Morgunblaðið - 06.10.1996, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1996 B 31
ÓLAFUR Tómasson, póst- og símamáiastjóri, (t.v.) þakkar Sig-
urði H. Þorsteinssyni gjöfina.
Úrklippusafn afhent
Pósti og síma
SIGURÐUR H. Þorsteinsson af-
henti 24. september sl. Pósti og
síma úrklippusafn með blaða-
greinum sem hann hefur skrifað
frá árinu 1964 til dagsins í dag.
Safnið er í 14 bindum. Sigurður
afhenti Ólafi Tómassyni póst- og
símamálastjóra safnið og fól hann
Þorgeiri K. Þorgeirssyni, fram-
kvæmdastjóra og formanni safna-
nefndar stofnunarinnar, að færa
það bókasafni Pósts og síma til
varðveislu.
í safninu eru frímerkjaþættir
og aðrar greinar sem Sigurður
hefur skrifað í ýmis blöð og tíma-
rit. Fyrstu greinarnar eru úr Vísi
og Dagblaðinu en einnig eru
greinar úr Lesbók Morgunblaðs-
ins, Tímanum, barnablaðinu Æsk-
unni og ýmsum erlendum blöðum.
Greinar Sigurðar eru bæði um
frímerki og frímerkjasögu,
kennsluefni fyrir byrjendur og
lengra komna, og saga félaga-
starfsemi er rakin. Greint er frá
flestum stærri frímerkjasýning-
um erlendis, bæði norrænum og
alþjóðlegum. Auk þess eru í safn-
inu nokkrir fyrirlestrar sem Sig-
urður hefur flutt í útvarpi auk
smásagna og ljóða.
Hluti af úrklippunum eru
greinar sem aðrir hafa skrifað
um Sigurð og störf hans á sviði
frímerkjasöfnunar og greint er
frá viðurkenningum og verðlaun-
um sem hann hefur hlotið.
Skóútsala 40-80% afsláttur.
Asics íþróttaskór á frábæru
kynningatilboði
SKOSTOFAN OSSUR
HVERFISGÖTU 105, 105 REYKJAVÍK
SÍMl 562 6353
í V*
RAÐAUGIYSINGAR
íbúð - hestar
4ra til 5 herb. íbúð á Reykjavíkursvæðinu
óskast til kaups.
Útborgun yrði í formi hrossa.
Tilboð sendist til afgreiðslu Mbl., merkt:
„H - 4350“, fyrir 12. október.
Sjálfstæðisfélag Seltirn-
inga
heldur almennan félagsfund þriðjudaginn 8. október nk. kl. 20.30
að Austurströnd 3. Fundarefni: Undirbúningur fjárhagsáætlunar
Seltjarnarnesbæjar 1997. Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri og Jón
Hákon Magnússon formaður fjárhagsnefndar hafa framsögu og
svara fyrirspurnum.
Fjölmennum á fyrst fund vetrarins og tökum með okkur gesti.
Stjórnin.
Fyrir félagasamtök
Til kaups óskast húsnæði 250-300 fm.
Þarf að geta rúmað samkomusal ásamt skrif-
stofuaðstöðu. Aðeins húsnæði með lyftu eða
á jarðhæð, miðsvæðis í borginni, kemur til
greina. Góðar greiðslur í boði.
Vagn Jónsson ehf.,
sími 561 4433.
3ja-4ra herb. íbúð óskast
Reglusöm og heiðarleg hjón með eitt barn
óska eftir 3ja eða 4ra herb. íbúð til leigu á
svæði 101, 107, 104 eða 105 Reykjavík.
Upplýsingar í síma 553 7765.
Sumarbústaðurtil sölu
50 fm ásamt 11 fm áhaldahúsi í Vaðneslandi
í Grímsnesi til sölu. Landið er 1,4 ha að
stærð. Hitaveita og rafmagn. Einnig er heitur
pottur. Stór verönd. Veiði í Hvítá.
Áhugasamir sendi svör til afgreiðslu Mbl.
fyrir 15. október, merkt: „Þ - 849“.
V
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
FÉ LAGSSTARF
SAMHANI) IJNC.KA
SIÁLFS TÆDISMANNA
Jöfnun atkvæðisréttar
Samband ungra sjálfstæðismanna heldur fund á Grand Hótel Reykja-
vík við Sigtún þriðjudaginn 8. október kl. 17.30-19.00.
Ræddar verða nýjar hugmyndir nefndar SUS um jöfnun vægis at-
kvæða og breytta kjördæmaskipan. Dagskrá auglýst þriðjudag.
Allir velkomnir.
Samband ungra sjálfstæöismanna.
Húsnæði - Gautaborg
Lítil íbúð á góðum stað til leigu í Gautaborg,
Svíþjóð frá 3. okt. til 31. okt. '96.
Upplýsingar gefa Björg og Jens í síma
562 9010 á skrifstofutíma.
Lagerhúsnæði óskast
Óskað er eftir lagerhúsnæði, 40-60 fm, með
innkeyrsludyrum, í austurborginni.
Upplýsingar í síma 562 1370.
Brautarholt 8 - til leigu
Tvö skrifstofuherbergi til leigu á 2. hæð.
Upplýsingar í síma 562 1370.
Á besta stað í bænum
er til leigu aðstaða fyrir skyndibitastað með
áherslu á brauðrétti og salöt.
Fyrirspurnir sendist til afgr. Mbl., merktar: „Á
besta stað í bænum -15308“, fyrir 12. okt. nk.
Til leiguer 117fm
húsnæði á 2. hæð í Iðnbúð, Garðabæ.
Hentar t.d. fyrir teiknistofur, skrifstofur o.þ.h.
Leigist innréttað að ósk leigjenda.
Lysthafendur leggi inn nafn og símanúmer
á afgreiðslu Mbl., merkt: „I - 18155“.
Til leigu
Til leigu að Hringbraut 121 (JL húsinu) u.þ.b.
1300 fm skrifstofuhúsnæði þar sem verið
hefur Siglingamálastofnun ríkisins.
Húsnæðið verður laust fljótlega.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Húsið fasteignasala, Suðurlandsbraut 50,
(bláu húsin við Faxafen),
símar 533 4300 og 568 4070.
Skrifstofuhúsnæði -
skrifstofuaðstaða
Höfum til leigu mjög gott skrifstofuhúsnæði
sem er allt að 130 fm með 3-5 skrifstofuher-
bergjum ásamt tilheyrandi aðstöðu.
Húsnæðið getur leigst í hlutum eða sem
heil sjálfstæð eining. Möguleiki er á að tengj-
ast skrifstofuþjónustu okkar svo sem sím-
svörun, ritvinnslu o.þ.h.
Húsnæðið er t.d. sérlega hentugt fyrir endur-
skoðendur, ráðgjafa eða lögmenn.
Umsóknir sendist okkur fyrir 10. október nk.
STOÐ^
ENDURSKOÐUN HF.
Lynghálsi 9,
pósthólf 10095,
130 Reykjavík.