Morgunblaðið - 27.06.1996, Side 52
>2 FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
HERE S A BROCHURE FOR
A SUMMER CAMP THAT..
50RRV..IF ANYONE
MEHTIONS SUMMER CAMP
TO MEy I FREAK OUT..
UJELL, HERe's ANOTHER 0ROCHURE
FOR A SUMMER CAMP THAT SAVS..
HÉRNA er bæklingur yfir
sumarbúðir
Afsakaðu.. En ef einhver
minnist á sumarbúðir, þá
sleppi ég mér..
Jæja, hérna er annar bæklingur um
sumarbúðir sem segir..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Handahófskennt
borgarskipulag
Frá Þuríði Guðmundsdóttur:
NÚGILDANDI aðalskipulag
Reykjavíkur var staðfest 1988.
Skv. texta þess á að nota það til
að stjórna þróun byggðar í borg-
inni fram til 2004.
Á vegum borgarinnar starfa
skipulagsnefnd og framkvæmda-
stjóri hennar, sem ætlað er, með
hliðsjón af markmiðum aðalskipu-
lags, að stýra skipulagi borgarinn-
ar og tryggja að á henni sé heildar-
svipur og samræmi en ekki skipu-
lagslýti.
Þrátt fyrir þetta virðast lóðar-
eigendur og byggingarverktakar
að meira eða minna leyti hafa
skipulag einstakra svæða borgar-
innar og nýtingarhlutfall þeirra í
hendi sér. Þetta sést af því að á
óbyggðum reitum sem þeir eignast
í grónum hverfum rísa íbúðaturnar
sem hvorki samrýmast þeirri
byggð sem í kringum þá er né
þeirri byggð sem fyrirhuguð var á
reitnum. Nýjasta dæmið um þetta
eru fyrirhugaðar byggingar á lóð
á horni Laugalækjar og Sæbrautar
(Goðalóð). Nú á að skipta þessari
lóð upp og breyta aðalskipulagi á
hluta hennar þannig að þar megi
reisa íbúðir. Auk þessa á að breyta
deiliskipulagi þannig að húsin megi
vera tvöfalt hærri en nú er heim-
ilt. Það á sem sagt að reisa þrjá
íbúðatuma, 9, 7 og 6 hæða í miðju
athafnasvæði en nærliggjandi hús
og hverfið í heild er 3-4 hæðir.
Skipulagsnefnd fellst á þessar
grundvallarbreytingar á skipulagi,
að því er virðist, án rökstuðnings
því hann er ekki að finna í gögnum
hjá borgarskipulagi.
íbúar í Laugarnesi fara fram á
að skipulagsyfirvöld borgarinnar
leggi, skriflega, fram þau rök, sem
þau hafa fundið fyrir því að um-
ræddur reitur sé ákjósanlegur fyr-
ir íbúðabyggð. Þær röksemdir
verða að yfirgnæfa rök, sem áður
voru fyrir útivistarsvæði á þessum
hluta nessins (eins og eitt sinn var
lofað), yfirgnæfa rök sem síðan
voru fundin fyrir athafnasvæði
þarna á nesinu og yfirgnæfa nú
rökin fyrir því að Listaháskólanum
sé ætlaður þessi reitur í framtíð-
inni. Einnig vantar rökin fyrir því-
líkri hæð húsanna.
Borgarfulltrúi og byggingar-
nefndarmaður rökstuddi þessar
breytingar þannig: „Þegar Ár-
mannsfell keypti þessa lóð af
Landsbankanum var ljóst að þarna
yrði íbúðabyggð, það var ljóst að
þarna yrðu þijú hús og einnig að
þau yrðu 9, 7 og 6 hæða.“
Séu þetta rökin er jafnframt
ljóst að það eru ekki skipulagsyfir-
völd borgarinnar sem stjórna þróun
byggðar í borginni heldur lóðareig-
endur og byggingarverktakar.
Það tangarhald sem byggingar-
verktakar hafa á borgaryfirvöldum
er enn augljósara þegar litið er til
þess að framkvæmdir eru þegar
hafnar á umræddum reit enda þótt
lagaskilyrði fyrir veitingu bygging-
arleyfis liggi ekki fyrir.
Er ekki kominn tími til að menn
tali opinskátt um það hvaða stefnu
byggðin í borginni er að taka og
hver það er sem stýrir henni? Vilj-
um við „sjónvarnargarð" meðfram
allri ströndinni? Viljum við þétta
byggð með íbúðaturnum? Er hún
þannig, sú Reykjavík sem við vilj-
um búa í?
Verði fyrirhugaðar breytingar í
Laugarnesi að veruleika, yrði enn
eitt skipulagsslys! Hver mun kunna
borgaryfirvöldum þakkir fyrir?
ÞURÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Kleppsvegi 4, Reykjavík.
Lögbrot
Ríkisútvarpsins?
Frá Ólafí Hannessyni:
Á TVEGGJA ára afmæli R-list-
ans, 13. júní sl, hringdi undirritað-
ur í Þjóðarsál á Rás 2 til að mót-
mæla þeirri fullyrðingu talsmanna
R-listans að R-listinn hefði ekki
staðið við kosningaloforð sín.
Þeir sögðu: „Átvinnuleysið er
komið til að fara.“
Það hefur aldrei verið meira.
Þeir sögðu einnig: „Við munum
stöðva skuldaaukninguna."
Skuldirnar jukust á síðasta ári
um 50 þúsund krónur á meðalfjöl-
skyldu, þrátt fyrir holræsagjald,
heilbrigðisgjald og hærra afgjald
af veitustofnunum.
Þeir kvarta mikið um háar
skuldir, sem þeir segjast hafa
fengið í arf.
Samt gætu þeir selt hlut
Reykjavíkur í Landsvirkjun og átt
eftir skuldlaust hitaveituna, raf-
magnsveituna, vatnsveituna og
höfnina, em metnar eru á marga
tugi milljarða.
Jafnframt benti ég á hlutdrægni
starfsmanns Rásar 2, sem drægi
taum R-listans á áberandi hátt.
Þessi starfsmaður Rásar 2, Anna
Kristine, brást ókvæða við og til-
kynnti mér, að meðan hún stjórn-
aði Þjóðarsál fengi ég ekki
frmvegis að tjá mig.
Nú koma nokkrar spurningar:
Er þetta stefna eða starfsregla
Ríkisútvarpsins? Hvaða reglu
braut ég? Var ég ómálefnalegur?
Var ég með klám eða dónaskap?
Eða mega þeir einir tala sem eru
með skoðanir sem hugnast stjórn-
andanum?
ÓLAFUR HANNESSON,
Snælandi 4, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.