Morgunblaðið - 24.07.1996, Síða 1
72 SÍÐUR B/C/D/E
166. TBL. 84. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Búrma og kjarnorkutilraunabann efst á baugi hjá Samtökum ríkja SA-Asíu
Herforingj astj órnin kveðst
ekki ætla að sitja til eilífðar
Djakarta. Reuter.
UTANRIKISRÁÐHERRAR frá 20
ríkjum og Evrópusambandinu
ræddu Búrma og kjarnorkumál á
fundi svokallaðs Svæðisvettvangs
samtaka ríkja Suðaustur-Asíu
(ARF eða ASEAN Regional For-
um) í Djakarta í gær. Fulltrúi
Burma kvað herforingjastjórn
landsins ekki ætla að sitja til eilífð-
ar, en lét ósagt hvenær hún hygð-
ist fara frá.
Warren Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna og Jevg-
ení Prímakov, utanríkisráðherra
Rússlands, tilkynntu eftir viðræð-
ur, sem áttu sér stað fyrir utan
Svæðisvettvang ASEAN að þeir
hefðu samþykkt að styðja mála-
miðiunarsamkomulag um kjarn-
orkutilraunabann og kváðust vona
að það yrði samþykkt í Genf í
næstu viku.
Hart lagt að Indverjum
Á fundinum var lagt hart að Ind-
vetjum að undirrita tilraunabannið.
Indveijar hafa krafist þess að tíma-
setning afvopnunar verði ákveðin
áður en tilraunabann tekur gildi.
I.K. Gujral, utanríkisráðherra Ind-
lands, sagði að málamiðlunarsam-
komulag Bandaríkjamanna og
Rússa breytti engu um afstöðu Ind-
veija.
Samkvæmt málamiðluninni
þurfa 61 þjóð, þar á meðal Indveij-
ar, að hafa undirritað bannið til
þess að það taki gildi.
Christopher hafði áður varað
starfsbræður sína við því á Svæðis-
vettvanginum að blóðbað væri yfir-
vofandi í Búrma ef ráðamenn þar
neituðu að endurskoða afstöðu sína
til lýðræðissamtaka Aung San Suu
Kyi, friðarverðlaunahafa Nóbels.
Búrma og Indland fengu inn-
göngu í ARF í gær og um helgina
fékk Búrma áheyrnaraðild að ASE-
AN.
Stjórnarskrárgerð borið við
Á ráðstefnunni fullvissaði Ohn
Gyaw, utanríkisráðherra Búrma,
viðstadda um það að herforingja-
stjórn Búrma hygðist víkja eftir að
hafa haft umsjón með gerð nýrrar
stjórnarskrár, þar sem gera ætti ráð
fyrir forseta og tveggja deilda þingi.
Samkvæmt heimildum Reuter-
fréttastofunnar mótmælti því eng-
inn að Búrma fengi að sitja ráð-
stefnuna, þótt óánægjukurr hafi
heyrst áður en hún hófst.
„Lýðræði er markmið, en ekki
skilyrði fyrir aðild,“ sagði Ali Alat-
as, utanríkisráðherra Indónesíu, á
blaðamannafundi eftir viðræðurnar
í gær.
Hann varði þá stefnu að eiga
skipti við Búrma og sagði að það
myndi ekki hafa tilætluð áhrif að
einangra landið eða koma ráða-
mönnum þess „í vandræði" með
opinberum ásökunum.
■ Efasemdir um aðild/14
ETA-leið-
togi hand-
tekinn
Pau í S-Frakklandi. Reuter.
EINN af þremur æðstu mönn-
um í hryðjuverkasamtökum að-
skilnaðarsinnaðra Baska, ETA,
gekk í gær í greipar franskra
lögreglumanna. Handtakan var
árangur samvinnu frönsku og
spænsku lögreglunnar.
Julian Achurre Egurola,
þekktur sem „Pototo“, myndaði
ásamt tveimur öðrum fram-
kvæmdaráð ETA og var yfir
vopna- og þirgðaskipulagi sam-
takanna. Á handtökustaðnum,
sveitabæ í S-Frakklandi, fund-
ust miklar vopnabirgðir auk raf-
einda-heimilisfangabóka og inn-
siglis ETA.
Síðar i gær handtók franska
lögreglan fimm menn á hóteli í
úthverfi Parísar, sem grunaðir
eru um aðild að ETA. Einn
þeirra var talinn „sérstaklega
virkur og hættulegur".
Búrúndí
Þúsundir
hútúa
fluttir
nauðugir
B«jumbura,Genf,Bugendana.Reuter.
HER Búrúndí hélt áfram af auknum
ákafa í gær að flytja hútú-menn,
flóttafólk frá nágrannaríkinu Rú-
anda, nauðuga aftur yfir landamær-
in. Ráðherra í ríkisstjórn Búrúndí
lýsti því yfir í gær, að ákveðið hefði
verið að flytja á einni viku 85.000
flóttamenn sem dvalið hafa í flótta-
mannabúðum í Norður-Búrúndí aftur
til heimalandsins. Flóttamennirnir
óttast þó fátt annað meira, þar sem
þeir eru hræddir um að tútsíar í
Rúanda, sem hafa tögl og hagldir í
stjórnkerfi og her landsins, láti
hefndarvilja fyrir þjóðarmorðið frá
1994 bitna á öllum hútúum.
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna hvatti stjórnvöld bæði í
Búrúndí og Rúanda eindregið til að
hætta nauðungarflutningum flótta-
mannanna, þeir væru alvarlegt brot
á mannréttindum. I gærkvöldi féllst
Búrúndístjórn loks á að gera hlé á
flutningunum, en þá höfðu samtals
um 15.000 flóttamenn verið fluttir
yfir landamærin frá síðasta föstu-
degi.
Forsetinn grýttur
Útför fórnarlamba morðárásar-
innar, sem gerð var á flóttamanna-
búðir tútsí-manna í Bugendana í
Mið-Búrúndí um helgina, fór fram
í gær. Forseti Búrúndí, Sylvestre
Ntibantunganya, varð frá að hverfa
er hann reyndi að vera viðstaddur
útförina. Æstur múgur tútsí-manna
lét gijóti, leir og öðru lauslegu rigna
yfir forsetann, sem er af hútú-ætt-
bálki, og föruneyti hans er hann
hafði stigið út úr þyrlu sem flutti
hann á staðinn. Forsetinn neyddist
til að forða sér.
e Reuter
VEGFARENDUR um strönd Long Island ganga hjá litlum minn-
isvarða um fórnarlömb flugslyssins, sem varð 230 manns að bana.
Efnaleifar á flakinu
Washington. Reuter.
LEON Panetta, skrifstofustjóri
Hvíta hússins, greindi frá því í gær
að leifar af efnum hefðu fundist
á flaki þotu flugfélagsins TWA er
fórst skömrnu eftir flugtak frá
New York í síðustu viku.
Panetta sagði að verið væri að
greina þessi efni nánar á rann-
sóknarstofu alríkislögreglunnar
FBI og að niðurstöður myndu
liggja fyrir innan skamms.
Rannsóknarmenn hafa leitað að
efnaleifum er gætu gefiö til kynna
að sprengja eða flugskeyti hafi
grandað vélinni. Aðspurður um
líkurnar á því að hryðjuverka-
menn hefðu verið að verki sagði
Panetta: „Vandinn er að áður en
greiningin liggur fyrir er erfitt
að komast að þeirri niðurstöðu.“
Annar talsmaður vildi draga úr
vangaveltum um að sprengja hefði
grandað þotunni. Kafarar sögðust
í gær hafa fundið hluta úr þotunni
á hafsbotni þar sem væri að finna
lík 60-100 fórnarlainba til viðbótar.
■ Sjóherinn sendir/15
Israelskur ráðherra hittir Arafat
Komist að sam-
komulagi um
nánari samskipti
Beit Hanoun, Gazaströndinni. Reuter.
YASSER ARAFAT, forseti sjálf- -----
stjórnar Palestínumanna, og_ David
Levy, utanríkisráðherra ísraels,
greindu frá því í gær að þeir hefðu
komist að samkomulagi um frekari
samskipti ísraela og Palestínu-
manna í því augnamiði að halda
áfram friðarumleitunum fyrir botni
Miðjarðarhafs.
Levy kom í gær til fundar við
Arafat á Gaza og var það í fyrsta
sinn sem ráðherra í ríkisstjórn Benj-
amins Netanyahus, nýkjörins for-
sætisráðherra Israels, hitti Palest-
ínuleiðtogann að máli.
Fundurinn stóð í rúmlega hálfa
aðra klukkustund og að honum
loknum áttu Arafat og Levy fund
með fréttamönnum, þar sem þeir
tókust í hendur og brostu fyrir
myndavélarnar. Hvorugur gaf til
kynna að þáttaskil hefðu orðið á
fundinum, en þeir voru sammála
um að hann hefði verið mikilvægur.
„Við höfum afráðið að þessum
samskiptum verði haldið áfram á
öllum stigum svo að við getum hald-
ið friðarumleitunum áfram á öllum
stigum,“ sagði Arafat við frétta-
menn. Hann kvaðst hafa beðið fyr-
ir skilaboð til Netanyahus.
„Við ákváðum að koma föstu
formi á samskipti okkar og skapa
viðeigandi ramma til þess að grann-
skoða málefnin og þoka þeim
áfram,“ sagði Levy að fundinum
loknum.
Friðarviðræður milli ísraela og
Palestínumanna hafa legið niðri frá
því Netanyahu var kjörinn forsætis-
ráðherra 29. maí. Netanyalui hefur
lýst sig andvígan því að ísraelar
láti af hendi land í skiptum fyrir
Reuter
DAVID LEVY, utanríkisráð-
herra ísraels, og Yasser Ara-
fat, leiðtogi Palestínumanna,
takast í hendur að loknum
fundi með fréttamönnum á
Gaza í gær.
frið við nágrannalönd sín. Hefur
þessi stefna forsætisráðherrans
valdið hörðum viðbrögðum araba-
leiðtoga.
Arafat bjartsýnn
Arafat var spurður hvenær hann
vænti þess að ísraelsmenn létu
verða af því að kalla herlið sitt frá
borginni Hebron á Vesturbakkan-
um og hvenær þeir myndu standa
við skuldbindingar sínar samkvæmt
bráðabirgðasamkomulagi þeirra við
Palestínumenn. „Innan skamms,"
svaraði Arafat.
Háttsettur, palestínskur embætt-
ismaður tjáði fréttastofu Reuters
að Levy hefði samþykkt að gera
tillögu um hvenær ráðgjafanefnd
kæmi saman, en hún átti síðast
fund fyrir fimm mánuðum.