Morgunblaðið - 24.07.1996, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
TILBOÐ KR. 400
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
Tu m CRSiSI
MiSSiSN. imPSSSiBLI
Franoes
McBormand.
William
H. liaoy
Steye
Busoemi
PAROO
MyncL Joel og Ethan Coen
Allt getur gerst
£ midri audninni.
CAIUIMES
1996
Besti
leikstjórinn
★ ★★
„Frábærmy
í alla staði.
Ó.H.T. Rás 2
★ ★★★ „Sannsöguleg en lygileg atburðarrás
með sterkum persónulýsingum." Ó.H.T Rás 2
Misheppnaður bílasali skipuleggur
mannrán á konu sinni til að svíkja fé út úr
forríkum tengdapabba sínum. Til verksins
fær hann ógæfulega smákrimma sem
klúðra málinu fullkomlega.
Sýnd kl. 4.50, 6.55, 9 og 11.10. Bönnuð innan 16 ára
BILKO LIÐÞJALFI
STEVE MARTIN / % DAN AYKROYD
DRAKÚLA:
DAUÐUR OG
í GÓÐUM
GÍR!
Frabær gamanmynd með einum vinsælasta gaman-
leikaranum i dag. Steve Martin fer á kostum sem Bilko
liðþjálfi, sleipasti svikahrappurinn í bandariska hernum.
Bilko myndi selja ömmu sína ef hann væri ekki þegar búinn
að leigja hana út!
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Synd kl. 7, 9 og 11. b.í. 16
Sýnd kl. 5
Til náms
í Bretlandi
BRESKA utanríkisráðuneytið
veitir árlega nokkrum íslending-
um styrki til háskólanáms i Bret-
landi. Veiyulega eru styrkþeg-
arnir 8 talsins, en í ár voru þeir
12, þar sem fyrirtækin ístak og
Glaxo Wellcome tóku þátt í
styrkveitingunni. Styrkþegum
og fjölskyldum þeirra var boðið
til hófs hjá breska sendiherran-
um fyrir skömmu og þar voru
þessar myndir teknar.
BRESKI sendiherrann hélt ræðu.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
BIRGIR Thorlacius hjá Glaxo Wellcome, Páll Siguijónsson, framkvæmdasljóri ístaks, og breski sendi-
herrann, James Rae McCulloch, eru hér ásamt styrkþegunum Ingu Þráinsdóttur, Ingibjörgu Davíðs-
dóttur, Hinriki Pálssyni, Oddnýju Mjöll Arnardóttur, Ottari Guðjónssyni og Styrmi Þór Bragasyni.
Á myndina vantar styrkþegana Hrund Hafsteinsdóttur, Björgu Þórhaílsdóttur, Önnu Ingvarsdóttur,
Þóri Þormar Hákonarson, Erlu Ólafsdóttur og Torfa Þórhallsson.
REM-arar rokka
HLJÓMSVEITIN REM hefur lokið
við að hljóðrita nýja plötu sem ber
nafnið „New Adventures in Hi-Fi“
og kemur út þann 10. september.
Platan er í lengri kantinum, 65
mínútur og á henni eru 14 lög. Fjög-
ur þeirra, „Departure", „Und-
ertow“, „Binky the Doormat" og
„The Wake-Up Bomb“ voru samin
og hljóðrituð baksviðs á Monster-
tónleikaferðalagi sveitarinnar á síð-
asta ári. Afgangurinn, „E-Bow the
Letter", „How the West Was Won
and Where It Got Us“, „Bittersweet
Me“, „New Test Leper“, „Be Mine“,
„Zither", „So Fast, So Numb“,
„Low Desert", „Electrolite" og „Le-
ave“, var tekinn upp í hljóðverum
í Los Angeles, Seattle og Athens í
Georgíufylki.
Að sögn þeirra sem heyrt hafa
plötuna er hún mikil gítar- og rokk-
plata, blanda af plötunum „Autom-
atic for the People“ og „Monster“.
Gjörningnr
í pokum
ÓLAFUR Árni Ólafsson stóð
fyrir gjömingi í porti Nýlista-
safnsins við Vatnsstíg síðast-
liðinn föstudag. Gjörningurinn
fólst í því að fimm manneskjur
voru lokaðar ofan í poka sem
var fylltur af vatni. Um 50
manns mættu til að fylgjast
með og þar á meðal var ljós-
myndari Morgunblaðsins.
Morgunblaðið/Halldór
ÞÓRÐUR Reynisson og Linda Kristjánsdóttir.