Morgunblaðið - 27.06.1996, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 27.06.1996, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ1996 51 FRÉTTIR ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Magnaðar horfur í Þistilfirði HORFUR hljóta að teljast framúr- skarandi góðar á norðausturhorn- inu eftir þau tíðindi sem bárust í vikunni frá opnun Sandár í Þistil- firði. Fyrsti veiðihópurinn byijaði 20. júní, en engin á á þessum slóð- um er opnuð jafn snemma og oftar en ekki er lítið um að vera og jafn- vel fátt sem bendir til sumarkomu. Að þessu sinni veiddust 7 stórir laxar, 10 til 13 punda. Laxarnir í Sandá veiddust víða á svæðinu og þær fregnir hafa einnig borist að sést hafi mikið af laxi á ferð í sjónum nærri árósurn um í Þistilfirði að undanförnu. í fyrra veiddust á þriðja hundrað laxar í hverri af helstu ánum í Þistilfirði og nær allt var það eins árs fiskur úr sjó, 4 til 6 punda hængar. Garðar H. Svavarsson stangaveiðimaður sem þekkir hveija þúfu á þessum slóðum sagði í samtali við Morgunblaðið eftir þá vertíð, að hann myndi eftir því að aflinn hefði einu sinni áður ver- ið svo afgerandi einlitur. Næsta ár á eftir hefði verið mikið laxveið- iár á svæðinu og 10 til 16 punda hrygnur hefðu þá sett mjög svip sinn á veiðina. Helstu ár Þistilfjarðar eru, auk Sandár, Svalbarðsá og Hafralónsá. Búið er að opna Hafralónsá og veiddist a.m.k. einn lax fyrsta dag- inn. Svalbarðsá verður opnuð á mánudag og sagði Jörundur Mar- kússon leigutaki að hann biði Morgunblaðið/HMÁ. EINAR Oddur Sigurðsson veiddi Maríulaxinn sinn í Ver- skálahyl í Sandá á dögunum, 12 punda hrygnu á maðk. Hér bítur hann veiðiuggann af lax- inum og býst til að kyngja honum. spenntur, vatnsmagn væri gott í ánni og skilyrði öll hin bestu. Frábær byrjun í Leirvogsá Veiði hófst í Leirvogsá á þriðju- dagsmorgun og eftir fyrsta daginn lágu tíu laxar í valnum. „Þetta var mjög góð byijun, ein sú albesta ef ekki sú besta sem hefur verið í Leirvogsá," sagði Guðmundur Magnússon formaður Veiðifélags Morgunblaðið/Árni Helgason ÞAU tóku þátt í að fegra bæinn með bros á vör: Ólafur Krist- jánsson, Bjarni Lárusson, Einar Karlsson og Pálína Þorvaldsdóttir. Hreinsunarátak í Stykkishólmi Leirvogsár í samtali við Morgun- blaðið í gærdag. Sagði Guðmundur flesta laxana hafa veiðst neðarlega og eitthvað upp undir miðja á, en lítið hefði verið að sjá ofarlega í ánni. Annars var þetta allt lúsugur lax þannig að hann er á fleygiferð fram ána,“ bætti Guðmundur við. Stærstu laxarnir voru 13, 10 og 8 punda, en hinir voru frá 4 upp í 6,5 pund. Lifnar yfir Stóru-Laxá Lax er nú farinn að veiðast á öllum svæðum Stóru-Laxár í Hreppum. í gær voru komnir um 20 laxar á land af svæðum 1 og 2 og um helgina síðustu veiddust fyrstu laxarnir á svæði 3, þrír 11 punda fiskar. Á sama tíma urðu menn á efsta svæðinu varir við talsverða laxgengd. Veiddu þeir fjóra laxa, tvo 5 punda, einn 11 og einn 14 punda, misstu fleiri, þar af einn sem var „vei yfir 20 pund í Hólmahyl“, eins og einn í hópnum, Pétur Pétursson kaup- maður, sagði í samtali við Morgun- blaðið. Hann sagði veiðitúrinn hafa farið fram úr björtustu vonum. „Ég þekki þetta svæði ekki mjög vel, en eftir að hafa verið þarna skil ég ekkert í því hvers vegna það gengur illa að selja þar veiðileyfi. Þetta svæði er með því magnað- asta sem ég hef séð,“ sagði Pétur. Norðurá á kunnug- legum slóðum Norðurá í Borgarfirði er á kunn- uglegum slóðum í efsta sæti. Þar eru nú komnir nærri 300 laxar á land og hafa verið^ líflegar göngur að undanförnu. Á miðvikudags- morgun mátti lesa af teljara í Lax- fossi að 1140 laxar hefðu skráðst þar og í teljara í Glanna 480 lax- ar. Kunnugir segja að við þau vatnsskilyrði sem verið hafa allan júní gangi lax hiklaust upp fossana tvo og noti ekki endilega stigana og þar með teljarana. Því geti allt eins verið að mun fleiri fiskar hafi farið á efri svæðin en teljarar segi til um. Að nefna tölur væru aldrei annað en getgátur. ÞÓ mörgum ferðamönnum finnist snyrtilegt í Stykkishólmi vita bæj- arbúar að það má gera betur. Um daginn stóðu Lionsklúbbur Stykk- ishólms og Rotarýklúbbur Stykkis- hólms fyrir hreinsunarátaki í bæn- um. Eftir veturinn hafði safnast ýmislegt lauslegt drasl víða og Lánshæfiseinkunnir snérust við í frétt á viðskiptasíðu í gær snérust við lánshæfiseinkunnir sem Moody’s veitir langtímaskuld- bindingum ríkissjóðs. Þar kom fram að einkunn ríkissjóðs hefði hækkað úr A1 í A2, en hið rétta er að hún hækkar úr A2 í Al. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Rangt nafn eiginkonu í Árnað heilla í gær var farið rangt með nafn eiginkonu Ágústar Vals vildu klúbbarnir efla samkennd bæjarbúa fyrir snyrtilegu um- hverfi og hreinum bæ. Bænum var skipt í 5 hverfi og var bæjarbúum ætlað að tina rusl innan síns svæð- is. Góð þátttaka var hjá bæjarbú- um í verkefninu og tóku hátt í 100 manns þátt í að snyrta bæinn og afraksturinn var allmikill. Guðmundssonar sem varð 70 ára í gær. Var eiginkona hans nefnd Svana Berg en hið rétta er að hún heitir Svava Berg. Eru hlutaðeig- andi beðnir velvirðingar. Gjaldþrep tryggingagjalds I frétt í blaðinu í gær komu ekki fram réttar upplýsingar um núverandi gjaldþrep trygginga- gjalds. Hið rétta er að eftir laga- breytingu sl. vetur er lægra þrepið 3,63% og hærra gjaldþrepið 6,93%. Beðist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir DRÍFA Hjartardóttir, (f.v.) formaður sljórnar Dvalarheimilis- ins Lundar, tekur hér við gjöf til framkvæmda við sólpallinn úr hendi Raguheiðar Skúladóttur, formanns Minningarsjóðs Ólafs Björnssonar. Með þeim á myndinni eru aðrar stjórnar- konur minningarsjóðsins, f.v. Sigríður Th. Sæmundsdóttir, Guðríður Bjarnadóttir, Margrét Bjarnadóttir, Sigrún Þor- steinsdóttir og Hólmfríður Hjartardóttir. Dvalarheimilið Lundur á Hellu Fékk sólpall að gjöf Orkuhlaup í Elliðaárdal HALDIÐ verður Orkuhlaup Raf- magnsveitunnar í dag, fimmtudag- inn 27. júní, og hefst það kl. 19. Orkuhlaupið er víðavangshlaup sem haldið er í samstarfi við íþrótt- ir fyrir alla. Verða hlaupnar tvær vegalengdir, 10 km fyrir þá sem eyða vilja meiri orku, en 3 km fyrir hina. Þátttaka í hlaupinu er öllum heimil. Lagt verður af stað við gömlu rafstöðina en skráning í hlaupið fer þar fram og hefst kl. 17 en hitað verður upp við rafstöðina með tón- list frá kl. 18.30. Allir þátttakendur í hlaupinu fá viðurkenningu, bol og verðlauna- pening. Djassað á Egilsstöðum JASSARINN Árni ísleifs stendur fyrir Jasshátíð Egilsstaða í Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum í 9. sinn nú í sumar. Dagskráin verður fjöl- breytt að vanda og verður hátíðin sett í dag með því að Djasssmiðja Austurlands kemur fram undir stjórn Einars Braga Bragasonar ásamt söngkonunni Aðalheiði Borg- þórsdóttur. Dagskrá hátíðarinnar stendur til 30. júní og aðrir sem fram koma eru Vinir Dóra og Andrea Gylfa- dóttir, Guðgeir Björnsson, Kvartett Eyþórs Gunnarssonar og Ellen Kristjánsdóttir, Arnís Latinband, Unglingalúðrasveit, Dixielandband og Léttsveit. Á kosningadaginn 29. júní verður jamsession og kosninga- sjónvarp í liliðarsal. Hellu - Fyrir stuttu var tekinn myndarlegur sólpallur í notk- un við Dvalarheimilið Lund á Hellu, en það var Minningar- sjóður Ólafs Björnssonar, fyrr- um héraðslæknis á Hellu, sem færði dvalarheimilinu þrjú- hundruðþúsund krónur til verkefnisins. Að sögn Jóhönnu Friðriks- dóttur hefur félagsstarf blómstrað meðal heimilis- manna og starfsfólks á Lundi. Velheppnað heimboð til skyld- menna og vina heimilisfólks sem nýlega var haldið i fyrsta sinn, tókst frábærlega en gest- ir voru um 130 en heimilis- menn eru 34. Starfsfólkið bak- aði tertur heima í sínum frí- mtima en fyrirhugað er að í næsta heimboði komi aðstand- endur með kökur með kaffinu. Þá vildi Jóhanna geta þess að starfsfólk dvalarheimilisins hafi tekið sig til og fært heimil- inu baðstól og bætt þar með úr brýnni þörf. Námskeið fyrir sumar- bústaða- eigendur BJÖRGUNARSKÓLI Lands- bjargar og Slysavarnafélags ís- lands efndi um síðustu helgi í samvinnu við Björgunarsveitina Brák í Borgarnesi til námskeiðs fyrir sumarbústaðaeigendur í Skorradal í Borgarfirði. Markmiðið með námskeiðinu var að kenna sumarbústaðaeig- endum að bregðast rétt við ef slys ber að höndum eða þeir þurfa af einhverjum ástæðum að leita aðstoðar björgunaraðila. Á námskeiðinu, sem byggðist á fyrirléstri og verklegum æfing- um, var fjallað um ýmis atriði sem tengjast öryggi sumarbú- staðaeigenda s.s. endurlífgun, meðferð og flutning slasaðra, notkun og meðferð sjúkrakassa og hvernig á að leita eftir aðstoð björgunaraðila ef þörf krefur. SIGURJÓN Elíasson, yfir- kennari Björgunarskólans, kenndi áhugasömum sumar- bústaðaeigendum réttu handtökin í endurlífgun. Alls tóku 25 sumarbústaða- eigendur í Skorradal þátt í nám- skeiðinu. Fræðslufundur um Alviðru UMHVERFISFRÆÐSLU SETRIÐ á Alviðru í Ölfusi efnir til fræðslu- fundar föstudaginn 28. júní kl. 20. Sigurbjörg Sæmundsdóttir, deild- arstjóri í hollustuhátta- og mengun- arvarnadeild umhverfísráðuneytis- ins, fjallar um sorp og endurvinnslu með áherslu á hvað fólk getur sjálft gert í þeim efnum. ■ HIN árlega ferð aldraðra á Vestfjörðum á vegum Rauða kross íslands verður farin dagana 20.-26. ágúst nk. Dvalið verður á Hótel Eddu, Þelamörk. Ferðast verður um Norðurland þessa daga og eins og alltaf fenginn heima- maður sem leiðsögumaður í allar ferðir. Sigrún Gísladótti á Flat- eyri og Helga Jónasdóttir, Tálknafirði, taka á móti pöntun- um í ferðina daglega milli kl. 19 og 20.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.