Morgunblaðið - 21.07.1996, Síða 13
MORGUNB LAÐIÐ
DÆGURTONLIST
SUNNUDAGUR 21. JÚLÍ 1996 B 13
mPOTTÞÉTT-útgáfuröðin heldur
áfram af fullum krafti og fjórða
tvöfalda skífan í þeim flokkki kom
út fyrir skemmstu. A henni er að
finna safn 37 helstu laga síðustu
mánaða, lög sem er í þá mund að
verða vinsæl og lög sem verða
brátt vinsæl. Sem forðum eru ís-
lensk lög á diskunum tveim, að
þessu sinni Sumar nætur með
Stjórninni, Óhemja með Greifun-
um, Sometimes með, In Bloom og
Step Right Back með Mezzoforte.
Á fyrri plötunni er rokk og
popptónlist og þar eru lög Stjóm-
arinnar, Greifanna og In Bloom
innan um lög frá Oasis, Fool’s
Garden, Manic Street Preachers,
Blur, Suggs, Pulp, Skunk An-
ansie, Supergrass og Cran-
berries. Hin platan er lögð undir
danstónlist og þar er Mezzofor-
telagið, en þar er einnig að finna
ýmis erlend lög.
■MEÐvinsælustu safnplötum
síðustu ára hafa verið Islandslaga-
plöturnar, en fyrir skemmstu kom
út þriðja innlegg í þá röð. Um-
sjónarmaður er sem fyrr Björgvin
Halldórsson. Á íslandslögum 3
vélar Björgvin um með aðstoð
Jóns Kjells Seljeseths, en söngv-
arar eru Bergþór Pálsson, Einar
Júlíusson, Bjarni Arason, EgiII
Ólafsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Guðrún Gunnarsdóttir, Fóst-
bræður og Karlakórinn Heimir,
aukinheldur sem'Björgyin syngur
sjálfur nokkur lög. Lögin á Is-
landslögum 3 eru vel þekkt ís-
lensk lög í nýrri útgáfu, en útgáf-
an er öðrum þræði hugsuð fyrir
erlenda gesti og því fylgir í text-
bók skýringartexti á íslensku og
ensku þar sem tilurð og uppmna
hvers lags er getið.
■ SÍÐDEGISTÓNLEIKAR Hins
hússins hafa lífgað upp á Miðbæ-
inn í sumar. Lokaskammtur að
sinni verður næstkomandi föstu-
dag, en þá leika hljómsveitirnar
Brim og Fræbbblarnir, aukin-
heldur sem aðstandendur stefna
að viðbótaratriðum.
Sálin á
kreik
SÁLIN hans Jóns mín hefur ekki
verið mikið á ferðinni það sem af er
ári, lék síðast í janúarlok, en þá
hurfu af landi brott til búsetu er-
lendis tveir meðlimir. Sálarmenn
hyggjast þó koma saman í lok mán-
aðarins og spila á fimm miðnætur-
tónleikum, um verslunarmanna-
helgina og helgina þar á eftir.
Föstudaginn 2. ágúst leikur sveit-
in í Sjallanum Akureyri, laugar-
daginn 3. ágúst í Miðgarði Skaga-
firði, sunnudaginn 4. ágúst á Vopna-
firði. Síðan er fórinni heitið í höfuð-
borgina, og troðið verður upp í Ing-
ólfscafé fóstudagskvöldið 9. ágúst.
Síðustu tónleikarnir verða svo á
Hótel Selfossi laugardagskvöldið
10. ágúst. Ekki hyggjast Sálarmenn
senda frá sér nýtt efni á árinu, en
tónleikadagskráin byggist að venju
að mestu upp á framsömdu efni.
Alls er óvíst hvenær sveitin kemur
saman á ný.
Þess má geta að í tilefni tónleik-
anna stendur til að opna heimasíðu
Sálarinnar, þar sem verður að finna
ýmsan fróðleik um hljómsveitina.
Slóðin verður: http://www.is-
landia.is/salin.
Sálin hans Jóns míns tekur
upp fym iðju á miðnæturtón-
leikum verslunarmannahelgina og
helgina þar á eftir.
ÍSLENSKT pönk var varla til, úr
bresku pönkbylgjunni varð eins-
konar grásleppurokk hjá ís-
lenskum hljómsveitum, réttara
er að tala um íslenska rokk-
bylgju frekar en pönk. Á því er
þó ein veigamikil undantekning,
Fræbbblarnir, eina íslenska
pönksveitin, en Fræbblasafn-
plata með ýmislegu efni kom út
fyrir skemmstu og á föstudag
kemur sveitin saman að nýju.
Fræbbblarnir urðu til í Mennta-
skólanum í Kópavogi í lok átt-
unda áratugarins; héldu fyrstu
tónleikana í nóvember 1978, á
svonefndri Myrkramessu. I
fylgitexta með disknum nýút-
komna kemur fram að hljóm-
sveitinni hafi ekki verið ætlað
langt líf, en fyrir ýmsar sakir
ákváðu Fræbbblarnir að halda
áfram og liéldu áfram lengi enn,
spiluðu á grúa tónleika og gáfu
út nokkrar plötur, en þó ekki sé
til formlegt dánardægur sveitar-
innar má segja að hana hafi
þrotið örendi 1983.
Á disknum nýja, sem heitir Viltu
bjór væna, eru tvær fyrstu plöt-
urnar, Viltu nammi væna og
False Death, en einnig prufupp-
tökur af Bjór, tvö lög sem tekin
voru upp í Hljóðrita og tónleikar
úr Kópavogsbíói, samtals 38 lög.
Fjölmargir komu við sögu sveit-
arinnar á þessum árum, að sögn
ríflega fimmtán manns, en
kjarninn var skipaður fjórum,
Valgarði Guðjónssyni, Stefáni
Karli Guðjónssyni, Tryggva Þór
Tryggvasyni og Steinþóri Stef-
ánssyni. Þeir félagar hafa mikið
til haldið hópinn alla tíð, þó
Steinþór hafí látist syiplega fyr-
ir nokkrum árum, og komið við
sögu í sveitum eins og Fitlaran-
um á bakinu, Mamma var Rússi
og Glotti.
Fyrsta breiðskífa Fræbbblanna
kom út árið 1981, hét Viltu
nammi væna og vakti óhug
broddborgara og menntamanna-
klíkunnar. Hljómsveitin átti
reyndar aldrei upp á pallborðið,
þótti ekki nógu höll undir sósíal-
ískt raunsæi og þeir Fræbbblafé-
lagar féllu ekki að viðtekinni
skilgreiningu á pönkurum. Sveit-
armenn virtust þó kæra sig koll-
ótta, héldu sínu striki og sagan
hefur fellt sinn dóm; flest það
sem var á seyði á þessum tíma er
gleymt og grafið, en Fræbbbl-
arnir lifa, nú stafrænir.
Fræbblarnir koma saman á ný
til að kynna plötuna og fyrstu
tónleikarnir í þeirri kynningu
verða næstkomandi föstudag í
Rósenbergkjallaranum. Hljóm-
sveitirnar Unun og Q4U hita
upp.
v *<■
Eins-
konar
tiltekt
MIKIÐ líf er með rokkiðk-
endum suður með sjó og
skammt er síðan tvær
sveitir keflvískar sendu frá
sér breiðskífur. Önnur
þeirra heitir Texas Jesú og
þykir um margt sérstök.
Það er vandkvæðum bund-
ið að ná tali af sveitarmeð-
limum, því það er mikið um
að vera, en í ljós kemur að
tveir liðsmenn búa í
Reykjavík og þeir verða
fyrir svörum.
eir Texas Jesus félagar
segja að platan sé eins-
konar tiltekt, að koma út
gömlum lögum og nýjum.
Upptökur hófust suður með
sjó í febrúar, en inn á milli
eru eldri upptökur, sem
vora snyrtar iýrir útgáfuna.
Tónleikahald er hafið til að
kynna plötuna og sveitina
sem slíka, og þeir félagar
segja að sveitin sé prýðilega
virk, þó það hafi vissulega í
för með sér vissa erfiðleika
að tveir hljómsveitarmeð-
limir séu búsettir í Reykja-
vík, en aðrir í Keflvík. „Það
kemur oft fyrir að við nenn-
um ekki suðreftir til að æfa,
nema það sé eitthvað
framundan, tónleikar eða
upptökur." Þeir segja þó að
menn séu iðnir við að starfa
hver í sínu horni að sanka að
sér hugmyndum sem síðan
er steypt 1 eitt á næstu æf-
ingu, einskonar hliðræn
vinnsla. „Við erum líka að
semja fullt af nýjum lögum
og stefnum jafnvel að því að
gefa það út þegar fram líð-
ur.“
Skammt er síðan Texas
Jesú sneri heim úr tónleika-
ferð til Danmerkur og
Finnlands. „Okkur var af-
skaplega vel tekið í þessari
ferð og var meðal annars
boðið að halda tónleika í
Búdapest og við erum að
undirbúa það núna. Okkur
hefur líka boðist að spila á
tónlistarhátíð í Graa Hal í
Kristianíu í Kaupmanna-
höfn, þannig að það má seg-
ja að við séum að vinna úr
ýmsum samböndum sem
við komumst í úti.“
Texas Jesú hélt útgáfu-
tónleika í Þjkóðleikhús-
kjallaranum um þð leyti
sem platan kom út og næs-
tu tónleikar verða í Kátrý-
bæ á Skagaströnd næst-
komandi föstudag. „Okkur
langaði að spila fyrir ný
andlit,“ segja þeir félagar
glaðbeittir, en norður stefn-
ir Texas Jesú með annarri
Suðumesjasveit, Þusli.
Villtur Busta Rhymez
Villi-
mann-
legt
rapp
ÞEIR njóta ekki allir eldanna sem
fyrstir kveikja þá. Þannig er því
farið með Busta Rhymez sem þó er
að ná viðurkenningu fyrir störf sín
löngu eftir að þau voru unnin. Ekki
er gott að gera sér grein fyrir því af
hverju Busta er fyrst að ná hylli
núna, sex árum eftir að hann kom
fyrst fram á plasti, en kannski var
hann einfaldlega of villtur.
Eins og sjá má í bráðgóðu mynd-
bandi Busta Rhymez við íagið
frábæra Woo Hah! bindur hann
ekki bagga sína sömu hnútum og
samferðamennirnir. Ekki er bara
að rappið sé villt heldur er persónan
sjálf í meira lagi ski'autleg, sem hef-
ur líklega skyggt á tónlsta- og rapp-
hæfileikana.
Eins og áður er getið era sex ár
síðan Busta Rhymez lét fyrst í sér
heyra á plasti, en hann var þá liðs-
maður í Leaders of the New
School. Eftirminnilegastur er
hann þó fyrir þátttöku í Scenario A
Tribe Called Quest og enn um það
talað meðal rappvina. Þrátt fyrir
það hefur Busta Rhymez sjaldan
verið nefndur í upptalningu á
rapphetjum, en innvígðir þekkja
vel til kappans því hann hefur troð-
ið upp á plötum með ýmsum. Á
sinni fyrstu breiðskífu, The Com-
ing, og kom út fyrir skemmstu, fer
Busta eigin leiðir í villimannslegu
rappi, skrautlegu og bráð-
skemmtilegu aukinheldur sem
hann gefur bófarappklíkum langt
nef með því að undirstrika hve
fönkað rapp getur verið skemmti-
legt án þess að sífellt sé verið að
væla um byssur og dóp.
Morgunblaðið/Þorkell
Ferðbúin Texas Jésú í Þjóðleikhúskjallai’anum.
‘