Morgunblaðið - 27.06.1996, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.06.1996, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Karadzic berst við að halda völdum Setur skilyrði fyrir afsögn e. Reuter. „FORSETI" Bosníu-Serba, Radovan Karadzic, berst nú við að halda völd- um og setti í gær skilyrði fyrir af- sögn sinni sem útilokað er talið að gengið verði að. Serbneska frétta- stofan VIP sagði að Karadzie hefði sagst myndu láta af völdum ef lýð- veldi Bosníu-Serba yrði viðurkennt á alþjóðavettvangi og að Bosníu-Ser- bar fengju yfirráð yfir borginni Brcko, sem er í norðurhluta Bosníu og hart hefur verið deilt um. Þing Bosníu-Serba í Pale hefur ekki staðfest fréttir um þetta tilboð Karadzic. Þá lýsti Carl Bildt, sem stjórnar alþjóðlegu uppbyggingar- starfi í Bosníu, því yfir í gær að hann hefði engan áhuga á að ræða við Karadzic um kröfur fyrir afsögn þess síðarnefnda. „Eina skilyrðið af okkar hálfu er að [Serbar] hlíti þeim skilyrðum sem sett eru í friðarsam- komulaginu," sagði Bildt. „Eini forseti Bosníu-Serba“ Slobodan Milose.vic, forseti Serb- íu, krafðist þess á þriðjudag að Karadzic viki þegar í stað, vegna hótana um að ella tækju viðskipta- þvinganir Sameinuðu þjóðanna gagnvart Serbíu gildi að nýju. Á meðal þess sem Serbar hóta Bosníu- Serbum, er að loka landamærum Serbíu fyrir Bosníu-Serbum og taka fyrir öll viðskipti og aðstoð. Átakafundur var haldinn á þingi Bosníu-Serba vegna málsins. Fullyrt er að þar hafi einn þingfulltrúa beð- ið Karadzic um að segja ekki af sér, þar sem hann væri eini forseti Bosníu-Serba. Brcko stendur við ána Sava og tengir austur- og vestursvæði Bos- níu-Serba. Telja þeir öryggi sínu ógnað svo lengi sem hann sé ekki á valdi þeirra. Fyrir stríðið í Bosníu voru flestir íbúanna múslimar og Króatar en samkvæmt Dayton-frið- arsamkomulaginu um skiptingu Bosníu, á að úrskurða um örlög bæjarins með gerðardómi. Krafa Karadzic um viðurkenningu á lýðveldi Bosníu-Serba þótti óljóst orðuð en útilokað er talið að gengið verði að henni, feli hún í sér að lýð- veidið verði fullvalda. Christopher í Mið-Austurlöndum „Land fyrir frið“ aðeins viðmiðun Kaíró. Reuter. WARREN Christopher, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær, að líta beri á það grundvallar- atriði friðai-viðræðna í Mið-Austur- löndum að ísraelar láti af hendi land fyrir frið, sem viðmiðunarreglu sem ef til vill þurfi að breyta. Christopher er nú á ferð um Mið- Austurlönd og átti í gær fund með Hosni Mubarak, Egyftalandsforseta, í Kaíró, og Yasser Arafat, forseta sjálfstjórnarsvæða Palestínumanna. Christopher kvaðst að fundunum loknum hafa ráðlagt fulltrúum araba í viðræðum við stjóm nýkjörins for- sætisráðherra ísraeis, Benjamins Netanyahus, að túlka þetta grund- vallaratriði „í ljósi þess hvernig málum er í raun og veru háttað." Markmið ferðar Christophers er að leita sameiginlegs_ grundvallar fyrir arabalöndin og ísraela, eftir að Netanyahu lét í ljósi efasemdir um gildi þess að láta af hendi land í skiptum fyrir frið, sem hefur verið grandvöllur friðarviðræðna fyrir botni Miðjarðarhafs undanfarin fimm ár. Flestir arabaleiðtogar eru_ fylgj- andi því að viðræðum við ísraela verði fram haldið, en sætta sig ekki við að fyrrnefndum grundvelli verði varpað fyrir róða. ERLENT Reuter RÚSTIR fjölbýlishússins í bækistöð Bandaríkjahers í austurhluta Saudi-Arabíu eftir sprengjutilræðið. Ellefu metra djúp- ur gígnr myndaðist Dubai, Kaíró, Washington. Reuter. SPRENGJAN sem sprakk við fjöl- býlishús í bækistöð Bandaríkjahers í borginni Khobar í austurhluta Saudi-Arabíu í fyrrinótt lagði fram- hiið hússins, og öll herbergi sem lágu að henni, í rúst. Bandarískir embættismenn segja að 23 hafi látist í sprengingunni og 105 séu alvarlega slasaðir, og Saudi- Arabar segja að alls hafi 389 manns slasast. Bill Clinton, forseti Banda- ríkjanna, hyggst halda til Saudi- Arabíu og heimsækja hina slösuðu. Björgunarfólk hófst þegar handa, sumt berhent, við að grafa í rústun- um, þar sem rifnar rúmdýnur, brotin sjónvarpstæki og húsgögn voru inn- an um steinsteypubrot. Gluggapóst- ar lágu á víð og dreif um nágrenn- ið, og I sýndi saudi-arabíska sjón- varpið nálægar byggingar sem höfðu laskast við sprenginguna. Nokkrir bílar í grenndinni brannu og aðrir beygluðust. Ellefu metra djúpur og 28 metra víður gígur myndaðist við húsið þar sem sprengjan sprakk. Þetta er í annað sinn á einu ári sem hermdar- verkum er beint gegn bandarískum hermönnum í Saudi-Arabíu. Nieolas Burns, talsmaður banda- ríska utanríksiráðuneytisins, tjáði fréttamönnum í Kaíró að ekki væri vitað til þess að nein samtök eða hópur hefði 'lýst sig ábyrgan fyrir tilræðinu. Bandarískar sjúkraflugvélar flugu frá Þýskalandi, þar sem gerðar voru neyðarráðstafanir á stærsta her- sjúkrahúsi Bandaríkjamanna, til að sækja slasaða í gær. Clinton átti í gær fundi með nán- ustu ráðgjöfum sínum í Hvíta húsinu þar sem „rætt var alvarlega" um að forsetinn færi til Saudi-Arabíu, að sögn embættismanna. Hefði for- setinn áhuga á að heimsækja banda- rísku hermennina eftir að forsetinn hefur setið leiðtogafund helstu iðn- ríkja heims, sem haldinn er í Lyon í Frakklandi í dag og á morgun. Fahd, konungur Saudi-Arabíu, vottaði Clinton samúð sína í gær. Hafa yfirvöld í'báðum ríkjum heitið því að þeim, sem bera ábyrgð á sprengjutilræðinu, verði refsað. Tilræðið var fordæmt um ailan heim í gær. John Major, forsætisráð- herra Bretlands, sagði það hafa ver- ið „hreinræktað illskuverk." Bob Dole gagnrýnir ákaft utanríkisstefnu Clintons Sakar Rússa um undir- róður í grannríkjum Inltin Philadelphia. Reuter. BOB Dole, væntanlegt forsetaefni repúblikana í Bandaríkjunum, sakar Biil Clinton forseta um „óákveðni, vingulshátt og veiklyndi" í samskipt- um við Evrópuþjóðimar og telur að hagsmunir Bandaríkjanna og heims- friðurinn geti verið í hættu vegna þessa. Dole sagði I ræðu á þriðjudag að hann vonaði að Borís Jeltsín Rúss- landsforseti sigraði í síðari umferð forsetakosninganna en réðst harka- lega á stefnu Rússa gagnvart fyrr- verandi sovétlýðveldum. A1 Gore varaforseti sagði í gær að Dole virtist „sjá eftir kalda stríð- inu“ en taldi Dole öðru leyti vera í stóram dráttum sammála stefnu Clintons í deilum um stækkun NATO og gagnvart Rússlandi. Dole, er sjálfur samþykkti í þing- mannstíð sinni með semingi að bandarískir hermenn færa til Bosníu, sagði að Clinton hefði nú enga hug- mynd um það hvemig fara ætti að því að kalla herinn heim á ný eða hvernig leysa bæri þann vanda sem friðargæsluliðið átti að kijást við. Forsetinn hefði stöðugt látið und- an bandamönnunum I Evrópu og Rússum og látið bandaríska hags- muni víkja fyrir meira eða minna vafasamri eða haldlítilli samstöðu. „Þetta er ekki forysta og þetta hefur skaðað hagsmuni okkar allra - jafnt Rússa, Evrópumanna sem Banda- ríkjamanna". Frambjóðandinn hvatti til þess að NATO yrði stækkað og sagðist vera ar.dvígur hvers konar neitunarvaldi af hálfu Rússa í þeim efnum. Segja bæri Rússum að NATO væri vamar- bandalag sem ætti ekkert skylt við þá mynd sem dregin hefði verið upp af því í áróðri kommúnista á sovét- skeiðinu, sú mynd væri jafn röng nú. Dole sakaði Rússa um að stunda „herferð undirróðurs, ógnana og efnahagslegra þvingana gegn öðram sjálfstæðum ríkjum Sovétríkjanna sem voru“. „Óheppileg rómantík“ Dole sagði að „óheppileg róman- tík“ í viðhorfum Clintons til Rúss- lands hefði valdið því að forsetinn hefði reynt að grípa inn í og stjórna í smáatriðum valdataflinu í rúss- neskum innanlandsmálum í staðinn fyrir að bregðast við vaxandi þjóð- ernisstefnu í utanríkisstefnu Rússa. Frambjóðandinn hét því að vinna að því að treysta nýfengið sjálfstæði gömlu sovétlýðveldanna ef hann yrði forseti. Dole og Clinton ræddu í vikunni við forseta Eystrasaltsríkj- ana þriggja í Washington og lýsti Dole eindregnum stuðningi við óskir Eystrasaltsþjóðanna um að fá aðild að NATO. „Járntjaldinu hefur verið lyft en tómarúm í öryggismálum er eftir í Evrópu - frá ströndum hins lýðræð- islega Pólands til stranda hinnar frjálsu Slóveníu," sagði Dole. Minnti orðalagið mjög á fræga ræðu er Winston Churchill, forsætisráðherra Bretlands á stríðsárunum, flutti í Bandaríkjunum árið 1946 er hann hvatti til þess að útþensla Sovét- manna í Evrópu yrði stöðvuð. Sextán manns slösuðust í hraðlest SEXTÁN manns slösuðust er hraðlest fór út af sporinu í Gero í Japan í gær. Urhellisrigning er talin hafa átt sinn þátt í slysinu því grjót hafði hrunið á teinana. Voru 150 farþegar með hraðlest- inni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.