Morgunblaðið - 24.07.1996, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.07.1996, Blaðsíða 19
t MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996 19 LISTIR Lögmálið og fagnaðarerindið BÆKUR Guðfræði HVER ER JESÚS? OG TVEIR LESTRAR UM LÚTHER Siguijón Ami Eyjólfsson: Hver er Jesús? Fimm greinar um nútíma hugmyndir um Jesús frá Nazaret. Skálholtsútgáfan 1996. Sami höfund- ur: Tveir lestrar um Lúther. Reiði Guðs í guðfræði Marteins Lúthers og Wemers Elerts; Lúther, bænin og við. Rannsóknarritgerðir Guð- fræðistofnunar. Háskóli Islands, 1996. FYRIR tveimur árum kom dokt- orsritgerð séra Siguijóns Árna Eyjólfssonar út í þekktri alþjóð- legri ritröð um rannsóknir í lút- herskri guðfræði Arbeiten zur Geschichte und Theologie des Lut- hertums, Neue Folge, Band 10, Lutherisches Verlagshaus, Hanno- ver, og heitir hún: „Rechtfertigung und Schöpfung in der Theologie Werners Elerts. Það telst mikil við- urkenning að fá slíkar'~ritgerðir birtar í þessari ritröð, en Sigurjón, sem varði ritgerðina árið 1991 við guðfræðideild háskólans í Kiel hafði endurunnið hana að hluta til undir prentun. Siguijón hefur auk doktorsrit- gerðar sinannar gefið út umtals- verðan fjölda ritgerða í tengslum við fræðasvið sitt bæði í íslenskum og erlendum tímaritum. Nýlega komu út eftir hann Tveir lestrar um Lúther í rannsóknaritröð Guð- fræðistofnunar HÍ og bók um myndir sem dregnar eru upp af Jesú af hinum ýmsu heimspeki- og guðfræðistefnum sem hafa haft mótandi áhrif í sögu og samtíð. Sigurjón hefur verið stundakennari við guðfræðideild Háskóla íslands og nú um tveggja ára skeið hefur hann verið héraðsprestur í Reykja- vík. Það er sjaldgæft að íslenskir guðfræðingar kafi djúpt í trúfræði- leg vandamál án þess að viðfangs- efnið verði um leið einnig sögulegt eða kirkjufræðilegt. Styrkur Sigur- jóns liggur tvímælalaust í því að hann hefur valið sér að viðfangs- efni eitt meginvandamál í guðfræði mótmælenda sem er eðli og ein- kenni lögmálsins og þær forsendur sem lögmálið er fyrir fagn- aðarerindi kristinnar trúar um Krist uppris- inn frá dauðum. Þetta viðfangsefni snertir að sjálfsögðu siðfræðina og boðun fagnaðarer- indisins enda hefur Siguijón komið inn á siðfræðileg viðfangs- efni og predikunar- fræði í greinum sínum. I lestrinum um reiði guðs og predikunar- fræði í *guðfræði Lút- hers og Werners El- erts er Siguijón greinilega á heimavelii sem sér- fræðingur. Hann vegur og metur lögmálshugtakið og réttlætingu í guðfræði mótmælenda og sýnir fram á sérstöðu Werners Elerts. Hann rifjar í stuttu máli, en á hnitmiðaðan hátt, upp fræðilega og persónulega glímu Lúthers við guð og réttlætinguna og bendir á hvaða afleiðingar niðurstöður hans hafi haft fyrir skilning Lúthers á stöðu mannsins frammi fyrir guði. Það er trúin ein en hvorki verk eða veruleikar mannsins sem veita hon- um aðgang að náð kærleiksríks guðs sem Lúther þráði að eignast. Athyglisvert er að sjá hve stutt er í fyrirhugunarkenningu Kalvins þegar þessi póll er tekinn í hæð- ina, en trú og traust Lúthers á fórnarverki Krists á krossinum og birtingu kærleika guðs í henni ger- ir að Lúther hafnar fyrirhugunar- kenningu Kalvins. Sértæk trúfræði með þeim tök- um sem Siguijón temur sér í fyrri lestri sínum um Lúther er ýmist náskyld teóretískri stærðfræði eða sálgreiningarkerfi Sigmundar Fre- uds. Talið um erfðasyndina á sér ýmsar hliðstæður í umfjöllun Fre- uds um frumhvatir undirmeðvit- undarinnar og átök þess við sjálf- ið. Það getur ekki verið nein goðgá að nefna Freud og Feuerbach um ieið og Werner Elert. Sá síðast- nefndi gerir mikið úr hinu ægilega hlutverki lögmálsins yfir samvisku hans sem sýnir honum hversu gjör- samlega hann er vanmáttugur sjálfur og nakinn þegar hann nálg- ast miskunn guðs. Guðfræði hans Sigurjón Árni Eyjólfsson er mótuð af persónu- legri reynslu hans af tveimur styijöldum. Sem ungur prestur var hann sálusorgari þýskra hermanna í fremstu víglínu fyrra stríðsins. Ógnir seinna stríðsins fóru ekki fram hjá honum, en hann mætti þeim með trú sinni og lifði þær af. Hann taldi sig sjá náð guðs í því þegar hann fékk skilaboð um dauða tveggja sona sinna á vígvellinum, einnig þegar hús hans var sprengt í loft upp og nasistar ráku hann á vergang, en hann hafði leyft sér að gagn- rýna Hitler. Ritgerðin um reiði guðs er vart við hæfi almenns lesanda, því það þarf grundvallarþekkingu í trúfræði og heimspeki til að tileinka sér hana. Lesturinn um bænina er auð- veldari og mjög merkt framlag til guðfræðilegrar umræði hér á landi þar sem einn þriðji hluti þjóðarinnar biður til guðs daglega eða því sem næst samkvæmt könnun Guðfræði- stofnunar. Hér er komið að grund- vallaratriði sem ekki aðeins snertir fræðilega umræðu heldur einnig trúarlífið og trúaruppeldi. í þessum lestri tengir höfundur reynslu og kenningu Lúthers við nútímann og sýnir fram á hve mikið Lúther hef- ur að segja í nútímalegri guðfræði, enda var hann að beijast við kerfis- bákn síns tíma sem gekk mun nær sálinni en sá kapitalismi sem við kvörtum undan. Bænin er hjartsláttur trúarinnar. Án bænarinnar þrífst engin trú og Jesús sá til þess að lærisveinarnir hefðu eina bæn að grípa til ef þá skorti sjálfa orð frammi fyrir guði. Bænin byggist alltaf á orði þó svo að hún þurfi ekki alltaf að vera í orðum. Segja má að lögmálið þvingi manninn til bænar á sama hátt og það vekur hjá honum samviskubit (sb. annað hlutverk lögmálsins). Nútímamaðurinn er þjakaður af samviskubiti án þess að vita af hveiju. Islendingum hættir til að taka ekki mark á öðrum guði en þeim sem er góður og kærleiksrík- ur, en bæði Lúther og Elert vissu „Vinsælar melódíur" TONLIST Hallgrímskirkja ORGELTÓNLEIKAR Janette Fishell og Colin Andrews fluttu einleiks- og samleiksverk á orgel. Sunnudagurinn21.júlí, 1996. SAMLEIKUR á orgel er trúlega ekki algengur viðburður, enda fátt til af tvíleiks tónverkum fyrir orgel. Janette Fishell hefur bætt úr þessu með því að umrita fræg verk og var fyrsta viðfangsefni tónleikanna fyrsti þátturinn úr þriðja Brandenburgar konsertin- um eftir J.S. Bach. Þrátt fyrir að slíkar umritanir fylgi vel frum- gerðinni er oftar að umritunin verði aðeins fölslegin eftirmynd, því tónsmíð er sá galdur, að hug- mynd og útfærsla er í raun eitt, skapað inn í ákveðið umhverfi. Þrátt fyrir þetta var útfærslan á þriðja Brandenburgar konsertin- um ekki óáheyrileg og var að mörgu leyti skemmtileg áheyrnar og það sem meira er, trú fyrir- myndinni. Colin Andrews lék einn Prelúd- íu og fúgu í G-dúr eftir J.S. Bach og Tokkötu og fúgu eftir Hubert Parry. Bach verkið var þokkalega flutt en tokkatan eftir Parry mun betur, þó þessi rómantíska og ofhlaðna tónlist eftir Parry sé ekki skemmtileg áheyrnar og fúg- an í raun hljómbundin í meira lagi, svo að form hennar er ákaf- lega óljóst. Janette Fishell lék nokkur nú- tímaverk, effektaútfærslu eftir William Álbright (1944), banda- rískt tónskáld, sem hann nefnir Chimaera og er Kimera þessi eldspúandi ófreskja, ljón að fram- an, geit í miðju og afturhlutinn dreki. Samkvæmt grísku goð- sögninni var þessi ófreskja drepin af fríðleikshetjunni Bellerófon, öðru nafi Hipponoos, og naut hann til þess aðstoðar af vængja- liestinum Pegasusi, sem er sagður hafa fæðst úr strúpa Medúsu. Orðið Chimera er einnig notað yfir ímyndaða ófreskju og má vera að svo hafi verið túlkunar- ætlan höfundarins. Tvö verk eftir Dan Locklair (1949), frá Norður-Karolínu, voru næst á efnisskránni. Þetta eru tveir þættir úr verki, sem nefnist Rubric og mun þar átt við rauð- letruð og skrautleg messufyrir- mæli. Fyrra verkið nefnist The peace may be exchanged, eins konar friðarpípuskipti og The pe- ople respond - Amen, sem á að merkja gleði kirkjugesta. Fyrra verkið er sætt ferhljómaverk, er var fallega raddskipað, og það síðara er þrástefja samsetningur, þar sem frekar lítið er til að gleðj- ast yfir, jafnvel þó verkið væri . ágætlega og hressilega flutt. Skemmtilegasta verk tónleikanna var passakalia eftir Petr Eben úr verki er nefnist Job og var þar einnig mjög vel flutt af Janette Fishell, er lauk ágætum einleik sínum með rómantísku ofhlæðis- verki eftir Marcel Dupré. Tvíleiksverkin um miðbik tón- leikanna og í lokin eru fremur ókræsilegur samsetningur fyrir orgel og hugsanlega til komin til að gleðja kirkjugesti með „vinsæl- um melódíum“. Til þessa brúks hefur Janette Fishell sótt í Hnotu- brjótinn eftir Tsjajkovskíj og svallveislusenuna úr Samson og Dalila, eftir Saint-Saéns. Þrátt fyrir ágæt vinnubrögð og jafnvel þokkalegan leik, er slík umritun í raun óvirðing við drottningu hljóðfæranna, orgelið, er státar af einu stærsta og innihaldsmesta tónbókasafni tónlistarsögunnar og ef á að gera eitthvað nýtt, þá er því til að svara, að umritun tónverka getur sjaldan birt ný sannindi, nema í höndum snill- að hinn huldi guð slær til hægri og vinstri og þess vegna og aðeins þess vegna var aðeins hægt að finna grið hjá hinum krossfesta og upp- risna. Þetta leiðir okkur að spurning- unni: Hver er Jesús? Svarið við þessari spurningu er ekki trúverð- ugt nema að vald hins hulda guðs og réttlætishugtakið sé tekið með í reikninginn. Líf Jesú er lykillinn að óhjákvæmilegu uppgjöri milli hins hulda guðs og mannsins. I þessu uppgjöri varð óvænt niður- staða sem er sú að guð er kærleiks- ríkur. En mismunandi hugmynda- fræði guðfræðistefnunnar sem komið hafa fram í tvö þúsund ár svara spurningunni um Jesú á ólík- an hátt. í greinasafni sínu fjallar Siguijón á aðgengilegan hátt um margar þeirra. Hann greinir frá hugmyndum Gyðinga, Farisea, Ess- ena og Selota um Jesú. Einnig er gerð grein fyrir hugmyndum húm- anista, marxista og játningum kirkjunnar um Jesú. Þá er fjallað um skilning frjálslyndu guðfræð- innar og kenningar helstu guðfræð- inga þessarar aldar, Karls Barths og Rudolfs Bultmanns. Framsetning Siguijóns í fyrir- lestrunum er allt önnur en í Lestr- unum um Lúther, enda hefur höf- undur í fýrra tilfellinu í huga að koma efninu til skila til áhuga- samra lesenda sem ekki eru guð- fræðimenntaðir. Þetta hundrað síðna kver væri alveg kjörið til að setja í hendurnar á menntaskóla- nemum sem þótt ótrúlegt sé fá enga fræðslu í kristinni trúfræði hér á landi. Barnatrú og biblíusögur eru góðar fyrir börn en það er firra að halda að ungt fólk þurfi ekki að glíma við guð og leita Krists eftir að það er farið að hugsa full- komlega rökrétt. Skólakerfið hefur að þessu leyti brugðist skyldu sinni í áratugi og mál til komið að skóla- yfirvöld geri sér grein fyrir því að menning og samfélag byggist á kristnu gildismati sem trúfræðin skoðar og greinir á kerfisbundin hátt. Skólinn er sú stofnun sem að verulegu leyti flytur þetta gildismat milli kynslóða. Hér er ekki átt við innrætingu heldur faglega kennslu og fræðslu um grundvallaratriði mannlegra samskipta, samfélags og sögu. Dr. Siguijón Árni er bæði fræði- maður og kennimaður. Það er full ástæða til að óska þjóðkirkjunni til hamingju með slíkan starfskraft. Pétur Pétursson Við blöndum litinn... DU PONT bílalakk notað af fagmönnum um land allt. Er bíllinn þinn grjótbarinn eða rispaður ? DU PONT lakk á úðabrúsa er meðfærilegt og endingargott. Faxafeni 12. Sími 553 8000 'm/snúningi m/snúningi Heimilistæki hf TÆKNt-OG TÖLVUDEILD SÆTÚNI 8 SÍMI 56915 00 umboðsmenn um land allt ■ ínga. Jón Ásgeirsson Ef þú átt LAZY-BOY hægindastól eru þér allir vegir færir! Enginn annar hægindastóll á markaðnum er jafn þægilegur og LAZY-BOY. Komdu og prófaðu þennan frábæra stól sem fæst í mörgum gerðum, stærðum, áklæðalitum og leðri. Mundu bara að LAZY-BOY fæst aðeins í Húsgagnahöllinni. Verð frá kr. 34.580,- í ákl. HÚSGAGNAHÖLLIN Bildshófði 20-112 Rvik - S:587 1199

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.