Morgunblaðið - 27.06.1996, Qupperneq 64
<Ö>
AS/400 er...
...með PowerPC
64 bita örgjörva
og stýrikerfi
ttrjgtuifrlftfrlto
<o> NYHtHJi ’.m
OPIN KERFI HF.
Sími: 567 1000
^IP Vectra
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJA VÍK, SÍMI 669 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL<SCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Guðrún bætir við sig 7 prósentustigum í könnun Félagsvísindastofnunar
Fylgi Olafs Ragnars
mælist nú 36,4%
Ekki er niarktækur munur
á fylgi Olafs og Péturs
fylgis 36,4% kjósenda sem afstöðu
taka, Pétur Kr. Hafstein 32,6%j Guð-
rún Agnarsdóttir 27% og Astþór
Magnússon 4%, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Félagsvísindastofn-
unar fyrir Morgunblaðið á fylgi for-
setaframbjóðenda sem gerð var í gær
og fyrradag. í seinustu könnun mæld-
ist fylgi Oiafs 41,7%, fylgi Péturs
33,3%, Guðrúnar 20,1% og Ástþórs
4,9%.
Ekki er nú marktækur munur á
fylgi Óiafs og Péturs, né heldur á
fylgi Péturs og Guðrúnar, að mati
Félagsvísindastofnunar.
Svarendur voru fyrst spurðir hvem
frambjóðendanna þeir vildu helst fá
sem næsta forseta og sögðust þá
36,9% þeirra sem afstöðu tóku styðja
Ólaf Ragnar, 34,2% Pétur Hafstein,
25% Guðrúnu og 3,9% Ástþór. 20%
sögðust óákveðin, rúm 3% sögðust
ekki ætla að kjósa eða skila auðu
og tæp 2% neituðu að svara. Hinir
óráðnu voru þá spurðir hvem þeir
teldu líklegast að þeir myndu kjósa
og jókst þá fylgi Guðrúnar en fylgi
Ólafs og Péturs minnkaði. Hlutfall
óákveðinna fór niður í 6,4% eftir síð-
ari spurninguna.
Fylgissveiflur meðal kvenna
og yngstu og elstu kjósenda
Guðrún eykur fylgi sitt verulega
frá seinustu könnun meðal kvenna
og kjósenda í yngri aldurshópunum.
Einnig hefur stuðningur hennar með-
al þeirra sem segjast hafa kosið
Framsóknarflokk eða Sjálfstæðis-
flokk í seinustu kosningum aukist
umtalsvert. Nú segjast 36,6% kvenna
styðja Guðrúnu samanborið við 26,9%
í seinustu könnun og hún fær stuðn-
ing 16,5% karla samanborið við
13,2% síðast. 41,6% karla styðja Ólaf
Ragnar en hlutfall þeirra var 49,2%
í seinustu könnun, 31,6% kvenna
styðja hann nú en 34,2% síðast. 35,9%
karla og 29,7% kvenna styðja Pétur
en í seinustu könnun naut hann
stuðnings 32,3% karla og 34,4%
kvenna._ 6% karla og 2,1% kvenna
styðja Ástþór en hann fékk stuðning
5,3% karla og 4,4% kvenna í seinustu
könnun.
35% kjósenda á aldrinum 18-25
ára og 30,7% kjósenda 25-34 ára
styðja nú framboð Guðrúnar saman-
borið við 24,8% og 23,5% í þessum
aldurshópum í seinustu könnun. Ólaf-
ur Ragnar hefur einnig aukið fylgi
sitt í yngsta aldurshópnum en nú
segjast 36,9% 18-24 ára kjósenda
styðja hann en þeir vpru 27,4% í sein-
ustu könnun. Fylgi Ólafs meðal eldri
kjósenda hefur aftur á móti minnkað
um rúm 10 prósentustig frá seinustu
könnun. Nú segjast 40,4% kjósenda
45-59 ára og 42,6% 60-75 ára kjós-
enda styðja Ölaf samanborið við 50%
og 54,4% elsta aldurshópsins í sein-
ustu könnun. Fylgi Péturs meðal
18-25 ára hefur minnkað um tæp 18
prósentustig frá seinustu könnun.
Hann nýtur nú fylgis 21,4% þessa
aldurshóps samanborið við 39,8% síð-
ast. Fylgi Péturs meðal 60-75 ára
kjósenda hefur aftur á móti aukist
verulega eða úr 33% síðast í 43,4% nú.
25,6% stuðningsmanna Framsókn-
arflokksins sögðust nú ætla að kjósa
Guðrúnu en þeir voru 13,9% síðast
og 19,1% stuðningsmanna Sjálfstæð-
isflokks samanborið við 13,6% í sein-
ustu könnun. 55,6% kjósenda Fram-
sóknarflokks ætla að styðja Ólaf
Ragnar en þeir voru 60,3% síðast og
18,4% sjálfstæðismanna samanborið
við 21,8% síðast. Pétur nýtur svo til
sama fylgis meðal sjálfstæðismanna
og í seinustu könnun. Nú segjast
15,4% framsóknarmanna styðja Pét-
ur en þeir voru 19,2% síðast en fylgi
hans meðal alþýðuflokksmanna eykst
lítillega, fer úr 22% í 24,7%.
Könnunin var gerð í gær og fyrra-
dag og náði til 1.200 manna úrtaks
á aldrinum 18-75 ára. Nettósvörun
var 72,2%.
Morgunblaðið/Golli
Verðlauna-
hryssa kast-
ar tveimur
folöldum
ÞAÐ er svo sem enginn viðburð-
ur að það fæðist folöld í Mos-
fellsbænum, en þegar fyrstu-
verðlaunahryssan Vorsól frá
Laugasteini kastaði aðfaranótt
þriðjudags, þá kom ekki bara
eitt heldur tvö merfolöld.
Að sögn eigandans, Kristjáns
Friðriks Karlssonar, heilsast
móður og dætrum vel. Þær
stuttu hafa fengið nöfnin Sóley
og Sóldís en faðirinn er enginn
ómerkari en Gustur frá Grund,
sem sló svo eftirminnilega í
gegn í Reiðhöllinni í vetur.
Helgi Sigurðsson dýralæknir
segir það mjög sjaldgæft að
hryssur kasti tveimur lifandi og
heilbrigðum folöldum í einu.
Morgvnblaðið/Sverrir
Aðalfundur Prestafélagsins
Sr. Geir Waage
fær mótframboð
TVEIR prestar ætla að bjóða sig
fram til embættis formanns
Prestafélags íslands, en formaður
verður kosinn á aðalfundi félagsins
á morgun. Séra Geir Waage, prest-
ur í Reykholti, óskar eftir endur-
kjöri, en séra Gunnar Kristjánsson,
prestur á Reynivöllum í Kjós, hefur
einnig ákveðið að bjóða sig fram.
Búist er við að átök verði á aðal-
fundi Prestafélagsins. Ekki eru
allir sáttir við störf stjórnarinnar
og hvernig séra Geir Waage hefur
haldið á málum í þeim átökum sem
verið hafa í kirkjunni á liðnum
vetri.
Fleiri framboð ekki útilokuð
Þeir sem eru óánægðir með störf
séra Geirs hafa unnið að því að
finna frambjóðanda á móti honum.
Séra Gunnar Kristjánsson hefur
ákveðið að verða við áskorunum
presta að bjóða sig á móti Geir.
Ekki er talið útilokað að fleiri
prestar bjóði sig fram.
■ Ætti að stuðIa/6
Björguðust
af Mýrafelli
FJÓRUM skipverjum var bjargað
af sökkvandi skipi í mynni Arnar-
fjarðar laust eftir miðnætti í
fyrrinótt. Mýrafell ÍS 123 fór
skyndilega á hliðina þegar verið
var að toga dragnót um borð og
hvolfdi bátnum á nokkrum sek-
úndum. Telja skipveijar að spil
hafi bilað. Reynt verður að ná
bátnum upp, að kröfu trygginga-
félags útgerðarinnar, Rana hf. á
Þingeyri, segir skipstjórinn. Tal-
ið frá vinstri: Kristján Ástvalds-
son háseti, Sigurður, 13 ára sonur
skipstjórans, Magnús Kristjáns-
son skipstjóri, Sigurður Friðf-
innsson háseti og Ivar Orn Páls-
son háseti á bryggjunni á Þing-
eyri.
■ Hvolfdi í togi/4
Guðrun Gísladóttir og Viðar Eggerts-
son lentu í vopnuðu ráni í Tékklandi
Bundin og kefluð
af þrem mönnum
með vélbyssur
GUÐRUN Gísladóttir leikkona og
Viðar Eggertsson, fyrrverandi leik-
hússtjóri, lentu í vopnuðu ráni í þorp-
inu Theresienstadt í Tékklandi á
þriðjudagskvöldið. Voru þau stödd í
fornmunaverslun þegar þrír menn
með vélbyssur ruddust inn, skipuðu
þeim að leggjast í gólfið á meðan
þeir rændu munum úr búðinni. Voru
hendur þeirra bundnar með vír og
heftiplástur límdur fyrir munninn.
Hvorugt þeirra sakaði en ræn-
ingjarnir höfðu á brott með sér
greiðslukort þeirra og myndavél.
Viðar og Guðrún voru stödd á
leiklistarhátíð í Dresden en ákváðu
á þriðjudag að fara í dagsferð til
Tékkiands og skoða útrýmingarbúð-
ir nasista í Theresienstadt. Undir
kvöldið brugðu þau sér inn í forn-
munaverslun í þorpinu og var eig-
andinn þá einn þar inni. Eftir
skamma stund opnaðist hurðin og
mennirnir þrír ruddust inn og var
einn þeirra með sokk yfir höfðinu.
„Miðaði á mig byssunni“
Guðrún lýsti atburðunum fyrir
Morgunblaðinu í gær: „Þeir skipuðu
okkur á einhvers konar hrognamáli
að leggjast í gólfið, og við gerðum
það umsvifalaust og steinþegjandi.
Búðareigandinn stundi aftur á móti
og grét og þeir baúkuðu lengi eitt-
hvað við hann, en þar sem ég leit
ekki upp veit ég ekki nákvæmlega
hvað það var. Eftir það sem mér
fannst vera heil eilífð kom einn
mannanna til mín og miðaði á mig
byssunni. Ég benti á töskuna mína
og bauð honum „passport", þar sem
ég hafði heyrt að íslensk vegabréf
væru í hávegum höfð af glæpamönn-
um margra ríkja. En þessi sagði
bara nei takk. Annar kom þá framan
að mér, sagði: „Sorrí“, og setti hefti-
plástur fyrir munninn á mér. Því
næst batt hann saman hendurnar á
mér með einhvers konar vír. Sama
var gert við Viðar.“
Guðrún og Viðar reyndu að láta
sem minnst fyrir sér fara en um síð-
ir fóru mennirnir með stóran poka
af málverkum, gömlum byssum og
peningum og höfðu þeir þá líka tek-
ið greiðslukort Viðars og Guðrúnar
auk myndavélar Guðrúnar.
Við yfirheyrslur í 7 klst.
Guðrún og Viðar voru við yfir-
heyrslur í sjö klukkustundir hjá lög-
reglunni í Theresienstadt og kom
Þórir Gunnarsson ræðismaður ís-
lands frá Prag um nóttina, ásamt
túlk, til að vera þeim til aðstoðar.
Voru þau látin fara aftur á vettvang
og leika atburðinn hvort í sínu lagi
inn á myndband.
„Þau stóðu þarna uppi peninga-
laus og allslaus og komust ekki aft-
ur til Dresden. Við tókum þau því
með okkur til Prag um nóttina,"
segir Þórir. Þaðan héldu þau svo til
Dresden í gær. Þórir sagði að þessi
atburður hefði vakið mikla athygli
í Tékklandi og var frá honum greint
í sjónvarpsfréttum. Mennirnir voru
ófundnir í gær.
■ Vopnað rán/10