Morgunblaðið - 27.06.1996, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUÐAGUR 27. JÚNÍ 1996 27
FERÐALÖG
ÚRVERIIMU
Gönguleiðir á Islandi
Vestfírðir - Frá Rauða-
sandi til ísafjarðardjúps
Ónýttum síldveiðiheim-
ildum endurúthlutað
Morgunblaðið/Þorsteirin Kristjánsson
SJÖTTA bókin í ritröðinni
Gönguleiðir á íslandi eftir Einar
Þ. Guðjohnsen, sem lést á síðasta
ári, er komin út á íslensku, ensku
og þýsku. Einar skildi eftir sig
bók í handriti, sem fjallar um
svæðið frá Rauðasandi til ísa-
fjarðardjúps. Synir Einars, Björn
og Sigurður, standa að útgáf-
unni, en Sigurður starfaði mikið
með föður sínum við vinnslu bók-
anna.
Einar var Ieiðsögumaður hjá
Vestfjarðaleið, en í inngangi bók-
arinnar sagðist hann byggja
mjög á þeirri reynslu og viðtölum
við fjölda fólks.
í formála að erlendu útgáfunni
segir Halldór Blöndal samgöngu-
málaráðherra: „Einar Þ. Guð-
johnsen var einn af merkustu
ferðafrömuðum okkar Islend-
inga. Hann var þaulkunnugur
landinu og mér er nær að halda
að hann hafi gengið um það þvert
og endilangt. Það er þess vegna
mikiil fengur að því að bækur
hans um gönguleiðir á Islandi
skuli vera áfram fáanlegar og
ég hlýt að fagna því sérstaklega
að þær skuli nú koma út á erlend-
umtungumálum."
Útgáfufélagið Víkingur gefur
bókina út og kostar hún 1.950
kr. Félagið hyggst endurútgefa
fyrri bækur með nýju útliti, enda
sumar þeirra ófáanlegar. Þær
verða einnig þýddar á ensku og
þýsku og e.t.v. fleiri tungumál í
framtíðinni. ■
Um 25.000 tonn
eru enn óveidd af
síldarkvótanum
FISKISTOFA hefur nú úthlutað
18.000 tonna viðbótarkvóta úr
norsk-íslenzku síldinni til þeirra
nótaskipa, sem hafa • landað meira
en helmingi þess kvóta, sem þeim
var úthlutað í maí. Þessi viðbótarút-
hlutun er til komin vegna þeirra
skipa, sem ekki nýta sér kvóta sinn
frá fyrstu úthlutun. Þessi viðbót er
að hluta til framseljanleg.
Heildarkvóti okkar úr norsk-
íslenzka síldarstofninum er 190.000
tonn. Í maí síðastliðnum var þessum
kvóta úthlutað til þeirra skipa, sem
leyfi fengu til veiðanna. 12 togarar
fengu úthlutað samtals 6.780 tonn-
um, eða sem svaraði til tvegga full-
fermistúra hjá hveijum og urðu þeir
að hefja veiðar fyrir 20. júní. Nóta-
skipin fengu svo alls um 182.000
tonn. Aflaheimildir þessar voru ekki
framseljanlegar.
Fyrirsjáanlegt að
heildarkvóti næðist ekki
Nú taldi sjávarútvegsráðuneytið
fyrirsjáanlegt að heildarkvótinn
næðist ekki nema að endurúthlutað
yrði því magni, sem ljost er að náist
ekki, en um 25.000 tonn eru óveidd
af kvótanum. Aðeins fimm togarar
fóru til veiða, en veiðiheimildir hinna
féllu í þann sameiginlega „pott“, sem
nú er úthlutað úr. Þeir togarar, sem
fóru til veiða, en hafa ekki náð kvóta
sínum enn, hafa áfram möguleika til
að fara til síldveiða á ný, kjósi útgerð-
ir þeirra að gera svo, til að ná kvóta
sínum.
Sömu sögu er að segja af nokkrum
nótaskipum, sem ekki fóru til veiða.
Þar sem aflaheimildir þeirra voru
ekki framseljanlegar falla þær í hinn
sameiginlega pott. Hér er því í raun
ekki verið að taka frá neinum, held-
ur tryggja að sem mest af veiðiheim-
ildunum nýtist.
Að hluta til
framseljanlegt
Þau 18.000 tonn, sem nú koma
til viðbótar hjá þeim skipum, sem
náð hafa helmingi kvóta síns eða
meiru, skiptast eins og áður milli
þeirra. Helmingur heildarinnar skipt-
ist jafnt milli skipanna en helmingur
skiptist á milli þeirra eftir stærð.
Nú verður heimilt að framselja eftir-
stöðvar aflaheimilda til annarra
skipa, svo fremi sem þær séu ekki
meira en nemur hálfum mesta farmi
þess skips, sem eftirstöðvar eru flutt-
ar af.
Viðbótin nemur
300 til 600 tonnum
Þá hefur verið ákveðið að Fiski-
stofu sé heimilt að fella niður öll leyfi
til veiða úr norsk-íslenzka síld-
arstofninum, þegar heildarveiði vert-
íðarinnar nemur sem næst 190.000
tonnum. Er það gert til að tryggja
að ekki verði veitt umfram þann
kvóta, sem kom í hlut íslenzku skip-
anna, samkvæmt samkomulagi um
veiðarnar frá því í vor.
Mjög mörg nótaskip fá nú viðbót-
arúthlutun. Þau minnstu fá rúmlega
300 tonn, en tæplega 600 tonn koma
í hlut þeirra stærstu. Ekki er ljóst í
hve miklum mæli skipin nýta sér
þessar heimildir, því stærri nótaskip-
in eru öll að búa sig til loðnuveiða,
sem mega heijast fyrsta júlí.
Nýr mælikvarði í dieseljeppum
Kraft- og togmíkil en
spameytin og hljóðlát
116 hö. dieselvél með
forþjöppu og millikæli.
Vökva- og veltistýri.
Tregðulæsing að aftan.
Aldrif, hátt og lágt.
Loflpúði fyrir
ökumann og farþega
í framsæti.
Fjarstýrðar
samlæsingar.
Rafdrifnar rúður.
Lúxus innrétting.
Litað gler.
Sérstök
hljóðeinangmn.
Rafdrifnir og upphitaðir
hliðarspeglar.
ABS-hemlalæsivörn
á öllum hjólum.
Hraðafesting
(cmise control).
Loftkæling
(air condition).
Öflug miðstöð.
Fullkomin
hljómflutningstæki
með þjófavöm.
Stillanleg hæð ökuljósa.
Hlíf yfir farangursrými.
Niðurstöður úr reynsluakstri
Morgunblaðsins.
□ Stsðal búna&ur Hljóófátur Rá»f«stur
a 0
Grand Cherokee Turbo Diesel á
Jeep Grand Cherokee er nú á verði sem þú færð ekki annars staðar. Komdu í Jöfur og fáðu þér nýjan
Jeep Grand Cherokee á einstöku verði. Jeppi sem kemur þér á óvart hvað varðar rými og kraft.
Jeep Grand Cherokee er franileiddur af Chrysler Corporahon. Jöfur hf. er einkaumboðsaðili Chiysler á Íslandi. Chrysler veitir ekki ábyrgð á þeirn bifreiðum
sem fluitar eru á milli landa af fyrirtækjum eða einstaklingum, öðrum en Chrysler eða einkaumboðsaðilum þess.
Nýbýlavegur 2
Síml: 554 2600