Morgunblaðið - 27.06.1996, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996 49
Persóna
í gamla
bæinn
Keflavík. Morgunblaðið.
VERSLUNIN Persóna í Kefiavík
flutti nýlega í nýtt húsnæði að Tún-
götu 18, eða í gamla læknahúsið sem
byggt var 1928.
Að sögn Ágústu var ástand húss-
ins orðið lélegt og veitti því ekki af
endurbótum. Páll Bjarnason arkitekt
sá um breytingar og var reynt að
nálgast upprunalegt útlit þess á sem
flestum þáttum. Inréttingar teiknaði
Guðbjörn Gunnarsson.
Verslunin Persóna selur kven-
manns og karlmannsföt.
Fagna um-
fjöllun VSÍ
á málefnum
grunnskóla
SAMTÖKIN Heimili og skóli, Sam-
fok í Reykjavík og Barnaheill fagna
því að VSÍ, samtök vinnuveitenda,
skuli taka upp málefni grunnskólans
og vekja athygli á stöðu grunn-
menntunar á íslandi í samanburði
við aðrar Evrópuþjóðir.
„í frétt frá samtökunum segir:
„Það hefur lengi verið vitað að árleg-
ar kennslustundir í íslenskum skólum
eru færri en meðal anparra Evrópu-
þjóða og framlög íslendinga til
menntamála eru lægri en viðunandi
getur talist. Samtökin Barnaheill og
samtök foreldra hafa ítrekað_ vakið
athygli á stuttum skólatíma á íslandi
og um árabil sett fram rökstuddar
kröfur um einsetinn skóla og lengd-
an, samfelldan skóladag sem taki
mið af aðstæðum á hverjum stað.
Þessar áherslur koma m.a. skýrt
fram í ályktunum af ársþingum
Heimilis og skóla, ijölskyldustefnu
Barnaheilla og stefnu Sambands for-
eldrafélaga í grunnskólum Reykja-
víkur sem unnin var sl. vetur.“
------♦ ♦ ♦----
Þörf á mál-
fundafélagi
HALDINN var á mánudag árlegur
fundur Jafnaðarmannafélags íslands
og var þar kosin ný stjóm. Stjórnina
skipa nú: Njáll Harðarsson, oddviti
framkvæmdaráðs, Kristján Péturs-
son, oddviti málefnaráðs, Dóra Haf-
steinsdóttir varaoddviti og Marías
Sveinsson gjaldkeri.
Fram kom á fundinum að talin
væri þörf á öflugu málfundafélagi
utan stjórnmálaflokka sem vettvangi
fyrir umræður um stöðu jafnaðar-
stefnunnar. Ályktað var að halda
fundi um þessi málefni og önnur með
ýmsum starfsstéttum og aðildarfé-
lögum á komandi misserum. Jafn-
framt var ákveðið að koma upp Al-
netsíðu fyrir félagið þar sem hægt
verði að nálgast upplýsingar um
starfsemi félagsins.
Heimasíðan verður_ vistuð á:
http://www.islandia.is/njall/jafn og
tölvupóstur á á e-mail: njall@islan-
dia.is.
------»'■♦ ■ ♦--
Aðalfundur
Hollvinafé-
lags Minne-
sotaháskóla
AÐALFUNDUR Hollvinafélags Min-
nesotaháskóla (Minnesotafélagsins)
verður haldinn miðvikudaginn 3. júlí
að Selbraut 11, Seltjarnarnesi klukk-
an 20.00.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfund-
arstörf auk þess sem Carol H. Paz-
andak prófessor yprður á fundinuip.
ININILEIMT
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
ÁGÚSTA Jónsdóttir og Guðmundur Reynisson i nýju versluninni.
Fjáröflun til
foreldrafræðslu
ATTUGASTA þing Bandalags
kvenna í Reykjavík var haldið 2.
mars sl. Mörg málefni voru rædd á
þinginu en efst í huga þingfulltrúa
var það böl sem fylgir aukinni vímu-
efnanotkun ungs fólks.
Á þinginu kom fram að foreldra-
fræðslu er ábótavant og taldi þingið
það forsendu fyrir því að árangur
náist í forvörnum gegn vímuefnum,
að fræðsla og skilningur á vandanum
sé fyrir hendi á heimilunum áður en
skaðinn er skeður.
Til að afla fjár til foreldrafræðslu
með námskeiðshaldi og starfí að for-
vörnum með þátttöku foreldra að
markmiði mun Bandalag kvenna í
Reykjavík gangast fyrir merkjasölu
laugardaginn 29. júní nk. við kjör-
staði á höfuðborgarsvæðinu.
„Bandalagið vill hvetja þá fjöl-
mörgu Reykvíkinga sem verða á
ferðinni á kosningadaginn 29. júní
að veita þessu málefni gott brautar-
gengi með því að kaupa merki banda-
lagsins.
Þess utan fyrir þá sem vilja styrkja
þetta brýna verkefni hefur bandalag-
ið opnað reikning í Landsbanka Is-
lands, reikningsnúmerið er 0101-05-
180253,“ segir í tilkynningu frá
BKR.
Capex-96
Gyllt silfur og stórt
silfur til íslands
Hrísey. Morgunblaðið.
NÝLEGA er afstaðin alþjóðleg frí-
merkjasýning í borginni Toronto í
Kanada sem nefnist Capex-96.
Þátttakendur í samkeppninni á
sýningunni voru 760 en auk þess
sýndu opinber söfn og póstmála-
stofnanir ýmissa landa.
íslenskir þátttakendur í sam-
keppnisdeild voru tveir í deild al-
mennra safna eða sígildrar söfn-
unar, þeir Indriði Pálsson, sem
sýndi safn frímerkja og póstsögu
frá 1836-1902, og Sigurður R.
Pétursson, sem sýndi safn sitt af
tveggja kónga frímerkjum, póst-
bréfsefnum og þjónustumerkjum.
Fékk safn Indriða 80 stig og gyllt
silfur en safn Sigurðar fékk 77
stig og stórt silfur.
I unglingadeild tóku þátt þrír
unglingar. Það voru þeir Gunnar
Garðarsson, sem sýndi safn rán-
fugla í flokki 15 ára og yngri,
Guðni Árnason, sem sýndi safn
um Christopher Columbus og fund
Ameríku í flokki 16-17 ára og
Gísli Geir Harðarson, sem sýndi
safn um fimm evrópsk tónskáld
frá sígildum og rómantískum tíma,
í flokki 18-19 ára. Gunnar fékk
78 punkta og stórt silfur fyrir
safn sitt, Guðni fékk 81 stig og
gyllt silfur og Gísli Geir fékk 72
punkta og silfur fyrir safn sitt.
Þá voru tveir þátttakendur frá
íslandi í bókmenntadeildinni. Þeir
Don Brandt sem sýndi bók sína
„Walking into Iceland’s Postal
History" og Ólafur Elíasson sem
sýndi bók sína Póstsaga íslands í
síðari heimstyijöldinni. Don
Brandt fékk 68 punkta fyrir bók-
ina sína og silfrað brons og Ólafur
fékk 77 punkta og stórt silfur.
Auk þessa var safn á sýning-
unni er sýndi íslensk póstbréfsefni
en það var bandaríkjamaðurinn
Gorsafn og fékk 85 punkta fyrir
og þar með stórt gyllt silfur.
Umboðsmaður sýningarinnar
hér á landi var Sigurður R. Péturs-
son, formaður Landssambands ís-
lenskra frímerkjasafnara. Má
segja að ísland hafi komið einstak-
lega vel út á þessari sýningu. Þá
var Frímerkjasalan með sölubás á
sýningunni og kynningu.
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!
Skorradalur
„Á þessum árum sem ég Hef haft
NMT símann með mér í Skorradal-
inn hef ég tilkynnt ófáa árekstra
og jafnvel alvarlegri slys. Ég hef
kallað eftir aðstoð vegna eldsvoða
og ekki siður þegar skriða skall á
bústaðinn minn. Svo hef ég nú líka
tekið símann með mér í fjall-
göngur og á rjúþu án þess að hann
íþyngi mér. Já, ég held að NMT sé
öryggistœki, a.m.k. vildi ég ekki
vera án hans í bústaðnum."
Jón Sigurðsson, sumarbústaðareigandi
„Hef tifkynnt nokkur bílslys, eldsvoða
og náttúruhamfarir með NMT símanum
NMT farsímarnir hafa fyrir löngu sannað notagildi sitt á íslandi. Dreifikerfið
fyrir NMT farsímana er víðtækt og símarnir eru langdrægir. Þessir kostir gera
NMT að ákjósanlegum valkosti fyrir þá sem eru á ferð um sveitir iandsins, í
óbyggðum og ekki síður á hafi umhverfis landið. íslenska NMT síma má einnig
nota á Norðurlöndum.
NMT símar - þegar langdrægni og öryggi skipta máli.
PÓSTUR OG SÍMI