Morgunblaðið - 19.07.1996, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996
MORGUN BLAÐIÐ
-I
FÓLK í FRÉTTUM
Downey handtekinn á ný
► ROBERT Downey
Jr. var handtekinn á
^ný vegna gruns um
ofneyslu eiturlyfja á
þriðjudag, aðeins
nokkrum klukkutim-
um eftir að gefin var
út ákæra á hendur
honum vegna eitur-
lyfjaeignar og ölv-
unar
Húseigendur í
Malibu komu að
Downey þegar þeir
komu heim á þriðju-
dagskvöld. Þeir
hringdu á lögregluna,
. -en Downey á heima
ROBERT Downey
Jr. virðist eiga í
miklum erfiðleik-
um þessa dagana.
örstutt frá umræddu húsi. Símtalið
var tekið upp: „Það er ókunnugur
maður í rúmi bamsins míns...
hann virðist hafa misst
meðvitund. Við reynd-
um að hrista hann og
hann stundi og muldr-
aði, en hann virðist
hafa sofnað aftur.“
Downey var fluttur
á sjúkrahús í nágrenn-
inu en neitaði lækn-
ismeðferð eftir að hafa
náð meðvitund. Þaðan
var hann fluttur á ör-
yggisálmu annars spít-
ala og látinn laus á
miðvikudagsmorgun.
Eins og sagt var frá í
blaðinu í gær fara rétt-
arhöld vegna fyrri
„vandræða" Downeys fram þann
26. júlí, en hann mætir í dómsal
aftur 30. ágúst vegna þessa máls.
íJOht.
v ii ii r i ti i
Á Stóra sviði Borgarleikhússins
JIM CARTk'A 16H1
4. sýning fös. 19. júli ki. 20 UPPSELT
5. sýning lau. 20. júll kl. 20 UPPSELT
Aukasýninq bri. 23.ÍÚIÍ kl. 20 UPPSELT
7. sýning fim. 25.júli kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
8.sýníng fðs. 26.júlí kl.20 UPPSELT
9.sýning sun. 28. júli kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sýningin er ekki vió hæfi | aUyyýiUy’fc
barna yngri en 12 ára | hit"”st”?
Miðapantanir í síma 568 8000 y
Gagnrýni - DV 9.júlí
Ekta fín sumarskemmtun.
Gagnrýni - Mbl ó.júlí
Ég hvet sem flesta að verða ekki af
þessari sumarskemmtun.
Laugard. 20. júlt' kl. 20. Örfá sætí laus.
Fös. 26. júlí kl, 20. Örfá sæti laus.
Fim, 1. ágúst kl. 20
Frumsýning
föstudaginn 19. júlí, uppselt
Lau. 27. júlí kl. 20
Miðasata í síma 552 3000.
Komdu af þú ÞORIR!!!
SK#
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
sér um danssveiflu sumarsins
þann 19. og 20. júlí.
Notið tækifærið og upplifið íjörið
með skagfirska sveiflukónginum
í Sálnasal.
-þín saga!
Baðaðar marg-
litum ljósum
► TÍSKUSÝNINGIN Kona undir
stjörnunum, eða „Woman Under
the Stars“ er árlegur viðburður
hjá tískuhönnuðum í Róm. Hún
fór fram á miðvikudaginn og þá
var mikið um dýrðir að venju.
Fyrirsæturnar eru lýstar marg-
litu ljósi um leið og þær ganga
niður Spænsku tröppurnar í
Róm. A meðfylgjandi myndum
er Claudia Schiffer í flíkum
tískuhönnuðarins Valentinos.
Reuter
Alvarleg líkamsárás við setur Stallones
► „ILLKYNJA“ öryggisvörður, sem starfaði á
setri leikarans Sylvester Stallone í Miami,
barði, stakk með hnifi og skaut annan
öryggisvörð í ránstilraun á landareign
leikarans á miðvikudag, að sögn lög-
reglu. Stallone var ekki heima þegar
atvikið átti sér stað. Lögregla var kölluð
á staðinn snemma miðvikudagsmorguns,
Umræddur „illkynja“ öryggisvörður
heitir Corey Wade og er 22 ára. Hann var
ákærður fyrir morðtilraun, notkun
skotvopns í ólöglegum tilgangi, inn-
brot og líkamsárás. Fórnarlamb
hans, Abel Romero 34 ára, var
á vakt þegar Wade réðst á
hann, setti hann í golf-
vagn og ók honum
að bryggjunni á
landareign-
inni.
Þar setti Wade hann í einn af bátum Stallones.
Romero var skorinn á háls og skotinn nokkr-
um skotum, en lifði árásina af og dvelur nú
á gjörgæsludeild sjúkrahúss í nágrenninu.
Wade var handtekinn nærri setrinu og voru
fótleggir hans „gjörsamlega löðrandi í
blóði“ að sögn lögreglu.
Talsmaður Stallones sagði að leikarinn
hefði verið í New York við tökur á mynd-
inni „Cop Land“ þegar atvikið átti sér
stað. „Eina áhyggjuefni hans er
öryggi og velferð per-
sónunnar sem varð
fyrir árásinni,"
sagði tals-
maðurinn.
NOISELEZZ
PLASTGOMURINN
Gnístir þú
tönnum í svefni
eða hrýturðu?
NOISELEZZ gæti
orðið þín besta
fjárfesting.
NOISELEZZ fæst í
lyfjaverslunum.