Morgunblaðið - 19.07.1996, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
• •
Morgunblaðið/Snorri Aðalsteinsson
Oflugri Þórir
Hornafirði - Þinganes ehf. bætti
við sig þó nokkurri veiðigetu
þegar það keypti á dögunum
öflugt togskip. Skipið hét áður
Helga II. og var gerð út á rækju
síðustu árin og aflaði vel eða
1200-1400 tonna á ári. Skipið
kom upphaflega til landsins ’58,
eitt af þeim skipum sem byggð
voru úr góðum efnum upphaf-
lega og hefur verið teygt og
togað í allar áttir síðan en frum-
hlutinn stenst vel tímans tönn.
Skipið heitir nú Þórir SF 77 og
kemur í stað skips sem var með
sama nafn og númer en fyrir-
hugað er að selja það án veiði-
heimilda.
Allt endurnýjað
hjá Hólanesi í ár
ÁKVEÐIÐ hefur verið að endurnýja
rækjuverksmiðju Hólaness hf. á
Skagaströnd. Framkvæmdir eru
hafnar og verður verksmiðjunni lok-
að þær 5-6 vikur sem þær standa
yfir. Endurnýjunin er svo mikil að
talað er um nýja verksmiðju í gamla
húsinu.
Skagstrendingur hf. eignaðist
nýlega meirihluta hlutafjár í Hóla-
nesi hf. og á nú 85% hlutafjár.
Búið er að sameina skrifstofuhald
og félögin eru í raun samrekin.
Stefnt er að formlegri sameiningu
fyrir árslok.
Lárus Ægir Guðmundsson,
stjórnarformaður beggja félaganna,
segir að fyrir nokkrum árum hafi
Hólanes verið í fremstu röð rækju-
verksmiðja í landinu. Fyrirtækið
hafi dregist nokkuð aftur úr en nú
hafi verið ákveðið að endurnýja
verksmiðjuna. Breytingamar hafa
verið undirbúnar undanfarnar vikur
og mánuði. Vinnslu var hætt sl.
föstudag og að 5-6 vikum liðnum
byijar vinnsla aftur í svo til nýrri
verksmiðju þó hún verði áfram í
sama húsi.
Markmiðið að framleiða
úr 5.000 tonnum
Settur verður upp nýr fiokkari,
nýtt ísúðunartæki og nýr aðalfryst-
ir, auk þess sem eftirfrystir bætist
við. Þá verður bætt við einni pillun-
arvél og verða þær þá orðnar fjór-
ar. Verksmiðjan og allt umhverfi
innan húss verður stokkað upp.
„Þetta er eins og ný verksmiðja og
við komumst aftur í fremstu röð,“
segir Lárus Ægir.
Á síðasta ári vann Hólanes úr
2.800 tonnum af rækju og áætlað
er að auka það í 3.500 tonn í ár.
Markmiðið er að framleiða úr 5.000
tonnum af hráefni á næsta ári,
þegar nýja verksmiðjan getur starf-
að í heilt ár.
Samrekstur hagkvæmur
fyrir báða
Lárus Ægir var áður fram-
kvæmdastjóri Hólaness og segist
hann binda miklar vonir við sam-
rekstur fyrirtækjanna. „Það er lífs-
nauðsynlegt í því kvótakerfí sem við
búum við. Hólanes átti sjálft lítinn
kvóta og það gengur ekki að reka
vinnslu með því að kaupa kvóta á
því verði sem nú er,“ segir hann.
Með sameiningunni við Skag-
strending tengist Hólanes kvóta-
sterku fyrirtæki. „Ég tel að þetta
sé hagkvæmt fyrir bæði fyrirtækin.
Hægt er að breyta bolfiskkvóta í
rækju þegar hún gefur meira en
þorskurinn og leggja áherslu á þá
vinnslu. Þegar svo harðnar á daln-
um í rækjunni má breyta áhersl-
unni í hina áttina. Þannig má jafna
sveiflurnar og ná sem mestum verð-
mætum út úr kvótanum," segir
Lárus Ægir Guðmundsson.
Engin veiði enn í Smugunni
Rólegt hjá togurum
á heimaslóðinni
MJÖG rólegt er nú hjá flestum tog-
urum á heimaslóðinni. Engin veiði
er enn í Smugunni en 11 togarar
eru farnir þangað. Útgerðir ann-
arra, allt að 40 skipa til viðbótar,
bíða átekta og kroppa í takmörkuð-
um kvóta hér heima.
Reyndar er töluvert eftir af ýsu
og ufsa. Sæmilega fiskast af ýs-
unni, en ufsinn gefur sig mjög lítið.
Þá eru togararnir að reyna við grá-
lúðuna og sumir eru að kroppa á
karfa, en þar eru veiðihemildir nán-
ast alveg búnar og eru men þá að
taka millifærsluréttinn. Tæp 30
skip eru á Flæmska hattinum, en
einhveijir eru lagðir af stað heim
eða farnir að huga að heimferð.
ERLEIMT
Reuter
Ólga
í Búrundí
ÞÚSUNDIR ungmenna af ætt-
bálki tútsía í Búrundí efndu í
gær til mótmæla í höfuðborg-
inni Bujumbura gegn veru er-
lendra hersveita í landinu en
þeim er ætlað að koma í veg
fyrir þjóðarmorð á hútúum í
landinu. Afrískir og bandarísk-
ir stjórnarerindrekar freistuðu
þess á fundi í Tanzaníu í gær
að koma friðaráætlun fyrir
Búrúndí i framkvæmd.
------» » «----
Suu Kyi
hvetur til
refsiaðgerða
Brussel, Jakörtu. Reuter.
AUNG San Suu Kyi, leiðtogi lýðræð-
issinna í Búrma, hvatti til alþjóð-
legra refsiaðgerða gegn landinu í
því skyni að knýja herstjórnina til
efnahagslegra og pólitískra umbóta.
Áskorun Suu Kyi kemur fram á
myndbandi sem smyglað var úr landi
og sýnt fulltrúum á Evrópuþinginu
í gær. „Það sem við þurfum eru
aðgerðir sem gefa ótvírætt til kynna
að efnahagsumbætur geti ekki átt
sér stað án pólitískra umbóta," seg-
ir hún á bandinu. Hún vísaði því á
bug að refsiaðgerðir myndu bitna á
almenningi, sagði að þær myndu
fyrst og fremst koma við kaunin á
forréttindastéttunum.
Ajit Singh, frámkvæmdastjóri
Samtaka ríkja Suðaustur-Asíu
(ASEAN), sagði í gær að ekki yrði
fjallað um ástandið í Búrma á árleg-
um utanríkisráðherrafundi samtak-
anna, sem fram fer í Indónesíu um
helgina. „Vesturveldin og fjölmiðlar
stunda galdraofsóknir á hendur
stjórnvöldum í Búrma,“ sagði hann.
Á fundinum verður Búrma boðin
áheyrnaraðild að samtökunum sem
venjulega er undanfari fulirar aðild-
ar.
Rithöfundurinn George Orwell átti
samstarf við bresk stjórnvöld
Veitti upplýsingar
um laumukomma
London. The Daily Telegraph.
NÝBIRTAR upplýs-
ingar um rithöfund-
inn George Orwell,
hafa komið mörgum
á óvart. Komið hefur
í ljós að Orwell, ein
af hetjum sósíalis-
mans á þessari öld,
átti á laun samstarf
við breska utanríkis-
ráðuneytið í áróðurs-
stríðinu gegn kom-
múnisma.
Samkvæmt gögn-
um, sem gerð voru
opinber fyrir
skömmu, bauðst Orwell árið 1949
til þess að láta upplýsingadeild
breska utanríkisráðuneytisins
hafa lista yfir rithöfunda og blaða-
menn, sem hann taldi laumu-
kommúnista eða meðreiðarsveina
þeirra.
Áhöld um Orwell
Vinstri menn hafa verið klofnir
í afstöðunni til Orwells og hann
hefur valdið þeim ýmsum vanda.
Ættu vinstri menn að dýrka hann
fyrir snjöll skrif um sósíalisma,
eða veitast að honum fyrir harða
afstöðu gegn kommúnisma Stal-
íns, sem á hans efri árum kom til
dæmis fram í bókinni „Dýrabæ"
(„Animal Farm“)?
Þessar fréttir komu vinstri
mönnum mismikið á óvart. Sumir
sögðu að þetta væri líkt því og
Winston Smith hefðu af fúsum og
fijálsum vilja starfað með hugs-
analögreglunni í bókinni „1984“.
Michael Foot, fyrrverandi for-
maður Verkamannaflokksins, var
vinur Orwells á fjórða og fimmta
áratugnum og sagði hann að þess-
ar upplýsingar kæmu sér í opna
skjöldu.
Richard Gott, sem
var menningar-
fréttastjóri dag-
blaðsins Guardian,
en neyddist til að
segja af sér 1994
þegar hann varð að
viðurkenna að hafa
þegið ferðafé frá
KGB Sovétmanna,
sagði að þetta kæmi
sér nokkuð á óvart.
Bernard Crick,
ævisöguritari Orw-
ells, kvaðst hins veg-
ar ekki vera hissa.
Minnisbók Orwells með nöfnum
86 manna, sem hann hefði talið
hlynnta kommúnisma, hefðu legið
meðal skjala um Orwell í að
minnsta kosti 20 ár.
Crick sagði að sum nöfnin
væru rituð með hendi rithöfund-
arins Arthurs Koestlers, sem
einnig vann fyrir upplýsingadeild-
ina.
Ævisöguritari ver Orwell
Crick varði þá ákvörðun Orw-
ells að bjóða upplýsingadeildinni
aðstoð sína en Verkamannaflokk-
urinn var um þessar mundir við
stjórnvölinn í Bretlandi.
„Hann gerði þetta vegna þess
að hann taldi að Kommúnista-
flokkurinn væri alræðisógn. Hann
var ekki að fordæma þetta fólk
fyrir að vera undirróðursmenn.
Hann var að fordæma það fyrir
að vera óhæft til að taka þátt í
gagnnjósnum."
Crick sagði að menn yrðu að
hafa hugfast að á þessum árum
hefðu vinir og kunningjar Orwells
verið að snúa til Austur-Evrópu
og margir hefðu átt vísan dauða
fyrir hendi kommúnistastjórna.
George Orwell
Dæmd fyrir að misþyrma
ófæddu barni sínu
New York. The Daily Telegraph.
HÆSTIRÉTTUR í Suður-Karólínu
í Bandaríkjunum hefur úrskurðað
að sækja megi konu, sem neytti eit-
urlyíja á meðgöngutíma, til saka
fyrir að misþyrma ófæddu barninu.
Staðfesti rétturinn átta ára fang-
elsisdóm yfir konu, sem eignaðist
son, er reyndist vera með kókaín í
blóðinu þegar hann fæddist. I úr-
skurðinum segir að lífvænlegt fóstur
teljist persóna að lögum og að telja
beri lyfjaneyslu móðurinnar vera
misþyrmingu á syni hennar, sem nú
er átta ára gamall, heilbrigður og
býr hjá móður sinni.
Dómsmálaráðherra Suður-Karól-
ínu sagði úrskurðinn vera mikilvæg-
an áfanga til verndar börnum, og
sagðist myndu leggja fyrir félags-
ráðgjafa og saksóknara að leita uppi
barnshafandi lyfjafíkla.
Varað hefur verið við því, að úr-
skurðurinn geti stefnt heilsu barns-
hafandi kvenna og barna þeirra í
hættu með því að letja veikar konur
til þess að leita sér lækninga.
„Þessi úrskurður hefur veitt ríkinu
rétt til þess að hafa vakandi auga
með barnsburði hverrar einustu
konu,“ sagði fulltrúi samtaka sem
beijast fyrir réttindum kvenna.
Konan hyggst áfrýja dómnum.
Nýtur hún stuðnings fjölda sam-
taka, m.a. bandarísku læknasam-
takanna.