segir hann.
„Hún er
skemmtilegur og skapandi
listamaður. Þetta var stór-
kostleg skemmtun með
góðri tækni og ljósadýrð.
Hún hefur mikla hæfileika
og það er mikils að vænta
af henni,“ segir Gunnlaug-
ur og upplýsir að hann sé
á tónleikunum með yngstu
dóttur sinni, sex barna-
börnum og vinum þeirra.
Stoltir
Síðasta lag Bjarkar var Its
oh so Quiet og áheyrendur
lýstu ánægju sinni. Berti
og Bertel sögðu endinn
frábæran. „Þetta var dálít-
ið stutt hjá henni en endaði
vel,“ sagði Berti ánægður
á svip. Bertel var sömuleið-
is hrærður. „Mér fannst
myndast ákveðin tengsl
þarna inni, á milli Bjarkar
og okkar úti á gólfinu;
þetta voru nyög persónu-
legir og innilegir tónleikar
hjá henni. Maður fann fyr-
ir stoltinu yfir því að við
skulum eiga hana.“ „Já,
það er rétt,“ bætti Berti
við, „maður er stoltur af
henni Björk.“
Goldie frábær
Fyrir utan höllina eftir
að Goldie hafði kvatt stóð
Helga Óskarsdóttir i fjöld-
anum.
„Meirihátt-
ar,“ sagði
hún, „það
var ótrú-
lega gaman
að heyra í
henni á ís-
lensku.“
En hvernig fannst þér
Goldie?
„Goldie var frábær,“
svaraði hún, „og söngkon-
an í bandinu var göldrótt.“
I
\