Morgunblaðið - 24.07.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.07.1996, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Félagsmálaráðherra og borgarstjóri gera samstarfssamning um stofnun Vinnuklúbbs Aðgerðir gegn lang- tíma atvinnuleysi SAMSTARFSSAMNINGUR um að hjálpa atvinnulausum að fá vinnu var undirritaður í gær. F.v.: Kristín Árnadóttir, aðstoðar- kona borgarstjóra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, Páll Pétursson, félagsmálaráðherra. NÝ ÚRRÆÐI í atvinnumálum er heitið á tilraunaverkefni sem fé- lagsmálaráðuneytið og Reykjavík- urborg hafa hleypt af stokkunum. Markmiðið er „að hjálpa fólki sem lent hefur í vítahring langtímaat- vinnuleysis til þess að komast út á vinnumarkaðinn að nýju,“ eins og segir í samstarfssamningi sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Páll Pétursson fé- lagsmálaráðherra undirrituðu í gær. Verkefnið hefst 1. ágúst næst- komandi og á að standa í eitt ár. Að loknum þriggja mánaða undir- búningstíma er hugmyndin að koma á fót svonefndum Vinnu- klúbbi fyrir fólk í atvinnuleit. Á þriggja vikna fresti verður myndað- ur 15 manna hópur atvinnulausra sem leitar skipulega í þijár vikur að vinnu með aðferðum Vinnu- klúbbsins. Þessi aðferð er að er- lendri fyrirmynd og hefur víða gef- ið góða raun. Þar hafa 62-95% þátttakenda fengið atvinnu. Langtímaatvinnulausum fjölgar Undanfama 12 mánuði hefur tæplega þriðjungur fólks á at- vinnuleysisskrá verið samfellt á skrá í 26 vikur eða lengur. Lang- tímaatvinnulausir eru því 900- 1.000 einstaklingar í Reykjavík. Þeim fjölgar sífellt sem verið hafa atvinnulausir í heilt ár eða lengur. í febrúar í fyrra voru það 240 ein- staklingar, eða_ 7% skráðra at- vinnuleysingja. í lok febrúar í ár var þetta hlutfall komið í 13%, þá höfðu 480 einstaklingar verið án atvinnu í ár eða lengur. Heildarkostnaður við þetta verkefni er áætlaður 14,9 milljónir og verður framlag Reykjavíkur- borgar 5,4 milljónir á verkefnis- tímanum. Félagsmálaráðuneytið leggur 5 milljónir til verkefnisins í ár og mun beita sér fyrir áfram- haldandi fjárveitingum til þess á næsta ári. Gæti sparað 70 milljónir á ári Miðað við að 60% þátttakenda hér fái vinnu á 9 mánuðum eru það 110 einstaklingar. Væru þeir allir með fullan bótarétt spöruðust 70 milljónir króna í atvinnuleysis- bætur á ársgrundvelli. Myndaður var vinnuhópur um stofnun og starfrækslu Vinnu- klúbbsins. í honum sitja Áslaug Friðrksdóttir vinnusálfræðingur og Árni Gunnarsson, aðstoðar- maður félagsmálaráðherra, fyrir hönd félagsmálaráðuneytis og Oddrún Kristjánsdóttir, fram- kvæmdastjóri Vinnumiðlunar og Róbert Jónsson, framkvæmda- stjóri Atvinnu- og ferðamálastofu, fyrir hönd Reykjavíkurborgar. ísafoldarprentsmiðja Kassagerðin kaupir 35% hlut KASSAGERÐ Reykjavíkur hf. hefur keypt 35% hlut í ísafoldarprent- smiðju af Fijálsri fjölmiðlun hf. Fijáls fjölmiðlun átti 100% hlutáfjár í prentsmiðjunni og verður því eftir sem áður meirihlutaeigandi hennar með 65% hlutafjár. ísafoldarprentsmiðja var stofnuð í núverandi mynd árið 1994 við sam- einingu Prentsmiðjunnar ísafoldar, Prentsmiðju Fijálsrar fjþlmiðlunar og Prentsmiðju Hilmis. í frétt frá Fijálsri fjölmiðlun og Kassagerðinni segir að ísafoldarprentsmiðja hafí náð því að verða næst stærsta prent- smiðja landsins í hefðbundnu prent- verki á þeim 20 mánuðum, sem liðn- ir eru frá stofnun hennar í núver- andi mynd. Eigendur prentsmiðjunn- ar stefni að því að veija þennan sess og skila gæðaverki á samkeppn- ishæfu verði. „Síauknar kröfur um verð og gæði hafa valdið því að margar prentsmiðjur hafa lagt upp laupana. Mikilvægt er að spoma við því að það skapist óæskilegar markaðsað- stæður í greininni og ekki síður að hægt verði að veijast sívaxandi sam- keppni á íslenskum prentmarkaði erlendis frá,“ segir í fréttinni. Kristján Jóhann Agnarsson, fram- kvæmdastjóri Kassagerðarinnar, segir að með kaupunum vilji fyrir- tækið auka framleiðslugetu sína á sviði prentunar en það hefur hingað til aðaliega sinnt framleiðslu og prentun á pappírsumbúðir. FASTEIGNA MARKAÐURINN ehf ÓÐINSGÖTU 4. SlMAR 551-1540. 552-1700. FAX 5620540 % Ljósaland Vandað 137 fm endaraðhús á einni hæð, ásamt 24 fm bílskúr. Saml. stofur. Arinn, 36 fm timburverönd, 3-4 svefnherb. Bílastæði við inngang. Hitalagnir við innkeyslu. Góð eign FASTEIGNAMARKAÐURINN ehf ; ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540- Nýkomnar á skrá - til sýnis og sölu: Suðuríbúð - útsýni - úrvalsstaður Skammt frá Ármúlaskóla glæsileg 2ja herb. íbúð á 2. hæð um 60 fm. Stór stofa. Sólsvalir. Sérhiti. Parket. Ágæt sameign. Stór lóð. Verð aðeins kr. 5,7 millj. Fyrir smið eða laghentan Sólrík 3ja herb. íbúð á 2. haeð tæpir 80 fm. Nýlegir gluggar og gler. Gömul snyrtileg innrétting. Góð sameign. Gott verð. Tilboð óskast. Sérhæð - Hólmgarður - lækkað verð Mjög góð og sólrík 3ja herb. efri hæð um 80 fm í tvíb. Allt sér. Út- sýni. Gott geymslu- og föndurris fylgir. Vinsæll staður. Nokkrar 2ja og 3ja herb. ódýrar íbúðir Meðal annars við: Barðavog - Meistaravelli - Hjallaveg - Barónsstíg - Njálsgötu og Hraunbæ. Nokkrar með góðum lánum. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga. ALMENNA Fjársterkir kaupendur óska eftir sérhæðum og íbúðum _____________________ miðsvæðis í borginni. UU6aVE6l18S. 55Z 1150-552 1370 FASTEIGNASALAN Vatnsleysi háir veiðiskap MENN hafa verið að fá’ann og þá væna í Svalbarðsá. Örn Helgason er til vitnis um það með boltana sína tvo, 16 og 17 punda. ENN fer vatn þverrandi í laxveiði- ám Suðvestur- og Vesturlands og sáriega vantar vatn og smálaxa- göngur í ár fyrir norðan. Smálax- inn er mættur á sunnan- og vest- anverðu landinu og þar hefur veiði víða verið ágæt, en ytri skilyrði oftar en ekki erfið. Aldrei fisklaust „Það verður að segjast eins og er, að það hefur verið sveiflótt í sumar, byrjaði vel og dofnaði svo eins og búast mátti við. Síðan þegar við máttum fara að búast við nýjum göngum komu þessir langvarandi þurrkar og sól sem stóðu veiðum fyrir þrifum. I síð- ustu viku kom svo ofsaflóð og veiddist auðvitað vel í kjölfarið á því. Nú má segja að áin sé fín og það er eitthvað að ganga af fiski, mest smálax sem er óvenjusmár að þessu sinni, mest um 4 pund. Alls eru komnir 82 laxar á land sem er aðeins meira en á sama tíma í fyrra. Sem betur fer hefur þó aldrei verið alveg fisklaust hjá okkur,“ sagði Stefán Valdemars- son, staðarhaldari við Straum- fjarðará, í gærdag. Stefán bætti við að sér virtist vera minna af laxi í ánni en í fyrra, en það gæti þó truflað að foss í ofanverðri ánni hefur verið fisk- gengur í sumar vegna lægri vatns- hæðar en í fyrra, er enginn lax komst upp fyrir. Þar fyrir ofan „týndist" laxinn gjarnan. Hítará komin í gang Vel veiðist í Hítará um þessar mundir og í gærdag var hópur kominn með 27 laxa á land eftir tvo daga og átti einn dag eftir. Voru menn hæstánægðir. Fylgdi sögunni að fiskur gengi af krafti upp fyrir Brúarfoss og veiddist víða á svæðinu þar fyrir ofan. Bleikjuveiði er og enn hin ágætasta. Álftá veiðisæl Milli 90 og 100 laxar eru komnir á land úr Álftá á Mýrum og nálægt því annað eins af vænum og fallegum sjóbirtingi. Er þetta með ólíkindum góð útkoma, því stóran hluta veiðitímans hefur áin verið vatnslítil og það svo mjög að vönum mönnum hefur blöskrað. Um helgina voru menn með báðar stangim- ar í tvo daga og fengu 32 fiska. Um helmingur var lax og helmingur birtingur. Rólegt í Breiðdalsá Lítið hefur gengið enn sem komið er í Breiðdalsá og menn sem voru í ánni um helgina veiddu lítið. Voru þá skráðir í bók 9 laxar, flestir veiddir í Neðri-Beljanda. Einhver silungsveiði hefur verið, mest urr- iði á ofanverðu vatnasvæðinu, en úr þessu má búast við að bleikju- veiði glæðist. Bleikjan sein Veiðimenn sem rætt var við í gærdag og voru nýkomnir af sil- ungasvæðinu í Hofsá í Vopnafirði höfðu þá sögu að segja að veiðin hefði verið dræm um síðustu helgi og það væri mál kunnugra þar eystra að sjóbleikjan væri með seinna móti að þessu sinni. Það veiddust þó nokkrir fiskar og nokkuð vænir, 2-2,5 pund. Dag einn var veiðimaður sendur út að á til þess að freista þess að ná í sjóbleikju þar sem veiðifélagarnir voru að gera útigrillið klárt. Hann kom í hús með 2,5 punda þara- þyrskling sem tók appelsínugula smáflugu. Umræddir veiðimenn skruppu einnig í Fögruhlíðará og fengu þokkalega veiði af vænni sjó- bleikju. Blað allra landsmanna! -kjarni máhins! 2ja herb. íb. við Álfaskeið, Hf. Bílskúr. Verð aðeins 5,2 millj. Árni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, sími 555 0764. Lítil íbúð í Hafnarfirði Nýkomin til sölu 2ja herb. um 35 fm risíbúð í stein- húsi við Melholt (hjá Öldutúnsskóla). Laus strax. íbúðin þarfnast endurbóta. Tilboð óskast. Árni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, sími 555 0764.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.