Morgunblaðið - 06.10.1996, Síða 15

Morgunblaðið - 06.10.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1996 B 15 BÖRNIN sniffa gjarnan úr sama pokanum og láta óþverrann ganga á milli sín. Þessir tveir drengir höfðu komið sér fyrir við útganginn á aðaljárnbrautarstöðinni í Búkarest. CEAUSESCU lagði ofuráherslu á eflingu þungaiðnaðar en lítið var hugsað um gæði framleiðslunnar og ekkert um mengun af völdum hennar. Þegar ekið er um fallegar sveitir landsins koma afleiðingarnar oft í Ijós í líki verksmiðjuhverfis og skorsteina, sem spúa eiturgufum út í andrúmsloftið. FORSTÖÐUKONA á munaðarleysingjahæli brosir beiskt er hún sýnir blaðamanni Iímflösku, sem tekin var af heimilislausu barni. Venstre stærsti danski flokkurinn Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. VENSTRE, flokkur Uffe Ellemann- Jensens, fýrrum utanríkisráðherra, er nú stærsti danski stjómmála- flokkurinn samkvæmt skoðana- könnunum og fengju hægriflokk- amir nú meirihluta ef kosið væri. Ellemann-Jensen segir flokkinn hljóta náð fyrir augum kjósenda, því hann þori að hafa skoðanir á hlutunum. Mogens Lykketoft fjár- málaráðherra segir velgengni Venstre hins vegar óskiljanlega, því það eina sem hafi frést af flokknum lengi sé að flokksformaðurinn hafi gómað þjóf með veiðistöng. Samkvæmt skoðanakönnun sem Skoðanakannan- ir sýna hægri meirihluta birtist í Politiken nýtur Venstre stuðnings 31,2 prósenta kjósenda, Jafnaðarmannaflokkurinn 29,4, en íhaldsflokkurinn er aðeins hálf- drættingur á við Venstre með 14,3 prósent. Með stuðningi flokksbrota á hægri vængnum hefðu hægri flokkamir því meirihluta. NiðurstÖðumar em kjaftshögg fyrir Jafnaðarmannaflokkinn og Poul Nymp Rasmussen forsætis- ráðherra, sem nýlokið hefur flokks- þingi er taka þóttist með afbrigðum vel. Venstre hélt flokksþing um helgina, en þrátt fyrir örvandi skoð- anakönnun vekur það þó áhyggjur að flokkurinn er einangraður á hægri vængnum og stöðugur kurr er milli hans og íhaldsflokks Hans Engells. Fylgisaukningin er því gleðileg fyrir Venstre, en er ekki ótvíræð vísbending um að Elle- mann-Jensen stefni hraðbyri í stól forsætisráðherra, enda tvö ár í næstu kosningar. mn Vandaðargjafavörurágóðu verði. Kynntu þér verð og vöraúrval áður en þú heldur að heiman. Saga Boutique bæklingurinn liggur frammi á söluskrif stofum Flugleiða og á ferðaskrifstofunum. FLUGLEIDIR Traustur tslenskur ferðafélagí

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.