Morgunblaðið - 27.06.1996, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Silli
KÓR bæjarstjórnar kynnti fjárhagsáætlun með glaðlegum söng.
Fjárhagsáætlun
Húsavíkur sungin
Húsavík - Líf og fjör var á Jóns-
messuhátíð Húsvíkinga sem að
stóðu Húsavíkurbær, Völsung-
ur, skátar og Heilsuefling á
Húsavík en allir heilsubæirnir
fjórir; Húsavík, Hafnarfjörður,
Hveragerði og Hornafjörður,
minntu sérstaklega á starfsemi
sína nú um Jónsmessuna.
Á Húsavík stóð hátíðin frá
hádegi og fram yfir miðnætti
og var þar mikið líf og fjör um
allan bæinn og þátttakendur á
öllum aldri frá ársgömlu til
áttræðs sov þar sást ekkert
kynslóðabil.
Hátíðin hófst með ávarp bæj-
arsljóra, Einars Njálssonar, og
söng kórs bæjarstjórnar sem
kynnti bæjarbúum m.a. yfir-
standandi fjárhagsáætlun með
glaðlegum söng. Síðan ráku
skemmtiatriðin hvert annað s.s.
leitin að falda fjársjóðnum,
mærukappát, fjöltefli, rjóma-
bollukast, kassabílarall og Ioft-
mesti þingeyingurinn sannaði
sig. Það reyndist vera Þórhallur
Ásgrímsson, Aðaldælingur, en
hingað til hefur nú ekki verið
talið minnst loftið í Mývetning-
um. Þá á kvöldið leið var dvalið
við varðeld hjá skátunum sem
skemmtu með söng.
í sambandi við hátíðina var
svonefndur Mærumarkaður þar
sem hægt var að kaupa notað
og nýtt, gamalt og gott, íslenskt
handverk og innfluttar vörur.
Hátíðinni lauk með fjöl-
mennri miðnæturgöngu sem
heilsueflingin stóð fyrir á
Húsavíkurfjall því ekki þótti
ástæðulaust að hreyfa sig
nokkuð og eyða einhverju af
þeim hitaeiningum sem menn
höfðu innbirgt með mæru yfir
daginn. Veður var milt og gott
þó sólin léti lítið sjá sig og sól-
setrið sást ekki sem Húsvíking-
ur finnst hvergi fallegra en af
Húsavíkurfjalli.
140 ár frá fæðingu Hans Ellefsen
Frumkvöðuls í hvalveiðum
minnst á Flateyri
Flateyri - Ellefsenshátíðin var
haldin nýlega í tilefni af 140 ára
fæðingarafmæli Hans Ellefsens,
sem var einn af frumkvöðlum hval-
veiða á Flateyri. Seinni hluti dag-
skrárinnar var haldinn á Flateyri
mánudaginn 11. júní sl, en fyrri
hluti hennar í Ráðhúsi Reykjavíkur
kvöldið áður.
Til landsins komu gestir frá Nor-
egi, Per Eivind Johansen, bæjar-
stjóri í Stokke, Bjarne Sætre, menn-
ingarfulltrúi i Stokke, Hans Ellef-
sen, sonarsonur Hans Ellefsens á
Sólbakka, og synir hans Petter Ell-
efsen og Morten Ellefsen ásamt
fleirum.
Norsku gestunum var m.a. boðið
í siglingu um Önundarfjörð. Að sigl-
ingu lokinni buðu Sigrún Gerða
Gísladóttir og Einar Oddur Krist-
jánsson alþingismaður að Sólbakka
norsku gestunum í hádegismat.
Rústir hvalstöðvarinnar voru
skoðaðar og síðan var farin skoðun-
arferð um svæðið og komið við í
Holti og víðar. Um kvöldið var hald-
in hátíðarsamkoma í mötuneyti
Kambs. Þar var boðið upp á þann
hluta dagskrárinnar sem hafði verið
fluttur í Ráðhúsi Reykjavíkur deg-
inum áður. Flutt voru fjölmörg
ávörp bæði innlendra sem erlendra
gesta. Að því loknu lék Lára S.
Rafnsdóttir einleik á píanó.
Norska þjóðlagasöngkonan Elfi
Sverdrup söng norsk þjóðlög. I lok-
in söng Unnur Astrid Wilhelmsen
einsöng við undirleik Láru.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Á MYNDINNI eru f.v. Olaf Myklebust, sendirráðsritari norska sendiráðsins, Per Eivind Johansen,
Elfi Sverdrup, Einar Oddur Krisljánsson, Petter Ellefsen og Morten Ellefsen. Fyrir framan krýpur
Hans Ellefsen.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
EIRÍKUR Ólafsson, mótsstjóri, Jón Kr. Beck, formaður sundráðs UIA, og Jónas Þór Jóhannsson,
framkvæmdastjóri UÍA, fyrir framan sundlaug Egilsstaða.
Fjölmennt sundmót á Egilsstöðum
Egilsstöðum - Aldursmeistara-
mót íslands í sundi verður hald-
ið í sundlauginni á Egilsstöðum
nú um helgina. Þetta mun vera
fjölmennasta sundmót sem hald-
ið hefur verið á Islandi en börn
og unglingar á aldrinum 9-17
ára taka þátt í mótinu.
Keppendur eru tæplega 400 og
koma þeir frá 20 félögum og
héraðssamböndum.
Alls eru um 1900 skráningar í
mótinu og starfsmenn mótsins eru
um 100. Búið er að fá gistingu í
grunnskólanum, menntaskólanum
og félagsmiðstöðinni á Egilsstöð-
um. Gert er ráð fyrir að um 600
manns verði á Egilsstöðum á veg-
um mótsins, þ.e. bæði keppendur
og fylgdarmenn. Sérstakt mötu-
neyti verður rekið í menntaskólan-
um fyrir mótsgesti.
Mótið hefst á föstudagsmorgni
og lýkur á sunnudagskvöldi með
verðlaunaafhendingu og dansleik í
Hótel Valaskjálf.
Mótsstjóri er Eiríkur Ólafsson
frá Fáskrúðsfírði og segir hann
þátttakendur vera úrval ungs
sundf'ólks á íslandi. Mótið sé ekki
einungis keppnismót heldur er lagt
upp úr því í yngstu flokkunum að
þátttakendur syndi fallega og hafi
góða tækni. Eiríkur vill þakka fyr-
irtækjum og stofnunum veittan
stuðning við mótshaldið en allar
styrkbeiðnir hafa fengið jákvæðar
undirtektir.
í mótsstjórn sitja auk Eiríks, Jón
Kr. Beck, formaður sundráðs UÍA
og Jónas Þór Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri UIA.
Minnivarði um
stofnanda fyrsta
skíðaskóla heims
Húsavík - „Minnisvarði Nikulásar
A.P. Buch fæddur 1755 - dáinn
1805. Hann stofnaði fyrsta skíða-
skóla í heimi á Húsavík 1777“ er
áletrun á minnisvarða sem formað-
ur Skíðasambands Íslands, Bene-
dikt Geirsson, afhjúpaði við íþrótta-
höllina á Húsavík nú um Jónsmess-
una. Minnisvarðann létu ættmenni
Buchs reisa með stuðningi frá
Skíðasambandi íslands.
Nikulás Buch var kaupmanns-
sonur, fæddur í Hammerfest í Nor-
egi, en kom til íslands 22 ára gam-
all og að talið er fylgdarmaður
hreindýra, sem faðir hans gaf ís-
lendingum. Þetta voru 30 dýr sem
valin voru úr stofni hans frá eyj-
unni Sörey sem Buch átti skammt
frá landi Hammerfest. Þau voru
talin laus við sjúkdóma þá er heij-
uðu á meginlandinu. Þessi hreindýr
munu vera einn fyrsti hreindýra-
stofninn sem hér tórði.
Buch gerðist verslunarþjónnn á
Húsavík og hóf skipulagða kennslu
á skíðum fyrsta veturinn sem hann
var þar og er það talinn fyrsti skíða-
skólinn í heiminum. Hann flutti inn
skíði frá heimabyggð sinni, Finn-
mörk, og smíðaði einnig skíði úr
rekaviði og kenndi þá smíði. Hann
var í náðinni hjá stjórnvöldum
vegna þessara skíðamála og fékk
verðlaun frá kóngi vegna þeirra.
Nikulás varð síðar forstöðumað-
ur Brennisteinsverslunarinnar á
Húsavík til ársins 1791 að hann
gerðist bóndi. Hann eignaðist 11
Morgunblaðið/Silli
MINNISVARÐINN sem reist-
ur var í minningu Nikulásar
A.P. Buchs.
börn með konu sinni, Karenu
Björnsdóttur, og hófu þau búskap
á Máná og síðar Hallbjarnarstöðum
á Tjörnesi, á Mýrarseli og Laxa-
mýri. Síðustu árin sem hann lifði
bjó hann með þremur börnum sínum
á Bakka í Tjörnesi þar sem hann
andaðist 19. júní 1805, aðeins 51
árs að aldri.