Morgunblaðið - 24.07.1996, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
■m* i
Ff' " ' Btmm* > l
^Ww IÉfc: f‘|
Morgunblaðið/Árni Sæberg
56% heimila með
fleiri en eitt símtæki
Utför
Guðmundar
Steinssonar
ÚTFÖR Guðmundar Steinsson-
ar leikskálds var gerð frá Foss-
vogskirkju í gær, en hann var
jarðsettur í kirkjugarði Innri-
Njarðvíkurkirkju. Séra Flóki
Kristinsson jarðsöng, Unnur
María Ingólfsdóttir lék einleik á
fiðlu og Þórður Helgason las
Ijóð. Félagar úr Fóstbræðrum
sungu undir stjórn Árna Harð-
arsonar, organisti var Douglas
Brotchie.
Líkmenn voru f.v.: Gylfi Páls-
son, Örnólfur Árnason, Matthías
Kjeld, Jens G. Einarsson, Þórður
Helgason og Einar Bimir.
TVEIR símar eða fleiri eru á 55,9%
heimila hér á landi og á 19,2% heim-
ila eru þrír símar eða fleiri. Þetta
kemur fram í nýrri neyslukönnun
Félagsvísindastofnunar Háskóla ís-
lands sem náði til 1200 manns á
aldrinum 14-80 ára.
Á 61,8% heimilanna er tónvals-
sími og á 28,5% þeirra er þráðlaus
sími. GSM-sími er á 14,4% heimil-
anna og símsvari á 14,1%. NMT
farsími er á 9,4% heimila, faxtæki
á 7,6%, og sömuleiðis er fax í tölvu
á 7,6% heimilanna og símboði teng-
ist síma á 7,3% heimilanna.
Símareikningur yfir 5 þús.
Hringt hafði verið til útlanda úr
símum á 36,4% heimilanna á 30
daga tímabili áður en könnunin var
gerð og sögðust 29,3% hafa hringt
1-4 sinnum. Þegar spurt var um
upphæð síðasta símareiknings kom
í ljós að hjá 20,3% aðspurðra var
hann 3.500 kr. eða lægri, hjá 24,2%
var hann á bilinu 3.500-5.000 kr.,
og hjá 20,8% var reikningurinn á
bilinu 5.000-7.500 kr. Hjá 16,8%
var upphæðin á bilinu 7.500-10.000
kr„ hjá 10,8% á bilinu 10.000-
15.000 og hjá 7,1% var símareikn-
ingurinn 15.000 kr. eða hærri.
Alls sögðust 57,2% hafa notað
símaþjónustu af einhveiju tagi.
31,9% höfðu hringt í bankalínur,
13,4% í grænt númer.
Sjúkrahús Reykjavíkur
Sparnaðartillögur
kynntar í stjórninni
Á STJÓRNARFUNDI Sjúkrahúss
Reykjavíkur, sem haldinn var I gær-
morgun, voru tillögur framkvæmda-
stjómar sjúkrahússins lagðar fram
og kynntar stjóm sjúkrahússins, en
stjómin fól framkvæmdastjóm það
verkefni fyrir nímri viku að gera
tillögur um 200-250 milljóna króna
spamað í rekstri sjúkrahússins. Auk
þess er verið að glíma við 85 millj-
óna kr. hallarekstur sjúkrahússins
frá fyrra ári.
Fyrr á árinu hafði framkvæmda-
stjóm komið með tillögur um 150
milljóna kr. sparnað og af því hefur
um 90% gengið eftir, að sögn Sigríð-
ar Snæbjömsdóttur, hjúkrunarfor-
stjóra Sjúkrahúss Reykjavíkur, sem
einnig á sæti í framkvæmdastjóm.
Kristín Á. Ólafsdóttir, stjómar-
formaður, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að fjallað hafi verið
um tillögurnar á fundinum án þess
að þær hafi hlotið neina afgreiðslu
enda hafí sú ekki verið ætlunin.
Hún sagði að ekki þætti tímabært
að greina frá því í hveiju sparnað-
artillögurnar fælust. Það yrði ekki
gert fyrr en þær hefðu hlotið endan-
legu afgreiðslu I stjórninni sem að
ö!lu óbreyttu verður á næsta fundi
stjórnar Sjúkrahúss Reykjavíkur í
fyrramálið, fimmtudag.
Talsverð bylting
Sigríður sagði að tillögurnar mið-
uðu að talsverðri byltingu í heil-
brigðisþjónustu sjúkrahúsanna í
Reykjavík, en vildi að öðru leyti
ekki greina efnislega frá því sem
lagt væri til. „Að sjálfsögðu munu
þessar tillögur hafa áhrif í miklu
víðtækari mæli heldur en bara inn-
an veggja spítalans. Það er náttúru-
lega ekki hægt að taka ákvarðanir
upp á 400 milljónir án þess að það
komi niður á heilbrigðisþjónustu
landsmanna almennt og ég held að
við munum þurfa að takast á við
afleiðingar þessa tíma mörg ár fram
í tímann, sérstaklega í ljósi þess
að við erum búin að vera að skera
niður undanfarin fimm ár.“
Heilbrigðis- og fjármálaráðherr-
ar munu hittast á fundi í dag til
að fara yfir fjármál spítalanna.
------------» ♦ «------
Aukafjár-
veiting-
vegna sum-
arvinnu
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
22,5 milljón króna aukafjárveitingu
vegna sumarvinnu skólafólks.
I erindi borgarverkfræðings til
borgarráðs kemur fram að í apríl
hafi borgarráð samþykkt 117 millj.
aukafjárveitingu vegna sumarvinnu
skólafólks. Byggðist tillagan á
vinnu starfshóps sem lagði til að
aukafjárveitingin yrði samtals 137
millj. en ákveðið var að fresta end-
anlegri afgreiðslu á 20 millj.
í framhaldi er lagt til að auka-
fjárveitingin verði 22,5 milljónir eða
í heild samtals 139,5 millj.
Dómur í máli ákæruvaldsins gegn Jóhanni G. Bergþórssyni
12 mánaða skilorðsbundið
fangelsi og 4 millj. sekt
JÓHANN G. Bergþórsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri Hagvirkis-
Kletts hf„ sem var úrskurðað gjald-
þrota 6. október 1994, var í Héraðs-
dómi Reykjaness í gær dæmdur I
12 mánaða skilorðsbundið fangelsi
og til greiðslu 4 milljóna króna sekt-
ar fyrir brot á lögum um virðisauka-
skatt og lögum um staðgreiðslu op-
inberra gjalda.
Dómurinn byggist á tveimur
ákærum ríkissaksóknara. Sam-
kvæmt ákæru sem var útgefin 16.
janúar 1996 var Jóhann ákærður
fyrir að standa ríkissjóði ekki skil á
virðisaukaskatti að fjárhæð
22.552.538 kr. sem Hagvirki-Klett-
ur innheimti á árinu 1994. Jóhann
var einnig ákærður fyrir að hafa
ekki staðið ríkissjóði skil á
12.651.793 kr. sem hafði verið hald-
ið eftir við útborgun á launum til
starfsmanna félagsins á tímabilinu
júní til ágúst 1994.
Samkvæmt síðari ákærunni, sem
var gefin út 3. apríl 1996, var Jó-
hann ákærður fyrir að draga félag-
inu fé og nota í rekstur þess, sam-
tals 12.082.761 kr„ af launum til
starfsmanna félagsins til greiðslu á
iðgjaldshluta þeirra til lífeyrissjóða
og félagsgjalda. í munnlegum mál-
flutningi lækkuðu fjárhæðir sem
ákært var fyrir í 11.801.728 kr.
Jóhanni var einnig gefíð að sök að
hafa ekki staðið skil á 2.808.919
kr„ sem við aðalmeðferð málsins
lækkaði í 1.791.633 kr„ sem er hluti
af 3.815.919 kr. sem haldið var eft-
ir við útborgun á launum til starfs-
manna félagsins á árunum 1992 til
1994 til greiðslu á meðlagsskuldum
þeirra.
Kröfum vísað frá dómi
Níu aðilar kröfðust bóta úr hendi
ákærða, þ.e. Vélstjórafélag íslands,
Verslunarmannafélag Hafnarfjarðar,
Lífeyrissjóður Verkfræðingafélags
íslands, Sameinaði lífeyrissjóðurinn,
Lífeyrissjóður Norðurlands, Verka-
lýðsfélagið Eining, Verkalýðsfélagið
Fram, Innheimtustofnun sveitarfé-
laga og Ábyrgðarsjóður launa. Kröf-
um þeirra var vísað frá dómi.
Af hálfu ákærða var þess krafist
að ákærði yrði sýknaður af öllum
kröfum ákæruvaldsins og til vara
að refsing ákærða yrði látin niður
falla eða að hún yrði skilorðsbundin.
Þá var þess krafist að sakarkostnað-
ur yrði dæmdur á ríkissjóð og að
öllum bótakröfum á hendur ákærða
yrði vísað frá dómi en til vara að
ákærði yrði alfarið sýknaður af þeim.
Ákærði viðurkenndi fyrir dómin-
um að hafa tekið um það ákvörðun
sem framkvæmdastjóri félagsins og
borið á því ábyrgð að virðisauka-
skatti þeim og þeirri staðgreiðslu
opinberra gjalda sem ákæran tók til
var ekki skilað innheimtumanni rík-
issjóðs á lögmæltum tíma. Ákærði
undanskildi sig þó ábyrgð á virðis-
aukaskatti með gjalddaga 5. október
1994 að íjárhæð 6.120.000 kr. þar
sem starfsemi félagsins hafí verið
stöðvuð og innsigluð daginn áður.
Ákærði kvað fjárskort félagsins hafa
valdið því að ekki reyndist unnt að
greiða innheimtumanni ríkissjóðs.
í dómi Héraðsdóms Reykjaness
segir að sýkna beri ákærða af þeirri
háttsemi að hafa ekki staðið ríkis-
sjóði skil á virðisaukaskatti í gjald-
daga 5. október 1994 og er ákærði
því sakfelldur fyrir að standa ríkis-
sjóði ekki skil á virðisaukaskatti að
fjárhæð 16.432.531 kr. og stað-
greiðslu opinberra gjalda að fjárhæð
12.651.793 kr.
Ákærði viðurkenndi á sama hátt
fyrir dóminum að hafa tekið ákvörð-
un og borið ábyrgð á að iðgjöldum
til lífeyrissjóða, félagsgjöldum til
stéttarfélaga og meðlögum til Inn-
heimtustofnunar sveitarfélaga var
ekki skilað á tilskildum tíma. Fjár-
hagserfíðleikar félagsins hafi valdið
því að ekki var unnt að greiða þessa
fjármuni.
í dóminum segir að ákærði hafi
uppfyllt þá skyldu að halda eftir líf-
eyrisiðgjöldum, félagsgjöldum og
meðlögum við útborgun launa til
starfsmanna félagsins og að félagið
hafí látið viðkomandi innheimtuaðil-
um að jafnaði í té skilagreinar yfir
það sem haldið var eftir af launum
en hafi á hinn bóginn brugðist þeirri
lagaskyldu að standa viðkomandi
aðilum skil á því sem dregið var af
launum starfsmannanna. Sannað
þyki að þeir fjármunir hafí verið
nýttir í rekstur félagsins. Ákærði er
sýknaður af fjárdrætti að því er
varðar vangreidd lífeyrissjóðsiðgjöld
hans sjálfs í Lífeyrissjóð verkfræð-
inga. Fjárdráttur sem ákærði var
sakfelldur fyrir samkvæmt ákæru
nam því samtals 13.239.373 kr.
Skilagreinutn
samviskusamlega skilað
í dóminum segir að við ákvörðun
refsingar beri að líta til þess að brot
hans samkvæmt ákærum námu
verulegum fjárhæðum. Þá beri til
þess að líta að engin launung hvíldi
yfír brotunum, virðisaukaskatt-
skýrslum og skilagreinum um stað-
greiðslu hafí verið skilað og inn-
heimtumanni ríkissjóðs gerð grein
fyrir erfiðri stöðu félagsins. Leitast
hafí verið við að greiða eins og félag-
inu var frekast unnt. Einnig verði
að horfa til þess að bókhald félags-
ins var jafnan óaðfinnanlegt og að
félagið skilaði innheimtuaðilum
skatta og iðgjalda samviskusamlega
skilagreinum yfír afdregið fé enda
þótt ekki reyndist unnt að greiða
það. Ósannað sé að ákærði hafi
auðgast persónulega vegna þeirrar
háttsemi sem hann er sakfelldur
fyrir. Ákærði hafi lagt allt sitt undir
í þeirri viðleitni sinni að bjarga félag-
inu frá falli og tryggja áframhald-
andi rekstur þess. Ákærði hafi undir
rekstri málsins lagt sitt af mörkum
til að upplýsa málið og skýrt hrein-
skilnislega frá öllum atvikum.
Refsing ákærða þótti hæfilega
ákveðin fangelsi í 12 mánuði og rétt
þótti að ákveða að fullnustu allrar
refsingarinnar skyldi fresta og hún
niður falla að liðnum 3 árum haldi
ákærði almennt skilorð. Ákærði var
einnig dæmdur til greiðslu sektar til
ríkissjóðs að fjárhæð 4 milljónir kr.
Greiðist sektin ekki innan 4 vikna
frá birtingu dómsins komi fangelsi
í 8 mánuði í hennar stað. Ákærði
var einnig dæmdur til greiðslu alls
sakarkostnaðar, þar með talin mál-
svarnarlaun skipaðs veijanda síns,
Bjarna Þórs Óskarssonar, héraðs-
dómslögmanns, samtals 400 þúsund
kr„ og til greiðslu saksóknaralauna,
samtals 200 þúsund kr.
Dóminn kvað upp Finnbogi H.
Alexandersson, héraðsdómari.
Árni Hjörleifsson
bæjarfulltrúi
Breytir í
engu sam-
starfinu
STJÓRN Alþýðuflokksfélags
Hafnarfjarðar mun koma
saman á næstu dögum til að
ræða nýfallinn dóm yfír Jó-
hanni G. Bergþórssyni, en
Jóhann stendur að meirihluta-
samstarfi í Hafnarfirði með
Alþýðuflokknum.
Árni Hjörleifsson bæjarfull-
trúi Alþýðuflokks í Hafnar-
fírði telur ekki að dómur Hér-
aðsdóms Reykjaness yfír Jó-
hanni G. Bergþórssyni hafi
áhrif á samstarf Alþýðuflokks
og Sjálfstæðisflokks í bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar.
„Fyrir mitt leyti sé ég ekki
að þetta hafi áhrif á sam-
starfið því þetta er aðeins
dómur sem fellur á Jóhann
G. Bergþórsson. Samstarfið
er mjög gott og hefur verið
það. Jóhann verður bara að
sæta því að fá á sig þennan
dóm. Við höfum ríflegan
meirihluta og Jóhann hefur
varamenn fyrir sig ef hann
vill hvíla sig frá pólitíkinni,"
sagði Árni.
Hann bætti því við að sér
þætti það alls ekki óeðlilegt
að Jóhann héldi áfram störf-
um í bæjarstjórnarmálum.
„Jóhann hefur verið að vinna
ágæt störf í bæjarstjórn og
ég sé ekkert samhengi með
störfum hans þar og þessu
fyrirtæki sem hann var með
á sínum tíma. Samvinnan hef-
ur verið mjög góð í þessum
meirihluta og gengið hefur vel
að vinna að mörgum erfíðum
málum,“ sagði Árni.