Morgunblaðið - 24.07.1996, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 24.07.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996 7 FRÉTTIR Menning- arnótt haldin í Reykjavík HUGMYND að menningarnótt í Reykjavík þann 18. ágúst næst- komandi í tengslum við 210 ára afmæli Reykjavíkurborgar, hefur verið kynnt í borgarráði. Áætlaður heildarkostnaður er 1,1 milljón króna. í erindi ferðamálafulltrúa Reykjavíkurborgar til borgarráðs kemur fram að tilgangurinn með menningarnótt er að bjóða borg- arbúum og erlendum ferðamönnum upp á ýmiskonar menningarvið- burði næturlangt eða frá miðnætti fram til klukkan 5-6 að morgni. Hugmyndin er að gallerí, söfn, kaffihús, veitingastaðir, bókaversl- anir og hugsanlega fleiri hafi opið þessa nótt og standi fyrir mynd- listarsýningum, tónleikum, upp- lestri, leiklist og fleira. Skilyrði þess að veitingastaðir fái að hafa opið lengur en venjulega er að þeir bjóði upp á dagskrá sem falli að þessum hugmyndum. Menning fyrir alla fjölskylduna Áhersla verður lögð á að ekki verði alsherjar ölvun þessa nótt heldur verði um að ræða menn- ingarviðburð fyrir alla fjölskylduna. Gert er ráð fyrir að mynduð verði verkefnisstjórn en tekið er fram að hlutverk borgaryfirvalda verði fyrst og fremst að samræma að- gerðir, auglýsa dagskrá og greiða götur þeirra sem vilja taka þátt í verkefninu. Borgin muni ekki standa fyrir atburði í eigin nafni en gert er ráð fyrir að menningar- nóttin verði sett í Tjarnarsal Ráð- hússins. Morgunblaðið/Sigurgeir Eistar keppa við ÍBV í Eyjum Evrópumót í brids hálfnað Island í 6. sæti ÍSLAND var í 6. sæti eftir 11 umferðir á Evrópumóti bridsspilara 25 ára og yngri en^mótið er nú hálfnað. íslenska liðið vann Júgó- slava 23-7 í fyrsta leik gær- dagsins. í 10. umferð á mánu- dagskvöld vann ísland Tékk- land 21-9 en tapaði fyrir Þjóðveijum í 9. umferð, 13-17. Norðmenn efstir Eftir 11 umferðir voru Norðmenn efstir með 222 stig, Danir höfðu 219 stig í 2. sæti og Pólveijar 215 stig. Þá komu ísraelsmenn með 214 stig, Rússar með 193 stig og Islendingar með 189 stig. EISTNESK þota frá flugfélag- inu Enimex lenti á flugvellinum í Vestmannaeyjum í gærmorg- un með knattspyrnuliðið Lant- ana frá Tallin innanborðs. Þotan er sú stærsta sem lent hefur í Eyjum, að sögn Einars Steingrímssonar, flugvallar- stjóra, og tókst lendingin vel. Liðið spilaði við ÍBV í Eist- landi í liðinni viku og munu liðin leika annan leik í Eyjum í dag. Bágt atvinnuástand á Þingeyri Margir íhuga að flytja brott ísafirði. Morgunblaðið. SVO virðist sem margir Þingeyr- ingar íhugi alvarlega að flytjast búferlum frá staðnum vegna bágs atvinnuástands. Að minnsta kosti sex fjölskyldur eru alvarlega að hugsa sér til hreyfings og hafa auglýst fasteignir sínar til sölu. Frystihús Kaupfélags Dýrfirð- inga hefur boðað sumarlokun frá og með næstu mánaðamótum og eru margir efins um að fyrirtækið opni að nýju í þeirri mynd sem verið hefur undanfarin ár. Því verði atvinna ekki næg á staðnum á komandi hausti og Þingeyringar verði því að leita sér að vinnu í nágrannabyggðarlögunum eða flytjast á brott frá Vestfjörðum. Ekið til og frá vinnu Að minnsta kosti sex starfs- menn frystihússins hafa ráðið sig í vinnu hjá Kambi hf. á Flateyri frá og með mánaðamótunum og mun fyrirtækið Allrahanda hf. sjá um að aka fólkinu til og frá vinnu og greiðir Kambur farið niður. Nokkrar fjölskyldur hafa þeg- ar flutt frá Þingeyri á þessu ári og gæti íbúum staðarins því fækkað um nokkra tugi áður en árið líður ef svo heldur fram sem horfir. Korpúlfsstaðir Breytt fyrir 39 milljónir BORGARRÁÐ hefur samþykkt til- lögu að breytingum á austurálmu Korpúlfsstaða og súrheysturnum. Áætlaður heildarkostnaður er 39 milljónir króna. í tillögunni er gert ráð fyrir að súrheysturnar verði látnir standa áfram í fullri hæð og að millibygging við þá verði lagfærð þannig að nota megi þak hennar sem útsýnissvalir frá annarri hæð. Fram kemur að framkvæmdir hefjist á þessu ári en í fjárhagsáætl- un ársins 1996 er gert ráð fyrir að veija 15 millj. tii endurbóta á aust- urálmu. Bent er á að framkvæmdum megi skipta á þijú ár eða fram til ársins 1998. -----» » 4----- Grjót hrundi á verkamann í Hvalfjarð- argöngum VERKAMAÐUR í Hvalfjarðar- göngunum slasaðist lítilsháttar þeg- ar gijót hrundi á hann í göngunum í gærdag. Maðurinn var að losa laust gijót í lofti ganganna með járnverk- færi eftir sprengingu þegar u.þ.b. 600 kg hnullungur lenti á mjöðm hans og fótum. Maðurinn var fluttur með sjúkra- bíl á slysadeild Sjúkrahúss Reykja- víkur þar sem hann gekkst undir rannsókn. Hann reyndist óbrotinn en marinn og fékk að fara heim af sjúkrahúsinu skömmu síðar. Jóhann Kröyer, öryggisvörður Fossvirkis í Hvalfjarðargöngum, sagði að svokölluð „skrotun", þegar laust grjót er losað úr berginu eftir sprengingu, sé eitt hættulegasta starfið í jarðgöngunum. STÓRKOSTLEG VERÐLÆKKUHI Á n/iFTnni # i ífppahim in/t- /l iwMaZ M mmMrnJmmtm./i.mmZM t smiwlLJIwMm SVITARA 3d. JLX - nú aðnins 1.675.000,- hr. 5d. JLX - nú aðeins 1.340.000,- hr. 5d. VE - nú aðnins S.33Q.OOO,- kr. SUZUKIBÍLAR HF Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími 568 51 00. HELSTISTAÐALBÚNAÐUR SUZUKIVITARA: Drifbúnaður: Hátt og lágt drif, framdrifslokur. Öryggi: Öryggisloftpúðar fyrir ökumann og framsætisfarþega • Styrktarbitar í hurðum • Barnalæsingar • Stillanleg aðalljós úr ökumannssæti. Þægindi: Vökvastýri • Samlæsingar á hurðum • Rafstýrðir útispeglar • Upphituð framsæti • Bensínlúga opnanleg úr ökumannssæti • Þrívirk inniljós og kortaljós • Tvískipt fellanlegt aftursætisbak • Útvarp með segulbandi. Styrkur: Vitara er með sterkbyggða sjálfstæða grind, sem auk gormafjöðrunar á öllum hjólum gerir auðvelt að hækka bilinn upp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.