Morgunblaðið - 27.06.1996, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 27.06.1996, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Gallery Vermillion í London í eigu Helgu Láru Haraldsdóttur listakonu Lítið „Unu- hús“ í London GALLERY Vermillion, í eigu Helgu Láru Har- aldsdóttur listakonu, hefur nú verið rekið í hálft annað ár. Á þeim tíma hefur tylft ís- lenskra listamanna sýnt verk sín, en að sögn Helgu Láru er aðaláherslan lögð á að kynna íslenska nútí- malist í London. Helga Lára hefur verið búsett í Bretlandi síðasta ára- tuginn við nám og störf og þekkir því listaheiminn vel þar ytra. Nú er nýlokið sýningu Ingu Hlöðversdóttur í Gallery Vermilli- on en hún tilheyrir þeim hópi lista- manna sem á innangengt í „Unu- húsi“ sem Helga Lára nefnir gall- eríið sitt í gríni. „Þetta er eina íslenska galleríið á þessum slóðum og mitt starf felst aðallega í því að koma á framfæri íslenskum listamönnum og afurðum þeirra. Þetta er að hluta til aðsetur ís- lenskra listamanna og hingað koma þeir með verk sín. Og fá gistingu og pönnukökur ef með þarf. Breskir listamenn hafa einn- ig sýnt áhuga á að koma sínum verkum að, en ég raða þeim aftar á forgangslistann í Gallery Ver- million." Meðal sýninga í galleríi Helgu Láru má nefna „Átta ís- lenskar konur í London" í fyrra, en á þeirri sýningu voru sýnd verk sjö íslenskra listakvenna auk Helgu Láru sjálfrar. „Þarna voru konur á ólíkum aldri, með ólíkan bakgrunn í listsköpun sinni og það tókust góð 'kynni með okkur. Áhuginn fyrir nútímalistinni tengdi okkur saman framar öðru,“ segir Helga Lára. Sjálfstæður rekstur Það er ekkert áhlaupaverk að opna íslenskt gallerí í London, en Helga Lára býr að geysi- mikilvægri reynslu og þekkingu sem nauð- synleg er þeim sem hyggst koma sér áfram á þessu sviði. „Það er tímafrekt að safna viðskiptavinum og -samböndum en á þeim tíma sem ég starfaði að kynningu á breskri list á vegum British Council kom ég mér upp samböndum sem hafa nýst mér. Þrátt fyrir það er áhættan nokkur og fram að þessu hefur galleríið borið sig án utanaðkomandi styrkja en nú er svo komið að mig vantar fjármagn til að flytja gall- eríið á betri stað þar sem vaxtar- möguleikarnir eru betri,“ segir Helga Lára. Helga Lára hefur sótt í tvígang um styrk til ís- lenskra yfirvalda en fengið neitun í bæði skiptin. En hveiju ber að launa galleríi sem státar af sjálf- stæði en vill svo fá styrk þegar allt fer í gjaldþrot? Er ekki um að ræða misbrest í rekstri sem ríkið á að borga? Helga Lára svar- ar því til að hún myndi vel una því að fá ekki styrki svo framar- lega sem gott aðgengi væri að rökstuðningi yfirvalda fyrir styrk- synjunum og -veitingum til handa íslenskum listamönnum erlendis. I annan stað hefur galleríið fengið það góðar undirtektir af hálfu ís- lenskra listamanna og breskra fjölmiðla að full ástæða er til að hyggja á hærri brautir. Menntamálaráðuneytið hefur Helga Lára Haraldsdóttir. HELGA Lára í galleríi sínu við Tooting Road í London. stungið upp á því við Helgu Láru að hún starfaði í Skandinavíu eða Þýskalandi þar sem akurinn er betur plægður en hún lítur svo á að hún sé að plægja akurinn í London og áhuginn þar er nægi- lega mikill að það er vel þess virði að styrkja þá sem allar forsendur hafa til að koma íslenskri nútíma- list á framfæri. „Sýningar í gallerí- inu mínu hafa fengið góða umfjöll- un í mikilvægum blöðum eins og Time out en það fer feiknalegur tími í kynningarstarfið og nú leita ég stuðnings hér heima til að halda áfram kynningu á íslenskri nú- tímalist í London,“ segir Helga Lára að lokum. Sýningu Rögnu að ljúka SÝNINGU Rögnu Róbertsdótt- ur í Ingólfsstræti 8 lýkur nú á sunnudag. Verkin á sýningunni eru unn- in úr vikri og rauðamöl, sóttum að rótum Heklu og út á Reykja- nesskaga. Þau eru sérstaklega unnin í rými Ingólfsstrætis 8 og að aflokinni sýningu verða þau skafin af veggjunum og verða eftir það aðeins til á ljós- myndum og í hugum þeirra sem þau sáu. Arni Rúnar í Galleríi Horninu ÁRNI Rúnar Sverrisson opnar sýningu á nýjum olíuvekum í Galleríi Horninu í Hafnarstræti 15 laugardaginn 29. júní kl. 17 og ber sýningin yfirskriftina Eyja hugans. Árni Rúnar lauk sveinsprófi í húsasmíði 1977 og stundaði eftir það nám við Myndlista- og handíðaskóla Islands. Hann hefur haldið þijár einkasýning- ar og tekið þátt í samsýningu. Sýning Árna Rúnars Sverris- sonar stendur til 17. júlí. Lágmyndir unnar í steypu ÍRIS Elfa Friðriksdóttir opnar sýningu í Galleríi Sævars Karls, föstudaginn 28. júní. Sýningin samanstendur af lágmyndum unnum í steypu. íris stundaði nám við Mynd- lista- og handíðaskóla íslands frá 1980-1984 en hóf þá nám í Jan Van Eyck Akademie í Maastricht til ársins 1986. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og er þetta fimmta einkasýning hennar. Hundruð kvikmyndahátíða á þessu ári Enginn hátíðarbragur, heldur hátíðarslagur SAMKEPPNI á meðal kvikmynda- hátíða víða um heim er orðin svo mikil að ýmsum þykir nóg um. Um 400 hátíðir verða settar á árinu, en svo virðist sem borgir og bæir telji það vísa leið inn á menningar- kort heimsins að hafa kvikmynda- hátíð. Flestar hátíðirnar hafa náð að festa sig í sessi, sérstaklega þær sem bjóða eingöngu upp á afmark- aða efnisflokka eins og barnamynd- ir, hryllingsmyndir, stuttmyndir o.s.frv. Kvikmyndahátíðir þar sem sýnd- ar eru myndir almenns efnis þurfa samt töluvert fyrir því að hafa að ná athygli íjölmiðla og slagurinn er mikill, því hátíðir almenns efnis eru á annað hundrað talsins í heim- inum. í sérflokki eru þó kvikmynda- hátíðarnar í Cannes, Berlín og Fen- eyjum, en þær bera höfuð og herð- ar yfir allar aðrar hátíðir í heimin- um, hvort sem um ræðir bam- myndahátíð eða almenna kvik- myndahátíð. Þessar þijár frægustu hátíðir vinna myndunum, sem taka þátt, mikið brautargengi og á veg- um hverrar hátíðar fyrir sig er starfræktur viðskiptamarkaður fyr- ir sýningar- og höfundarrétt. A undanförnum árum hafa kvik- myndahátíðirnar í Cannes og Beriín reitt sig mikið á framleiðslu frá Hollywood en því fylgir mikill ávinningur ef það tekst að laða að sem flestar stjörnur úr kvikmynda- heiminum. Reyndar er svo komið að sumar kvikmyndir eru fram- leiddar sérstaklega með „hátíðar- markaðssetningu" í huga. Myndir Kieslowskis, Blár, Hvítur og Rauð- ur, eru dæmi um þetta en einnig má nefna myndir Bertolucci og Lars von Trier sem hverra útgáfa miðast við setningu hátíðarinnar í Cannes í maí. Þó að mikil samkeppni sé á milli A-hátíðanna þriggja um að fá til sín myndir eftirlætisframleiðend- anna stendur Feneyjarhátíðin nokk- uð utan við slag Berlínarhátíðarinn- ar og Canneshátíðarinnar. í því til- liti skiptir tímasetningin máli, þar sem aðeins tveir og hálfur mánuður líður á milii Cannes í maí og Berlín- ar í febrúar en Feneyjarhátíðin fer fram í september ár hvert. Slagurinn getur verið með ýmsu móti. Canneshátíðin neitar t.d. að taka við mynd sem sýnd hefur verið á samkeppnishátíð á þeim forsend- um að myndin muni ekki vekja eins mikla eftirvæntingu og ný mynd. En slík einstrengingsleg samkeppn- isstefna getur haft óheppilegar af- leiðingar í för með sér. Gott dæmi er The Crying Game sem Canneshá- tíðin varpaði frá sér af þeim sökum. Myndin hlaut svo sex Óskarst.ilnefn- ingar og máttu þá Cannesmenn naga sig í handarbökin. En hvað kostar að keppa í kvik- myndum? Gera má ráð fyrir að kostnaður við eina mynd á Á-hátíð- irnar geti farið upp í 10 milljónir. I þeirri upphæð felst öll hugsanleg kynning auk uppihalds og launa fjölmiðlafulltrúa og þeirra sem fylgja myndinni alla leið. Og enn sem komið er hafa raddir ekki heyrst, sem efast um gildi slíkrar fjárfestingar. Styrkur A-hátíðanna getur líka lamað aðrar kvikmyndahátíðir eins og eftirfarandi dæmi sýnir. Á al- þjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tókýó í október fékk enginn leikari verðlaun fyrir bestan leik vegna þess að keppendur fullnægðu ekki lágmarkskröfum dómnefndar. Ástæðuna kvað einn aðstandenda vera þá að ekki væri nógu langt um liðið frá Feneyjarhátiðinni. „Við virðumst einfaldlega sitja uppi með afgangana," sagði einn af aðstand- endum hátíðarinnar. Byggt ú Eonomist. ÓLAFUR Árni Bjarnason. Morgunblaðið/Kristinn Olafi Arna hrósað fyrir söng í „La Traviata“ ÓLAFUR Árni Bjarnason óperu- söngvari fær lofsamlega umfjöllun fyrir söng sinn í uppfærslu óper- unnar í Stamford í Connecticut á „La Traviata" eftir Giuseppi Verdi og er sagður meiri fengur að hon- um en ýmsum stórsöngvurum, sem rekið hefði á fjörur Bandaríkja- manna og meira hefði verið látið með. Sýning Connecticut Grand Op- era & Orchestra á „La Traviata“ má teljast söguleg að því ieyti að þar var fyrsta sinni verið að flytja upprunalegu útgáfu Verdis að óperunni, sem skrifuð var 1853. Jerome R. Sehulster, gagnrýn- andi blaðsins The Advocate, gefur uppfærslunni í heild góða dóma og hæiir ekki síst Ólafi i hlutverki Alfredos. Hann skrifar að söngur Ólafs hafi verið áhrifamikill þegar hann heyrði hann fyrst halda tónleika á sama stað, í Hallarleikhúsinu í Stamford, í janúar árið 1995 og bætir við: „Olafur staðfesti það sem kom fram [þegar ég sá hann] í fyrsta skipti: Þetta var ein besta alhliða frammistaða tenórs, sem ég hef heyrt í Höllinni um langt skeið.“ Gagnrýnandinn heldur áfram og sparar ekki hrósyrðin: „Rödd hans hefur indælan og hlýj- an bjarma og tækni hans er traust- ari en hjá mörgum þeim sem koma hingað til lands og sýnu meira er látið með í fjölmiðlum. Ólafur er myndarlegur og býður af sér Ijós- an þokka; yfirlýsing Alfredos á ást sinni til Violettu var eins ein- læg og hægt er að fara fram á.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.