Morgunblaðið - 27.06.1996, Page 2

Morgunblaðið - 27.06.1996, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson BÍLLINN var fluttur til ísafjarðar í gær. Hann er talinn vera ónýtur. V öruflutningabíll í sjóinn í Hestfirði Eini ókaskótryggði bíll fyrirtækisins Kröfluvirkjun stækkuð um 15 megawött VÖRUFLUTNINGABÍLL valt út af veginum vestan megin í Hest- firði við Eiðisháls, fram af lágum bakka og út í sjó um miðnætti að- faranótt miðvikudags. Tveir menn voru í bílnum og sluppu þeir ómeiddir. Farmur bílsins, aðallega kjöt og drykkir, skemmdist og bíll- inn er talinn ónýtur. Að sögn lögreglunnar á ísafirði mun hjólbarði á framhjóli bílsins hafa hvellsprungið og þannig valdið slysinu. Ökumaður bílsins bólgnaði á fæti og farþegi kvartaði undan eymslum í þaki. Þeir fóru í læknis- skoðun á ísafirði í gær en báðir fengu að fara heim að henni lokinni. Bílstjórinn segist hafa misst stjórn á bflnum þegar dekkið sprakk og hann þá farið út af veginum. Hann hafí runnið eftir bakkanum og lent á hjólunum niðri í fjöru og að hluta til úti í sjó. Mennirnir voru báðir í bílbeltum og segir bílstjórinn að þeir hafi ekki meiðst neitt að ráði, aðeins marist. Maður úr sum- arbústað í nágrenninu kom að og tók mennina tvo með sér í bústað- inn. Nýlega keyptur Bíllinn var sóttur í gær og fluttur til Isafjarðar. Hann er talinn vera ónýtur. Kristinn Ebenezersson, eig- andi ísafjarðarleiðar, sagði í gær að farmurinn yrði bættur af trygg- ingum en bfllinn ekki. Fyrirtækið væri nýbúið að festa kaup á honum og ekki búið að ganga frá kaskó- tryggingu á honum. Hann var því eini bíll fyrirtækisins sem ekki var kaskótryggður. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem fyrirtækið verður fyrir skakkaföllum en í byijun mánaðar- ins kviknaði í út frá rafmagni í vöruflutningarými bíls ísafjarðar- leiðar. Bíllinn var í áætlunarakstri frá Akureyri til ísafjarðar en Isafjarð- arleið er með áætlun á þessari leið einu sinni í viku. Kristinn segir þetta óhapp ekki raska áætlunar- ferðum fyrirtækisins meira en orðið er. Annar bíll hafi þegar verið send- ur af stað til að sækja vörur í stað þeirra sem skemmdust. STJÓRN Landsvirkjunar samþykkti á fundi í gær að ráðast í stækkun á Kröfluvirkjun um 15 megawött, eða úr 30 megawöttum í 45 mega- wött, sem er um 120 GWst á ári. Framkvæmdum ætti að geta verið lokið á næsta ári og þessi áfangi Kröfluvirkjunar kominn í rekstur í lok ársins 1997. Að sögn Helgu Jónsdóttur, stjórnarformanns Landsvirkjunar, er kostnaður við stækkunina áætlaður 698 milljónir króna, 173 milljónir á þessu ári og 525 milljónir á næsta ári. Talið er að hægt sé að flýta áætl- uðum virkjunarframkvæmdum á Nesjavöllum með sértækum aðgerð- um um 4-6 mánuði, en áætlanir hafa miðast við að framkvæmdum yrði lokið í árslok 1998. Áætlað er að virkja í tveimur áföngum á Nesja- völlum og að þeir skili samtals 360 GWst orku. Áð sögn Alfreðs Þor- steinssonar, formanns stjórnar Veitustofnana Reykjavíkurborgar, myndi flýtingin hafa í för með sér umtalsverðan kostnaðarauka, en á þessu stigi væri ekki ljóst hver hann yrði. Helga Jónsdóttir segir að hug- myndir Columbia Ventures Co., sem óskað hefur eftir svörum um það hvort hægt sé að afhenda næga orku í MORGUNBLAÐINU í dag birtast þijár auglýsingar varðandi forseta- kjör. Tvær þeirra eru frá hópi, sem kallar sig: „Óháðir áhugamenn um forsetakjör 1996“ en sú þriðja frá samtökum, sem nefna sig: „Sam- tökin: „í Guðs bænum ekki...““. Samkvæmt upplýsingum frá þeim aðilum, sem standa að birtingu þessara auglýsinga eru forsvars- fyrir álver snemma árs 1998, séu fjarri því að vera fastar í hendi. Bendir hún á að hagkvæmara verð- tilboð liggi fyrir frá Venesuela sem Columbia þurfi að kanna til fulls áður en gengið er til samningavið- ræðna við íslendinga. Dýrara að flýta framkvæmdum Alfreð Þorsteinsson sagði að svar Hitaveitu Reykjavíkur við fyrirspurn Columbia Ventures um hvort hægt væri að flýta framkvæmdum á Nesjavöllum væri efnislega það að það sé hægt með sértækum aðgerð- um og umtalsverðum kostnaðar- auka. Alfreð sagði að allur undirbúning- ur við Nesjavallavirkjun væri kominn á þann skrið sem hægt væri að setja hann. Stjórn Veitustofnana hefði samþykkt í gær að fela Rafmagns- veitu Reykjavíkur að annast undir- búning að lagningu háspennulínu frá virkjuninni að aðveitustöð Raf- magnsveitunnar við Korpu, og jafn- framt að undirbúa stækkun aðveitu- stöðvarinnar sem nauðsynleg væri vegna tengingar háspennulínunnar við stöðina. ■ Ákveðið að stækka/10 menn Óháðra áhugamanna um for- setakjör 1996, þeir Sigurður Helga- son, fyrrv. forstjófi Flugleiða, Björgólfur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri og Ómar Kristjáns- son, framkvæmdastjóri. I forsvari fyrir samtökuttum „í Guðs bænum ekki...“ er Árni Árna- son, Brúarási 12. Auglýsingar um forsetakjör NL í brids ísland í öðru sæti í opna flokknum Faaborg. Morgunblaðið. ÍSLENDINGAR eru í öðru sæti í opna flokknum á Norðurlandamót- inu í brids þegar átta umferðum er iokið af tíu. íslendingar unnu Færeyinga 25-3 og Svía 18-12 í gær en töpuðu 12-18 fyrir Norðmönnum og hafa 146 stig. Svíar hafa 152,5 stig og Norðmenn 144. Konurnar í 5. sæti í kvennaflokki er Island í fimmta sæti með 89 stig. Liðið tapaði 3-25 og 6-24 fyrir Norðmönnum og Svíum en vann Færeyinga 22-8. Síðustu tvær umferðirnar verða spilaðar í dag. -----» -»• ♦- Hjálmurinn bjargaði EKIÐ var á átta ára dreng á reið- hjóli í Njarðvík í gærkvöldi. Hann hafði hjólað út á götuna án þess að taka eftir bílnum. Drengurinn var fluttur á sjúkra- hús en fékk að fara heim að skoðun lokinni. Hann var með hjálm. MorgunDlaoio/Knstmn Tveimur bruggverksmiðjum lokað FÍKNIEFNADEILD lögreglunn- ar í Reykjavík handtók „verk- smiðjueiganda" í Þingholtunum á þriðjudag sem þar starfrækti bruggverksmiðju. Lögreglu- menn helltu niður 2 lítrum af landa og um 600 Iítrum af gambra en úr þeim hefði verið hægt að sjóða um 150 lítra af landa. Önnur bruggverksmiðja var upprætt í Garðabæ sl. mánudag. Þar var hald lagt á um 50 lítra af landa. Tæki og tól voru gerð upptæk á báðum stöðum. Mönnunum hefur báðum verið sleppt og teljast málin upplýst, samkvæmt upplýsingum frá fíkniefnadeildinni. Myndin er af lögreglumönnum að störfum í Þingholtunum. MEÐ blaðinu í dag fylgir átta síðna auglýsingablað frá Hagkaup. Grindhvala- vaða á Hraunsfirði VAÐA 30-40 grindhvala hefur lónað á Hraunsfirði frá því í fyrra- dag. Þeirra varð fyrst vart úti á Kol- grafafirði en síðan gengu þeir inn í Hraunsfjörð og voru í gær komn- ir inn undir brú. Jafnvel er talið að hvalurinn sé að elta lax sem gengur i hafbeitarstöðina í Hraunsfirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.