Morgunblaðið - 24.07.1996, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996 3
FRÉTTIR
ísafirði. Morgunblaðið.
Búið að malbika
V estfj arðagöngin
Alagning'-
arseðlar
í póst um
helgina
ÁLAGNINGARSEÐLAR
verða settir í póst um næstu
helgi og verða því komnir í
hendur skattgreiðenda á
mánudag og þriðjudag í næstu
viku.
Álagningarskrár verða
lagðar fram þriðjudaginn 30.
júlí og munu vera til sýnis hjá
öllum skattstjórum og um-
boðsmönnum þeirra til og með
13. ágúst, að sögn Guðrúnar
Brynleifsdóttur vararíkis-
skattstjóra.
Guðbrandur
Sigurðsson
ráðinn fram-
kvæmda-
stjóri ÚA
• GUÐBRANDUR Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Þróunarsviðs ís-
lenzkra sjávarafurða, hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Utgerðar-
félags Akur-
eyringa. Hann
mun heija störf
hjá félaginu í
september. Gunn-
ar Ragnars,
framkvæmda-
stjóri ÚA, sagði
starfi sínu lausu
síðastliðið vor og
hefur fjármála-
stjóri félagsins,
Björgólfur Jóhannsson, stjórnað fyr-
irtækinu síðan. Hann snýr sér nú
að fjármálastjórninni á ný.
„Jón Þórðarson, formaður stjórn-
ar UA, kom að máii við mig fyrr í
sumar og spurði hvort ég kynni að
hafa áhuga á þessu starfi,“ segir
Guðbrandur Sigurðsson í samtali við
Morgunblaðið.
„Það var því að frumkvæði stjórn-
ar UA, sem til mín var leitað og
eftir nokkurn umhugsunarfrest
svaraði ég játandi. Það hefur lengi
blundað með mér að komast í stjórn-
unarstöðu hjá stóru framleiðslufyr-
irtæki í sjávarútvegi og ÚA er vissu-
lega stórt á því sviði. Hjá ÚA eru
mikil verkefni framundan, einkum
að koma landvinnslunni í þann
hagnað sem nauðsynlegur er.
Það er vissulega nokkur eftirsjá
að því að yfirgefa Islenzkar sjávar-
afurðir, þar sem ég hef starfað í
10 ár, en á hinn bóginn er það
spennandi að takast á við öðruvísi
verkefni en hjá ÍS, að fara úr fyrir-
tæki í þjónustu yfir í framleiðsluna.
Ég hlakka til að takast á við þetta
verkefni. Ég fer í starfið með góðum
og jákvæðum hug og stefni að því
að vinna vel fyrir ÚA og eigendur
þess,“ segir Guðbrandur.
Guðbrandur er 35 ára gamall.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Sund árið
1981; BS-prófi í matvælafræði frá
Háskóla íslands árið 1985 og MBA-
prófi frá Edinborgarháskóla árið
1994. Guðbrandur starfaði hjá Sölu-
sambandi íslenzkra fiskframleið-
enda, Sjávarafurðadeild SÍS og síð-
ar íslenzkum sjávarafurðum hf.
áður en hann hélt til náms í Edin-
borg. Síðastliðin tvö ár hefur hann
verið framkvæmdastjóri Þróunar-
sviðs ÍS og meðal annars haft um-
sjón með samvinnuverkefni IS og
UTRF á Kamtsjatka í Rússlandi.
Eiginkona Guðbrands er Rann-
veig Pálsdóttir, læknir, og eiga þau
eina dóttur.
LOKIÐ var við malbikun jarð-
ganganna undir Breiðadals- og
Botnsheiði í gærdag og á þá ein-
ungis eftir að ganga frá dren-
lögnum og merkingum auk ann-
ars smávægilegs frágangs svo
hægt verði að opna göngin fyrir
almennri umferð.
Verktakarnir Istak hf. og
Vesturís sf. ætla þó ekki að skila
verkinu fyrr en í október, eins
og verksamningar sögðu til um
og hefur gætt óánægju meðal
íbúa vestan heiðanna tveggja
vegna þessa, sérstaklega vegna
þess hversu slæmir vegirnir yfir
heiðarnar eru.
Loftur Árnason hjá ístaki
sagði að göngin yrðu væntanlega
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
ekki opnuð fyrr en í október
þegar verktíminn rynni út. „Við
eigum eftir ýmsan frágang þar
inni, auk þess sem Vegagerðin á
eftir að ganga frá ýmsum málum
en ég reikna samt með að göng-
in verði opnuð fyrir 1. nóvem-
ber. Dagsetningin hefur ekki
verið ákveðin enn, en við munum
gera allt til að opna göngin eins
fljótt og hægt er,“ sagði Loftur.
ACCENT 5 dyra, 84 hestöfl með beinni innspýtingu, vökvastýri, vönduðum hljómflutningsfækjum, samlitum stuðurum og lituðu gleri. Aukabúnaður á mynd, álfelgur og vidskeið.
Gerðu kröfur
Hyundai uppfyllir þær!
Þótt gerðar séu mismunandi kröfur
til bíla eru líklega allir á sama máli
um að nokkur atriði vegi þyngst.
0 Útlit
Búnaður
Aksturseiginleikar
S) Rekstrarkostnaður
Öryggisbúnaður
/§) Endursöluverð
Hyundai stenst vel samanburð við aðra bíla hvað varðar
öll þessi atriði og þá er bara eitt eftir, verðið sem er
aðalatriðið þegar allt annað stenst samanburð
og nu býSát Hyunbaí cí Atdrtcekkuðu verðí
Leitið upplýsinga hjá sölumönnum og umboðsmönnum um allt land
SONATA 2000 sm3, 140 hestöfl.
HYunoni
til framtíðar
ÁRMÚLA 13, SlMI: 568 1200
BEINN S(MI: 553 1236