Morgunblaðið - 24.07.1996, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ
6 MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1996
FRÉTTIR
Formaður Ölympíunefndar íslands skoðaði húsnæði íslensku lögreglumannanna
Yrði þegar í stað
lokað á íslandi
Atlanta. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Kristinn
JÚLÍUS Hafstein, formaður Ólympíunefndar íslands, með lög-
regluhúfu við sundlaugina i Atlanta í gær. Hann var ekki hrif-
inn af þeim vistarverum sem í boði eru handa íslensku lögreglu-
mönnunum og starfsbræðum þeirra víða að úr heiminum.
JULIUS Hafsteinj formaður
Ólympíunefndar Islands, skoðaði
í fyrrakvöld vistarverur þær sem
sjálfboðaliðum í hópi lögreglu-
manna víða að úr heiminum eru
boðnar hér í Atlanta og leist ekki
vel á. Fjallað var um húsnæðið í
íslenskum fjölmiðlum á dögunum,
eftir að nokkrir íslenskir lögreglu-
menn höfðu kvartað undan því og
nú eru hátt í 300 lögreglumenn
farnir til síns heima. Júlíus hyggst
skrifa Juan Antonio Samaranch,
forseta alþjóða ólympíunefndar-
innar, um málið og kvarta.
Júlíus fór með tveimur íslensk-
um lögreglumönnum, sem voru á
vakt við öryggisgæslu á Marriott
Marquis-hótelinu, þar sem hann
og aðrir forystumenn ólympíu-
hreyfingarinnar búa. Þeir voru
búnir á vakt seint um kvöld og
íslenski hópurinn hugðist funda á
miðnætti. Júlíus skellti sér á þann
fund. „Eg hitti 12 íslenska lög-
reglumenn og þeir sögðu mér frá
vandamálum sínum. Eg skoðaði
svo allar vistarverur, herbergi,
sturtur og salerni og get sa^gt að
væru þessar vistarverur á Islandi
yrði þeim lokað samstundis ef
heilbrigðisyfirvöld kæmust í mál-
ið. Sturtur og salerni voru ógeðs-
leg, skítug og mikið var af skor-
dýrum þarna. Það er til skammar
fyrir skipulagsnefndina, ACOG,
að láta gesti — sem koma hingað
á eigin kostnað og eyða sum-
arfríi sínu í það að vinna hér —
gista á þessum stað,“ sagði Júlíus.
Formaðurinn bætti við að ör-
yggismálin á staðnum væru í lág-
marki. „Þegar ég fór um klukkan
tvö krafðist ég þess að fara í lög-
reglufylgd. Ég sagðist vera í
versta hverfinu í mestu glæpa-
borg Bandaríkjanna og hefði ekki
áhuga á að vera einn á ferð á
þessum stað. Þá var mér sagt að
ekki væri radíósamband frá
staðnum við lögregluna. Það tókst
reyndar fyrir rest að fá lögreglu-
bíl á staðinn og mér var ekið á
hótelið,“ sagði Júlíus.
Formaður Óí kvaðst vera fyrsti
forystumaðurinn frá þeim 70 lönd-
um, sem ættu fulltrúa í hópi sjálf-
boðaliðanna, sem kæmi á staðinn
og skoðaði aðstæður. I gærmorg-
un var svo fundur í Umhverfis-
og íþróttamálanefndar alþjóða
ólympíunefndarinnar, sem Júlíus
á sæti í, og þar tók hann málið
upp. „Félagar mínir urðu undr-
andi og enginn virtist vita af þessu.
Það segir mér að ACOG reyni að
halda þessum mistökum ieyndum.
Pal Schmitt, formaður ungversku
ólympíunefndarinnar, sendiherra
Ungveijalands á Spáni og einn af
varaforsetum IOC, er formaður
þessarar nefndar og ég sagði hon-
um að ég myndi skrifa bréf til
forseta IOC, Samaranch, hans
sjálfs og Billy Payne, formanns
skipulagsnefndar leikanna hér, og
kvarta undan framkomu ACOG
gegn sjálfboðaliðunum frá þessum
70 þjóðum. Það vildi svo til að ég
sat við hlið fulltrúa Ástralíu í
nefndinni, hann er í undirbúnings-
nefnd fyrir Ólympíuleikana í
Sydney og var ekki ánægður með
fréttirnar. Sagði þetta slæmt fyrir
Ástraliumenn því eftir þetta væri
ekki víst að lögreglumenn vildu
koma þangað til að aðstoða við
öryggisgæslu."
Eignarhaldsfélag1
Alþýðubankans hf
Eigið fé
hækkar um
197 millj.
BÓKFÆRÐUR hagnaður Eignar-
haldsfélagsins Alþýðubankans hf.
nam alls um 47 milljónum króna
fyrstu sex mánuði ársins. Þar að
auki naut félagið um 170 milljóna
króna hækkunar á hlutabréfaeign
sinni, en hún færist meðal eiginfjár-
liða sem óinnleystur geymsluhagn-
aður. Nam eigið fé félagsins samtals
um 1.350 milljónum í lok júní og
hafði hækkað um 197 milljónir frá
upphafi ársins.
Innra virði félagsins hefur hækkað
úr 1,55 í 1,8 á undangegnum sex
mánuðum. Nemur Q-hlutfall (sölu-
gengi/innra virði) nú 0,83. Það gefur
til kynna að hlutabréf félagsins á
markaði séu á óvenjulega hagstæðu
verði á markaðnum miðað við bréf
í mörgum öðrum félögum. Eignar-
haldsfélagið greiddi út arð á árinu
vegna ársins 1995 að upphæð 52,4
milljónir.
Guðjón Ármann Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Eignarhaldsfélagsins,
sagði í samtaii við Morgunblaðið að
hlutabréfaeignin í íslandsbanka,
SR-mjöli og Tæknivali hefði hækkað
mest á þessu ári bæði hlutfallslega
og í fjárhæðúm talið.
Tillaga um breytingar á rekstri og sameiningu sjúkrahúss og heilsugæslu á Patreksfirði
Stefntað 12-13
milljóna sparnaði
Með sameiningu sjúkrahúss og heilsugæslu á Patreksfirði, endurskoðun
starfa meinatæknis og ljósmóður, lækkun launa lækna, breytingum á
yfírvinnugreiðslum og fækkun starfsfólks er stefnt að lækkun rekstrarút-
gjalda Sjúkrahúss Patreksfjarðar um 12-13 milljónir á ári. Egill Ólafs-
son hefur skoðað skýrslu um rekstur sjúkrahússins.
TILLÖGUR um breytingar á
rekstri Sjúkrahúss Patreks-
fjarðar og Heilsugæslustöðv-
ar Patreksfjarðar miða að því að
lækka reksturskostnað stofnananna
um 12-13 milljónir á ári. Lagt er til
að þær verði sameinaðar í eina stofn-
un 1. janúar 1997. Verði það gert
er talið heppilegt að segja öllu starfs-
fólki upp störfum og ráða það aftur.
Hugsanlegt er talið að aðgerðirnar
leiði til þess að til komi kostnaður
vegna biðlauna, sem gæti hlaupið á
2-4 milljónum króna.
Tillögurnar koma fram í skýrslu,
sem Sigfús Jónsson, rekstrar- og
stjórnunarráðgjafi hjá Nýsi hf., vann
fyrir heilbrigðisráðuneytið og stjórn
Sjúkrahúss Patreksfjarðar.
Á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar eru
24 rúm, en aðeins um helmingur
þeirra er nýttur. Þar eru nú u.þ.b. 9
hjúkrunarsjúklingar og 3-4 rúm eru
að jafnaði notuð til innlagna annarra
sjúklinga. Á síðasta ári voru lagðir
inn 270 sjúklingar. I skýrslunni kem-
ur fram að ekki verði annað séð en
að það veiti góða heilbrigðisþjónustu
og ánægja sé með þjónustu lækna,
hjúkrunarfólks og annarra starfs-
manna.
Bókhald í ólagi
Ársreikningar fyrir rekstur
Sjúkrahús Patreksfjarðar og heilsu-
gæslustöðvarinnar liggja ekki fyrir,
en í skýrslunni er gengið út frá því
að um 7 milljóna króna halli hafí
verið á rekstrinum. Verði ekkert að
gert stefni í 10-11 milljóna króna
halla á þessu ári. í janúar sl. fékk
Heilsugæslustöð Patreksfjarðar 4,8
milljóna króna aukafjárveitingu til
að lækka skuldir. Þrátt fyrir það nam
yfirdráttur stofnunarinnar í banka
8,5 milljónum í síðasta mánuði og
ógreiddir reikningar 4-5 milljónum.
Veltufjárhagsstaðan var því neikvæð
um 13 miiljónir.
Framkvæmdastjóri sjúkrahússins
sagði upp störfum seint á síðasta ári
og tók nýr við í janúar. Stjórnarfor-
maður gegndi störfum
framkvæmdastjóra í u.þ.b.
mánuð í lok ársins. í
skýrslunni segir að margt
hafí verið í ólagi um ára-
mót þegar nýr fram-
kvæmdastjóri tók við. „Margvísleg
Vandamál voru í rekstrinum, m.a. var
bókhald ekki í lagi og fjármálastjórn
ábótavant. Fjárveitingar dugðu ekki
fyrir rekstrarútgjöldum, lítið sem
ekkert var hagrætt í rekstri og skuld-
ir hrönnuðust upp.“
Fáar fæðingar á sjúkrahúsinu
I skýrslunni segir að taka þurfi
stefnumótandi ákvörðun um hvaða
þjónustu eigi að veita á Sjúkrahúsi
Patreksfjarðar og heilsugæslustöð-
inni. Til að uppfylla ákvæði laga um
heilbrigðisþjónustu sé eðlilegt að
gæði og umfang heilsugæslu verði
áfram í svipuðu horfi og verið hafi
á svæðinu. Þó er lagt til að heilsu-
gæsluselið á Barðaströnd verði lagt
niður þar sem það sé lítið nýtt.
í skýrslunni er velt upp fleiri spum-
ingum varðandi þjónustu sjúkrahúss-
ins. í dag veitir það aðallega þrenns
konar þjónustu. Þareru hjúkrunarými
fyrir aldraða, fæðingar og veikt fólk
er lagt inn í nokkra daga. Bent er á
þá staðreynd að minnihluti bamshaf-
andi kvenna á starfssvæði Sjúkrahúss
Patreksfjarðar fæðir böm sín þar. Sú
spuming vakni hvort rétt sé að bjóða
þjónustu sem meirihlutinn vilji ekki
nýta. í fyrra fæddust aðeins fjögur
böm á sjúkrahúsinu, en það sem af
er þessa árs hafa fæðst þar átta böm.
Ljósmóðirin sinnir auk þess mæðra-
skoðun og ungbamaeftirliti, en mæð-
ur á starfssvæðinu eignast
að jafnaði um 30 börn á
ári. í skýrslunni segir að
hugsanlegt sé að leggja
af starf ljósmóður og fela
hjúkrunarfræðingum að
sjá um mæðraskoðun og ungbamaeft-
irlit. Fjárhagslegur spamaður af því
gæti verið um 2 milljónir á ári.
í skýrslunni segir að ekki sé þörf
fyrir meinatækni á sjúkrahúsinu
nema í hálft starf. Ekki sé hins vegar
við því að búast að meinatæknir fáist
til starfa á Patreksfírði í hálft starf
og þess vegna er lagt til að honum
verði falin fleiri störf. Athygli vekur
að þrátt fyrir að verkefni meinatækn-
is hafí verið frekar lítil við sjúkrahús-
ið vegna fárra læknisverka var hann
með tæplega 50 yfírvinnutíma að
meðaltali á mánuði á sl. ári.
í skýrslunni segir að á Patreksfírði
verði að vera fyrir hendi aðstaða til
að taka á móti fólki sem veikist
skyndilega og þeim sem slasast. Ekki
verði því séð að hægt verði að felia
niður neitt af þeirri grunnþjónustu sem
sé á sjúkrahúsinu nema e.t.v. fæðing-
ar. Það sé hins vegar nauðsynlegt að
endurskipuleggja núverandi stafsemi
og lækka kostnað við reksturinn.
Sjúkrahús og heilsugæsla
sameinuð
Sigfús Jónsson leggur til í skýrsl-
unni að heilsugæslustöðin og sjúkra-
húsið verði sameinuð í eina stofnun.
Með því móti sé hægt að ná fram
markvissari stjómun og betri nýtingu
fjármuna. Það er hins vegar álitamál
hvort nægilega traustar lagaheimildir
séu fyrir sameiningu heilsugæslunnar
og sjúkrahússins. Sigfús bendir á að
hægt sé að koma þessu til leiðar með
því að sjúkrahúsið geri verktaka- og
þjónustusamning við heilsugæslu-
stöðina með svipuðum hætti og gert
hafí verið á Reykjalundi.
í skýrslunni segir ennfremur að
gera þurfi endurbætur á stjómun
spítalans þannig að það liggi ljóst
fyrir hvert sé valdsvið framkvæmda-
stjóra. Kveða þurfí skýrt á í starfslýs-
ingu framkvæmdastjóra, að hann sé
æðsti yfirmaður stofnunarinnar,
þ.m.t. yfírmaður yfírlæknis og hjúkr-
unarforstjóra nema hvað faglega
þætti í starfseminni varðar.
Laun 90% útgjalda
Eðlilegt er talið að launaútgjöld
heilbrigðisstofnana séu að jafnaði um
70% útgjaldanna og 30% fari í annan
rekstrarkostnað. í fyrra fóru um 80%
útgjalda Sjúkrahúss Patreksfjarðar
og heilsugæslu í að greiða laun og
það sem af er þessu ári hefur þetta
hlutfall farið í 90%. Vaktaálag og
yfírvinna nam 39% heildarlauna-
greiðslna á síðasta ári.
í skýrslunni er sett fram gagnrýni
á kjör starfsfólks, einkum fagfólks
og yfirmanna. „Komið hefur í ljós að
verið er að tvíborga læknum fyrir sömu
klukkustundina og mikið er um að
hjúkrunarfræðingar séu á yfírvinnu-
kaupi í dagvinnutíma vegna útkalls
eða símtala frá nóttunni á undan."
Tveir læknar starfa á Patreksfírði
og em þeir báðir í fullu starfi sem
heilsugæslulæknar og þar að auki í
50% starfi á sjúkrahúsinu. Sami
læknir er á bakvakt á báðum stofn-
ununum og nýtur þannig tvöfaldra
greiðslna. Þeir fá greidda
yfirvinnu þegar þeir fara
í ferðir í heilsugæslúselin
á Tálknafirði og Barða-
strönd. Þeir fá einnig
greidda yfirvinnu ef fjöldi
innlagna á sjúkrahúsið fer yfír
ákveðið mark.
Yfirlæknirinn hefur starfað á Pat-
reksfirði í nokkur ár, en erfíðlega
hefur gengið að fylla hina læknis-
stöðuna. Sjö einstaklingar skiptust á
að gegna henni á síðasta ári. Þetta
hefur tímabundið valdið mjög miklu
vinnuálagi hjá yfirlækninum. „Dæmi
eru um að yfirlæknir hafi fengið
greitt fyrir dagvinnu, yfirvinnu og
gæsluvaktir í yfir 900 kls. á mán-
uði, en í mánuðinum eru aðeins 720
kls.,“ segir í skýrslunni.
Læknamir fá einnig greiðslur frá
Tryggingastofnun ríkisins. Þegar
launaþáttur þeirra er tekinn með eru
Iaun læknis 600-700 þúsund á mán-
uði að meðaltali, en yfirlæknis
700-900 þúsund á mánuði. „Miðað
við aðstæður á vinnumarkaði og laun
lækna annars staðar í sambærilegum
störfum er ljóst að Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið hlýtur að
gera kröfu um að laun beggja lækn-
anna verði lækkuð og að vinnusamn-
ingi við þá verði breytt.“
Yfirvinnugreiðslur í
ósamræmi við kjarasamning
Launagreiðslur til hjúkrunarfor-
stjóra eru einnig gagnrýndar í skýrsl-
unni, en heildarlaun hans eru að
meðaltali u.þ.b. 400 þúsund á mán-
uði, að því er segir í skýrslunni. Aðr-
ir hjúkrunarfræðingar hafa verið með
250-300 þúsund að meðaltali á mán-
uði. Fyrstu fímm mánuði þessa árs
vora yfírvinnugreiðslur hjúkrunarfor-
stjóra að meðaltali 104 kls. á mánuði
og 57 kls. hjá hjúkranarfræðingi sem
er í fullu starfí. Sigfús gagnrýnir sér-
staklega það fyrirkomulag að hjúkr-
unarfræðingur á bakvakt skuli fá
fjóra tíma greidda í yfirvinnu þegar
sjúklingur hringir heim til hans með
fyrirspum og að hann skuli vera á
yfirvinnukaupi daginn eftir, en það
er gert með þeim rökum að hjúkran-
arfræðingurinn hafí ekki fengið nægi-
lega hvíld. í skýrslunni segir að þess-
ar greiðslur fyrir símtöl á bakvakt
séu ekki í samræmi við þá túlkun sem
almennt tíðkast á kjarasamningi
hjúkranarfræðinga.
Í skýrslunni er lagt til að ganga-
stúlkum verði falið að sjá um ræst-
ingar og stöðugildum gangastúlkna
verði þar að auki fækkað um 0,8.
Lagt er til að utanaðkom-
andi aðili taki að sér
þvotta fyrir sjúkrahúsið
eða að starfshlutfall
starfsmanns í þvottahúsi
verði lækkað úr 100%
starfí niður í 70%. Sömuleiðis er
gerð tillaga um útboð á rekstri eld-
húss, en meðal matarkostnaður
sjúklings er um 50 þúsund á mán-
uði. Þá er lagt til að starfshlutfall
ráðsmanns og starfsmanns á skrif-
stofu verði lækkað.
Yfirdráttur f
banka 13
milljónir
Áfram veitt
sama grunn-
þjónusta